Morgunblaðið - 28.12.1966, Blaðsíða 2
2
MORCUNBLADID
Miðvikudagur 28. des. 1966
-
í GÆR litu inn á ritstjómar-
skrifstofur Mbl. tveir ungir
menn í ritstjórnarstóhun. —
Voru það þeir Jens Ingólfs-
son og Örn Þráinsson, sem
báðir era nemendur í 1. bekk
gagnfræðastigs Álftamýrar-
skóla, og lagt hafa í það þótt
ungir séu að gefa út ungl-
ingablaðið Álftir.a. Er blaðið
offsetprentað í Letur h.f.
Við rseddum lítillega við
hina ungu ritstjóra og spurð-
um þá fyrst, hvenær þeim
hefði dottið í hug að gefa út
'biað.
— I>að er nú nokkuð síðan,
segja þeir félagar — við átt-
um að standa fyrir skólablaði,
sem svo kom ekki út og þá
datt okkur í hug að gefa út
blað með því efni sem safn-
azt hafði. Er aetlun okkar að
bla'ðið. komi út einu sinni í
mánuði, er það ætlað ungl-
Hinir ungu ritstjórar skoða blaðið sitt.
Þrettán ára og gefa út blaö
— Rabbað við ritstjóra Álftarinnar
ingum og kostar 25 krónur.
Annars fer það mikið eftir
þvá hvernág gengur með fyrsta
tölufþlaðið, hvernig framhald-
ið verður.
— Hvernig gengur að safna
efni?
— Það gengur ágætlega, við
erum langt komnir með að
safna efni í annað tölublað.
í þvi verður m.a. framhald®-
saga, sem er eins konar fram-
hald af sögunni um Pip, og
er það ætia'ð yngstu lesend-
unum.
— Hver er ábyrgðarmaður
blaðsins?
— Það er prentsmiðjustjór-
inn i Letri, Sigurjón Þor-
bergsson, en blaðamenn eru
skólafélagar okkar Baldur
Baldursson, Þórir Nilsen og
Viktor Ingólfsson. Ljósmynd-
ari 'blaðsins er Magnús Sigur-
geirsson. Svo munum við £á
okkur til aðstoðar teiknara
Bjöm Birni, sem er mjög
snjall.
— Gengur eins vel að safna
•auglýsingum og efni?
— Já það giengur einnig
ágætlega. Nú síðasta klukku-
támann höfum við t.d. feng-
ið þrjár. Blaðið er ails ekki
bundið við Álftamýrarskóla,
það hefur minnzt verið selt
af því þar ,en fy.rsta töluiblað
kom út í 500 eintökum. Þá
höfum við fengið leyfi hjá
Vikunni til þess að birta gaml
ar skrýtlur.
Unglingablaðið Álftin er 28
blaðsáður. Ber blaðið hinum
ungu ritstjórum gott vitni og
sýnir að þeir eru efni í mikla
framkvæmdamenn. Af efni
blaðsins má nefna grein um
tunglið, myndaopnu, sem
nefnist „Litið inn hjá sjón-
varpinu“, F.ramihaldssöguna
„í villidýrabúrinu, týndi erf-
inginn", „Lítið ævintýri“,
„Mamrna flengir mig“, þýð-
ing úr „Reader’s Digest, sög-
una „Bauka Stebbi“, „Strætis
vagnafer'ð" o.m.fl.
Þá eru í blaðinu tvær
myndasögur af Stjána Bláa.
Við viljum óska hinum
ungu framtaksömu ritstjór-
um til hamingju með blaðið
sitt og vonumst til að það
gangi vel.
fslenzkir málarar
selja verk erlendis
NORiRÆNA listsýningin, sem
haldin var í Hannover, hefur nú
verið send heim. í upþhafi var
ráð fyrir gert að sýningin yrði
send til ýmissa borga V-tÞýzka-
lands, en af því gat þó ekki orð-
ið, þar sem víða vantaði nógu
stórt húsnæði, eða húsnæði ekki
laust, þegar á þurfti að halda.
Þessir íslendingar seldu mynd
ir á sýningunni:
Jón Benediktsson — „Dans-
andi stúlkur“.
Jóhann Briem — „Við sjÓ“.
Jóhann K. Eyfells — „Járn,
kopar, alúm“, keypt af lista-
safni Haijnoverborgar.
Kjartan Guðjónsson — „Söng-
ur um nótt“, keypt af listasafni
í Espelkamp, Westfalen.
Benedikt Gunnarsson —
„Jörð“.
Benedikt Gunnnarsson hefur
"einnig selt Stokkhólmsborg
mynd þá er hann átti á sýningu
í Hasselby-höll, Stokkhólmi.
Þetta er óvenju góð sala á
norrænni listsýningu.
Fógur jól
Akureyri, 27. des.
Hér voru fögur jól og frið-
samleg, stillt veður með nokkru
frosti, snæviþakinni jörð og tungl
skin um nætur.
Skrautljós voru óvenjumörg
og mikil við híbýli manna og á
götum miðbæjarins. Juku þau
enn á jólasvipinn, sem á bænum
var.
Hins vegar urðu 8 bílaárekstr-
ar á Þorláksmessu, 7 á aðfanga
dag og 3 í gær, srumir all harðir
en ekki urðu teljandi meiðsli á
fólki Sv. P.
„Luma 13" lenti
mjúkri lendingu
á „Stormahafi"
Moskvu, 27. desember. NTB - AP.
• Á aðfangadagskvöld lenti
sovézka tunglflaugin „Luna 13“
á svokölluðu „Stormahafi“ á
tunglinu — og er gert ráð fyrir
því, að þar muni mannað tungl-
far Sovétmanna látið lenda, þeg-
Boð um uðstoð
en ultuikullaði
Slysavarnarfélagi íslands barst
um miðjan dag á aðfangadag
hjálparbeiðni frá sænska skipinu
Lena, þar sem það var statt
miðja vega milli Færeyja og Is-
lands. Var í beiðninni sagt að
leki væri kominn að skipinu og
skipið væri skjótrar hjálpar
þurfi.
Slysavarnafélagið brá við og
bað nálæg skip að aðstoða hið
sænska skip, en fimmtán mínút
um síðar kom annað skeyti frá
skipinu, þar sem sagt var, að
skipverjum hefði tekist að lag-
færa lekann og gæti það bjargað
sér sjálft.
SÍMASiÁMBANDSLAUST varð
á jóladag milli Hornafjarðar og
Fáskrúðsfjarðar, og mun það
hafa orsakazt af ísingu beggja
megin við Hornafjörð.
ar þeir senda það upp, hvenær
sem af því verður. Af frásögn-
um sovézkra blaða má ráða, að
vísindamenn eru nú að vinna
úr myndum þeim, sem „Luna
13“ sendi til jarðar og vænta
megi mikilvægra upplýsinga af
þeim.
Myndirnar, sem fengizt hafa
nú frá „Lunu 13“ og áður frá
„Lunu 9“ benda til þess, að ryk-
lagið á „Stormahafinu“ sé mun
þynnra en búizt var við og því
megi telja það ákjósanlegan
lendingarstað. í sovézkum blöð-
um er það nú kallað „tungl-
ihöfnin“, og sagt, að vænta
megi „panoraima“-myndar frá
Lunu 13, sem sýni greinilega
allar aðstæður þar.
Fyrsbu myndirnar frá tungl-
flauginni hafa þegar verið sýnd-
ar í sjónvarpi í Sovétríkjunum
og öðrum kommúnistaríkjum
austan tjalds og eru sagðar af-
bragðs góðar.
Að sögn sovézku vísindamann-
anna sem stóðu að þessari til-
raun var „Luna 13“ útlbuin
einskonar þreifiörmum, sem
gerðu lendinguna auðveldari og
öruggari og öfluðu upplýsinga
um hörku yfirborðsins. Hefur
NTB eftir erlendum sérfræðing-
um í Moskvu, að tilraun þessi
sé merkur áfangi í tunglferðum
og sé alls ekki ósennilegt, að
Rússum takist að senda menn til
tunglsins fyrir byltingarafmælið
næsta haust.
Erfiðir sjukraflutningar
á Snæfellsnesi
Stykkishólml, 2/7. des.
í ÞETTA sinn voru jólin hvít
í Stykkishólmi, snjóél, en bjart
á milli. Talsvert hefur snjóað
niður í byggð og algerlega ófært
til Grundarfjarðar núna og komst
mjólkurbíllinn ekíki með mjöik-
ina hingað.
í gær var haldinn dansleikur
í Grundarfirði og fóru héðan
þrír áætlunarbílar með um 80
ungmenni. Voru þeir tvo og hálf
an tíma þangað og var þá færðin
orðin þannig, að þeir töldu erfitt
að feomast til baka.
Um það leyti var kallað á
sjúkrahjálp frá einum bæ í
Grundarfirði, þar sem kona var
mjög veik, og fór héraðslæknir-
inn héðan á vettvang, en til þess
að koma henni í sjúkrahús í
Stýkkishólmi hjálpaði Vegagerð-
in sl. nótt við að ryðja verstu
torfærur og var komið með kon-
una kl. að ganga sex í morgun.
Ungmennin áttatíu komust
hingað kl 6 1 morgun, en þeir
nutu góðs af mokstri Vegagerðar
innar.
í morgun átti að vera áætlunar
ferð til Reykjavíkur, bæði frá
Grundafirði og Stytekishólmi, en
Bifreiðarstöð Stykkishólms er
sérleyfishafi á þessum leiðum.
Var því einn áætlunarbíllinn
skilinn eftir í Grundarfirði í
gærkvöldi til þess að flytja vænt
anlega farþega, sem komast
þurftu suður í veg fyrir Stykkis
hólmsbifreiðina.
Þessi áætlunarbíll komst ekki
sökum ófærðar, en áætlunarbíll
inn héðan lagði af stað í morg-
un og fylgdu henni moksturstæki
Vegagerðarinnar, en skömmu
eftir hádegi var hún ekki kom-
in á Vegamót. Mun færðin því
hafa verið mjög erfið.
Vegir eru nú þungfærir á
Snæfellsnesi, enda hefur talsverð
um snjó kyngt niður. Flug hef-
ur verið mjög erfitt vegna óstöð
ugrar veðráttu. Þó er gert ráð
fyrir, að flogið verði hingað á
morgun á vegum Björns Pálsson
ar. Lítill sem enginn snjór er á
flugvellinum. — FréttaritarL
Aukið hlutafé og lánsfé
til Sýningarhallarinnar
ABALFUNDUR Sýningarsam-
taka atvinnuveganna h. var hald-
inn í Áttihagasal Hótel Sögu,
fimmtudaginn 24. nóv. sl.
Á fundinum mættu um 30 full-
trúar fyrir þau samtök sem aðild
eiga að sýningarsamtökunum.
Magnús Brynjólfsson var kjör-
inn fundarstjóri og Otto Stíhopka
fundarritari.
Sveinn Guðmundsson, formað-
ur Sýningarsamtakanna, flutti
skýrslu stjórnarinnar fyrir síð-
asta starfsár. 1 Skýrslunni kom
m. a. að byggingarframkvæmdir
>----------------------------
„St. Finburr“
sökh, 12 fórust
St. Jöhns, Nýfundnalandi,
27. des. NTB — AP.
BREZKI togarinn „St. Finbarr",
sem verið var að reyna að koma
tii hafnar á Nýfundnalandi, eftir
að eldur kom upp í honum á jóla
dag, sökk síðdegis í dag.
Þrettán mönnum af áhöfninnl
hafði verið bjargað um borð í
togarann „Orsini", sem hafði
„St. Finbarr" í togi en tólf menn
höfðu lokazt niðri i skipinu og
orðið eldinum að bráð.
Veður var slæmt á þessum
slóðum í dag, hvassviðri, snjó-
koma og mikill sjór.
Eldurinn kom upp, er skipið
var um 500 sjómílur norðvestur
af St. Johns og það sökk um 100
sjómílur undan landi. Ekki er
vitað um eldsupptök, en „St.
Finbarr" var einn stærsti og ný-
tízkulegasti togari Breta.
við Sýningarhöllina I Laugardal
eru nú það langt komnar, að
húsið hefur verið tekið í notkun,
þótt enn sé ýmsum frágangi ó-
lokið. Unnið hefur verið að út-
vegun fjánmagns af hálfu Sýn-
ingarsamtakanna til þess að
standa undir byggingarkostnaðL
og hefur veruleiga áunnizt í þeim
efnum, bæði með aukningu
hjá Sýningarsamtökunum, og
með útvegun lánsfjár. Eftir að
félagssamtök iðnaðarins efndu
til Iðnsýningarinnar í Sýningar-
höllinni í september sl. hafa bor-
izt margar fyrirspurnir og beiðn-
ir um afnot af húsinu, og er því
augljóst að með byggingu þess
er bætt úr brýnni þörf fyrir hús-
næði til ýmis konar sýningar.
Björgvin Sigurðsson, gjaldkeri
félagsins, las upp reikninga fé-
lagsins fyrir árið 1966.
Á aðalfundinum voru sam-
þykktar nokkrar breytingar á
lögum hlutafélagsins, og síðan
fóru fram umræður um málefni
félagsins.
1 stjórn félagsins voru kjörnir
þeir Harry Frederiksen, Jón H.
Bergs, Tómas Vigfússon, Magn-
ús Brynjólfsson og Darvíð Soh.
Thorsteinsson, og endurskoðend-
ur þeir Þorvarður Alfonsson og
Otto Sohopka. Sveinn Gtuðmunds
son, sem verið hefur formaður
samtakanna frá stofnun þeirra
árið 1957 og var einnig formaður
undirbúningsnefndar þeirra, sem
vann að stofnun félagsins, og
Björgvin Sigurðsson sem verið
hefur gjaldkeri félagsins allt frá
stofnun, báðust báðir undan end-
urkosningu og voru þekn báðum
þökkuð vel unnin störf í þágu
félagsins á undanförnum árurn,
(Fréttatilkynning).
LÆGÐLN var kl. 8 í gær- kaldi og skúrir á SA landi,
morgun milli lands og Vest- en hvass NA, snjóteoma og
mannaeyja, en teomin yfir allt að 7 stiga frost á Vest-
Suðurland kl. 14 og stefndi fjörðum og vestanverðu Norð-
norðaustur. Var vindur því urlandi.
tvíátta á landinu, sunnan