Morgunblaðið - 27.11.1966, Blaðsíða 31
Sunnu&agur 27. n6v. 1966
MORGUNBLAÐIO
31
Ítalía:
O
l«ða veA*
fall
Róm, 26. nóv. — NTB.
TVÆR milljiónir landtoúnaðar
verkamanna á Ítalíu haía á-
kveðið að fara í verkfiall 9.
desemáber til þess að mótmœla
því, sem þeir nefna „ónógar
ráðstafanir yfirvalda til að
koma í veg fyrir hörmuingar
af völdum flóða“.
Það eru kommúnistar, sem
mestu ráða í ítalska verka-
sambandinu, en samtök land-
búnaðarverkamanna eiga að
því aðild. e
Vertkfall það, sem boðað
I hiefur veri’ð, mun aðeins
I standa í einn dag.
Flóð þau, sem urðu fyrr í
1 mánuðinum á Ítalíu, stöðv-
I uðu landbúnaðarframleiðíslu á
I stórum svæðum, einkum þó í
mið- og norðurbluta landsins.
„Hver er sá
kari karla?“
Prófessor Þórlhallur Vilmundar-
son flytur þriðja fyrirlestur sinn
í Hátíðasal Háskóians kl. 20.30 í
dag. Nefnist hann „Hver er sá
karl karla?“ Öllum er heimill að
igangur.
Ekið á kyrrstæða
• bifreið.
EKIÐ var á rauða Volkswagen-
bifreið á móts við Hverfisgötu
104, og vinstra frambrettið dæld-
að mikið. Gerðisit þetta einhvern
tíma milli kil. 22 í fyrrakvöld og
8 í morgun. Eru þeir sem kynnu
að geta gefíð einhverjar upplýs-
íngar um atburð þennan beðnir
að snúa sór til rannsóknarlög-
neglunnar.
Ekið á Konu
I FYRRAKVÖLD var ekið á
konu á gatnamótum Strandgötu
og Reykjavíkiurivegar. Var kon-
an flutt í SlysavarðstOifuna, og
talið að um fótbrot væri að ræða,
Fræðslusam-
koma Nátfúru-
fræðifélagsins
HIÐ felenzka náttúrufræðifélag
Iheldur fræðslusamkomu í fyrstu
kennslustofu Háskólans næst-
ikomandi mánudagskvöM kl.
20.30. Þá flytur dr. Guðmundur
Sigvaldason, jaröfræ'ðingur er-
indi um álhrif vatns á gerð gios-
efna.
BÍI veltur í
Kópavogi
' LAUST fyrir kl. 1 i gær varð
það slys á Fífuhvammsvegi, að
bifreið fór út af veginum og velt.
Bifreiðin, sem er Volkswag-
en, átti skammt ófarið að
Hafnafjarðavegi, er ökumaður-
inn missti stjórn á bifreiðinni
með þeim afleiðingum að hún
fór út af veginum og valt. Öku-
maðurinn mun hafa slasast, en
ekki tókst Mbl. að afla sér upp-
lýsinga um, hve meðsli hans éru
alvarleg.
BAZAR
ÞAU leiðu mistök urðu í Dag-
bók í gær, að sagt var að Bazar
Kvenskátafélagsins yrði hald-
jnn kl. 20:30. í kvöld. Hann verð-
ur haldin'0 kL 2:30 í Skátaheim-
ilinu.
Hér sézt Bára Magnúsdóttir ásamt tveimur stúlkum úr jazz-
balletflokknum, sem skemmta mun á fullveldisfagnaði Stúd-
entafélags Reykjavíkur. Myndin var tekin á æfingu á föstudags-
kvöid. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.).
Fullveldisfagnað-
uer 30. nóvember
STÚDENTAFÉLAG Reykjavík-
ur mun gangast fyrir fullveldis-
fagnaði að kvöldi miðvikudags-
ins 30. nóvember, og verður vel
til fagnaðarins vándað.
Fullveldisfagna'ðurinn verður
að þessu sinni haldinn í Súlna-
sal Hótel Sögu, og hefst með
íborðthaldi kl. 19:30 stundvúslega.
Húsið verður opið frá kl. 19.
Meðal skemmtiatriða á fuR-
veldisfagnaðinum má nefna
ræðu, sem Barði Friðriksson,
hdl., m.un halda. Þá syngur
Stúdentakórinn undir stjórn
Jóns Þórarinssonar og jazzball-
ettflokkur Báru Magnúsdpttur
sýnir. Hinn land'skunni Ómar
Ragnarsson mun einnig sjá til
þess, að slkap manna verði sem
ibezt verður á kosið. Að lokum
verðiur stiginn dans til kl. 2 eftir
miðnætti.
A'ðigöngumiðar verða á Hótel
— Tilraunastöð
Framhald af bls. 32.
rannsóknum hér.
Auk þess er svo hægt að gera
í slíkri vatnatilraunastöð fleira
en vatnvirkjunartilraunir og
hafa ýmsir aðrir aðilar áhuga a
þessu. T.d. í sambandi við veiði
í ferskvötnúm. Og eftir að til-
raunastöðin stækkar, má reyna
þar líkön af skipum og bátum
og einnig er hægt að gera hana
svo úr garði að reyna megi þar
veiðarfæri í tilraunaskyni.
Byrjað var á fyrstu byggingu
tilraunastöðvarinnar í haust og
á hún að verða tilbúin á næsta
ári.
NPD ansiall
en nazlstar
Hannover, 25. nóv. — NTB
ADOLF von Thiadden, yarafor-
rnaðiur hins hægri sinnaða öfga-
flokks í Vestur-Þýzkalandi,
Þjóðernissinnaða lýðræðisflofcks-
ins NDP, lýs'ti því yfir í gær,
að hin mikla og athyglisiverða
fylgisaukning flokksins í sam-
handsríkjunum Hessen og Baj-
aralandi í kosningunum fyrr í
þessum mánuði, þýddi þa!ð ekki,
að nein nazistahreyfing væri
endurvakin í sambandslýðveld-
inu.
Ókyrrðin erlendis vegna fylg-
isaukningar þjóðernissinna var
ekki NPD að kenna, sagði von
Thadden, en hann er af mörg-
um talinn hinn „sterki maður“
flokksins. Sjálfur var hann á-
kveðinn nazisti á sánum tíma
eins og svo rnargir af frems.tu
mönnum flokksins.
Sögu (anddyri Súlnasals) á
mánudag kl. 5—7 e.h. og á þriðju
dag kl. 6—8 e.h. Borðapantanir
verða á sama stað og tíma. —
Fari svo ólíklega, að eitthvað
af miðum verði eftir, fást þeir
við innganginn.
Að kvöldi 1. desember mim
Stúdentafélagið eins og svo oft
áður sjiá um dagskrá í Ríkisút-
varpinu. Verður ræðumaður
kvöldsins að þessu sinni Þór Vil-
hjálmsson, borgardiómari.
(Frá Stúdentafélagi
Reykjavilkur).
Óveour á
síldarmiðunum
VONSKU veður var á síldar-
miðunum í fyrrinótt og í gær,
og því landlega hjá bátunum.
Lágu t. d. um 30—40 bátar í
höfninni á Neskaupstað. Urðu
þeir um nóttina að losa festar
og sigla út í fjörðinn vegna
óveðursins.
Verkfsil fil
verndar kúriuni
Nýju Delhi, 25. nóv. (AP)
UM þriðjungur allra verzana í
Nýju Delhi, höfuð'borg Indlands,
voru lokaðar í dag vegna alls-
herjarverkfalls, sem Hindúar
höfðu boðað til að mótmæla á-
framhaMandi kúaslátrun, en
kýrnar eru heilög dýr í þeirra
augum.
Öflugur lögregluvörður var
kvaddur út til að koma í veg
fyrir að Hindúar beittu kaup-
menn valdi til að knýja þá til
verkfalls.
I gamla hluta borgarinnar voru
flestar verzlanir lokaðar, nema
við aðalgöturnar, þar sem lög-
reglan hét kaupmönnum vernd,
ef þeir héldu verzlununum opn
um.
í smærri borgum Indlands,
eins og t.d. Jaipur, höfuðborg
Rajasthan-ríkis, var verkfallið
svo til algjört. Þar fóru Hindúar
í hópgöngu, þrátt fyrir bann lög
reglunnar, til að undirstrika kröf
ur sínar um friðun kúa.
Páfagarði, 25. nóv. — AP.
EINN helzti sérfræðingur Páfa-
garðs í viðgerðum á handritum
skýrði frá því í dag, að flóðin,
sem urðu í Flórenz, hinn 4. nóv.
s.l. hefðu valdið 25 millj. dollara
tjóni á listmunum, sem væru í
eigu kaþólsku kirkjunnar. Sagði
hann, að það myndi taka að
minnsta kosti 15 ár að bæta úr
tjóninu.
SAMKVÆMT frétt frá norsku
frétta-stofunni NTB -hefur Gylfi
Þ. Gíslason, menntamálaráð-
herra, neitað þvá áð bornar verði
fram kröfur af íslands hálfu um
afihendingu íslenzkra handrita
úr norskum söfnum. Ha/fði ráð-
herrann beðið fréttaritara NTB á
íslandi um að koma þessu á fram
færi vegna fréttar í norsku blaði
um að Jónas Kristjánsson, oand.
mag., einn af starfsmönnum
Handritastofnunarinnar, sé í
Noregi til að skrásetja íslenzk
hiandrit. Ætli íslendingar eftir
ihinn hagstæða hæstaréttardóm í
Danmörku að koma með hand-
ritakröfur á hendur Norðmönn-
um. Séu mörg handrit í Noregi,
m.a. hafi Jónas sikráð 90 bandrit
í bókasafni vásindafélagsins í
Þrándheimi.
Eins og fram hefur-komið í ís-
lenzkum fréttum hefur Jónas
vexið að vinna að skrásetningu
íslenzkra handrita í Noregi með
styrk frá UNESCO. Ætlar Hand-
ritast'ofnun íslands að skrásetja
öll íslenzk bandrit sem finnast í
þeim tilgangi að taka af þeim
míkrófilmur og myndir seinna
meir, ef þurfa þykir. En starf
Jónasar stendur ekki í samibandi
við neinar handritakröfur af
hendi íslendinga.
BrenEÍsteinsíýla
á Akureyri
AÐ því er fréttaritari Mbl. á
Akureyri tjáði blaðinu í gær,
urðu menn þar í bæ varir við
það sl. föstudag að talsverða
brennisteinsfýlu lagði yfir bæinn
af og til um daginn. Var veður-
áttin af sunnan og suðvestan.
Ekki er vitað hvar lyktin átti
upptök sín.
Mbl. grennslaðist fyrir um það
á nokkrum nálægum stöðum,
hvort brennisteinsfýlan hefði
fundizt þar, en reyndist svo ekki
vera.
Byggfendur einbýEishúsa
■ Fossvogi stofna félag
LAUGARDAGINN, 19. nóv, var
stofnað félag byggjenda ein-
býlishúsa í Fossvogi, þeirra sem
fengið hafa lóðum úthlutað við
Árland, Bjarmaland, Grundar-
land og Haðaland.
Tilgangur félagsins er að vera
málsvari rétthafa einbýlishúsa-
lóða í Fossvogi og standa fyrir
framkvæmdum, sem hagkvæm-
ara þykir hverju sinni að ráðast
í fyrir lóðarrétthafa sameigin-
lega en fyrir hverja lóð eða ein-
býlishús sérstakléga. Tilgangur
félagsins miðast við sameigin-
lega hagsmuni meðlima í sam-
bandi við undirbúning bygg-
ingáframkvæmda, framkvæmd-
irnar sjálfar og einnig eftir að
hverfið er fullbyggt.
Við úthlutun á lóðum í þessu
hverfi hefur Reykjavíkurborg
farið inn á nýjar brautir, að því
er snertir skipulag hverfisins og
ýms framkvæmdaratriði, sem
ekki hafa tíðkazt hér áður, með-
al annars af þessum sökum, en
ekki síður, til að þess leitast
við að lækka eftir megni bygg-
ingakostnað við húsin, hafa
byggjendur séð fram á nauðsyn
þess, að eiga með sér skipulagt
samstarf innbyrðis og jafnframt
við borgaryfirvöld, til lausnar á
margvíslegum vandamálum sem
við blasa.
Félagsmenn geta orðið allir
þeir sem hafa fengið lóðir fyrir
einbýlishús í þessu nýskipu-
lagða hverfi í Fossvogi.
Heimilt er félaginu að eiga
samstarf við hliðstæð félög, sem
kunna að verða stofnuð utan
félagssvæðisins.
Mikill áhugi hefur verið með-
al húsbyggjenda um stofnun og
verkefni félagsins, og er mikill
meirihluti lóðarhafa, þegar orðn-
ir meðlimir félagsins.
Á fundinum síðastliðinn laug-
ardag var kosin stjórn, og skipa
hana: Jón Aðalsteinn Jónasson,
Sveinn Björnsson, Jóhannes
Einarsson, Kristján Friðriksson
og Sigurbergur Árnason.
Froldafund-
ur í Peking
Peking, 26. nóv. (NTB).
Enn einn fjöldafundur var hald
in á Tienanmen-torginu í Pek-
ing í morgun, og tóku um hálf
milljón manna þátt í fundinum.
Var hann því mun fámennari en
fundurinn í gær þar sem Mao
Tse-tung, leiðtogi kommúnista
var viðstaddur.
Rauðu varðliðarnir og sveitir
úr hernum gengu fylktu liði
inn á torgið í birtingu í morg
un. Útlendingar fengu ekki að-
gang að torginu, meðan fund-
urinn stóð yfir, og þegar leitað
var frétta hjá opinberu upp-
lýsingaþjónustunni fengu frétta
menn þau svör að ekkert væri
um fundinn að segja.
Þetta er fimmti fjöldafund-
urinn í Peking í þessum mánuði,
og sá 10 frá 18 ágúst.
t
Faðir okkar,
SIGURJÓN BJÖRNSSON
fyrrum skipstjóri, Hólavegi 5, Siglufirði,
andaðist í Landakotsspítala 25. nóvember sl.
Börnin.
Hjartkær faðir okkar,
STEINDÓR H. EINARSSON
er lézt 22. nóv. verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
þriðjudaginn 29. nóv. kl. 13,30. — Blóm vinsamlegast
afþökkuð, en þeim, sem.vildu minnast hins látna er bent
á liknarstofnanir.
Börn hins látna.
j ■ ' ■'.