Morgunblaðið - 27.11.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.11.1966, Blaðsíða 5
Sunnudagur 27. nóv. ?966 MORGUNBLAÐIÐ 5 ÚR ÖLLUM ÁTTUM 1 OKTÓBER hófst í Hass- elbyhöll viS Viillingby, 15 km. fyrir utan Stokkhólm, Ustsýning norrænna lista- manna og sýna þar 6 íslenzk ir listamenn. Hásselbyhöll er eign Stokkhólmsborgar, en Norræna listabandalagið stend ur að sýningunni. Á sýning- unni sýna 42 listamenn, mál- arar og myndhöggvarar, og HásselbyhölL Sýning norrænnar nútíma listar í Hasselbyhöll ■pjallað við tvo íslenzka listamenn, sem nýkomnir eru frci dvöl í Svíðjóð sýnir hver listamaður eitt verk eftir sig. Nýlega dvöldust í Hassel- byihöll tveir íslenzkir listmál arar, sem þátt taka í sýning- unni, Benedikt Gunnarsson og Sigurður Sigurðsson og náðum við nýlega af þeirn tali og spurðum þá um dvöl þeirra þar og annað, sem við kemur sýningunni. Benedikt segir okkur, að sýn ingin hafi hafizt hinn 2. okt- óber og sé ætlunin, að hún standi fram í ágúst næsta ár. Listamennirnir, sem taka þátt í sýningunni eru mynd- listamennirnir Nína Tryggva dóttir, Jóhannes Geir Jóns- son og þeir félagar Bene- dikt og Sigurður. Tveir ís- lenzkir myndhöggvarar sýna og Jóhann Eyfells og Jón Benediktsson. Sýningarverkunum er dreift um hina gömlu höll, sem uprunalega var byggð á 17. öld, að því er Sigurður segir, en höllin er gamall herragarður, sem gerður hef ur verið upp í þeim tilgangi að efla norræna samvinnu, og í höllinni eru haldnir fundir í sambandi við hið norræna samstarf. Höfuðborgir Norð- urlanda standa undir kostn- aði við rekstur hallarinnar, sem breytt hefur verið í ný- tízkulegra horf, enda létu þeir félagar mjög vel af dvöl sinni þar syðra. Höllin var vígð árið 1963 til þess að gegna því hlutverki sem hún gegnir nú. — Hvernig málverk sýnið þið á sýningunni? — f>að er fantasíur, segir Benedikt. Bæði málverkin eru olíumálverk, en á sýning unni eru aðallega olíumál- verk svo og svartlistarmynd ir. Sýningin er ákaflega marg breytileg bæði í málverkum og höggmyndum og á henni er mikill nútímablær. Ég er þeirrar skoðunar, segir Bene dikt — að þátttaka íslend- inga í þesari sýningu og öllu þessu starfi, sem þarna er unnið, er mjög mikils virói. Á þennan stað koma þúsund- ir manna, og listamennirnir fá tækifæri til þess að kynn- ast starfsbræðrum sínum á hinum Norðurlöndunum með an á dvöl þeirra stendur. Við dvöldumst þar í um viku- tíma og var allur viðurgern- ingur til sóma. — f höllinni, segir Sigurð- ur — eru og smásalir, sem til einkaðir eru höfuðborgum Norðurlanda. Þar er t.d. einn, sem tileinkaður er Reykjavík urborg og þar hanga mál- verk eftir Kjarval, Ásgrjm, Kristján Davíðsson og fleiri og reynt er að fá íslenzkan blæ á allt það, sem er í saln um. — í einum aðalsal hallar- innar er bókasafn hallarinn- ar. Þar lá á borði gjöf Reykja víkurboagar, Guðbrands- biblía árituð af Geir Hall- grímssyni borgarstjóra og þar er nokkuð gott safn is • lenzkra bóka, segir Benedikt. — Það verður að geta þess — segir Sigurður — að Stokk hóknsborg hefur keypt mál- verk Benedikts fyrir skóla- yfirvöld borgarinnar. — Já, það kom mér nú á óvart að svo skyldi verða . .. segir Benedikt, en Sigurður tekur fram í fyrir honum og segir: — Það finnst mér ekkert skrítið, því að mér leizt vel á myndina. — Eru allar myndir á sýn- ingunni til sölu? — Okkur er nú ekki kunn- ugt um það, segir Benedikt, en myndirnar eru að minsta kosti allar verðlagðar í sýn- ingarskránni, svo að mér finnst það mjög líklegt. Ann ars hefur lítið verið skrifað um sýninguna enn og við höf um ekki séð neina listdóma. Þeir félagar segja okkur nú frá því, að ætlunin sé að víkka mjög út það norræna samstarf, sem þarna fer fram. í nágrenni Hasselbyhallar sé góður íþróttavöllur og sé ráð gert að haldin verði þar nor ræn íþróttakeppni, Aðspurðir um það, hverjir hafi valið listaverk á sýninguna segja þeir félagar, að það hafi ver ið sýningarnefnd Félags ís- lenzkra myndlistarmanna, en það er aðili að Norræna lista bandalaginu. Að lokum segjast þeir fé- lagar vonast til, að áfram- hald verði á þessari starf- semi, og að Reykjavíkur'oorg verði kleift að auka þátt- töku sína í þessu starfi, svo að fleiri listgreinir geti not- ið þess og sent fulltrúa sina. Hér sé í rauninni verkefni fyrir Bandalag íslenzkra iista manna, að skipuleggja ferðir í samráði við Norræna lista- bandalagið. Benedikt Gunnarsson (t.v.) og Sigurður Sigurðsson. Útnesjavaka MIKfLL undirbúningur skemmt- enahalds stendur nú yfir í fé- lagsheimilinu STAPA í Njarð- víkum. Skemmtanir þessar hefj- est 1. desember og verða 4 daga t röð og mjög vel vandað til alls |>ess, er þar fer fram. í fyrra voru slíkar skemmtanir haldnar um sama leyti og er gert ráð (yrir að þetta verði árlegur við- burður í framtíðinni, sem sé nokkur hvíld frá bítla-garginu, 6em þar er nokkuð um hönd haft, en nýtur ekki vinsælda fólks, sem vonlegt er. Félögin, sem að félagsheim- ilinu STAPA standa hafa því lagt í talsverðan kostnað til að gera þessi skemmtikvöld vel úr garði. Meðal annnars hefur ver- ið keypt þangað nýtt hljóðfæri, ílygel af Stainvey-gerð í um- boði Pálmars ísólfssonar og fór Rögnvaldur Sigurjónsson sjálfur út til verksmiðjanna til að velja þann flygel, sem keyptur var, svo ekki þarf að efa að þar hafi í IMjarðvlk verið vel valið, enda er hljóð- færið dýr gripur — hinn bezti. Að kvöldi hins 1. desember verður svo konsertkvöld, þar sem Rögnvaldur Sigurjónsson mun vígja hinn nýja flygil með einleik og einnig korna þar fram óperusöngvararnir Svala Nielsen og Guðmundur Guð- jónsson, sem syngja munu bæði einsöngva og tvísöngva og verð- ur þetta því einstakt tækifæri til að hlusta á þessa ágætu lista- menn og eiga Njarðvíkurfélögin þakkir skildar fyrir að gefa Suðurnesjabúum kost á að hlýða á þessa ágætu listamenn. Á föstudaginn 2. des. verður svo frumsýnt leikritið „Á valdi óttans" undir leikstjórn Helga Skúlasonar. Leikendur eru heimafólk að mestu, undir for- ustu Sævars Helgasonar, leik- ara, auk þess eru nokkrir nýlið- ar frá leikskólunum í Reykja- vík, þeir Pétur Einarsson, Helga Hjörvar, Leifur ívarsson og Kjartan Ragnarsson. — Leikrit þetta er spennandi sakamála- leikrit og þarf ekki að efa góða meðferð þess, þar sem margir snillingar leggja þar hönd að verki. Á laugardag verður svo al- menn skemmtun félaganna, þaur koma fram meðal annars Krist- inn Reyr með ræðustúf, Jón Gunnlaugsson og fleiri. Á sunnu- dag verður svo barnaskemmtun frá kl. 3 til 6, þar sem flutt verð- ur skemmtiefni við barna hæfi og um kvöldið unglingaskemmt- un með þeim hætti, sem bezt verður á kosið. Njarðvíkingar vilja kalla þessa daga „Útnesja vöku“ og hafa í hyggju að halda þessu ár- lega áfram, og er það vel farið, því að skemmtanalíf Suður- nesjanna er fremur snautt orðið og veldur þar ef til vill nálægð höfuðstaðarins. Þessvegna er slíkt framtak félaganna, sem að „Útnesjavökunni“ standa, mjög lofsvert og ekkert hefur verið til sparað að gera „vökuna" sem bezt úr garði með tilkomu hinna ágætustu listamanna á mörgum sviðum. Það er mikið tilhlökk- unarefni að fá að heyra og sjá þau Rögnvald, Svölu og Guð- mund, og væntanlega láta Suð- urnesjamenn þetta tækifæri ekki um greipar renna. „Útnesjavakan" er einnig að leitast við að halda þeirri hefð, sem ekki má glatast. 1. desem- ber er hátíðisdagur og vel sé hverjum sem heldur sóma hans á lofti. —hsj— Rögnvaldur Sigurjónsson við flygilinn, Pálmi ísólfsson og Svala Nielsen. — Ljósm.: Ileim ir Stigsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.