Morgunblaðið - 03.01.1967, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.01.1967, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGTTR 3. JANUAR 1967. 13 Góðvild og rétt hugsun öruggir áttavitar inn í óvissa framtíð Búriellsvirkjun og stóriðja ufdríiorík spor fram ó við Áramótaræða dr. Bjarna Benedikts- sonar forsætisráðherra á gamlárskvöld EINS og verða viU hefur árið 1906 fært mönnum bæði gleði og sorg, ávinning og erfiðleika. Á meðan lifið varir, vakna ætíð ný úrlausnarefni og vandamál. Öllum gengur okkur misjafn- lega að ráða fram úr þeim. Enginn er fullkominn, og eng- mri er heldur alls varnað. Forsenda þess að vel fari er, að hver og einn reyni að skilja sjálfan sig og umhverfi sitt. frá staðreyndunum verður aldrei flúið. I>eim er stundum (hægt að breyta og verður það |>ó sjaldnast gert án fyrir- hyggju og ærins erfiðis. En ekki tjáir að láta eins og þær »éu ekki til. Óskhyggjan hefur gert margan að auðnuleys- ingja. Hættan á því, að menn mis- ejái sig og mismeti það, sem að höndum ber, er svo mikil, að enginn má gera leik að því að villa um fyrir sjálfum sér eða öðrurn. Fátt er fbrdæmanlegra •n að reyna að afla sér fylgis með því að blekkja aðra vísvit- andi. Það er sízt betra en að »elja svikna vöru eða falsa ávísun. Sök þess, sem um slíkt gerir sig sekan, er þung gagn- vart öðrum, en bitnar oft áður en yfir lýkur þyngst á honum ejálfum vegna þess, að hann endar á að blekkja og svíkja ejálfan sig ekki síður en aðra. Öllum skjátlast okkur öðru hvoru, og þess vegna ríður á að gæta boðorðs Ara fróða að hafa ætíð það, er sannara reyn- fct. Menn eru nú í íslenzkum etjórnmálum að mestu hættir að bregða hver öðrum um föð- tirlandssvik og beina óþjóð- hollustu. Flestir skilja, að ólíkar skoðanir koma af ólik- «m sjónarmiðum, en ekki ill- vilja. Aftur á móti gætir ein- kennilegs hugtakaruglings í tali sumra um, að nú eigi að greina á milli manna eftir því, hvort þeir trúi á landið eða ekki íslendingar höfðu þegar íyrir kristnitöku flestir hætt að trúa á stokka og steina. Og •itt bezta ættjarðarskáld, sem hér hefur lifað, Steingríimur Thorsteinsson, sagði: Trúðu á tvennt í heimi, tign sem hæsta ber, guð i alheimsgeimi, guð í sjálfum þér. Sú trú hefur gefið ótal ís- lendingum kraft til að vinna (yrir land og þjóð. í>á vinnu leggja menn fram ótrauðir af því, að þeir elska ísland allir, án skilsmunar, án tillits til *töðu eða stéttar, skoðana- ágreinings og flokkadrátta JEttjarðarástin hefur þó ekki blindað hina ágætustu föður- landsvini á eiginleika íslands. Bjarni Thorarensen sagði: Fjör kenni oss eldurinm, frostið oss herði, fjöll sýni torsóttum gæðum að ná. Vegna þessarar hvatningar og annarra slíkra hefur síðustu kynslóðum tekizt með vaxandi þekkingu, áræði og víðsýni að gera ísland að miklu betra landi en áður var. >að er vegna þessarar atorku þjóðarinnar, að hún er nú hætt að hrynja nið- ur, ef fjöldi hennar kemst yfir nokkra tugi þúsunda eins og raun varð á um langar og daprar aldir í íslandssögu. Landið er nú þegar orðið allt annað, sannast að segja óþekkj- anlegt frá því, sem það var í bernsku þeirra, sem nú eru komnir á efri ár. Þrátt fyrir þessi miklu um- skipti, erum við staðráðnir i því að leggja okkur alla frarn um, að þau verði einungis upp- haf betri og bættra tíma. Árs- ins 1966 mun lengi verða minnst einmitt vegna þess, að þá var stigið afdrifarikt spor fram á við til þess að gera ís- land að byggilegra landi. IÞað var gert með ákvörðuninni tun Búrfellsvirkjun. Hún er fyrsta virkjunin í mesta stórfljóti ís- lands, einum versta farartálm- anum, sem þjóðir hefur átt við að búa, og er mannvirki, sem mjög hefði hlotið að dragazt, ef ekki hefði verið unnt að gera samning um sölu hluta rafork- unnar, sem við hana fæst. Álbræðslan, sem rekin verð- ur með aflinu úr Þjórsá, er fyrsta verulega stóriðjan hér á landi. Sumum ofbýður stærð hennar, einkum af því að hún verður í eigu erlends aðila. Út af fyrir sig er eðlilegt, að ágreiningur rísi um slíka samningsgerð. Svo hefur farið um nýmæli, sem minna er um vert en þetta. Víst er það, að við eigum mikið undir þessum erlenda aðila, en hann á einn- ig og ekki síður mikið undir okkur. Hann leggur stórfé 1 mannvirkjagerð hér og á vel- farnað fyrirtækis sáns undir góðri samvinnu við íslendr inga. Vegna sárrar reynslu á fyrri öldum erum við að vonum ófús- ir til að afsala okkur sjálfs- ákvörðunarrétti í annarra hendur. I>ess vegna erum við tregari en nágrannar okkar og frændþjóðir til að taka þátt í samtökum, bandalögum, til styrktar efnahag og atvinnu. Við óttumst — og ekki að ófyrir synju, — að I slíkum samtök- um verði það hinir stóru, sem öllu ráði. Lítt verði tekið tillit tii hinna, sem svo litlir eru, að hina stóru munar ekki um þá og geta látið sér í léttu rúmi liggja 'hvað um þá verðru. Engu að síður er hollt að minn- ast þess, að stórveldin ganga i slík bandalög af því, að þau telja sig ekki nógu stór til að geta verið án samvinnu við aðra, án slíkrar samvinnu nýt- ist þeirra eigin kraftar ekki til hlítar. Ef svo er um hina stóru, á það ekki síður við þá litlu. Viðfangsefni okkar hlýtur því að vera að ná nauðsynlegri samvinnu við aðra, án þess að afsala því sjálfsforræði, sem við teljum lífsnauðsyn að halda í eigin höndum, Með tvíhliða samningsgerð, eins og þeirri, sem gerð var uiú álbræðisluna, náum við kostum alþjóðasam- vinnu án þess að kalla yfir okkur þá ókosti, sem við ótt- umst. Fásinna er, að nokkur þjóð geti nú á dögum lifað án sam- vinnu við aðra. Slíkur sam- vinnuskortur varð mestur böl- valdur á milli-stríðsárunum. Okkur birtist hann í hörmung- um atvinnuleysisins milli 1932-*39, þegar tíunda hver fjölskylda í Reykjavík varð á stundum langtimum saman að búa við neyð atvinnuskorts- ins, og var þó ástandið úti um land víða enn ömurlegra. Slíkt var ekki einsdæmi þá, atvinnu- leysi herjaði flestöll lýðræðis- ríki og í sumum einræðisrikj- um var efnahagsvandinn leyst- ur með „gereyðingu" þ.e. drápi margra milljóna. Einangrunin blandaðist þjóðernishroka, svo að hver einstakur tók sér sinn rétt sjálfur, hirti eigi um al- þjóðalög heldur gerðist dómari í eigin sök. Sjálfbirgingsháttur inn hleypti svo skjótlega seinni heimsstyrjöldinni af atað. Sem betur fer hafa menn lært svo mikið af öllum þekn ósköpum, að mi eru allt önnur viðbrögð en áður fyrrL Samvinna og vaxandi skilningur þjóða 1 milli ráða nú í stað einangr- unar og sjálftöku áður. Við eigum þess vegna ekki að ótt- ast samvinnu við aðra, heldur sækjast eftir henni til að bæta landið og lífskjör fólksins, sem í því býr. Þótt við viljum bæta landið, þá vitum við ofur vel, að aðal auðsuppspretta þjóðarinnar er og mun um langa hríð verða hafið umhverfis ísland. Okkur virðist tvennt auðsætt: Annars vegar að gera verði ráðstafanir til friðunar fiskistofnunum um- hverfis landið, svo að ekki sé hætta á eyðingu þeirra. Og hinsvegar, að við eigum að njóta forréttinda til veiða við strendur landsins, og miðum þá að því, að ná undir íslenzka fisveiðilögsögu öllu landgrunn- inu. f»etta markmið var þegar sett í landgrunnslögunum, sem lögfest voru að vel athuguðu máli á árinu 1948, og það mark mið var ítrekað í samþykkt Al- þingis frá því í maí 1959. Eng- um okkar, sem að þessum ákvörðunum stóðu og áttum mestan þátt í undirbúningi þeirra í ríkisstjóm og á Al- þingi, kom til hugar, að leiðin að því marki yrði auðveld eða skjótfarin. Við gerðum okkur ljóst, að við yrðum ætið að fara að alþjóðalögum. Enda er það vissulega svo, að smáþjóð verður að varast að ganga svo langt, að hún geti ekki alltaf verið við því búin að leggja mál sín undir úrlausn alþjóða- dómstóls. Sannleikurinn er sá, að smáþjóð á ekki annars stað- ar skjóls að vænta, en hjá al- þjóðasamtökum og alþjóða- stofnunum af því, að hún hef- ur ekki valdið til að fylgja eftir sínum ákvörðunum eins og stórveldin. 1 allri meðferð landhelgis- málsins hefur þess og ætíð ver- ið gætt að brjóta aldrei á móti aiþjóðalögum. Stækkunin 1952 var ákveðin á grundvelli dóms alþjóðadómstólsins í Haag i deilumáli Breta og Norð- manna. Og strax á árinu 1949 fengu fulltrúar íslands á alls- herjarþingi Sameinuðu þjóð- anna því framgengt, að Þjóð- réttarnefndinni svokölluðu væri fengið það verkefni að veita þeim atriðum, er snertu landhelgina forgang í athugun- um sínum. Á árinu 1956 sam- þykkti þessi nefnd, að alþjóða- lög heimili ekki viðari land- helgi en 12 mílur, en viður- kenni, að engar fastar alþjóð- legar reglur væru í gildi, að því er snerti víðáttu landhelg- innar, þ.e. innan 12 mílna markanna. Þessi samþykkt nefndarinnar var forsenda þess, sem gerðist á Genfar- ráðstefnunni 1968 og síðar, þ.ám. aðgerða íslendinga 1958. Með samningsgerðinni og ákvörðuninni 1961 var enn staðfest, að alþjóðalögum skyldi fylgt. Af okkur hálfu hefur þess vegna verið samfelid og rökrétt sókn í málinu allt frá setningu landgrunnslaganna 1948. Sjálfir höfum við deilt um einstök framkvæmdaratr- iði stækkunaraðgerðanna 1952, 1958 og 1901, og ætíð verið sammála um meginatriðin og þá einkanlega það markmið að fá fiskveiðilögsögu yfir öllu landgrunninu En til þess að svo geti orðið þarf að fá viður- kenningu í alþjóðalögum fyrir, að það brjóti a.m.k. ekki á móti þeim. >ess vegna var það síð- ur en svo afsal á rétti, heldur trygging fyrir rétti, þegar sam- ið var um það 1961, að hugsan- lega deilu af þessu tilefni skyldi bera undir úrskurð al- þjóðadómstólsins. >ar með er komið í veg fyrir, að ofbeldi yrði látið ráða eins og tilraun var gerð til gegn okkur 1958. Gildi sjálftöku fer ekki eftir mætti þess, sem hana fremur, •heldur allri réttarstöðu hans. Stundum er sjálftaka metin að réttum lögum jafngilda árás. Enginn fslendingur vill, að þjóð sín verði með sanni sökuð tun slíkt. Allir tala a.m.k. á þann veg, að Ísland eigi að gera allt til þess, að deiluefni séu leidd friðsamlega til lykta. Hvernig getum við ætlast til þess af öðrum, ef við erum ekki sjálfir fúsir til þess að því, er okkur varðar? Sem betur fer horfir nú að ýmsu friðvænlegar í heiminum en áður. Þess vegna hlýtur sú spurning að vakna nú og á næstu árum, ekki sízt þegar kveðið verður á um áframhald Atlantshafsbandalagsins, hvort við eigum að halda áiram veru okkar í því og þá hvert tillag okkar til bandalagsins eigi að vera. Okkur, sem teljum að styrkleiki Atlantshafsbanda- lagsins eigi verulegan þátt I því, að nú horfir friðsamlegar en fyrr, virðist einsætt, að íe- lendingar eigi að halda áfram að vera í bandalaginu. Engu að síður játum við, að sjálfsagt sé að skoða málið í ljósi ástands- ms eins og það verður á árinu 1969 og næstu ár þar á eftir. Reyndar getum við nú þeg- ar gert upp hug okkar um það, hvort svo friðvænlegt sé orðið, að verjanlegt sé að láta hið er- lenda varnarlið hverfa úr landi. Samkvæmt ótvíræðum •amningsákvæðum getum við sjálfir hvenær sem er tekið þetta mál upp til ákvörðuhar og úrlausnar með samninga- bundnum friestL Óhjákvæmi- lega verður deilt um það, hvort varnir eigi að vera á íslandL og skiljanlegt er, að sumir vilji fremur, að íslendingar taki að sér varnirnar eða hluta þeirra en hér haldist erlent varnarlið um óákveðinn tíma. En þá verða menn hreinlega að segja hvað fyrir þeim vakir. Hermenn hætta ekki að vera henmenn, þótt þeir séu kallað- ir sérfræðingar. >að er eðli starfsins, sem úr sker. Nafn- breytingin ein skiptir engu Menn hljóta og að spyrja, hvort eðlilegt sé, að aðrir leggi mikið af mörkum til að halda uppi friði í heiminum, ef við viljum sjálfir engan skerf leggja fram í því skyni. >að er sjaldgæft, að menn ftd nokkru verulegu áorkað án þess að vinna fyrir því eða til þess. Ætíð sér gjöf til gjalda. >eir, sem heita öðrum, að þeir skuli fyrirhafnarlaust öðlast gull og græna skóga, tala þess vegna annað hvort þvert um hug sér eða hafa furðulítið lært af lífinu. Hitt er eðlilegt, að mönnum hiér sem annarsstaðar sýnist sitt hverjum um það, hvernig heimsins gæðum verði sann- gjarnlegast skipt og þau örugg legast aukin. Sú eilífðartog- streita mun halda áfram, hvort sem okkur likar betur eða verr. Hollast er þó að halda henni í þeim skefjum, að hún torveldi ekki raunhæfar fram- farir öllum til góðs. Kröfu- harka er að vísu oft réttlætan- leg, því að ef maður gætir ekki sjálfur réttar síns, hver á þá að gæta hans? En einnig í þeim efnum ber að hafa hóf á, og ekki fer á milli mála, að stéttatogstreita og kröfúharka eiga sinn þátt í þeirri verð- þenslu, sem allir fordæma í Framhald á bls. 14.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.