Morgunblaðið - 28.12.1966, Síða 3
Miðvíkuðagur 28* des. 1966
MORCU NBLAÐIÐ
3
23 fangar siuppu úr brezkum
fangeisum yfir hátíöarnar
- Dm 500 hafa fluið á árími
Plymouth, 27. des. NTB-AP
AF tuttugu og þremur föng-
um, sem sluppu úr brezkum
fangelsum yfir jólahátíðina
eru þrettán enn lausir, en
þyrlur og f jölmennt lögreglu-
lið leitar þeirra. Jafnframt
fer vaxandi gagnrýnin á á-
stand fangelsismálanna í Bret
landi, en eftir því, sem meiri
uoplýsingar eru gefnar um
lélegan öryggisútbúnað í
fangelsunum flýja fleiri fang
ar dag frá degi. Nú munu um
fimm hundruð fangar hafa
sloppið úr hrezkum fangels-
um á þessu ári.
Eftir að njósnarlnn George
Blake, slapp úr haldi fyrir rúm-
um tveimur mánuðum var stkip-
uð nefnd, undir forsæti Mount-
battens lávarðar, til þess að
kanna ástand fangelsismála í
landinu og koma með tillögur til
úrbóta. í síðustu viku birti
hann skýrslu, þar sem sagði, að
ekkert fangelsi í öllu landinu
(hefði nægilegan öryggisbúnað.
Þá þegar höfðu fangar verið að
sleppa úr haldi vikum saman,
einn og einn í senn, en síðustu
dagana hafa þeir sloppið í stór-
hópum, síðast á annan jóladag
sluppu átta fangar úr Dartmoor
fangelsinu og þrír úr Leyton.
Ekki er vitað með hvaða hætti
fangarnir í Leyton komust burt,
en í Dartmoor hafði svo háttað,
eð 24 fangar voru í leikfimi í úti
húsi frá aðal fangahúsinu, og var
þar aðeins einn vörður að gæta
Bíllinn kom d
nr. 34573
Á AÐFANGADAG var dregið
hjá borgarfógeta í happdrætti
Krabbameinsfélags Reykjavikur.
Vinningurinn, sem er Pord bif-
reið, kom á miða númer 34573.
Handhafi vinningsmiðans er
beðinn um að snúa sé til skrif-
stofu Krabbameinsfélagsins að
Suðurgötu 22.
þeirra, auk leikfimikennarans.
Fangarnir réðust á þá, slógu þá
niður og tóku af þeim lyklana,
— klifruðu síðan yfir fangelsis-
múrinn, sem er um 10 metrar á
'hæð. Einn náðist en átta kom-
ust burt, og hurfu sjónum fanga
varðanna út á heiðina umhverf-
is. Svarta þoka var og súld sem
skýldu föngunum á flóttanum.
Montbatten, lávarður, hefur
gert ýmsar tillögur til endurbóta
og þegar verið hafizt handa um
að framkvæma sumar þeirra,
m.a. að setja upp sjónvarpseftir-
litskerfi. Einnig hefur hann lagt
til, að byggt verði fullkomið
fangélsi fyrir hættulega fanga á
eyjunni Wight.
Kópovogur:
Jólokgnaður
JÓLATRÉSFAGNAÐUR Sjálf
stæðisfélaganna í Kópavogi verð
ur haldinn í Sjálfstæðishúsinu,
Borgarholtsbraut 6, fimmtudag-
inn 29. des. kl. 4 Jólasveinninn
Kertasníkir kemur í heimsókn.
Aðgöngumiðar afhentir í skrif-
stofu Sjálfstæðisfélaganna mið-
vikudag og fimmtudag kl. 2-5,
sími 40708. Takið miða tíman-
lega því húsrými er takmarkað
Nefndin.
Tónleikar ó
ó morgun
FIMMTUDAGINN 29. desember
verða 7. árskriftartónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar fslands á þessu
starfsári haldnir í Háskólabíói
og hefjast kl. 20,30. Þetta verða
næst seinustu tónleikar hljóm-
sveitarinnar á fyrra misseri, og
tnun endurnjýun áskriftarskír-
iteina fyrir síðara misserið hefj-
ast í byrjun janúar.
1 Stjórnandi er að þessu sinni
Ragnar Björnsson, en fjórir ein-
leikarar koma fram, þeir Krist-
ján Þ. Stephensen, Gunnar Egil-
son, Hans P. Franzson og David
Ifice. Öll verkin, sem flutt verða
á tónleikunum eru eftir Mozart.
Þau eru frá ýmsum skeiðum ævi
ihans. Leikin verða Serenata
Notturna í D-dúr, sem Mozart
samdi á unglingsárunum, kon-
sort-sinfónía (fyrir blásarakvart
ett og hljómsveit), sem hann
samdi liðlega tvítugur að aldri,
g-moll sinfónían nr. 40, sem Moz
art samdi tíu árum síðar og for
leikurinn að óperunni „Töfra-
flautan“, sem samin var nokkr-
um mánuðum áður en hann dó.
Verkefnavalið mun .þvi veita á-
hevrendum prýðilega yfirsýn
yfir feril hins dáða snillings.
Vinur Sukarnos
dæmdur til dauða
Djakarta, 27. des. AP-NTB
OMAR Dhani, fyrrum yfir-
maður flughers Indónesíu
var í dag dæmdur til dauða
fyrir sérstökum herrétti í
Djakarta. Var hann sekur
fundinn um að hafa átt aðild
að eða aðstoðað við byltingar
tilraunina haustið 1965.
Þegar dómurinn var lesinn upp
var tekið fram, að Dhani hefði
borið við yfirheyrslur, að Súkar-
no forseti hafi vitað um bylting
aráformin og enga tilraun gert
til þess að hindra framkvæmd
þeirra. Hann hefði þvert á móti
sagt við Subandrio, utanríkisráð
herra, er hann sagði honum frá
ráðagerðunum um aftöku hers
höfðingjanna sex, — „gott, mjög
gott“, — og klappað honum á
herðarnar.
Hershöfðingjarnir sex voru
myrtir í byltingartilrauninni 1.
október 1965.
Dhani bar einnig fyrir rétt-
inum að hann hefði eingöngu
hlýtt fyrirskipunum frá Sukarnó
forseta en þá staðhæfingu tók
rétturinn ekki gilda, taldi hann
sjálfan bera ábyrgð á aðgerðum
sínum.
Þegar kunnugt varð um dauða
dóminn yfir Dhani urðu kröfu-
raddirnar í Djakarta og víðar um
brottvikningu Sukarnos úr emb-
ætti enn háværari, þingfulltrúar
kröfðust þesss að Sukarno yrði
leiddur fyrir rétt óg fjórir áhrifa
ríkir Muhameðstrúar menn hafa
sakað Sukarno um að vinna að
því að auðvelda kommúnistum
að taka til starfa á ný.
Yfirmaður fangelsismála í Dja-
karta hefur upplýst að 10,000
Bíll lennur
ó lækni
Á FIMMTA tímanum I gær rann
fólksbíll á Ólaf Þorsteinsson,
lækni, þar sem hann var á gangi
norður gangstéttina við Póst-
hússtræti. Ólafur var fluttur í
Slysavarðstofuna, en meiðsli
hans munu ekki alvarlegs eðlis.
Slysið varð með þeim hætti,
að bíllinn var á leið austur
Kirkjustræti og ætlaði ökumað-
ur að beygja suður Pósthús-
stræti. En bíllinn rann þá beint
austur yfir gatnamótin og upp á
gangstéttina austan megin Póst-
hússtrætis, þar sem Ólafur var á
gangi.
Sauðárkrókur
HIÐ árlega spilakvöld Sjálf-
stæðisfélaganna verður n.k. föstu
dagskvöld í Bifröst og hefst kl.
8.30. Séra Gunnar Gislason flytur
ávarp og spiluð verður félags-
vist. Góð spilaverðlaun veitt
meðlimir kommúnistaflokksins,
sem nú er bannaður, sitji í fang-
elsum hingað og þangað um Indó
nesíu — en a.m.k. 140.000 félags-
bundnir kommúnistar séu frjáls-
ir.
Mikið hefur verið um funda-
höld yfirmanna hersins og Su-
karnos forseta að undanförnu
m.a. vegna hinnar hörðu gagn-
rýni á forsetann Hann hafði við
orð fyrir nokkrum dögum, að
vera kynni að hann færi til út-
landa innan skamms og mundi
þá taka með sér nokkra blaða-
menn. Sukarno hefur áður brugð
ið sér út fyrir landsteinana,
þegar gagnrýnisöldurnar hafa
risið hátt heima fyrir. Á mánu-
dag tilkynntu hins vegar yfir-
menn hersins, að þeir hefðu náð
samkomulagi . við Sukarno um
það hvernig fjarlægja skyldi þær
hindranir, sem staðið hafa í vegi
fyrir því að stjórnin gæti komið
umbótaáætlun sinni í fram-
kvæmd.
Á laugardag var lagt fyrir
þing Indónesíu fjárlagafrumvarp
sem unnið var með aðstoð sér-
fræðinga frá alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum. Er þar gert ráð fyrir
ýmsum mikilvægum ráðstöfun-
um til þess að reyna að koma
efnahag landsins á réttan kjöl.
1 frumvarpinu er ákvæði um
aukna fjárfestingu og ráðstafanir
er tryggi að forseti geti ekki
þjóðnýtt eignir erlendra aðila.
Svonhildur
Þorsteinsdóttii
lótin
FRÚ Svanhildur Þorsteinsdóttir,
rithöfundur, lézt í Reykjavík á
annan dag jóla.
Svanhildur fæddist 17. nóv
ember 1905 í Reykjavík, dóttir
Þorsteins Erlingssonar, skálds, og
Guðrúnar Jónsdóttur Erlings,
konu hans.
Hún var gift Sæmundi Stef-
ánssyni, stórkaupmanni, og áttu
hjón tvo syni, Þorstein og Stefán.
Árið 1943 gaf Svanhildur út
bókina Álfaslóðir, sem er safn af
smásögum. Átti hún allmargar
sögur óprentaðar er hún lézt. Þá
hafði hún einnig umsjón með
útgáfu á verkum föður síns. Auk
þess skrifaði hún margar greinar
í blöð og tímarit.
Svanhildur átti sæti I stjórn
Rithöfundafélags fslands og ís-
lenzka PEN-klúbbsins.
Hafnarfiarðar-
vegurinn teppfist
m jóladag
Á jóladag gerði stórhríð í Reykj
avík og nágrenni. Varð er á leið
daginn mjög þung færð í út-
hverfum borgarinnar og á Hafnar
fjarðarvegi við Hraunsholtslæk
myndaðist mikill skafl. Festist
þar fjöldi bíla og dæmi voru
þess að Hafnfirðingar, sem dvöld
ust í Reykjavik urðu að gista
þar um nóttina.
1 skaflinum við Hraunsholt
festist strætisvagn, er ætlaði út
fyrir veginn, vegna bifreiða sem
fastar stóðu á veginum. Reynd-
ist um tíma erfitt að aðstoða
hifreiðarnar, en brátt tókst að
ryðja skaflinn og gekk umferð
þá greiðlega.
Sem dæmi um umferðaröng-
þveitið sem myndaðist í sumurn
úthverfunum má geta þess að
lögreglan reyndi að koma manni
í efstu hús í Árbæjarhverfi og
urðu þeir frá að hverfa.
Mikið var um árekstra í Kópa
vogi samkvæmt upplýsingum lög
reglunnar þar, en geysileg um-
ferð var um Hafnarfjarðarveg á
aðfangadag, svo vart hefur sézt
annað eins.
Samkvæmt upplýsingum lö
reglunnar á Selfossi var mil
hálka á vegum austan fjalls, (
engin óhöpp urðu, þrátt fyr
hálkuna.
Séro Jakob
Jónsson slasast
DOKTOR Jakob Jónsson varð
yfir fyrir slysi á Þorláksmessu
og hefur legið rúmfastur yfir
hátíðina. Slysið varð í umferð
inni á Þorláksmessukvöld rétt
við Miklatorg. Var presturinn á
leið yfir götuna er hann datt um
stag, sem lá á milli tveggja bif-
reiða. Hann hlaut áverka á fæti
og var fluttur á Slysavarðstof-
una þar sem gert var að meiðsl-
um hans.
Dr Jakob biður bílstjórana á
bílunum sem taugin lá á milli
góðfúslega að hafa samband við
sig í síma 15969
*MSTEINAR
Hinar félagslegu
þariir
Kröfumar um fullnægingu hinnm
margvíslegu félagslegu þarfa
aukast stöðugt í þjóðfélagi okk-
ar, eins og reynslan hefur einnig
sýnt í hinum háþróuðu velmeg-
unar og velferðarþjóðfélögum
Vestur Evrópu og Norður Ame-
iku. Yngstu árgöngunum fjölgar
jtöðugt, þannig að óhætt er .að
fullyrða, að hinir yngstu árgang
ar séu nú helmingi fjölmennari
en árgangar þeirra, sem komnir
eru fram yfir miðjan aldur. Það
kallar á stöðugt fleiri skólastof-
ur um leið og kröfur til bættrar
menntunar kalla á aukin kennslu
tæki og betur menntaða kenn-
ara. Eftir því sem læknisfræð-
inni fleygir fram og hún á auð-
veldara með að lina hinar marg-
víslegu þjáningar, sem hrjá mann
inn, verður þörfin fyrir sjúkra-
rými og hvers kyns rannsóknar-
stofnanir stöðugt meiri, og þess
vegna aukast kröfurnar um
byggingu fleiri sjúkrahúsa.
Breyttir þjóðfélagshættir gera
það að verkum að fleiri konur
vinna úti en áður og í framhaldi
af því koma auknar kröfur um
fleiri barnaheimili en áður, og
samvizka nútímamannsins krefst
þess, að meira sé gert en áður
fyrir þá, sem við bágan hag búa.
Þannig aukast kröfurnar á hinu
félagslega sviði og gleypa stöð-
ugt stærri hlut af skattgreiðsíum
hins almenna skattgreiðanda í-
landinu.
Heilbrigð skynsemi
og nútíma tækni
Við lausn þessara viðamiklu
verkefna er nauðsynlegt að sam-
an fari heilbrigð synsemi og beit
ing nútíma tækni til hins ýtrasta.
Skólabyggingar, sjúkrahús og
barnaheimili eru mjög dýrar
stofnanir og verða stöðugt dýrari
vegna þess að sífellt eru gerðar
meiri kröfur til gæða þeirra án
þess þó að menn staldri nægilega
oft við til þess að íhuga, hvort
hinar auknu kröfur séu í nokkru
samræmi við heilbrigða skyn-
semi. Við íslendingar höfum ekki
farið varhluta af þessari þróun
á uridanförnum árum og munum
verða hennar rækilega varir á
næstu árum. Þess vegna ber
brýna nauðsyn til að byggingar-
mál slíkra félagslegra stofnana
séu tekin til rækilegrar athugun-
ar og endurskoðunar, og nýtízku
legum vinnubrögðum og tækni
beitt við undirbúning og fram-
kvæmd slíkra bygginga. Að skól
ar verði byggðir á sem allra ó-
dýrastan og hagkvæmastan hátt,
og þess gætt að nýta það fjár
magn sem fyrir hendi er á hverj
um tíma, sem bezt, þannig að
ekki sé fest fé í mörgum fram-
kvæmdum, sem ef til vill er
ekki hægt að Ijúka nema á löng
um tíma, vegna þess að f jármagn
inu hefur verið dreift um of. Að
leitað sé ailra skynsamlegra leiða
til þess að fullnægja þörfinni
fyrir aukin sjúkrarými á sem
ódýrastan og hagkvæmastan hátt
og þess gætt að í slíkum bygg-
ingum sé ekki farið út í öfgar i
sambandi við hin nýtízkulegu
tæki, sem tilheyra sjúkrahúsum
nútímans. Og að spyrnt verði fót
um við þeirri þróun, að böru
séu alin upp á stofnunum, en
ekki heimilum, eins og tíðkast
hefur á þessu landi fram að
þessu, um leið og sjálfsagt er aff
fullnægja eðlilegri þörf fyrir
barnaheimili vegna þeirra sem
af sérstökum heimilisástæðum
námsönnum eða veikindum þurfa
að koma börnum sínum fyrir á
slikum heimilum. Ef við gætum
þess ekki nú þegar að taka full
nægingum hinna margvíslegu
félagslegu þarfa í þjóðfélaginu
föstum tökum er hætt við að hin
fjárhagslega byrði af þeim verffi
harla þungbær í framtíðinni.