Morgunblaðið - 30.12.1966, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 30. des. 1966
Aðalverkefni skíðaráðssns:
Austurrískur skíðaþjálfari og
keppni Glasgow og Bergen hér
Bætl skipulag skíðaferða
og upplýsinga um þær
falið í fargjaldi er trygging hjá
slysatryggingarsjóði íjþrótta-
ibandalags Reykjavíkur.
Þjálfun skíðamanna
Hvað þjálfun reykviskra sk'íða
manna snertir, sýna árangrar
þeirra á skíðamótum á sl. vetri,
áð einhverra aðgerða er þörf.
Reynt hefir verið að senda
menn til þjálfunar erlendis, en
Ihive það er kostnaðarsamt hefir
ekki tekizt að senda nema fáa
og þá aðeins til stuttra dvala og
er árangur ekki sem skyldi af
þv'í. Á komandi vetri hefir skíða-
ráðið því ákveðið að fá hingað
austurrískan þjálfara í 1%—2
mánuði, en samningar hafa enn
ekki tekizt svo að ekki verður
I skýrt frá neinum nöfnum í því
oaniiu'au'Ui
mijög mikils af sliikum þjá'lfara
þar sem austurrískir þjálfarar
Framhald á bls. 27.
Skjaldarglíma
SKJALDARGL.ÍMA Ármanns
1967 verður háð að Hálogalandi
1. febrúar kl. 20.30. Þátttökurétt
eiga allir, sem eru löglegir félag*
menn í félögum innan ÍBR. —
Þátttökutilkynningar berist skrif
lega til Harðar Gunnarssonar,
pósthólf 104 eigi síðar en 21. jan.
n.k.
MIKIL og mörg verkefni ern að
vanda á dagskrá Skíðaráðs
Reykjavíkur um þetta leyti árs.
Við formennsku í ráðinu hefur
tekið Þórir Lárusson af Ellen
Sighvatsson, sem lét af for-
mannsstörfum sökum anna, en
situr áfram í stjórn. Á dögunum
hoðaði Skíðaráðið fréttamenn á
sinn fund og rakti helztu málin
sem á döfinni eru. Ber þar hæst
betra fyrirkomuiag um upplýs-
ingar um skíðaferðir, þjálfun
reykviskra skíðamanna og móts-
bald.
Skíðaráðið vinnur nú að
því að fá hingað austurriskau
þjálfara og einnig standa yfir
samningaumræður um að
borgakeppni milli Reykjavík-
nr, Bergen og Glasgow fari
fram hér og þá í sambandi
við „Stefánsmótið“ svonefnda
í Skálafelli.
Þórir Lárusson hafði orð
fyrir stjórn ráðsins á blaða-
mannafundinum og sagði m.a.:
Skíðaferðir
Eitt af þeim meginvandamál-
um sem vi'ð höfum átt við að
stríða undanfarin ár, eru fastar
ferðir í skíðalöndin.
Þetta vandamál er eitt af vel-
megunarvandamá’lunum svoköll-
uðu, sem stafar af þvá hve gífur-
lega einkabifreiðum hefir fjölg-
að, en farlþegum með skíðaferð-
unum aftur fækkað, en ekki hitt
að fólk stundi ekki skiðin, þvi
að á góðviðrisdögum á veturna
þegar snjór er nógur er varlega
áætlað að um 8—10 þiús. manns
séu á skíðum í skíðalöndum
Reykjavikur.
Hváð afgreiðslu sbíðaferðanna
snertir hefir það mál verið leyst
eins og bezt verður á kosið, því
að á sl. vetri fluttist afgreiðslan
í Umferðarmiðstöðina, þar sem
hægt vérður að fá upplýsingar
um ferðirnar, stærð skálanna,'
kostnað við dvöl þar, hvort um
veitingar sé að ræða, hverjir séu
forráðamenn skálanna o. s. frv.
Þetta er tvímælalaust stórt
skref fram á við í þessum efnum
og á vafalaust eftir áð greiða fyr-
ir mörgum sem hyggur á skíða-
ferðir eða dvöl til fjalla í lengri
eða skemmri tíma.
Keyrsluna annast eftir sem
áður Guðmundur Jónásson hf.
og Kjartan & Ingimar, en við þá
hefir \Skíðaráðið gert sérstaka
samninga f. h. skíðafélaganna.
Skylt er að geta þess að inni-
Valur vann Fram
— í gærkvöldi með 16—13
ÞAU óvæntu úrslit urðu á ís-
landsmóti 1. deildar í gærkvöldi
að Valur vann Reykjavíkurmeist
arana Fram með 16 gegn 13. —
Komust Valsmenn í 4-0 í byrjun
og fyrsta mark Fram kom eftir
8>4 mínútu. Allan fyrri hálfleik
hafði Valur minnst tveggja
marka forskot og 4 í lokin og
Któð 8-4 í hléi.
Fram skoraði 4 fyrstu mörkin
1 síðari hálfleik og var í stórsókn.
En Viti Gunnlaugs var varið og
einnig hörkuskot úr gcrðum fær-
um. Voru það því markmenn
Vals sem ekki áttu minnstan
þáttinn í sigrinum.
Er 15 mín. voru eftir ná Vals-
menn forystu, 9-8, og héldu
henni eftir það. Undir lokin varð
spenningurinn mikill, en 3 mín.
fyrir leikslok komst Valsliðið í
15-11 og útséð var um sigurinn.
Framarar tóku að leika maður á
mann en i þeim hrunadansi skor-
uðu þeir 2 mörk gegn 1 frá Val
og leik lauk með 16-13 fyrir VaL
Flestir höfðu búizt vfð að Fram
og FH væru ein um að berjast
um sigurinn, en Valsmenn hafa
niú svo sannarlega þlandað sér í
það stríð.
Clay réðist oð Terrill á
blaðamannaíun di í gær
— og vildi gera út um málin á stunúinni
Cassius Clay og Emie Terr
eli eiga sem kunnugt er að
heyja baráttu um heimsmeist
aratitilin í þungavikt hnefa-
leika 6. febr. n.k. Terrel er
hinn viðurkenndi heimsmeist
ari hjá Heimssambandi hnefa
leikamanna — því Clay fær
ekki viðurkenningu þess, þar
sem hann braut lög þess um
samningsbundna tvo leiki við
sama mótherja í xöð. (gegn
Liston).
1 gær héldu þeir blaða-
mannafund og bar það þá til
tíðinda að Clay sló til Terr
ells og reyndi að rífa hann úr
jakkanum um leið og hann
hrópaði: — Við skulum bara
gera út um þetta allt saman
á stundinni.
Terrel setti sig í stellingar
og bjóst tií að taka á móti
Clay, en þá gengu leiðtogar,
framkvæmdastjórar o. fl. á
milli og stilltu til friðar.
Upphaf átakanna var að
Clay var óánægður með að
Terrell ávarpaði hann aldrei
Mohamed Ali en nefndi hann
alltaf Cassius Clay.
— Þú ert bara aumkunar-
verður „Onkel Tom“, eins og
Floyd Patterson, hvæsti Clay.
Þetta er orðtak yfir þræla,
sem sleikja sig upp við hvíta
menn.
Við þetta hófust átökin, sem
benda til þess, að það verði
enginn „mömmuleikur", sem
þeir leika þegar þeir hittast
í hringnum.
Framtiðardraumur skiðamanna
Fullkominn gististaður til
með lyfkiim til útsýnis og skíðaferða
Á fundi sem forráðamenn
Skiðaráðs Reykjavíkur héldu
með blaðamönnum nýlega
sagði Þórir Lárusson að fram
tíðardraumur skiðamanna og
þeirra er útivistar til fjalla
vilja auka sé að hér rísi glæsi
legur og fullkominn ferða-
mannastaður til fjalla. Sagði
Þórir að framsýnustu menn
teldu undirbúning þessa máls
þegar aðkallandi.
Slikur staður á að geta boð
ið ferðamönnum fullkomið
hótel með 1. fl. þjónustu svo
og lyftur á hæðstu tinda ná-
grennisins til útsýnis. Þessi að
staða gæti svo komið skíða-
mönnum vel að vetrinum.
Ef slíkur staður risi, stæði
Reykjavíkurþorg jafnfætis
ýmsum borgum á Norðurlönd
um, samsvarandi að stærð,
jafnfætis hvað slika aðstöðu
snerti. Hvað hann ýmsar 100
þús. manna borgir búa við
slíka aðstöðu.
Þórir sagði, að Skíðaráðið
vildi leggja þessu máli fullan
stuðning, af veikum mætti
þess og hvað ráðið vænta að
þeir aðilar sem um ferðamál
fjalla taki þetta til athugunar.
Enn sem komið er búa
reykvískir skíðamenn við hin
ar örðugustu aðstæður. Þórir
kvað stundum gaman að því
hent að of mikill snjór hafi
fjalla
heft skíðafólk á leið þess til
æfinga. En hann kvað það
frekar opinberum aðilum til
hnjóðs, en hitt, að geta ekki
haldið 10—12 km. leið —
fram yfir venjulegar vega og
strætisvagnaleiðir —- opnum,
jafnvel ekki þó snjólétt mætti
kalla eins og átt hefur sér
stað að undanförnu.
Framtíðardraumurinn virð-
ist því fjarlægur, eða að
minnsta kosti stinga veru-
lega í stúf við ríkjandi að-
stæður skíðafólks í Reykja-
vik.
Danlr unnu
Svía 16—13
DANLR og Svíar háðu landsleik
í handknattleik karla í Forum i
Kaupmannahöfn á miðvikudags-
kvöldið. Leiknum lyktaði með
sigri Dana, sem skoruðu 16 mörk
gegn 13. í hálfleik var staðan
8-8.
— og Svíar Dani
22 — 13
Síðari leikur landanna var leib
inn í Helsingborg í gærkvöldj
og fór nokkuð á arinan veg.
Hefndu þá Svíar fyrri ófara og
unnu með 22.13, í hálfleik var
staðan 12:2, og næsta sjaldgæft
að landslið skori ekki nema 2
mörk í hálfleik.