Morgunblaðið - 03.01.1967, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.01.1967, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1967. t Faðir minn, JÓN BJARNASON Þúfu í Kjós, andaðist að heimili sínu 1. janúar. Fyrir hönd ættingja. Bjarni Jónsson. Eiginkona mín og rraóðir okkar, MARGRÉT J. GÍSLADÓTTIR frá Þórustöðum í Bitru, Brekkubraut 17, Akranesi, andaðist á sjúkrahúsi Akraness, þann 31. des. 1966. Guðjón Ólafsson og tengdabörn. . Eiíftnmaður minn og faðir okkar, ' ÁRNI JÓNSSON kaupmaður, Laufási, Eskifirði, andaðist að heimili sínu 31. f. m. Guðrún J. Einarsdóttir, Valborg O. Árnadóttir, Anna G. Árnadóttir, Málmfreður J. Árnason, Jón Þ. Árnason. Útför konunnar minnar JÓHÖNNU PÁLSDÓTTUR Hellisgötu 21, Hafnarfirði, fer fram frá þjóðkirkjunni Hafnarfirði 4. janúar 1967 kl. 14.00. Guðjón Jónsson. Jarðaríör mannsins míns og föður, PÉTURS SIGURBJÖRNSSONAR Höfðabraut 8, Akranesi, fer fram frá Akranesskirkju miðvikudaginn 4. jan. kl. 2 e.h. — Þeim, sem vildu minnast hans er bent á Sjúkrahús Akraness. Helga Jónsdóttir og böm. Móðir mín, GUÐBJÖRG ÁRNADÓTTIR verður jarðsungin frá Laugarneskirkju miðvikudaginn 4. janúar kL 10,30 f.h. — Athöfninni verður útvarpað. Fyrir hönd systkina, tengdabarna og barnabarna. Tómas Vigfússon. Útför mannsins míns og föður, EIRÍKS JÓNSSONAR skósmiðs, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 4. janúar kl. 1,30 e.h. — Fyrir hönd aðstandenda. Ingibjörg Jónsdóttir, Guðjón Eiríksson. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞORSTEINÍNA ÞORKELSDÓTTIR verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 4. janúar kl. 1,30 síðdegis. Marinó Sólbergsson. Eiginmaður minn, SKÚLI GUNNLAUGSSON bóndi í Bræðratungu, verður jarðsunginn frá Bræðratungukirkju fimmtudag inn 5. þ.m. kl. 2 e.h. — Blóm vinsamlega afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnan- ir, einkum Minningarsjóð Biskupstungna. Minningar spjöld fást í Bókabúð Æskunnar og í Aratungu. Bílferð verður frá úmferðarmiðstöðinni kl. 10,30 f.h. Valgerður Pálsdóttir. Konan mín, móðir okkar og tengdamóðir, JÓNÍNA GUÐRÚN ELÍASDÓTTIR Safamýri 75, verður jarðsungin frá Aðventkirkjunni miðvikudaginn 4. janúar kl. 2 e.h. Björn Jónsson, böm og tengdaböm. Jarðarför sonar míns, PÉTURS KOLBEINSSONAR Hofsvallagötu 23, fer fram fimmtudaginn 5. janúar kl. 3 e.h. frá Foss- vogskirkju. — Fyrir hönd aðstandenda. Þóra Pétursdóttir. — Ræða Rjarna Framhald af bls. 13. orðum en erfiðara er að fá menn til að snúast til raun- hæfrar baráttu gegn. Viðurkenna ber þó, að þrátt fyrir ýmsar aðfinningar í gamni og alvöru, þá hefur eng- inn a.ní.k. í almannaaugsýn snúist gegn verðstöðvuninni, sem nú hefur verið ákveðið að reyna. Sumir segja hana vitni þess, að allt efnahagskerfið sé í rústum, aðrir að hún sé ein- ber kosningabeita. Um ásetn- ing okkar, sem að þeim ráðstöí unum standa, sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða. Úr hald gæði úrræðanna fær reynslan ein skorið. En aldrei hefur það verið talið sönnun fyrir ónýti farartækis, þótt gripið væri til bremsu, þegar óvæntur farar- tálmi verður. Og óneitanlega er verulegur tálmi á leið okkar til aukinnar hagsældar, þegar langvinnar verulegar verð- hækkanir á útflutningsvörum okkar, sem öllum almenningi hafa jafnóðum komið til góðs, snúast skyndilega upp í stór- felldar verðlækkanir. Ef svo verður, að ráðstafanir til verð- stöðvunar reynist ekki nógu róttækar gegn aðsteðjandi vanda ber að grípa til annarra, sem betur duga. En víst er, að verðstöðvunin nær ekki tilætl- uðum árangri nema hún njóti virks stuðnings og atlbeina alls almennings. Hér fer sem ella bezt á því að æðrast ekki, heldur velja þau ráð, sem líklegust eru *il að verða flestum til heilla. En þótt við sjáum skammt fram, mun vonandi enn svo reynast, að góðvild og rétt hugsun séu öruggir áttavitar inn í óvissa framtíð. Ef við í þeirra ljósi beitum beztu fáanlegri þekk- ingu, og höldum á'fram ferð okkar með ást á íslandi og trú á Guði í hug-a, þá treystum við ar, þakka fyrir árið sem nú er því að vel farL að lokum komið og óska gleði- Að svo mæltu árna ég öll- legs árs 1967. um landsmönnum árs og frið- Góða nótt. t, Kæra dóttir mín, Miss STEINUNN J. ZIARKO lézt á sjúkrahúsi í Rocbester N. Y. þann 27. desember. Jarðarförin hefur farið fram. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Helga Sigurðardóttir. Af alúð þökkum við þær ótal mörgu og hlýju kveðjur, sem okkur bárust hvaðanæva á þessum jólum. — Sérstaklega þökkum við þeim vinum okkar í Möðru- vallasókn, þar heima og burtfluttum, er sendu okkur veglega gjöf, svo og Ungmennasambandi Eyjafjarðar fyrir áritaða bók og árnaðaróskir. Öllum þessum vinum okkar biðjum við blessunar Guðs á komandi tíð og mun- um ávallt minnast þeirra með gleði og þakklætL Reykjavík, á jólum 1966. María Ágústsdóttir, Sigurður Stefánsson, Möðruvöllum. Hjartanlega þakka ég frændfólki og vinum fyrir ógleymanlegan vinarhug er það sýndi mér á áttræðis aímæli mínu 28. des. sl. með heimsóknum, gjöfum, ljóð- um og skeytum. — Guð blessi ykkur ölL Jón Ásmundsson, Presthúsabraut 22, Akranesi. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem minnt ust okkar á gullbrúðkaupsdegi okkar, 22. des. sl. Heim sóknirnar, gjafirnar, blómin, skeytin, hlýju handtökin og árnaðaróskir góðra vina og traustra allt frá bernsku árum okkar, eru okkur meira virði en orð fá lýst. Guð gefi ykkur öllum gleðilegt ár og farsæla komandi tíma. Hafnarfirði, 28. des. 1966. Sesselja Magmisdóttir, Jón Gcstur Vigfússon. Skrifstofuhúsnæði óskast Þarf ekki að vera miðsvæðis, en stærð allt að 1000 ferm. Tilboð, merkt: „Húsnæði — 8357“ sendist auglýsingaskrifstofu blaðsins. Tilkynning frá Stofnlána- deild landbúna&arins Umsóknir um lán úr Stofnlánadeild landbúnaðarins vegna fram kvæmda á árinu 1967 skulu hafa borizt bankanum fyrir 10. febr. næstkomandi. Umsókn skal fylgja umsögn héraðsráðunautar, skýrsla um bú- rekstur og framkvæmdaþörf svo og veðbókarvottorð. Lánsloforð, sem veitt voru á þessu ári, falla úr gildi 10. febrúar, hafi bankanum eigi borizt skrifieg beiðni um að fá lánið á næsta ári. — Engin ný skýrslugerð þa *f að fylgja slíkum endurnýjunar beiðnum. — Skjöl, sem borizt hifa vegna framkvæmda á árinu 1966 og ekki voru veitt lánsloforJ u má því ári, verður litið á sem lánaumsóknir á árinu 1967. 30. desember 1966. Stofnlánadeild landbónaðarins Búnaðarbanki íslands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.