Morgunblaðið - 27.11.1966, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.11.1966, Blaðsíða 32
Helmingi útbreiddara en nQkkurt annað íslenzkt blað Lang stærsta og fjölbreyttasta blað landsins 173. tbl. — Sunmidagur 27. nóvember 1966 Hlaup í Skaftá MBL. hafði í gær fregnir af því að hlaup væri kom- ið í Skaftá. Samkvæmt upplýsingum Veðurstof- unnar fékk hún tilkynn- &ngu frá Kirkjubæjar klaustri kl. 2 að hlaup væri í ánni, og legði mikla fýlu upp úr henni. Eins lagði talsverða fýlu úr Hverfis- fljóti. Blaðið átti í gær tal við Skaftárdal í Skaftártungu og fékk þar þær upplýsingar að hlaup væri í ánni. — Það er vond lykt hérna núna, sagði frúin í Skaftár- dal. — Hlaupið kom í nótt, bætti hún við, og það er allt- af að vaxa. Við urðum fyrst vör við það í birtingu í morg un. Er blaðið spurði hana hvert tjón gæti af þessu hlotizt svar aði hún, að það gæti eyðilagt veginn vestast í Eldhrauninu, en þar væri veginum jafnan hættast. Annars sagði hún að a fyrsta sólarhring væri alla jafna lítið um hlaupið að segja, en það gæti sem kunn ugt er staðið í marga daga. I gær kl. 16 var hlaupið enn vaxandi. Guðnmndur Kjartansson jarðfræðingur hafði einnig samband við Skaftárdal, og tjáði hann blaðinu, að lilaup- ið í ánni væri nú tæplega orð ið eins mikið og í síðustu hlaupum. Síðasta hlaupið í ánni varð 1964 og næstsíðast 1955, en í bæði þessi skipti komu fram sig langt inn í jöklinum norðvestur af Gríms vötnum. Vetrarmorgun við Tjörnina. (Ljósm. MbL Ó1.K.M.); Lýst ef tir vitnum 22. þ.m. var ekið á bláa Skoda- fólksbifreið á Grettisgötu rétt vestan við Snorrabraut milli kl. 13.30—14.30. Eru þeir sem kynnu að hafa orðið varir við þetta beðnir að gefa sig fram við rannsóknar- lögregluna. Aðalfundur Fulltrúa- ráðsins annað kvöld AÐALFUNDUB Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykja- víkur verður haldinn í Sjálf- stæðishúsinu kl. 20.30 á morgun, mánudagskvöld 28. nóvember. Auk venjulegra aðalfundar- starfa fer fram kosning fulltrúa í kjörnefnd vegna komandi Al- þingiskosninga. Á fundinum mun Jóhann Haf- stein, dómsmálaráðherra flytja erindi, sem nefnist „Forystu- hlutverk viðreisnarstjórnar. — Löggjöf og framkvæmdir“. Með- limir fulltrúaráðsins eru hvattir til að fjölsækja fundinn og minntir á að sýna þarf skírteini við innganginn. Tilraunastöö fyrir vatnsvirkjanir í byggingu í Keid nahofti Visir oð almennri vatnatilraunastöð RAFORKUMALASTJORIN er að koma upp fyrsta vísi að vatna- og straumfræðitilrauna- stöð í Keldnaholti, og er þegar hafin bygging á húsi undir vatnsvirkjunartilraunastöð, sem á að verða tilbúin á næsta ári. Er þetta liður í aðstoð, sem sérstak- ur sjóður Sameinuðu þjóðanna hefur veitt til rannsókna á ám hér. Verður nú reist bygging, ekki stór, í námunda við þann stað þar sem Tilraunastöð bygg- ingariðnaðarins á að standa, og tækjum komið fyrir í henni, svo hægt verði að gera tilraunir með líkön af vatnsvirkjunum. Mbl. leitaði upplýsinga um þetta hjá Jakobi Gíslasyni, raf- orkumálastjóra. Hann sagði, að einn liðurinn í styrk, sem sér- stakur sjóður Sameinuðu þjóð- anna hefði veitt m.a. til rann- sókna á Hvítá og Þjórsá og öll- um hliðarám þeirra, hefði verið aðstoð við að koma hér upp byrjun að fræðilegri tilrauna- stöð, sem m.a. gæti gert ísatil- raunir, sem að gagni mættu koma við áætlunargerð ánna. En um leið væri þetta vísir að almennri vatna- og straumfræði tilraunastöð, sem gæti vaxið með tímanum eftir því sem verkefni bjóðast. Jakob tók þó fram að stórfelldar tilraunir á borð við þær sem gerðar voru í Þrándheimi vegna Búrfells- virkjunarinnar yrðu alltaf gerð- ar í stærri tilraunastöðvum er- lendis, en hins vegar gæti þá far ið fram hér heima viss undir- búningur undir tilraunirnar er- lendis. Þetta mundi verða var- anlegur þáttur í vatnsvirkjunar- Framhald á bls. 31 Formannaráðstefna Sjálfstæðisflokksins hófst í Sjálfstæðishúsinu kl. 9 í gærmorgun og var hún sett af formanni flokksins, B’jarna Benediktssyni, forsætisráðherra. Var ætlað áð ráðstefn an stæði fram eftir degi. Mikið fjölmenni sótti ráðstefnuna og miklar umræður urðu um skipu— mál flokksins, stjórnmálaástandið í landinu og félagsstarf flokksins, stjórnmálaástandið í land- inu og félagsstarf flokksfélaganna. Stórfellt svikamá! í uppslgSingu ? TVEIR lögreglumenn og endur skoðandi frá dönsku rannsóknar lögreglunni eru staddir í Reykja vík um þessar mundir til þess að rannsaka og athuga í sam- vinnu við íslenzku rannsóknar lögreglunna viðskiptasambönd dansks forstjóra við hérlenda aðila, Daninn er grunaður um að hafa kveikt sjálfur í fyrirtæki sínu, Hovedstadens Möbelfabrik, í því skyni að eyðileggja bækur um bókhaldið, vegna mikills fjárdráttar. Slökkviliðinu danska tókst á hinn bóginn að ná bók haldinu að mestu óskemmdu og var maðurinn settur í varðhald. Magnús Eggertsson, varðstjóri hjá rannsóknarlögreglunni hefur aðstoðað Inna dönsku lögreglu menn við rannsókn málsins, sam- fara því sem hann hefur rann- sakað hvort um lögbrot er að ræða af hálfu hinna íslenzku aðila, varðandi innflutning á vörum frá fyrrgreindu fyrir- tæki. Er rannsóknin mjög viða- mikil, og mun vart ljúka fyrr en einhvern tima í næstu viku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.