Morgunblaðið - 30.12.1966, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 30.12.1966, Qupperneq 20
20 MOkCU H BLAÐIÐ Föstudagur 30. des. 1966 Enn um togaraútgerðina ERFIÐLEIKARNIR á rekstri tog aranna eru nú mjög til umræðu, en þó eru flestir sammála um að ekki sé tímabært að leggja togaraútgerð niður en reyna heldur að styðja við hana, þó að raunhæfar aðgerðir hafi virzt torfundnar til þessa, þrátt fyrir fjölda nefnda og nefndanefnda þeirra vegna á liðnum árum. Venjulega hefur það verið svo þegar þessar nefndir hafa látið frá sér fara álit í sambandi við togarareksturinn hefur það haft lítið innihald umfram það sem allir hafa vitað, sem lágmarks- kynni hafa haft af honum. Þó hafa þeir sjaldan, eða ekki, minnst á hið lága fiskverð, sem togararnir hafa alltaf búið við hér heima og þó sérstaklega á tímum bátagjaldeyrisins, ein- mitt á því timabili, sem togaxarn ir skiluðu sem mestu á land, en töpuðu samt. Á sama tima varð gífurleg aukning í frystihúsaiðn aðinum og ábyggilega að stórum hluta á kostnað togaranna vegna hins lága fiskverðs. Það verður þó ekki sagt um eigendur fiskvinnslustöðvanna að þeir hafi viðhaft sömu fljót- virku aðferðina gagnvart togur- unum og fiflið í æfintýrinu sem drap og át hænuna, sem gulleggj unum verpti, heldur hefur græðgi þeirra átt sinn þátt í að svelta og reyta af togaraútgerð- inni svo að nú er hún komin að fótum fram og hjá þeim hallar mjög undan fæti, ef taka skal mark á hljóðunum, sem bárust af síðasta aðalfundi þeirra. Er hér sem oftar að saman fer or- sök og afleiðing. Það sem á seinni árum virðist aðal hjálpræðið að áliti nefnd- anna og útgerðarmanna er að breyta vökulögunum úr 6 og 6 í 12 og 6, það er að fjölga vinnu- stundunum úr 84 á viku í 112 og þetta ætla þeir að gera á sama tíma og verkalýðsfélög í ?andi eru að berjast fyrir styt ingu vinnuvikunnar í 40 stundir. Að láta sér slíkt úrræði til hugar koma yrði áreiðanlega öllum ómögulegt nema íslenzkum bjarg ráðanefndarmönnum. f fram- kvæmd myndi þetta aðeins leiða til að menn gengu í land af skip unum og þá um leið dauðadóm- ur á íslenzka togaraútgerð. Reyndar hafa nefndarmenn orðað þetta svo að fækka þyrfti mönnum á togurunum, en ekki minnst á vökulagabreytingu, en meiningin er hin sama. Einnig tala þeir um að áhöfn á íslenzk- SALAMANDER Gleðilegt nýtt ár ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á LIÐNA ÁRINU. SKÖVERZLUN um togara séu 30 menn, en slíkt á sér ekki stoð í veruleikanum, ef undan eru skilin nýju skipin. Sanni mun nær að meðal áhöfn sé 26 til 28 og ættu forstjórar togaraútgerðanna að geta gelið nefndinni réttar upplýsingar. Staðfestingu á þessu er auðvelt að fá á skráningarstofum. í sambandi við vökulagabreyt inguna hafa útgerðarmenn bent á að á erlendum togurum sé 12 og 6 eða jafnvel engin vökulög og þá um leið færri menn á þeim. Um leið hafa þeir gleymt að geta þess að vinna, sem skip- verjar á íslenzkum togurum vinna um borð er að nokkru leyst af hendi í landi, þegar um erlend skip er að ræða. Fyrir ekki löngu skrif- aði Osvald Gunnarsson loft- skeytam., grein í sjómannablað- ið Víking og gerði þar sanaan- burð á kaupgreiðslu á enskum togurum og íslenzkum og mið- aði við tíu þúsund punda sölu. Sá samanburður sýndi að heild- arupphæð kaupgreiðslu til áhafn ar enska togarans var ekki lægri en til þeirra íslenzku, þó Englendingarnir væru færri. Einnig gat hann þess að Eng- lendingarnir fá allt splæst og net fixuð úr landi, auk þess sem troll eru yfirhöluð og lagfærð af mönnum úr landi þegar skip- in koma í höfn. Þeir sem til þekkja (og það skulum við ætla að útgerðarmenn og þeir sem í nefndunum hafa setið geri), eiga auðvelt að sjá þvílíka geypi upphæð þessi vinna kostaði, ef framkvæmd væri af verkstæð- um í landi. Enginn af útgerðamanna hálfu varð til þess að gera tilraun til að hrekja neitt í grein Osvalds og sýnir það út af fyrir sig að rétt hefur verið með farið, enda hefur oft reynst heppilegt að reyna að þegja sannleikann 1 hei. Meðal kaup háseta mun vera um 170 til 180 þúsund krónur á ári og ef gert er ráð fyrir að útgerðarmenn bæti þeim að engu upp vinnutíma með 12 og 6, þá mun meðal hagnaður verða um 350 til 700 þúsund á skip auk fæðiskostnaðar og trygg- inga. Ef svo er gert ráð fyrir að íslenzkir útgerðarmenn létu vinna að veiðarfærum í landi á sama hátt og Englendingar, þá yrðu þessar 700 þúsundir áreið- anlega lítið upp í kostnaðinn, sem það hefði í för með sér. Hugsa ég að þeir yrðu fyrstir til að viðurkenna það sjálfir, þvi manna bezt þekkja þeir verk- stæðisreikningana. Að gefa nefndinni ráð sem dugar treysti ég mér ekki, en ég vildi benda henni á að rétt væri að gera samanburð á hversu mörg prósent mannakaup væru Framhald á bls. 21. Frystihúsin Færeyingar og NÝKOMINN er frá Færeyjum reykvískur útgerðanmaður. Fór hann til Færeyja til að atíruga með Færeyinga á bát sinn á Flugelda- markaður Ódýrusiu og bezfu flugeldar bæjarins Einnig geysimikið iírval af sólum, signalblysum, drekagosum, stjörnuljósum og þess háttar. Forbist þrengslin verzlib tímanlega. Kaupið flug- eldarta, þar sem þeir fást ódýrastir HAGKALP Miklatorgi. komandi vertíð. Þegar hann kom þar í land mætti honum kynleg saga. Fyrr i haust sendi frysti- húsaeigandi nokkur menn til mannaráðninga til vinnu við fyrirtæki sitt. Kjörin sem hann bauð voru þessi: kr. 16.000,00 kauptrygging á mánuði, fríar ferðir til jólaleyfis og allar aðr- ar ferðir fríar, og þeir menn, sem ekki nota sér jólaferðir hafa hálfa tryggingu jólafríið. Þetta gerist á sama tíma og frystilhúsa- eigendur lýsa því yfir opinber- lega að þeir geti ekki starfað á þeim grundvelli, sem verið hefur, það er að segja hvorki greiða það kaup né það fiskverð, sem gilt hefur til þessa. Frysti- húseigandi þessi bíður kaup- tryggingu, sem umræddur út- gerðarmaður getur ekki staðizt við að bjóða vegna þess að bátur hans hefur engin skilyrði til að taka á sig þau auknu útgjöld, sem það gæti haft í för með sér, með tilliti til aflabrests eð* ógæfta eða annarra skakkafall* auk þess sem það er ógerlegt vegna íslenzkra sjómanna þar sem samningsbundin kauptrygg- ing er mikið lægri heldur en til- boð frystihúseigandans. Þessar aðgerðir eru í freklegri mótsöga við yfirlýsingu aukafundar S. H. á hótel Sögu, sem innihélt harmakvein til þjóðarinnar. Vi# viljum benda á að frystihús- eigendur hafa notað sér Ihagræð- ingar féð til kaupa á síldveiði- skipum og gleyma sínum eigia raunum jafnframt því, sem þeir hafa losað sig við minni bátanat Nú slá þessir ágætu menn okkur í andlitið ekki eitt högg, heldt» tvö, annarsvegar yfirbjóða þeir fyrir okkur mannskapinn og hinsvegar vilja þeir lækka verð- ið á fiskinum. Nú finnst okkur útvegsmönnum, sem bolfiskveið- ar stunda mælirinn fullur, og verði tekið mark á hanmakveini S.H. við ákvörðun fiskverðsina á bomandi vertíð, hljótum við að gera þær ráðstafanir, sem að haldi megi koma. Guðni Sigurðsson. Skipstjóro vantar á góðan bát, sem rær frá Grindavík í vetur. Þeir, sem vildu kynna sér þetta, leggi heimilisfang og súnu- númer inn á afgr. Míbl. fyrir 0. jan., merkt: „Skipstjóri —ai3«3“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.