Morgunblaðið - 03.01.1967, Side 4

Morgunblaðið - 03.01.1967, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1967. BÍLALEIGAN FERÐ SÍMI 34406 Daggjöld kr. 300,90 og kr. 2,50 á ekinn km. SENDUM magimusar SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190 eftir lokun sími 40381 SÍMI I.44.44 \mwm Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31100. LITLA bíloleígan Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald. Bensin innifalið í leigugjaldi. Sími 14970 Sveinbjörn Dagfinnsson, hrl. og Einar Viðar, hrl. Hafnarstræti 11 — Sími 19406. Benedikt Sveinsson héraðsdómslögmaður, Austurstræti 17. Sími 10223. ÞÓRÐUR G. HALLDÓRSSON Ingólfsstræti 9. Sími 19540 og 19191 Milli kl. 7,30—9 í síma 20446 BÍLALEIGAN VAKUR Sundlaugaveg 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. f , ■ if/sjuv L5&/L/y//3F RAUOARARSTIG 31 SÍM1 22022 Fjaðiir, fjaðrabloð, hljoðkutai púströr o.fl. varahlutir i margar gerðir bifreiða. Bílavórubúðin FJÖÐRIN Laugavegi 168. — Simi 24180. NÝKOMIÐ Hamilton Beach hrærivélar. Armstrong strauvélar. BRÆÐURNIR ORMSSON hf. Lágmúla 9. Sími 38820. Áramótin Er ekki rétt að byrja á að bjóða gleðilegt ár og þakka fyrir það gamla? Vonandi verð ið þið jafndugleg að skrifa mér og þið voruð á liðna árinu. í ársbyrjun var Velvakanda út- hlutað meira rúmi hér í blað- inu og reyndin varð sú, að hann — eða öllu heldur lesend- ur blaðsins — höfðu full not fyrir það. Væntanlega breytist það ekki nema síður sé. Þið eruð vonandi búin að ná ykkur eftir áramótafagnað- inn. Bílstjórinn, sem ég ók með í bæinn í morgun (mánudag) sagðist hafa ekið hjónum heim þá um morguninn. Þau voru enn að halda upp á áramótin og sögðust ekki hafa komið heim síðgn á gamlársdag. Von- andi eru allir komnir heim til sín núna. ’Ár Sjónvarpið Ég er einn af mörgum sem horfði á sjónvarpið á gamlárskvöld. í fyrsta skipti á ævinni hlustaði ég ekki á út- varp þettá kvöld, þótt alltaf hafi vérið beðið með töluverðri eftirvæntingu eftir að heyra útvarpsdagskrána það kvöld. Sennilega er ég ekki sá eini hér á sjónvarpssvæðinu, sem dvaldi við sjónvarpstækið milli þess sem skotið var flugeldum, kveikt á blysum og ekið út með börnin til þess að sjá brennurn- ar. — Og ég verð-að segja, að sjónvarpið var alveg ágætt um áramótin, um hátíðarnar yfir- leitt. Óneitanlega tekur sjón- varpið meiri tíma, krefst meiri athygli en útvarpið, þegar fylgzt er með dagskránni — og þessvegna sá ég auðvitað ekki allt það, sem flutt var um há- tiðarnar. En það, sem ég sá, var sjónvarpsmönnum til hins mesta sóma. Norðurlanda- störfum á tímabilinu. Hins vegar hef ég heyrt úr mörgum áttum, að Flugfélag íslands hafi staðið sig mjög vel þennan mikla annatíma. Lands byggðin treysti að verulegu leyti á flugið fyrir jólin og það brást ekki. Höfuðstaðarbúar treystu líka á flugið, því þeir eru líka háðir því — og Flug- félagsmenn leystu hvers manns vanda. Flugsamgöngurnar eru orðn- ar einn veigamesti, ef ekki veigamesti þáttur samgangna á fslandi. Og síðan Flugfélagið fékk Friendshipvélarnar hafa þessar samgöngur styrkzt mjög mikið. Á siðasta ári flutti fé- lagið á annað hundrað manns í innanlandsflugi, en það jafn- gildir að sjálfsögðu, að yfir helmingur þjóðarinnar hafi ferðazt flugleiðis innanlands á einu ári — og verður sjálfsagt að leita víða um lönd til þess að finna sambæyrilegar tölur. Á síðustu þremur árum hafa innanlandsflutningar Flugfé- lagsins aukizt um 90%, eða nær helming — og talar það sínu máli. Fyrir nokkru sagði forstjóri Flugfélagsins í viðtali við Mbl. að Friendshipvélarnar hefðu reynzt Flugfélaginu af- burða vel. Óhætt er að segja, að þær hafi reynzt öllum lands- mönnum veL -^Ar Strætisvagnamir Snari skrifar: „Kæri VelvakandL Það yljar manni um hjarta- ræturnar, að lesa hlýleg bréf frá lesendum þínum, annað slagið. Ég vinn nú ekki hjá simanum, eða hef hagsmuna að gæta í sambandi við hann, ann að en það að ég er eins og hver annar viðskiptavinur, símnot- andi ,eða hef síma. Annars voru það nú strætis- vagnarnir sem mig langaði til að tala um. Ég er ný farinn að nota þá, eða réttara sagt, nota þá á meðan tíðin er svona risjótt. Ég beinlínis leggi ekki bílinn minn í þá hættu að fara með hann út í þessa fljúgandi hálku sem hefir verið undan- farið, svo maður nú tali ekki um alla umferðina. Alveg er ég undrandi á þeirri skapstillingu sem aumingja strætisvagnabíl- stjórarnir sýna þessum eilífu spurningum hjá hinu og þessu fólki um ferðir vagnanna. Ég fæ ekki betur heyrt, en þetta fólk viti flest, með hvaða vagni það ætlar að fara. En það er eins og því líði eitthvað betur ef það hefir spurt og þrasað við önnumkafna og yfir- spennta strætisvagnastjóra sem eru oft á eftir áætlun vegna umferðarinnar og þess- ara eilífu spurninga í fólkinu. Af hverju eru ekki fleiri svona athugulir eins og ég, að nota þessa ágætu þjónustu meira en gert er þegar tíðin er nú svona eins og hún er. Ég er alveg viss um að stræt- isvagnastjórarnir myndu vera þakklátir fyrir það. Þó fleira fólk sé í vögnunum, er það ekk ert á móti því að þurfa að bíða eftir og krækja fyrir þessa smá bíla um allar tryssur, ýmist kyrrstæða á hálkunni, eða þeir aka svo hægt að ómögulegt virðist vera að halda áætlun svo að við gætum notað vagn- ana eins og þeir vilja að við gerum. Aumingja bílstjórarnir keyra eins og þeir eigi lífið að leysa á allri hálkunni til þess að reyna að halda réttri áætlun. Snari“. -Ár Landið helga Séra Ólafur Skúlason skrifar: ,Kæri Velvakandi, f blaðinu í dag víkur „krist- inn ferðalangur“ að þætti þeim, sem ég hafði umsjón með I sjónvarpinu í dagskrá þess að kveldi jóladags. Það er að vísu varla tilefni til þess, að ég fari að gera athugasemd við brél þetta, en þó langar mig til þess að leiðrétta þann „kristna ferðalang“, þegar hann heldur því fram, að ég hafi eitthvað talað um núverandi Ísraelsríki. Aðeins einu sinni víkur textinn að ísrael, í upphafsorðunum þegar vitnað er í sálminn: Þús- und ár eru sem dagurinn í gær, þegar hann er liðinni, já eins og næturvaka", til staðfesting- ar þeim orðum, að í landinu helga sameinast fortíð og nútíð og upphefji þannig tímann vegna opinberun Guðs meðal þjóðarinnar. í frámhaldi af þessu er talað um þessa opin- berun í verkum spámannanna og sýnt málverk af Jesaja og vitnað í orð hans, auk þess senr annað málverk af Móse er sýnt, þar sem hann heldur á stein- töflunum með boðorðurtum tíu. Kemur þetta þar með alls ekki til með að vera einhver fræðsia um landafræði fyrir botni Mið- jarðarhafsins eða skiptingu „landsins helga“ milli Gyðinga og Jórdaníumanna, heldur er verið að minna á þá, sem vörð- uðu veginn til Krists. Og reyndar held ég ég megi segja að okkur flestum kæmi vart til hugar að segja: Jór- danía, landið helga, jafnvel þó það land telji nú fleiri helgi- dóma innan sinna landamæra, heldur mundi hugstæðari setn- ingin: ísrael, landið helga. Svo þakka ég „kristnum ferðalangi" fyrir upplýsingar, sem ég vona ég fái einhvern tímann að hagnýta mér í píla- grímsferð til ,landsins helga“, landsins þar sem Orðið varð hold, og þar sem fortíðin höfð- ar þess vegna meir til mín, heldur en einhver núverandi skipting landssvæða milli tveggja ríkja. Vinsamlegast, Reykjavík, 29. desember 1963, Óíafur Skúlason“. þátturinn Norðurlandaþátturinn á gamlárskvöld var að vísu dálít- ið einhæfur. Það, sem þó vakti mesta athygli mína var, að Danir, Norðmenn, Svíar og Finnar virðast enn „amrikanis- eraðri" en við fslendingar, þeg ar öllu er á botninn hvolft. Stórir hlutar dagskrárinnar voru þannig, að þeir hefðu alveg eins getað verið í ame- rísku sjónvarpi — t. d. Kefla- víkursjónvarpinu — og ber það vott um að ástandið sé ekki alveg jafnslæmt hér og ýmsir vilja halda fram. Annars er mér sagt, að út- varpið hafi verið ágætt á gaml árskvöld, einkum þáttur Ómars Ragnarssonar. 'Ár Góðar samgöngur Daginn fyrir gamlársdag barst okkur hér í Morgunblað- inu póstur, sem póstþjónustan hafði fengið til dreifingar lið- lega viku fyrir jól. Þetta er fremur slöpp frammistaða hjá póstinum — jafnvel þótt tillit sé tekið til þess, að mikill jsóst- ur barst fyrir hátíðina — og póstmenn var í yfirvinnuverk- falli um tíma. Það verkfall stóð ekki lengi og pósturinn hafði mikinn fjölda aukamanna að IVIoskvicli fólksbifreíðar til afgreiðslu strax kosta kr. 146.825.oo • hagstæðir greiðsluskilmálar <5Bi$reiÓ«r & i£andbúnaöcirvélar Wl\ SUÐURLANDSBRAUT 14 — REYKJAVlK — SÍMI 38600

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.