Morgunblaðið - 30.12.1966, Síða 5
Föstudagur 30. des. 1966
MORGU NBLAÐIÐ
5
i .i.,iT..n
Milljón kr. „jóla"-vinningurinn i Happdræfti
Háskólans féll til ungs bónda i Þingeyjarsýslu
1
UNGUR bóndi að Víðiholti í
Reykjahverfi í Suður-ÍÞing-
eyjarsýslu hlaut milljón
króna vinning í Happdrætti
Háskólans í byrjun desemtoer.
Hann heitir Jón Helgi Jóhanns
son og er 22 ára að aldri.
Jón kom til Reykjavíkur eft-
ir jólin í boði happdrættis-
ins og vár unnusta hans,
Unnur Sigríður Káradóttir,
18 ára, frá Húsavík, í fylgd
með honum.
Morgunblaðið hefur hitt
Jón og Unni að máli og fór-
ust Jóni svo orð:
— Ég keypti miða í Happ-
drætti háskólans fyrir þrem-
Jón Helgi Jóhannsson og unnusta hans, Unnur Sigriður Káradóttir.
Hafði dljösar spurnir af stóra vinn-
ingnum með mjólkurbílstjóranum
ur árum, heilmiða í A-flokki.
í þessi þrjú ár hef ég ekki
fengið vinning fyrr en nú og
það munaði aldeilic um
hann.
— Ég haffti óljóear spurnir
W þvi hjá mjólkurtoílstjóra
aveitarinnar, að ég hefði feng
itt stóra vinninginn, en ég
gerði ekkert með það.
— Þetta var kvöldið áður
en umtooðsmaðurinn i Hú«a-
vík, Árni Jónsson, Ásgarði 16,
hringdi tti min, en það var
mánudagsmorguninn 12. des-
emtoer. Hann bað mig að
koma til Húsavíkur og hitta
»ig. Hann þyrfti að tala heil-
mikið við mig.
— Mig grunaði strax, hvað
væri á seyði, og fór þegar til
Húsavíkur, en þangað er stutt
leið frá Víðiholti, aðeins 16-17
km.
— Árni sagði mér, að það
hefðí hent mig mikið happ
og skýrði mér frá þvi, að ég
hefði unnið eina miiljón í
happdrættinu og foirráða-
menn þess langaði tti að fá
mig og unnustu mína suður,
öðru hvoru megin við ára-
mótin.
— Það gleddi mig að fá
vinninginn. Ég hef ekki enn
afráðið, hvað ég geri við pen-
ingana, en ég hafði ætl-að mér
að byggja Sbúðarhús með vor-
inu fyrir okkur Unni. Nú mun
ég starida við þá áætlun.
— Ég hef búið með föður
minum í Viðihölti,' Jóhanni
Jó'hannessyni. En undanfarin
þrjú ár hef ég stundað at-
vinnu að vetri til annars stað
ar, m.a. hjá jarðboranadeild
Rafmagnsveitna rikisins.
— Framtiðaráætlanir mín-
ar eru bundnar við búskap að
Víðiholti í félagsskap við föð-
ur minn. Ráðstafanir á fénu
að öðru leyti eru í lausu
lofti, en þó Tiefur okkur Unni
flogið í hug að skreppa í
skemmtiferð til útlanda, hvort
sem af því verður.
— Margir samsveitungar
mínir hafa óskað mér til ham
ingju með vinninginn og virð
ast þeir glaðir yfir þvi, að
hann skyldi koma í sveitina.
Þett* mun vera í fyrsta sinn,
sem milljón króna vinningur
kemur til Norðurland*.
— Við Unnur komum til
Reykjavíkur um hádegið á
miðvikudag í boði happdrætt-
isine og var Árni, umboðs-
maðurinn á Húsavík í fylgd
með okkur. Við ætluðum að
koma degi fyrr, en það var
ekki hægt að fljúga vegna
veðurs.
— Happdi-ætti Háskólans
hefur tekið frábærlega vel á
móti okkur. Við búum að
Hótel Sögu og á miðvikudags
kvöld var okkur haldið matar
boð í Átáhagasalnum. í boð-
inu afhenti Árni mór vinn-
inginn, eina milljón króna í
sparisjóðstoók.
— Við Unnur förum senni-
lega heim aftur á gamlársdag,
ef veður hamlar eigi. Áður en
við förum mununr^ við fara í
verzlanir höfuðtoorgaj'innar
ti] að kaupa það, sem hugur
okkar stendur tiL
— Ég mun að sjálfsögðu
halda áfram með vinnings-
miðann. Ég hef oft verið að
hugsa um að hætta við hann,
en hef aldrei þorað þvi af
ótta við að þá kæmi vinning-
ur á hann. Annars á ég einn-
ig tvo hálfmið* að auki.
— Ég vti þakka forráða-
mönnum toappdrættisins og
Arna á Húsavík fyrir mót-
tökurnar og fyrirgreiðslu
a]Ja. Og að lokum vildi ég
óska Háskóla íslands og happ
drættinu gæfu og gengis á
komandi árum.
— Heildarvinningar
Framhald af bls. 3
2 vinningar á 1.000.000.00
kr. samtals 2.000.000.00 kr.
22 vinningar á 500.000.00
kr. samitals 11.000.000,00 kr.
24 vinningar á 100.000,00
kr., samtais 2.400.000,00 kr.
I.»3i2 vinningar á 10.000,00
kr., samtals 18.320.000,00 kr.
4.072 vinningar á 5.000,00
kr., samtals 20.360.000,00 kr.
24.000 vinningar á 1.500,00
fcr., samtals 36.000 000,00 kr.
i Aukavinningar:
4 vinningar á 50.000,00 kr,
•amtals 200.000,00 kr.
44 vinningar á 10.000,00 kr,
•amtals 444.000,00 kr.
Atis 30.000 vinningar á
•0.720.000,00 kr.
Samkvæmt lögum um Happ
diætti Háskóla íslands, er
•vo fyrir mælt, að ágóða af
rekstri þess skuli varið tti
•ð reisa byggingar á vegum
Háskóla Islands, greiða við-
hald háskólabygingarinnar,
fegra háskólalóðina, til að
koma á íót og efla rannsókn
arstöðvar við hinar ýmsu
deildir Háskólans, svo og til
að greiða andvirði rannsókn-
ar- og kennslutækja, sem há-
skólinn telur sér nauðsyn »ð
eignast.
Árangurinn af starfi Happ-
drætti Háskóla fslands blasir
að nokki-u við í háskólahverf
inu, þar sem bygingar Há-
skólans eru. Annar hluti ár-
angursins blasir ekki eins við
allra augum, en það er sá
tækjabúnaður sem aflað hefur
verið fyrir fé Happdrættis Há
skóla íslands til hinna ýmsu
rannsóknarstofa. Kostnaður af
kaupum kennslu- og rannsókn
artækja hefur farið sivaxandi
á undanförnum árum og er
fyrirsjáanlegt, að svo muni
áfram verða á komandi árunt
Segja má um margar stofn-
anir Háskóla íslands að þær
séu naumast hálfgerðar þótt
byggingar þeirra séu risnar
af grunni, því að gífurlegt fé
þarf til öflunar þeirra tækja
og búnaðar, sem nauðsynleg-
ur er til starfsemi þeirra.
Síðasta stórframkvæmd á
vegum Háskóla fslands er
bygging Raunvísindastofnunar
Háskóla fslands, sem lokið
var við á þesu ári og hefur
þegar hafið starfsemi sína.
Bygging þessi kostar rúmar
20 millj. króna, og lagði Happ
drætti Háskóla íslands fram
meira en þriðjung þess fjár.
Hús Háskólans og Handrita-
stofnunar.
Næsta verkefni sem ráðizt
verður í, er bygging húss Há-
skóla íslands og Handrita-
stofnúnar fslands. Bygging
húss þessa mun hefjast í vor.
Er þar um að ræða mikla
byggingu sem Háskólinn mun
eiga og kosta að u.þ.b. %
hlutum. Verða í því húsi fyrst
og fremst kennslustofur og
lestrarsalir fyrir stúdenta, auk
vinnuaðstöðu fyrir kennara
og húsnæðis fyrir Orðabók
Háskólans. Hluti Háskólans í
húsi þessu rerður alfarið
greiddur af happdrættisfé. Er
húsinu ætlað að bæta úr brýn
ustu þörfum Háskólans fyrir
aukið kennsluhúsnæði, en Há
skólinn verður nú þegar að
leigja húsnæði á nokkrum
stöðum fyrir starfsemi sína
og fyrirsjánlegt er, að ástand
ið mun versna að mun með
hverju ári, Verður því lagt
mikið kapp á að koma nýju
byggingunni í gagnið sem
allra fyrst.
Þá er öflun húsnæðis 1
þágu læknakennslu brýnt
verkefni, og er það næsta
byggingarframkvæmd sem nú
er áformuð við Háskólann.
Fyrirsjáanlegur vöxtur allra
deilda Háskólans á komandi
árum á sviði kennslu og rann
sókna krefur óteljandi fram
kvæmdir, sem kostaðar verða
af happdrættisfé. Þeir, sem
skipta við Happdrætti Háskól
ans, eru því þátttakendur í
því stórkostlega vísindalega
uppbyggingarstarfi, sem fram
undan er.
MEÐ
EIMSKIP
A NÆSTUNNI ferma skip
vor til íslands, sem hér segir:
Seeadler 4. janúar
Mánafoss 10. janúar**
Skógafoss 20. janúar
Seeadler 30. janúar
HAMBORG:
Gullfoss 6. janúar
Goðafoss 12. janúar
Bakkafoss 16. janúar**
Skógafoss 23. janúar
Askja 31. janúar
ROTTERDAM:
Seeadler 3. janúar
Goðafoss 9. janúar
Bakkafoss 13. janúar**
Skógafoss 19. janúar
Askja 27. janúar
LEITH
Gulfoss 9. jan.
Marjetje Böbmer 28. jan.
LONDON:
Seeadler 6. janúar
Mánafoss 13. janúar**
Marjetje Böhmer 23. jan.
Seeadler L febrúar
HULL:
Marjetne Böhmer 30. des.
Seeadler 9. janúar
Bakkafoss 18. janúar**
Marjetje Böhmer 26. jan.
Seeadler 3. febr.
GAUTABORG:
Lagarfoss 5. janúar
Tungufoss 16. janúar**
Lagarfoss 30. janúar
KAUPMANNAHÖFN:
Lagarfoss 3. janúar
Tungufoss 14. janúar *
Lagarfoes 28. janúar
NEW YORK:
Selfoss 6. jauúar
Reykjafoss 20. janúar *
Brúarfoss 3. fetor.
KRISTIANSAND:
Lagarfoss C. janúar
Tungufoss 10. janúar**
Lagarfoes 21. janúar
BERGEN:
FjalMoss 13. janúar
KOTKA:
Dettifoss 12. janúar
VENTSPILS:
Dettifloss 9. janúar
GDYNIA:
Dettifosa 7. janúar
Fjallfoes 9. janúar
Skip u»n 27. janúar
• Skipið losar á öllum aðal-
höfnum, Reykjavík, ísa-
firði, Akureyri og Reyðar-
firði.
*• Skipið losar á öllum aðal-
hiifnum; auk þess í
Vestmannaeyjum, Siglu-
firði, Húsavík, Seyðisfirði
og Norðfirði.
Skip, sem ekki eru merkt
með stjörnu, losa í Reykja-
vik.
g|
ai’]Ki;«a
/