Morgunblaðið - 03.01.1967, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 03.01.1967, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1967, 7 I þjófaleiðongnr til Islands Hann hefur stolið úri og peningaveski af lögregluþjóni, rétt á meðan hann spurði til vegar. Hann hefur stolið axla- böndum af herramanni, sem trúði því, að slíkt og þvílíkt væri ómögulegt. Annar missti fölsku tennurnar, án þess að hafa hugmynd um það. Og blaðamaður saknaði armbands úrs síns eftir blaðaviðtal við Tom Milier, meistaraþjóf frá Slagelse í Danmörku. í byrjun þessa nýbyrjaða árs hefur hann sína „glæpa- iðju“ á fslandi, nánar tiltekið í Lídó. Maðurinn heitir Tom Christiansen rafvirki í Slag- else, betur þekktur undir nafninu Tom Miller. Hann á 2ö ára afmæli sem töframaður og meistaraþjófur í heimaborg sinni, Slagelse, en hann byrj- aði feril sinn þar 10 ára gam- all . Hann er þekktur um alla Danmörku, sem skemmtikraft ur, en hingað til hefur hann alltaf skemmt sem áhugamað- ur. En nú er því lokið, — og eiginlega á móti vilja hans, og lengur hafa Danir ekki einka leyfi á töfrabrögðum hans. Fritz Ruzica hefur ráðið Tom Miller í 3 vikur að Lidó, og m.a. mun hann koma fram í íslenzka sjónvarpinu. Tom Miller á væntanlega eftir að „stela“ frá Reykvfkingum ýmsum hlutum á næstunni á skemmtilegri hátt, en þeir hafa hingað til vanizt, m.a. að undanförnu. Ek'ki er nokkur vafi á því, að íslendingar muni kunna vel að meta töfra brögð Tom Millers, og þau muna áreiðanlega létta mönn- um skapið í skammdeginu, og ekki veitir nú af.__ MENNlxr MALEFN!= Meistaraþjófurinn danski Tom Miller Gleðilegt nyar! nunir elskan- legu, stórþökk fyrir gamla tvö- falda sex-árið, en það má enn segja, að ekki taki lakara við, því að árið 1967, endar á heil- agri tölu — 7 — og að viðbættu sexinu, ætti það ekki að reynast verra öllu góðu fólki tU margs nytsamlegs og skemmtilegs. Og á annan í nýári, en í þetta skipti var sá ágæti dagur enginn fridagur og eiginlega hálfgert plat, flaug ég í góða veðrinu of- an í borg, til að viðra mig. Og á Túngötunni, framan við Kristskirkju í Landakoti, hitti ég gamla embættismannsfrú utan af landsbyggðinni, sem ljómaði öll í framan af ánægju. Storkurinn: Eitthvað hefur glatt þig nýlega, frú mín góð? Embættismannafrúin hjá Kristskirkju: Já, óhætt er að segja það. Ég hlýddi á söng frönsku drengjanna hér í kirkj- unni, og það var dásamleg stund. Ég held ég verði að fara aftur og hlusta á þá. Þetta var fáguð músík, sem alltof sjaldan heyrist hér. Ólíkt eru þessir drengir mennilegri skemmtikraftar, en sumt af því, sem okkur er boð- ið hér upp á dags daglega. Hann Pétur útvarpsþulur á skilið al- þjóðarþökk fyrir að útvega slíka skemmtikrafta hingað. Og ég tek undir með þér, frú mín góð. Mættum við fá meira að heyra af slíku. Og með það flaug storkur upp á turninn á hinni gotnesku kirkju og virti fyrir sér með ánægju hina fögru höfuðborg lands okkar. Líklega er engin höfuðborg í heimi feg- urri, þegar stilla er, himinninn heiðskír og Esjan, Akrafjallið og Skarðsheiðin prýða bakgrunn- inn. Mikið^eigum við íslending- ar annars gott að búa í þessu fagra landi. FRÉTTIR Filadelfía, Reykjavík. Biblíu- lestur fellur niður í dag, en bæna samkomur hvert kvöld vikunnar kl. 8.30. Hjálpræðisherinn, þriðjudag 3. jan. kl. 2030 Jólafagnaður fyrir Færeyinga. Miðvikudag 4. jan. kl. 20.30 Jólafagnaður, Norð- manna. Jólatrésskemmtun Leikfélags Kópavogs verður haldinn í Sjálf stæðishúsinu í Kópavogi fimmtu daginn 5. janúar kl. 3. Níels kemur í heimsókn. Upplýsingar og miðapantanir í síma 41264. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Síma númer mitt er 52372. Séra Bragi Benediktsson. Dr. Jakob Jónsson verður for- fallaður frá störfum næstu vik- ur. 1 hans stað þjónar séra Jón Hnefill Aðaisteinsson sími 60237. Vísuðtorn Sjötugt beljar steinóði Stórhagls élja dynjandi andfúl helja emjandi allt má telja böivandi Kristján Helgason. ^JJeimlzoma, Heimti ég úr hafi Nóttin léttfætt læðist. mitt hvíta land við pól. Lifnar allt, sem kól. Stjarnan bjarta blikar Bráðum vaknar barnið og bráðum koma jóL og brosir móti só«L Geislar hennar glitra Þú vísar, barn, á vörður um gljár og silfurhjarn. sem vegferð gætu stytt. í svanadúni sefur Þitt hugdjúp er vor heimur hið sæla jólabcu-n. og himinn auga þitt. Úlfur Ragnarsson. Arbæjarhverfi Fannhvítt frá Fönn. Dúkar - Stykkjaþvottur Frágangsþvottur Blautþvottur — Sækjum — Sendum Fannhvítt frá Fönn. Fjólugötu 19 B. Sími 17220. Fóstra Kona sem mundi vilja taka að sér 4 mánaða barn í fóstur milli kl. 8.30—18 á daginn, geri svo vel að hringja í síma 11971 kl. 9—5. Heilsuvernd Næsta námSkeið í tauga- og vöðvaslökun og öndun- aræfingum fyrir konur og karla, hefst miðvikudaginn 4. jan. Uppl. í síma 12240. Vignir Andrésson, íþrótta- kennari. Málaravinna Önnumst alla málaravinnu. Jón og Róbert, sími 15667 og 21893. Reglusöm áreiðanleg hjón, sem vilja dvelja úti á landi geta fengið mjög ódýrt húsnæði og vinnu. Tilb. merkt „Reglusöm — 8186“ sendist afgr. Mbl. fyrir 12. janúar. Afslöppun Næsta námökeið í afslöpp- un, likamsæfingum og fl. fyrir barnshafandi konur hefst mánudaginn 16. jan. nik. Allar nánari uppl. í síma 22723 kL 13—14 næstu daga. Hulda Jónsdóttir. Sendisveinn óskast sem fyrst, þarf að hafa skellinöðruréttindL Fosskraft Suðurlandsbraut 32 — Sími 38830. Útgerðarmenn — Skipstjórar höfum fyrirliggjandi 3ja og 4ra kg. netastein. Hellusteypan Sími 52050 og 51551. ' '■ i .... 11 ...11 —— Karlmaður og stúlkur óskast til verksmiðjuvinnu nú þegar. Yfirvinna, vaktavmna kemur til greina. Mötuneyti á staðnum. Hf Hampiðja.i Stakkholti 4. Eldflaugar Jokerblys Fljúgandi blys Stjörnuljós Sprengjublys Mikill afsláttur af því litla sem eftir er. Kaupið ódýr skotfæri með miklum afslætti fyrir ÞRETTÁNDANN. Miklatorgi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.