Morgunblaðið - 10.12.1966, Page 16
16
MORGUNBLAÐIO
Laugardagur 10. des. 1960
JttorguttNtafrifr
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavflc.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.-
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Simi 22480.
f lausasölu kr. á mánuði innanlands.
Áskriftargjald kr. 105.00 7.00 eintakið.
ERFIÐLEIKAR
FR YSTIIÐNAÐARINS
"í ályktun aukafundar Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihús-
anna er að því vikið, að frysti
iðnaðurinn eigi í miklum erf-
iðleikum, vegna mikils rekstr
arkostnaðar, samdráttar í hrá
efnisöflun og lækkandi verðs
frystra sjávarafurða á erlend-
um mörkuðum.
Að vísu er það ekki nýtt, að
einstakar greinar sjávarút-
vegsins eigi í erfiðleikum, en
venjan er því miður sú, að
misjafnlega gengur í þessum
áhættusama atvinnurekstri
og ein grein hans gengur illa
þegar annarri vegnar vel.
Þannig var það t.d. á sildar-
leysisárunum, að bolfiskveið-
arnar og frystiiðnaður héldu
atvinmilífinu gangandi. Nú
hafa síldveiðarnar gengið vel,
en önnur útgerð lakar, meðal
annars vegna þess að beztu
skipin og margir dugmestu
sjómennirnir hafa stundað
síldveiðarnar.
Á síðustu árum hefur af-
urðaverð farið hækkandi á
erlendum mörkuðum, en nú
í ár er um verðlækkanir að
ræða. Þegar ljóst varð að
hverju stefndi, ákvað ríkis-
stjórnin að beita sér fyrir
verðstöðvun ti'l að treysta
hag atvinnulífsins. Stöðvunar
stefnan er að sjálfsögðu lang-
áhrifamesta úrræðið tiil að
greiða fram úr vanda útgerð-
ar og fiskvinnslu, og þess
vegna er meginnauðsyn, að
verðstöðvunin takist og
hvorki verði verðlags- né
kauphækkanir.
Enn er ekki vitað með
vissu, hvort lækkun á verð-
lagi afurða frystiiðnaðarins
verður varanleg eða mjög al-
varleg, en ekki hefur verið
wn að ræða neitt verðhrun á
því sviði eins og að því er
varðar síldarafurðirnar. Af
þeim sökum ætti því ekki að
vera um að ræða neina óyfir-
stíganlega erfiðleika.
Meginvandi fiskiðnaðarins
er raunar sá, að frystihúsin
hafa alh of lítil verkefni. Tog
•raaflinn hefur verið hverf-
andi lítM'l og útgerðarmenn
hafa einbeitt sér að síldveið-
unum, svo að frystihúsin
hafa ekki fengið fisk til verk-
unar. Auðvitað er engin leið
að geta sér til um það, hvern-
ig vetrarvertíð muni ganga,
en engin ástæða er til að gera
ráð fyrir því fyrir fram, að
ekki geti orðið um aflasæld
að ræða. Enn er líka óljóst,
hvort heimilaðar verða aukn-
ar togveiðar innan fiskveiði-
takmarkanna, en fiskifræð-
faigar mæla með slíkum ráð-
•töfunum og telja, að þær
mundu auka hráefnisöflun
til frystihúsanna.
Að öllu samanlögðu er Ijóst
að fiskiðnaðurinn á við erfið-
leika að etja, sem ekki skal
gert lítið úr. En á hinn bóg-
inn hafa þegar verið gerðar
mjög þýðingarmiklar ráð-
stafanir tii stöðvunar hækk-
ana — og á þann veg til að
bæta rekstursafkomuna — og
önnur úrræði eru nú til at-
hugunar.
Við íslendingar erum því
vanir að árferði sé misjafnt.
Atvinnuvegir okkar eru á-
hættusamir, svo að við verð-
um ætíð að vera við því bún-
ir, að erfiðleikar geti steðjað
að. En meginatriðið er, að
þjóðin beri gæfu til að snú-
ast af skynsemi og einurð
gegn vandanum, og það er nú
einmitt gert með verðstöðv-
unarstefnunni, sem nýtur öfl-
ugs stuðnings.
ÚRRÆÐI í FANG-
ELSISMÁLUM
P'r Bjami Benediktsson var
dómsmálaráðherra vakti
hann margs sinnis athygli á
nauðsyn þess, að átak yrði
gert til þess að bæta úr í
fangelsismálunum og einnig
hefur núverandi dómsmála-
ráðherra, Jóhann Hafstein,
vakið athygli á þessari nauð-
syn. Nokkuð hefur raunar
verið gert til úrbóta, þar sem
er fangelsið við Síðumúla, og
í nýju lögreglustöðinni verða
einnig fullkomnir fangaklef-
ar. En ljóst er engu að síður
að meira þarf að gera í þessu
efni, enda er ástandið á Litla-
Hrauni þannig, að ekki verð-
ur við unað til frambúðar.
Kom þetta glöggt í ljós við
rannsókn þá, sem fram hefur
farið út af afbrotum tveggja
fanga af Litla-Hrauni og vak-
ið hefur mikla athyglL
En ekki er úr vegi að rifja
það upp, að stjórnarandstæð-
ingar, og einkum þá komm-
únistar, gerðu harða hríð að
Bjarna Benediktssyni í dóms-
málaráðherratíð hans fyrir
það að vilja verja auknum
fjármunum til fangelsismála.
Töldu þeir slíkt mestu fá-
sinnu og létu jafnvel að því
liggja, að þeir, sem slíkum
skoðunum héldu fram, hefðu
sérstaka ánægju af því að
fangelsa fólk.
Vafalaust verður fangelsis-
svipting ætíð helzta úrræði
refsiréttarins, og litlar líkur
eru víst til þess að afbrot
muni hætta eða minnka svo
að ekki sé þörf fullkominna
fangelsa. Þess vegna er bygg-
ing ríkisfangels með nútíma
sniði brýnt nauðsynjamál.
MACBIRD,
skopstælingin
á Macbeth,
sem vakið hefur í senn hlátur
og hneykslun í Bandaríkjunum
S Ú jólagjöf, sem virðist
ætla að ná hvað mestum
vinsældum í Bandaríkjun-
um í ár, er 56 síðna bók,
sem kostar aðeins 1 dal.
„MACBIRD“ heitir hún,
og er skopstæling á Mac-
beth. Allar höfuðpersón-
urnar í „MACBIRD“ eru
þekktir, bandarískir stjórn
málamenn.
Madbird sjálfur er Lyndon
Johnson — metorða.gjarn mað
ur, sem, á Mkan bátt og í leik-
riti Shakes.pea.re®, hefur 1
Ihyggjiu að ráða konunginn af
dögum. Konungurinn heitir
i>ú Ken O’Dunc. Rdbert
Kennedy virðist vera nokkurs
konar samnefnari tveggja
persóna, sem tekst, eftir all-
mikil ráða/brugg, að setjast I
sæti konungs. Aðrar persónur
eru — vitanlega — Lady Mac-
bird, Egg of Head (Adlai
Stevenson), Earl oí Warren
(íEarl Warren, sem Warren-
skýrslan er kennd við) og
Wayne of Morse (Wayne
Morse, öldungadeildarlþinig-
maður).
Madbird varð fyrst til I
Ihöndum stúdenta við háskól-
ann í Berkeley 1 Kaliforníu.
Síðar var leikritið flutt í
Greenwich Village í New
York, en erfitt var þó að
henda reiður á, hvar eða hve-
nær leifcsýningar þar voru
haldnar. Leikritið var sýnt í
ýmsum kjöllurum, og srjaldan
trvisvar á sama stað. Nhi hefur
hins vegar verið ákveðið að
sýna MACBIRD á leiksvi’ði,
og 50.000 einbök af leikritinu
verða brátt send í bókaibúðir
vestan hafs.
Fram til þessa virðast flest-
ir Bandaníkjamenn hafa látið
sér nægja að lesa verkið. Það
hefur fram til þessa aðeins
fengizt póstsent frá einu út-
gáfufyrirtæki, sem starfrækt
er í New York, og nefnist
„The Grassy Knoll Putolishing
Company", ög mun ekki áður
hafa komið vfð sögu bókaút-
gáfu.
Mörgum þykir nafn fyrir-
tækisins einkennilegt, því að
sumir þykjast vissir um, að
skot það, sem hæfði Kennedy,
forseta, hafi komið frá gras-
flöt (Grassy Knöll) í Dallas.
Leikritið, MACBIRD, fjallar
nefnilega m.a. um þá gömlu
Gróusögu, að Lyndon B. Jdhn
son hafi lagt á ráðin um morð
Kennedys.
Að vísu er ekki þannig á
málum haldið, að sögn höfund
arins, sem er 25 ára gömul
stúlka, Barlbara Garson, að
trúnað beri að leggja á slíka
illmælgi.
Ganson, sem aldrei bjóst
við, að leikritið myndi vekja
neina athygli, nema (þá helzt
í þröngum hóp stúdenta við
Berkeley, segist vera í senn
ánægð og leið yfir öllu um-
talinu, sem MACBIRD hefur
vakið. „Flestir Iþeirra, sem um
verkið hafa ritað“, segir húrv,
„Ieggja aðaláherzluna á gagn-
rýnina á Johnson, en taka
ekki eftir því, að Rdbert
Kennedy er aðalskiúrkurinn.
Ég var einkum að vekja á því i
athygli, að róttækir menn og 5
konur verða að taka höndum ;
saman. Það er ekki hægt að 5
búast við neinum framförum ;
með því einu að fýlgja Rdbert :
Kennedy að málum“. •
Garson, sem niú er gift, virð ;
ist vera geysi-lega áhugasöm i
— hveitibraúðsdögum sdnum ;
varði hún á Kútou — og hún I
hefur margsinnis setið í fang- ;
elsi fyrir þátttöku í óllögleg- ;
um mótmælaaðgerðum — I
„gegn styrjöld".
Það einkennilega virðist, !
að leikrit hennar — flestir ;
eru sammála um, að v«l sé Z
stúlkan ritfær — virðist ætla S
að njóta mestra vinsætda í ;
hópi þeirra, sem höfundur hef S
ur fyrirlitningu á. ;
Langflestir telja, að Garson Z
hafi bezt tekizt upp í lýsingu ;
sinni á persónunni Egg oif Z
Head (Adilai Stevenson).
Hann er látinn velta (því fyrir
sér, hvort hann eigi að segja
af sér eða ekki, með þessum
orðum:
„To see, or not to see that is 3
the questión. Z
Whether ’tis wiser as a states- ;
man to ignore, Z
The gross deceptions of outra- ;
geous liars, ;
Or to speak against a reign -
of evil ;
And by so doing, end Bhere for Z
all time •
The chanoe and hope to work ;
wittoin for change“.
Þó eru það sennilega eftir- Z
farandi liínur, sem er að finna ;
á baksíðu bókarinnar, sem Z
flestir telja hámark háðskunn ;
ar: ;
„Tileinkað leikurum, sem I
sýna okkur allar toliðar mann- ;
lífsins, þá um leið okkur sijáLf Z
eins og við raunverulega er- ;
um“. ;
Þetta eru orð Johnsons, for- I
seta, sem hann lét sér um ;
munn fara 27. marz sL, á Al- Z
þjóðaleikhúsdeginum.
„Biskup sækir á með
kapítaliskri áfergju"
Á FUNDI neffri deildar , gær
var framhaldiff umræðum um
guffskristni. Tóku til máls þeir
Jóhann Hafstein, Gunnar Gisla
son, Sigurvin Einarsson, Ágúst
Þorvaldssson og Einar Olgeirs-
son.
Jóhann Hafstein (S): Benti á
að flestöll prestaköllin, sem nið-
ur væru lögð væru nú prestlaus,
og væri því verið að fá fólk-
inu prest með þessum breyting-
um. Þá gat ráðherra þess, að
ekki væri ætlunin að reka presta
af stóli, heldur mættu þeir sitja
í friði, meðan þeir hefðu ald-
ur til. og vilja tiL
Einar Olgeirsson (K); sagði,
að rík tilhneiging hefði orðið
hjá kirkjuvaldinu að taka vald-
ið af söfnuðunum, og það væri
sama stefnan, sem réði hér, og
það væri misskilningur að halda
því fram að hún væri einhver
refsivöndur á, hún dansaði
frekar með í kringum gull-
kálfinn og það kæmi enginn
Móses úr þeim evangelisk-lút-
erska söfnuði til að brjóta hann
niður.
Þá gat þingmaður um menn-
ingarmál almennt og vitnaði
mikið í siðaprédikanir höfuð-
klerka fyrr og síðar og þóttist
ekki kenna þeirra blóma í okk-
ar kirkju, sem þeir hefðu sáð.
Hann kvað það rétt hjá ráð-
herra, að stofnuð hefur verið
prófessorsembætti við Háskól-
ann á síðustu árum, en ein-
hvern veginn væri það svo, að
kirkjan virtist eiga meiri að-
gang að fjárveitingarvaldinu en
aðrar menningarstofnanir, og
virtist sér, sem forráðamenn
þeirra „sýndu kristilega undir-
gefni, en biskupinn sækti á með
kapítalískri áfergju.
Ágúst Þorvaldsson (F); sagði
það ekki heppilegt að sameina
og steypa saman sveitarfélög-
um, eins o.g nú væri stefnt að,
þótt auðvitað gæti það átt við
á einstöku stað. Það væri nauð-
synlegt að hafa kirkjuna öfluga,
bæði fjárhagslega og andlega til
þess að hún næði sem bezt tii-
gangi smíum.
Gunnar Gíslason fS) sagðist
vera hissa á þeim skilningi, að
verið væri að taka prestana af
fólkinu, það væri einmitt verið
að bæta aðstöðu fólksins til að
sækja guðsþjónustur.
Allflestar sóknirnar sem n4
væru sameinaðar öðrum væru
prestlausar og hefðu verið það,
og því væri aðeins verið að
gefa fólkinu færi á að eignast
sinn prest. Hann sagði að ef
Einar Olgeirsson, vissulega væri
vel að sér í hinum kristnu fræð
um, og það væri mjög gleðilegt,
ætti að sækja messur, þá heyrði
hann, að klerkar prédika móti
siðgæðisspillingu og féprangi.
París, 9 des. — NTB —
Pólskt rit, sem gefið er út
af flóttamönnum í París
„Kultrura“, skýrir frá þvi |
dag, að 13 pólskir mennta-
menn hafi verið reknir úr
kommúnistafloklj: heimalands
ins fyrir að hafa sent pólsku
stjórninni mótmæli gegn o<-
sóknaraðgerðum við Leszefc
Koakowski, prófessor í heim
spekj
l¥l¥»¥¥TlTir