Morgunblaðið - 30.12.1966, Síða 27

Morgunblaðið - 30.12.1966, Síða 27
T8shi3agttr 30. ðes. 1960 MORGUNBLAÐíÐ 27 Verzlanir í Reykjavík og víð ar lögðu margar hverjar mikla vinnu og hugmynda- flug í skreytingar glugga sinna í jólamánuðinum. Mörgum tókst mjög vel og eru verkin eftirminnileg. En einna bezt tókst forráðamönnum verzlun arinnar P&Ó á Laugavegi. Gluggar þeirra vöktu ó- skipta athygli vegfarenda. Hér er mynd af þeim, sem gefur þó ófullkomna hugmynd um snyrtileik verksins. — Ljósm. Sveinn Þorm. — Byltíngin etur Framhald af bls. 1. ritari flokksdeildar kommúnisia í Suður-Kína, óg gegndi því em- bætti þar til í fyrra, að hann var skipaður vara-forsætisráðherra. í sumar var hann skipaður yfir- maður áróðursdeildar mið- stjórnar flokksins, og hann á sæti í fastaráði stjórnarnefndar flokks ins. Tao hefur verið talinn ein- dreginn fylgismaður Lin Piaos varnarmálaráðherra, og Lin Piao talinn standa að baki rauðu varð liðanna. Hefur því árásin á Tao vakið mikla furðu. Fyrir tveimur vikum varð Tao einnig fyrir árásum rauðu varð- liðanna. Gagnrýndu þeir hann fyrir embættismistök, og viður- kenndi þá Tao mistök sín. Auk árásanna á Tao hafa rauðu varðliðarnir haldið áfram áróðri sínum gegn Chen Yi utanríkis- ráðherra, konu hans og syni, Liu Shao-chi farseta og Teng Hsiao-ping, fyrrum aðalritara flokksins. Margir háttsettir leið togar kommúnista hafa orðið að láta af embættum vegna aðgerða rauðu varðliðanna, og nokkrir eru sagðir hafa framið sjálfs- morð, þeirra á meðal Lo Jui- ching, fyrrum yfirmaður rauða hersins. — Iþróttir Olíudeila Sýrlands og fraks SKÖMMU fyrir jól gerði sýr- lenzka stjórnin upptækar eign ir olíufélagsins IPC (Iraq Petroleum Co.), sem í Sýr- landi eru, og lokaði með þeim hætti hinum mikilvægu olíu- leiðslum félagsins frá Irak um Sýrland til Miðjarðarhafsins, þaðan sem oliunni er skipað út IPC-oliufélagið er 1 eigu aðila á Vesturlöndum, en sá aðili, sem bíður hvað mest tjón vegna þessara aðgerða er þó írak, frændríki Sýrlands og speglar þessi ráðstöfun sýrlenzkra yfirvalda vel það ástand, sem nú ríkir í sam- skiptum Arabaríkjanna inn- byrðis. Xrak missir nú af gjöld um þeim, sem oHufélagið greiddi þar til ríkisins. Hafa þau numið yfir 300 milljón dollurum á ári og staðið að miklu leyti straum af útgjöld um ríkisins. Þrátt fyrir þessar aðgerðir ihefur ríkisstjórn íraks borið sig borginmannlega og í land inu hefur vart nokkur aðili, hvort heldur stjórnarvöld, blöð eða aðrir mótmælt að- gerðum Sýrlandsstjórnar, sem engum dylst samt, að haft getur í för með sér fjárhags- legt hrun eða öngþveiti í Irak. Landið á í miklum fjár- hagserfiðleikum fyrir og þarf ekki neina olíudeilu til þess að skapa þá, en lokun olíu- leiðslanna um Sýrland minnk ar olíuútflutning íraks um 70%. Ekki elnungis hatfa engin mótmæli verið borin fram, heldur íhefur Naji Taleb for- SNYRTISTuFA Sími 13645 Hverfisgötu 42. • > Crimplene á 6—13 ára á jólatrésskemmtunina. KOTRA Framnesveg 3. Sími 17021 sætisráðherra íraks opinber- lega samþykkt þessa ráðstöf- un Sýrlandsstjórnar. Sá orð- rómur leikur á, að Taleb, sem er fyrrveandi foringi í hern- um, hafi raunverulega viljað segja af sér. En eins og sakir standa, þá er hann nú í þeirri einstöku aðstöðu að hafa sam- þykkt ráðstöfun Sýrlands- stjórnar, þar sem raunveru- lega var skorið á lífæð Íraks. Jafnvel í hinum pólitíska heimi Arabaríkjanna, þar sem bróðurlegum faðmlögum fylg- ir oft bjúgsverðið í bakið. er þetta nýtt fyrirbæri, en á því leikur varla vafi, að sýrlenzka stjórnin hefur rékið sverðið beint í bakið á stjórn íraks, með aðgerðum sínum. Maðurinn, sem stendur að baki þessum aðgerðum Sýr- landsstjórnar, er Salah Jadid hershöfðingi, sem hratt fyrri ríkisstjórn Sýrlands frá völd um í febrúar s.L og fcom á stjórn hersins, sem er mjög vinstri sinnuð og herská. Enda þótt Jadid sé hvorki for seti Sýrlands né forsætisráð- herra, er það greinilegt, að hann er valdamesti maður landsins. Markmið hans frá upphatfi virðist hafa verið það, að Sýrlandi yrði breyt úr máttlitlu ríki og gert að leiðarstjörnu byltingarríkj- anna á meðal Arabalandanna. Jadid lýsti því yfir, að fyrsta skretfið í þessa átt yrði að hefja að nýju baráttuna fyrir „endurheimt hinnar her numdu Palestínu“, og enda þótt hinir ábyrgari í hópi arabiskra leiðtoga hafi að undanförnu mælt með^ var- kárni í deilunni við ísrael, þá hefur Attassi forseti Sýr- lands hrópað hástöfum á „frelsisstríð". I þessum til- gangi hefur stjórn Jadids stutt, þjálfað og eflt fjárhags- lega starfsemi arabisku hermd arverkahreyfingarinnar „E1 Fatah“ (Hertakan). Það voru hermdarverkainnrásir E1 Fat- ah inn í ísrael, sem Ollu því, að her ísraels framkrvsemdi hefndarinnrás inn I Jórdaníu í s.l. mánuði, svo að við styrjöld lá á milU Araba og Gyðinga. Jadid hefur einnig staðið fyrir því, sem forseti Sýr- lands hefur netfnt „heilagt stríð gegn hásæti svikanna" þ.e.a.s. gegn Hussein Jórdaníu konungi, og hefur lofað al- menningi þar, að láta honum í té vopn í því skyni að steypa Hussein. Erfitt er að gera sér grein fyrir, hve aðstaða Jadids og stjórnar hans heima fyrir er sterk. Á s.l. 17 árum hefur hvorki meira né minna en lö ríkisstjórnum verið steypt atf stóli með byltingu og á síðustu árum hafa þær að jafnaði ekki haldið völdum lengur en 6 mánuði. Til þessa virðist stjórn Jadids hins veg- ar hafa hatft öll tök í landinu og kann því vel að fara svo, að hún haldi völdum enn um skeið. Þess sjást þó merki, að Jadid kunni að hatfa gengið of langt, að því er lítur að ísrael. Jafnvel Sovétríkin, sem stutt hafa ríkisstjórn hans með ráðum og dáð og látið henni í té mikinn efna- hagslegan og hernaðarlegan stuðning, hafa að undanförnu gefið til kynna, að þau óttast, að hin hvatvísa stefna Sýr- landsstjórnar kunni að verða til þess, að allt hlaupi í bál og brand milli Arabéiríkjanna og ísraels, en á því munu Sovétríkin hafa lítinn áhuga. Þetta kann að vera að minnsta kosti að einhverju leyti skýringin á því, að Sýr- landsstjórn hefur nú beint geirum sínum gegn hagsmun- um vestrænna olíufélaga, en vart nokkur hætta er á því, Salah Jadid hershöfðingL að slíkt muni hafa í för með sér, að til neins konar ótaka kunni að koma. Sannleikurinn mun vera sá, að allir vita — Sýrlandsstjórn einnig — að þau fimm olíufélög, sem eiga IFG, munu einungis verða fyrir takmörkuðum erfiðleik- um vegna lokunar á otíuleiðsl unum frá írak um Sýrland, þar eð þau eigi aðgang að nægri olíu á öðrum olíulinda- svæðum. Framhald af bls. 26. eru lærðir í sánu fagi, en Austur- ríkismenn eru með fremstu skiðamönri.um heims, eins og við vitum. Á Jtomandi vetri verða að sjálfsögðu mörg mót og ber þar að nefna Skíðamót Reykjavíkur, sem háð verður dagana 18.—19. febr. til 4.—-5. marz. Einnig verð- ur háð hér unglingalandsmót sem er nýjung, en það var háð í fyrsta skipti á Akureyri í fyrra; það fer fram dagana 11.12. marz. en þar mun að sjálfsögðu keppa unglingar frá öllum landshlut- um. Þá mun fara fram hér eitt opið mót í svigi og stórsvigi, þ.e. a.s. fyrir alla keppendur á land- inu í A-flokki karla og kvenna, en þetta mót gefur síðan kepp- endum stig eftir árangri, en stig- in eru síðan notuð til að raða eftir í ráshópa á íslandsmótL — Eitt slíkt mót fer fram á Akur- eyri, ísafirði og Siglufirði. Þá er firmakeppni ráðsins sem má segja að sé eina tekju- lynd þess, en hún gerir okkur kleift að ráða til okkar þjálfara, sem svo mjög er þörf fyrir og væntum við þess að þau fyrir- tæki sem hingað til hafa styrkt okkur með þátttöku sinni taki okkur jafnvel og áður. Haldið verður hið árlega Stefánsmót í Skálafelli, en það er svigmót í öllum flokkum, sem KR-ingar halda til minningar um fallinn forustumann. í sambandi við þetrta mót er rétt að geta þess, að ef til vill verður það um leið hin árlega bæjarkeppni milli Rvíkur, Bergen og Glas- gow, en Reykvíkingar fara ekki að þessu sinni til þeirrar keppni erlendis og standa samningar yf- ir um að fá Glasgow-menn og Bergensera hingað en ekki ,ið vita hvort tekst. 6 manna sveitakeppni í svigi fer fram 6. og 7. jan. og er fyrsta mót vetrarins. Það er haldið til minningar um frumkvöðul skíðaiþróttarinnar i Rvík, L<eif Miiller. Mótið er haldið árlega við skíðaskálann í Hveradölum. Geysisala á Thule-öli Akureyri, 23. desember. SALA Thule-ölsins frá SANA gengur geysivel og vantar mik- ið á að verksmiðjan geti annað eftirspurn eða haft undan að af- greiða pantanir þó að unnið sé dag og nótt eins og starfsfólkið þolir. Pantanir hafa borizt frá öllum landshornum og hefur verið reynt, að veita viðskiptavinum þá úrlausn sem geta hefur leyft á hverjum tíma. Til Reykjavík- ur hefur ölið verið flutt með bíl- um til þessa en nú er færð á vegum orðin of erfið til skjótra flutninga. í dag var því gripið til þess að leigja Dakotaflugvél Flugsýn ar Norðfirðing til flutninganna og fóru með henni þrjár lestir atf lageröli til SANA-umboðsins í Reykjavík eða eins mikið og flugvélin gat rúmað. — Sv. P.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.