Morgunblaðið - 27.11.1966, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 27.11.1966, Blaðsíða 23
f Sunnudagar 2Í7. nóv. 1966 MORCU N BLAÐIÐ 23 Ingveldur Einarsdóttir f. 10. ágúst 1889 — d. 19. nóv. ’68 Ingólfur Olafsson f. 24. marz 1921 • ÞAÐ skeður ekki oft nú á tím- um, að engill dauðans höggvi í knérum sömu fjölskylduna tvisv ar með svo litlu millibili, að tveir heimilismenn liggi á lik- börum samtímis og séu lagðir í sömu gröf. Þó að slíkt kæmi alloft fyrir hér á landi, á öldum áður, þegar farsóttir herjuðu þjóðina. — En þetta reiðarslag hefur nú dunið yfir fjölskylduna á Laugavegi 49, því að þar dó húsmóðirin, frú Ingveldur Ein- arsdóttir þann 19. þ.m., en Ing- ólfur sonur hennar hafði þá dáið tveim dögum áður. — Jarðarför þeirra mæðginanna fer fram frá Fríkirkjunni á morgun, og verða þau lögð í sömu gröf. Þeirra skal nú minnst að nokkru hér á eftir: • Erú Ingveldur var fædd í Ar- bæ í Ölfusi. Foreldrar hennar Voru, Einar Hannesson bóndi í Árbæ og kona hans Vilborg Ólafsdóttir ljósmóðir. En þessi hjón áttu til merkra bændaætta að telja, sem setið hafa jarðir sínar með miklum sóma síðustu aldir, og nokkur grein gjörð fyrir þeim. Faðir Einars var Hannes bóndi í Bakkárholti, sem var giftur Ingveldi Jónsdóttur frá Bakkarholti, en faðir hennar var Jón Þórðarson, sem einnig var bóndi í Bakkárhol'ti, en kona háns var Ingibjörg Sæfinnsdóttir írá Helli í Ölfusi. — Faðir Hann- esar í Bakkárholti var Hannes bóndi á Hivoli, sem var gifbur Bteinunni Eyjólfsdóttur á Krögg- ólfsstöðum, en Hannes á Hvoli var sonur .hins merka manns, Hannesar Jónssonar lögréttu- manns í Kaldaðarnesi, og er hann ættfaðir margra merkra tnanna, enda má rekja framættir hans til höfðingjaætta miðald- »nna og allt fram í landnám. Móðuraii frú Ingveldar var Clafur bóndi í Árbæ í ölfusi Torfasonar, sem var giftur IMargréti Þorleifsdóttur frá Helli i Ölfusi, en Þorleifur var Sæfinns Eon. — Torfi faðir Ólafs var Jónsson og bjó einnig í Árbæ og var kona hans Vilborg Þór- oddsdóttir frá Dalseli undir Eyja fjöllum. — Þessi ætt er kennd við Árbæ, og telur hún margt hygginna manna og dugmikilla. — Af framanskráðri ættarskrá iná hiklaust álykta, að sterkir stofnar standa að því mæta fólki, eem hér um ræðir. ’ Frú Ingveldur ólst upp með foreldrum sínum í Árbæ, en þau dóu frá sjö börnum, sem komust til fullorðinsára, og var Ingveld- ur þriðja elzt í röðinni. Öll urðu þau börnin myndarlegasta fólk, sem ber með sér kjarna frá góð- lim fbrfeðrum. Þegar Ingveldur var 7 ára gömul, skall yfir hinn mikli jarð skjálfti sumarið 1896, þegar hrundu mörg hundruð bæir og útihús á Suðurlandsundirlendinu, •vo að engar vistarverur voru uppistandandi fyrir mannfólkið. Þá var það að góðir menn geng- ust fyrir því, að sækja á annað d. 17. nóv. ’66 hundrað börn austur og koma þeim í fóstur hjá efnaðri borg- uirum í Reykjavík, meðan húsin væru byggð upp. Eitt þessara barna var Ingveldur, og dvaldi hún þá hjá frú Rannveigu konu Eyþórs kaupmanns Felixsonar afa Ásgeirs forseta. Þar leið henni svo vel, að með henni og frú Rannveigu tengdust þau vin- áttu og tryggðabönd, sem aldrei slakknaði á, meðan báðar lifðu, og lét Ingveldur einn sona sinna (Ragnar) heita í höfuðið á frú Rannveigu. Þegar svo Ingveldur var orðin fullvaxta fluttist hún til -Reykja- víkur, í vist hjá þeim gæðahjón- um; Jóni Magnússyni fiskimats- manni og frú Ingibjörgu ísaks- dóbtur á Lindarbrekku, og hafði þá með sér yngsta bróður sinn, í skjóli sínu. í þessari vist leið henni svo vel, að hún minntist ávallt þeirra húsbænda sinna með mesta hlýhug og þalkklæti. Þann 20. maí 1916 gekk Ing- veldur í hjónaband með unnusta sínum, ólafi Einarssyni frá Grímslæk og höfðu þau því á þessu ári verið í hamingjusömu hjónabandi í 50 ár. — Þau hjónin hafa haft mikið barnalán og eign ast 10 börn, sem öll hafa komizt upp og er myndarfól'k og mann- kostum prýtt, sem án efa er arfur frá göfugum forfeðrum béggja foreldra. — Þá skulu börn þeirra talin: Sigrún verzl unarmær; Einar Eggert sjómað- ur; Vilborg verzlunarmær; Ing- ólfur, sem nú er nýlátinn, fyrst- ur systkina sinna, og nánar getur hér á eftir; Gunnar deildarstjóri giftur Elisebeth Maríu f. Liebe; Ragnar kaupmaður, eigandi Mat vörumiðstöðvarinnar á Lauga læk 5; Anna María, gift Guð mundi Sigurjónssyni húsasmið; Ólafur Kjartan giftur Ingibjörgu Gísladóttur. Þau eru búsett í Þýzkaíandi; Ágústa, gift Haraldi Sigurjónssyni sjómanni, og yngst ur þeirra Jón Abraham lögfræð ingur, kvæntur Sigríði Þorsteins dóttur. Auk þess ólu þau upp elzta barnabarn sitt, dótturdótt urina Jóhönnu. — Alls eru barna börn þeirra 16. Það er mikið dagsvehk, sem þessi hjón hafa innt af höndum, og það segir sig sjálft, að oft hlýtur efnahagurinn að hafa ver ið erfiður með allan barnahóp inn, en allt blessaðist það, án aðstoðar annarra. — Frú Ing- veldur helgaði sig uppeldi barna sinna og stjórn heimilisins, og má með sanni segja, að heim- ilið var hennar helgidómur. — Hún var gædd miklu sálarþreki og ráðdeild. Að ytri ásýndum var hún fyrirmannleg kona og prúð í allri framkomu. Með henni bjó þroski og forsjál var hún um alla hluti. Þau Ingveldur og ólafur voru samhent, og báru gagnkvæma virðingu hvort fyrir öðru. Ingólfur heitinn ólafsson verzl unarmaður var fæddur 24. marz 1921. Hann hóf verzlunarstörf ungur, og þótti lipur maður í sínu starfi og kom sér vel hjá öllum mönnum, enda góðviljaður dugnaðarmaður, eins og hann átti ætt til. Hann dó á sama sjúkrahúsi og móðir hans 17. nóv. eftir stutta sjúkdómslegu. Hann var giftur frú Guðlaugu Huldu Guðlaugsdóttir frá Snældu beinsstöðum í Reykholtsdal, þar sem foreldrar hennar bjuggu, en þau dóu ung. Var hún þá tekin í fóstur af móðurbróður sínum Jóni ívarssyni fyrrv. alþ.m. og kaupfélagsstjóra og konu hans, frú Guðríði Jónsdóttur. Þau eign hans djúpt, dýpra en við höfð- um áður hugsað. Fyrst og fremst vegna þess, að við höfðum í leyndum hjartans vonað svo .heitt, að Bjarni næði heilsu, að hugsunin blátt áfram reis önd- verð þeirri bláköldu og misk- unnarlausu staðreynd að .hann væri horfinn okkur yfir móð- una miklu, sem skilur á milli lífs og dauða'. En svo er það líka svo ríkt í hug þess, sem hefur heilsu og er ungur, að lifa og gleðjast yfir líðandi stund, að hugsunin um dauðann er bannfærð og rek in út í yztu myrkur. — Og svo stöndum við hérna orðvana og hryggir hafandi misst vin og fé- laga, þegar við erum að hefja gönguna inn til manndómsár- anna. Við erum vini, góðum vini fá- tækari, en ríkir af ljúfum minn- ingum, fyrir það erum við þakk látir við vegaskilin. Við minnumst bjartra daga, er við hófum fyrstu gönguna eftir menntaveginum. Það var ekki hátt á okkur risið daginn þann, er dyr barnaskólans opnuðust okkur í fyrsta sinn. Síðar lágu leiðir saman um bekk þess skóla og gagnfræðaskólans. Við erum orðnir hagavanir í þeipi .stofn- uðust 5 börn. — Ég votta að- standendum Ingólfs innilegustu samúð mína. Áður en ég enda þessi minn- ingarorð mín, vil ég votta öllum ættmönnum mæðginanna mína dýpstu samúð í hinni miklu sorg þeirra, og bið góðan guð að senda þeim huggun með engl um sínum, svo að þeir megi öðl ast vissuna um framhaldslífið, því að hér er aðeins um vista- skipti að ræða. — Gæzkuríki guð gefðu þeim styrk í sorginni. Oscar Clausen. fyrn: solu, Bjarni veiktist, hann komst aftur til heilsu, en veik- indin skildu ekki við hann. Bjarni glímdi við alvöru lífs og dauða, og enginn heyr þá glímu að hún marki ekki sín djúpu spor. Við stöndum sem fyrir utan og biðum milli vonar og ótta þess sem verða vildi, undruðumst og dáðum það þrek, þá stillingu og ró, sem Bjarni átti allt til enda. Enginn getur ósnortinn horft á slíkan hildar- leik, að sú bæn og ósk fæðist, ekki, að mega einnig ögðl&st þessa sömu gjöf, rósemi og styrk, sem Bjarni átti, þegar okkar eigin endaglíma verður háð. Og svo kveðjum við kæran vin og þökkum honum samverustundir, bernsku og æsku og þær minn- ingar, sem hann lætur okkur eft ir og það fordæmi, sem hann gaf allt til enda. Við færum foreldrum og systk inum Bjarna okkar dýpstu sam úðarkveðjur í sárri sorg. Þar er huggun harmi gegn að geta kvatt ástvin með flekklausan skjöld. Við biðjum Guð allrar hugg unar að hugga ykkur, ástvini alla, og blessa ykkur minning- ar um elskaðan son. Farðu heill vinur. Við sjáumst síðar. Æskuvinir. Kristinn Stefánsson Bergþórugötu 33 VINARKVEÐJA. F. 26. 1. 1897. D. 20. 11. 1966. Ég sakna þín vinur og sé nú að skuggarnir rikja og sólskin liðinna diaga er horfið úr bænum. Mér finnst sem skammdegis- myrkrin vilji ekki víkja og vorið sé dáið og grátrödd í héluðum blænurn. Og himinninn grætur, og húmið mig vefur í fangL En hugur minn reikar um fornar og kunnugar slóðir, Þar rek ég spor þiín. Og enn sé ég okkur á gangþ með óskir á Vörum. Þú varst mér sem faðir og bróðin. Því hvar sem hönd þín og hugur fann þörf til að stýðjia var hjálpað og verndað. Þar vakti þín sterkasta þráin. Ef vissir þú böl, þá veit ég að ei iþurfti að biðja, þá varst þú sem engill. Ég skil ekki, að nú sértu dáinnv, Ég itrúi. Og svo veit ég, þú vakir, í ljósanna heimL vakir og starfar. Og Guð vekur sumarið aiftur. Þótt dagarnir líði, þér aldrei um eilífð ég gleymi því elskan er sterkari en dauðinn.og myrkranna kraftur. S.Á. Bjarni Bjarnason Minning Fæddur: 20. nóvember 1946. Dáinn: 19. ágúst 1966. ÞAÐ kom engum allsendis á ó- vart, sem til þekkti, er andláts- fregnin barst hingað til Eyja, að Bjarni Bjarnason væri látinn á Landsspítalanum í Reykjavík. En því skal ekki reynt að leyna að sú fregn snart okkur æskuvini unum og bernskufeimnin farin af okkur. Bjarni var alltaf hinn bjarti og ljúfi félagi, hógvær í glensi og þó geislaði af honum gleði í glaðra hópi. Síðar skildi leiðir og hver tók til við dagleg störf. Við vissum, að Bjarni mundi halda sitt strik sem fyrr. Við hvað sem hann fékkst var hann ötull og sama sanna prúð mennið og góði, glaði og hjálp- sami drengurinn. En svo dró ský Rannssóknarlögreglumennirnir, sem upplýstu lýstu þjófnaðinn á fáeinum klukkutímum. — Fyrir framan þá eru skartgripirnir, að verðmæti um 1 milljón kr. Sfér afsláttarsala ú úrum og skartgrípum sem urðu fyrir lítilsháttar hnjaski vegna innbrots, verður næstu daga. — 1 árs ábyrgð fylgir öllum úrum. Helgi Sigurðsson úrsmiður Skólavörðu stíg 3.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.