Morgunblaðið - 30.11.1966, Page 15

Morgunblaðið - 30.11.1966, Page 15
Miðvikuclagur 30. nðv. 1966 MORCUNBLAÐIÐ 15 Nói Kristjánsson Minning Fæddur 14. janúar 1894. Dáiinn 21. nóvember 1966. ÞEGAR ég frétti hið sviplega fráfall frænda míns duttu mér fyrst í hug hendingar úr guli- kistu ok'kar Hávamálum, þar sem segir „Deyr fé deyja frænd- ur,“ en orðstír góður sem mað- ur hafi áunnið sér í lífinu lifir endalaust. Enda þótt menn viti að þegar menn eru komnir á þann aldur, sem Nói var, þá hljóti að fara að sty-ttast hérvist þeirra, þessa heims, 'þá bregður manni ónota- lega við þegar máður sem mað- ur hefur rætt við glaðan og kát- an fyrir örfáum dögum er horf- inin yfir landamærin þrátt fyr- ir það að ekkert vitum við með jafnmikiili vissu eins og það að okkar jarðvistarlíf er tímabund- ið og öll hverfum við af sjónar- sviði þessa heims og má segja að ekki skipti þá öllu máli hvort (það eigi að verða deginum fyrr eða seinna, og sízt fyrir þá sem hljóta að eiga jafn gó'ða heim von annars heims sem þessi látni frændi minn. Nói Kristjánsson var fædclur að Voðmúlastöðum í Austur- Landeyjum 14. janúar 1894. Son- ur hjónanna Bóelar ErlencLsdótt- ur frá Hlíðarenda og Kristjáns Jónssonar frá Fljótsdal. Ólst faann upp 1 sárri fátækt, enda systkinahópurinn stór og á þeim tímum voru ekki margir sem ekki þurftu að kvíða því að ef til vill yrði lítið að borða þenn- an eða hinn daginn. En þrátt tfyrir það og ef til vili þess vegna tókst Nóa og að ég held flest- um hans systkinum, að komast í all góð efni, eða að minnsta kosti áð verða vel bjargálna íólk og nýtir þjóðfélagaþegnar. Hinn 16. mai 1920 kvæntist hann Önnnu Ágústsdóttur frá Höskuldarkoti og lifir hún mann sinn. Hafa þau verið hvort öðru Stoð og stytta í láfinu. Þeim varð þriggja barna auðið og eru öll þeirra á lífi, gift og búsett hér í borginni. Þau hjónin hófu fyrst búskap í Vestmannaeyjum og bjuggu þar fyrstu þrjú hjúskaparárin, en síðar fluttu þau til Reykja- víkur og hafa verið búsett þar síðan. Eftir að þau fluttu til Reykja- víkur, setti Nói á stofn sitt eigið fyrirtæki og nefndi það „Örk- ina hans Nóa“. Annaðist það alls konar viðgerðir og nýsmíði, enda maðuriinn dverghagur, auk þess sem hann stundáði samlhliða leigubílaaikstur og mun vera með þeim fyrstu sem hlotið hafa. ökuleyfi. En lengstur varð starfsferill hans hjá Sjúkrasam- lagi Reykjavíkur, þar sem hann vann í fjöldamörg ár eða á með- an starfskraftar hans leyfðu, og undanfarna vetur hefur hann starfað hjlá Vetrarhjálpinni. Ég minniist á það áðan að hann hafi verið dverghagur, en það var ekki einungis á verk- lega sviðinu, heldur einnig því andlega. Ljóð og lög liggja eftir hann í miklu upplagi. Ég vil svo að 'okum með þess- um fátæklegu kveðjuorðum mín um, fyrir mína hönd og fjöl- Skyldu minnar, votta eiginkonu og öðrum ástvinum hins látna okkar dýpstu samúð, og við skulum ekki CTleyma því að í örm um hins almáttuga eru allir bezt geymdir. Jónas Gunnarsson. SONARKVEÐJA Viðlag: Er hafið sig reifar í rö'kkurmjúkt lin ég reika um strætin og hugsa til þín Og spor þín ég reyni að rekja í kvöld við rósilm hins liðna og tónanna völd. Við áttum sumarið saman sumar bernsku minnar. Allt varð undurfagurt ómdýpt sálar þinnar. Bernskuleiðin bjaria Bragar tónaflóði. Allt var hljótt og heilagt helgað söng og ljóði. Við áttum sólskinið saman sólskin þíns föðurhjarta. Allt var yndi vafið óskalandsins bjarta. Glóir gull í sporum. Glitrar blóm í haga. Leiddi ljúfur faðir ljúfling sæludaga. Við áttum söngva saman sæla, blíða og mjúka. Ei varð yndi betra en óm af strengjum strjúka. Finn ég, faðir ljúfi í funa harmsins loga ekki er svölun sælli en seiður strengs og boga. Við sitjum ei framar saman með söng og bæn á vörum. Sárt var einkasyni að sjá þig skjótt á förum. Sé ég systra minna sorg og tár á vanga. Nú er móður minni mótuð hinzta ganga. En við áttum vonir saman vonir frá trúarhæðum, helga himinvissu hjartans ljóss í fræðum. Er geng ég gröf að þinni, gröf minna bernskulanda lít ég tindra í tárum trúljós himinstranda. Krjúpum klökk þar saman. Krjúpum leiði þínu. Hrjúfrast tár að hjarni hlýjust ljóði mínu. Það skal þökkin hinzta þér tjáð, orð ei finnast. Aðeins tár og tónar titra þín að minnast. Viðlag: Er hafið sig reifar í rökkurmjúkt lín ég reika um strætin og hugsa til þin. Og spor þín ég reyni að rekja í kvöld við rósilm hins liðnu og tónanna völd Á. N. Fjallsvalinn angar Á MÁLVERKAUPPBOÐINU ofprentaðist með a í miðviku- dagsblaðinu nafn dýrustu mynd arinnar, Fjallsvalinn angar. í uppboðsskránni er þetta svona rétt, Fjallsvalinn angar. Hin marg- eftirspurðu hollensku r útilfos eru komin aftur GENERAL ELECTRIC eru stærstu og þekktustu raftækjaverk- smiðjur heims. STEIKAROFN með Sjálfvirk BRAUÐRIST tímarofa og grillteini með níu stillingum Sjálfvirkar PÖNNUR með háu loki Sjálfvirkt VÖFFLU- JÁRN, sem einnig má steikja á STRAUJÁRN með og án gufu Kaffikönnur, hárþurrkur dósaopnarar rafmagnshnífar rafmagnsklukkur RYKSUGUR með þremur stillingum á sogkerfi. Geyma í sér snúruna SÖLUSTAÐIR í REYKJAVÍK: Dráttarvélar h.f. Hafnarstræti 23 Heimilistæki s.f. Hafnarstræti 1 Lampinn Laugavegi 68 Rafhabúðin Óðinstorg Rafiðjan h.f. Garðastræti/Vesturgotu H. f. Rafmagn Vesturgötu 10 Rafröst Ingólfsstræti 8 SÖLUSTAÐIR UTAN REYKJAVÍKUR: V. Long Neisti h.f. Hafnarfirði ísafirði Raforka Akureyri Valfell Akranesi Grímur & Árni Húsavík V. V. s. Vík í Mýrdal Electro & Co. Akureyri Virkinn h.f. Bolungarvík Haraldur Eiríksson Vestmannaeyjum ELECTRIC HF. Túngötu 6 Reykjavík Bílastæði fyrir viðskiptavini. GÆÐIIVI TRYGGIR GENERAL ELECTRIC

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.