Morgunblaðið - 10.12.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.12.1966, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 10. des. 1966 15 fíma fastir í skafli með hólstau og d tdmjóum skóm 1 GÆBMORGUN þegar Guð- mundur Jónasson kom með síma viðgerðarmenn að afleggjaran- um af Þingvallavegi að Skála- felli á leið til viðgerða, óku þeir fram á tvo pilta í jeppa, og höfðu þeir setið fastir í skadfli frá því kl. 6 kvöldið áður eða í 15 klukkustundir. Piltarnir kváðust hafa ætlað til Þingvalla, en voru sagnafáir um sínar ferðir, að því er Guð- mundur sagði. Aðspurður um það hvort þeir hafi þá verið al- mennilega búnir, svaraði Guð- mundur að þeir hafi verið með bálstau og á skóm — támjóum. Var farið með piltana niður að Leirvogsvatni og þeim komið i húsaskjól, en bíllinn dreginn nið ur fyrir brúna. Hann fór ekki i gang. Bilanir á símaiínum Sambandslaust við Akureyri í ÓVEÐRINU, sem hefur gengið yfir landið undanfarna sólar- hringa hafa símalínur bilað. Var sambandslaust við Akureyri og Austurland í gærmorgun. Bilun var á sambandinu milli Skála- fells og Akureyrar og ekki hægt að nota sjálfvirka sambandið. Og í óveðrinu urðu svo sveiflur á línunni milli Akureyrar og Hrútafjarðar, svo alveg varð sambandslaust við svæðið fyrir austan Hrútafjörð. En gert var við það í gærmorgun og því komið á handvirkt samband við Akureyri eftir hádegi. En unnið var í gær áfram að viðgerðum á Skálafelli. Fóru viðgerðarmenn í snjóbíl með Guðmundi Jónas- syni, og voru í gærkvöldi búnir að mestu, en ætluðu að vera á fellinu í nótt. í»á urð-u bilanir í veðrinu á línunni milli Brúar og Hrúta- fjarðar. Veður var þar slæmt í gær og viðgerðarflokkur farinn að leita að biluninni. Á línuinni til Patreksfjarðar urðu bilanir hjá Breikku. Og við ísafjarðaxdjúp, voru miklar bil- anir, en vegna veðurs var ekki orðið ljóst hve miklar. T.d. var sambandslaust við Súðavík. Viðgerðarmenn komust upp á Skálafell í gær í blindíhríð og rokL Höfðu þeir orðið frá að hverfa daginn áður. Voru þeir í snjóbíl. Mbl. hafði samiband við Kristján Helgasom í gær- kvöldi, og sagði hann, að hríðin hefði minnkað kl. 10—11, en enn þá væri ofsarok. Voru þeir 5 saman og ætluðu að hafast við á Skálafelli í nótt, en Kristján sagði að þeir hefðu þar aðstöðu til að sofa og elda. dveðrið gengið niður Fært utn Suð>urlandsundirlendi - linnið að mokstri norðanlands ÓVEDRIÐ mikla gekk austur yfirlandið í fyrrinótt, en var milkið til gengið niður í gær- morgun. Þó voru þá enn 9 vind- *tig á Kambanesi og 10 vindstig á miðunum 50 mílur út aí Gerpi. Mjög hvasst var á Hornafirði, Hádegisverður Varðbergs og SVS VARÐBERG og Samtök um vestræna samvinnu (SVS) halda lameiginlegan hádegisfund í Þjóðleikhúskjallaranum í dag, og hefst hann kl. 12.10. Ræðu- maður er Matthías Á Mathie- sen, alþingismaður. Gorðahreppur Spilað verður mánudaginn 12. þ.m. á venjulegum tíma. Sjálfstæðiisfélag Garða- og Bessastaðahrepps. 16 erlendir sjómenn á sjúkra- en yfirleifct taldi veðurstofan að veðrið hefði þó verið heldur vægara en á Vesturlandi eftir að það kom austur um landið. Færð er víða erfið. Fært var í gær um Suðurlandsundiirlendi fyrir stóra bíla og jeppa og þá farið um Þrengslin. Sama var að segja um Hvalfjarðarleið og Snæfellsnesvegi. Búizt var við að Brattabrekka opnaðist síðdeg is, svo fært á að vera í Dali. Norðurlandsvegur var víða lokaður í gær, einkum á Holta- vörðuheiði og í Húnavatnssýslu, en unnið var að mokstri. Var verið að opna Svínvetninga- braut. Ef veður spillist ekki, er gert ráð fyrir að stórir bílar kom ist í dag alla leið til Akureyrar og á Siglufjarðarleið að Stráka göngum. Á Vestfjörðuim er orðið gífur- legt fannfergi og lítið um færa vegi. En á Austurlandi er færð sæmileg um FÍjótsdalshérað og niður á Suðurfirðina og um Oddsskarð. En Fjarðarheiði er tvísýn, mikill skaifrenningur var þar í gær. Hollenzkt skip steytti á skeri FYRIR fjórum dögum varð hol- lenzka vöruflutningaskipið Linde, sem hér hefur verið í Ieigusigiingum, fyrir því óhappl að stranda á skeri í Hrútafirði. Þama skammt fram stendur bærinn Tannstaðir, og býr þar Daníel Daníelsson bóndi. Hann sá til ferða skipsins og kom hann þeim til hjálpar ásamt öðr- um manni. Hádegistundur Steínss m HutnarfírtU STEFNIR, félag ungra Sjálf- stæðismanna í Hafnar- firði heldur í dag hádegis- verðarfund kl. 12.30 í Sjálfstæð ishúsinu í Hafnarfirði. Á fund- inum mætir Sigurður Bjarnason, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, og talar um árangur og gildi norrænnar samvinnu. Hann svarar að erindi sínu loknu spumingum fundarmanna um fundarefnið. Hádegisverðar- fundurinn fer frarn í Sjálfstæðis húsin-u í Hafnarfirði og hefst kl. 12.30. Ungir Hafnfirðingar eru hvattir til að fjölmenna. Lægðin sem var fyrir V.- Grænland í fyrradag missti máfctinn að mestu í gær og náði ekki að valda suðlaegri átt á Vesturlandi. Hún sam- einaðist lægð sem kom sunnan af hafi og héldu þær síðan austur. Nokkur dró úr firost- inu í gærmorgun enda var 3ja stiga hiti á Jan Mayen, en það loft var væntanlegt til landsins. í samtali við Mbl. sagði Daní- el að ástæðan fyrir strandinu hefði verið ókunnugleiki á/hafn- ar á þessum slóðum, og mjög ógreinilegt og " villandi sjókort sem þeir höfðu. Skipið hefði ver ið á leiðini til Borðeyrar, og hefði það verið fyrir austan Hrúteyjar, siglingaleiðin liggur miklu vestar. Skipið lá á skerinu í 2—3 tíma í ágætu veðri og stilltum sjó, en losnaði af skerinu á flóði. Deið- beindi Daníel skipinu til Borð- eyrar, og fór með þeim aftur út á líkar slóðir og skipið strand aði, en þar kom vélbátur á mótx Daníel og félaga hans, og fór með þá í land aftur. Að skilnaði gaf Daníel skipstjóranum á Linde mun betra sjókort af Hrútafirði þannig að litil hætta er á að Linde eigi eftir að stranda þar aftur. ' Kosygin, forsætisráðherra Sovétríkjanna, hefur nú lokið 9 daga opinberri heimsókn í Frakklands. Sést Kosygiu hér í rannsóknarstöð í Grenobei. t rannsóknarstöð þessari eru gerð- ar tilraunir með froskhjörtu, sem látin eru hætta að slá, en síðan aftur vakin til starfa. Með Kosygin á myndinni er Louis Joxe, ráðherra, og óþekktur v ísindamaður — AP Kosygin heim frá Frakklandi í gær Samvinna Frakka og Rússa verði aukin París, 9. des. — (NTB-AP) — ALEXEI Kosygin, forsætis- ráðherra Sovétríkjanna, hélt heimleiðis til Moskvu í dag, að lokinni niu daga dvöl í Frakklandi. í opinberri yfirlýsingu, sem gefin var út að loknum viðræð- um hans og de Gaulie, Frakk- landsforseta, sagði meðal annars, að þeir hörmuðu hið alvarlega ástand í Suðaustur-Asíu, sem væri afleiðing íhlutunar utanað- komandi aðila og teldu styrjöld- ina í Víetnam hættulega ná- Kynna verk Jáits frá Bægisá A MORGUN, sunnudag 11. des. efni bókmennta- og list- kynninganefnd til kynningar á verkum Jóns Þorlákssonar frá Bægisá. Andrés Björnsson lekt- or talar um skáldið, háskóla- stúdentar lesa ljóð og félagar úr Stúdentakórnum syngja og kveða undir stjórn Jóns Þórar- inssonar. Kynningin verður í hátíðasal Háskóla íslands og hefst kl. 2.30. Öllum er heimill aðgangur. grannaríkjunum, auk þess sem hún væri stærsta hindrunin á leið til minnkandi spennu í al- þjóðamálum. í yfirlýsingunni sagði enn- fremur, að þeir de Gaulle og Kosygin hefðu rætt um mögu- leika á því að halda ráðstefnu um öryggismál Evrópu og leiðir til að koma á æskilegra sam- bandi milli rííkja Austur- og Vestur-Evrópu, þrátt fyrir mis- munandi stjórnarfar þeirra, Hvetja þeir de Gaulle og Kosy- .giin aðrar þjóðir tii að fara að fordæmi Riússa og Frakka og eru sammála um að vi'ðræður sovézkra og franskra ráöa- manna um heimsmálin að und- anförnu hafi verið til hins mesta gagns. Hafi þær verið spor í átt- ina til þess að skapa viðræðu- grundvöil um öll hélztu vanda- mái Evrópu, en slíkar viðræður gætu orðið til að auka skilning og finna lausn þeirra mála. — Árangurinn yrði sá, að friður yrði tryiggður í Evrópu, á þeim grundvelli, a'ð þjóðirnar virtu sjálfstæði hver annarar og yfir- ráðasvæði og forðuðust að hiut- ast til um innanríkismái hver annarar eða leysa deilumái sín Framhald á bls, 31. Hafísinn kannaður FÖSTUDAGINN hinn 9. des- ember 1966, var ísinn útaf Vest- fjörðum kannaður af TF-SIF. Kl. lllfl var lagt af stað frá Reýkj avíkurflugvelli og haldið fyrir Jökul og þaðan eftir 12 mílna fiskiveiðimörkunum til Vestfjarða. 16,0 sjóm. NV. af Kögri var komið að íshrafli sem svaraði til 1/10 til 3/10 að þétt- leika. Þaðan var haidið NA. að stað 67°2S‘N 20°30’V þar var snúið og haldið með ísröndinni SV.-um að stað 65°2ö’N- 27°40’V. Á þessari leið var ísinn nákvæm lega staðsettur og dreginn í með fylgjandi kort. Frá stað 65°26’N 27°40’V var haldið á Garðskaga, en þaðan til Reykjavílkur og lent á Reykj avíkurflugvelli kl. 16:00. Flogið var í 1000 fefcum. Veður á leiðinni NA-7 til 8 vindstig. Éljagangur. Skipherra á TF-SIF í þessari ferð var Höskuldur Skarphéðins son flugstjóri Guðjón Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.