Morgunblaðið - 11.01.1967, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.01.1967, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1(1. JANÚAR 1967. BÍLALEICAN FERÐ S/JMfl 34406 Daggjöld kr. 300,M og kr. 2,50 á ekinn km. SENDUM MAGINUSAR SKIPHOITI21 SIMAR 21190 eftír lokun slmi 40381 siM11-44-44 \mitim Hverfisgötn 103. Sími eftir lokun 31100. LITLA bíloleígon Sfagólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald. Bensin innifalið í leigugjaldi. Sími 14970 BÍIALEIGAN VAKUR Sundlaugaveg 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. RAUDARARSTÍG 3t SÍMI22022 Fjaðrir, fjaðrablóð, hljóðkútar púströr oJl. varahlutir í margar gerðir bifreiða. Bilavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegi 168. — Simi 24180. BlRGHt ÍSL. GUNNARSSON Málflutningsskrifstofa Viðtaistimi kl. 1—5 e.h. RAGNARTÓMASSON HÉRAÐSDÓMSLÖGMAÐUR Austurstræti 17 - ÍSILLI r Val diI sími 2-46-45 MhFUITNIHCUR FaSTIISHASAU ALMENH LÖSFHSSISTÖHF V'ÞRBSTUR^ O 22-1-75 « BÍLALEIGAN Lækjarkinn 6, HafnarfirðL Sími 51056. Ferðalög og dans Þegar blöðunum er flett þessa dagana er það tvennt, sem vakið hefur athygli mína á auglýsingasíðunum — fyrir utan útsölurnar. 1 fyrsta lagi auglýsingar um daaiskennslu, í öðru lagi vor og sumarferði- lög, sem ferðaskrifstofurnar eru farnar að auglýsa af kappi. Það er engu líkara en að dansæði hafi gripið Reykvík- inga, þvi eitthvað hljóta allir þessir dansskólar og danskenn arar að hafa að gera. Nú eru danstímar fyrir alla, börn sem gamahnenni — og alla þar i milli. JÞetta er sjálfsagt ekkert verra en hvað annað. Og svo eru það ferðalögín. Mér finnst ferðaskrifstofurnar hafa byrjað óvenjusnemnia, en það getur þó verið vitisysa. Er lendis fara þær af sta5 fyrir jól, eða strax upp úr áramót- um og þá gera menn áætlanir um sumarferðalög — í smáatr- iðum. 'Hérlendis er fó!k tregt til þess að gera áætlinir langt fram í tímann. Það virðist eiri- hvern veginn ekki eiga allt ot vel við íslendinga. En með auknu jafnvægi í þjóðfélaginu ætti að vera hægt að breyla 'því smám saman, þvi óneitan- lega er slíkt miklu heppilegra fyrir alla aðila. Sjónvarp Og þá eru þeir búnir að ákveða sjónvarpsgjaldið, tvö þúsund og fjögur hundruð krónur. Einhverjum finnst það e.t.v. of mikið, en ég átti von á að það yrði hærra. Sjónvarp- ið hefur farið vel af stað. Þetta er dýrt fyrirtæki — og kostnað urinn vex jafnt og þétt, því stöðugt er aukið við efnis- skrána. Nú eru sjónvarpsdag- arnir þrír — og ekki kæmi okk ur það á óvart, þótt þeir yrðu fjórir innan margra mánaða. Annars vonum við að þeir I sjónvarpinu fari sér ekki of hratt við aukningu dagskrár- innar. Það má a.m.k. ekki koma niður á gæðunum. Og úr því að ég minnist á sjónvarpið er sjálfsagt að nefna sunnudagsútsendinguna, sem var prýðileg — fróðleg og skemmtileg. Fréttaþátturinn úr Surtsey var dæmigerður fyrir þá yfirburði, sem sjónvacp get ur haft yfir önnur fréttamiðl- unartæki. Samt segi ég ekki, að blöðin hafi staðið sig ilia i Surtseyjarfréttunum. * Kvikmyndir Maður nokkur hringdi og kvartaði yfir kvikmynd þeirri, sem Stjörnubíó hefur sýnt að undanförnu. Að visu ekki yfir myndinni — heldur því, að hún skuli leyfð börnum. Myndin nefnist Ormur rauði og sagði maðurinn að í henni væri mik ið um pyndingar og bl jð, hún væri lika ósiðleg á köflum „Ég sá myndina klukkan 5 á sunnudaginn og á sömu sýn- ingu var fjöldi barm“, sagði hann. „Ég myndi segja, að þetta væri einmitt mynd, sem hefði mjög slæm áhrif á börn, gæti a.m.k. haft það. „Ormur- inn“ hlýtur að hafa skriðið fram hjá kvikmyndaeftirlitinu eða það hlaupið undan „ormin- um“. Þessu er hér með komið á framfæri við hlutaðeigandi aðila. Það er ekki óalgengi að fólk kvarti yfir því að kvik- myndahúsin sýni börnunum of mikið. Frjálslyndið í kirkjunni Lesandi skrifar: „Kæri Velvakandi. Mig langar til að biðja þig að birta þennan bréfstúf í dálk um þínum. Um daginn heyrði ég erindi f útvarpinu, sem Andrés Krist- jánsson ristjóri, flutti. Minnt- ist hann á guðsþjónustu í sjón varpinu, sem biskupinn og prestaefni fluttu á jólunum. Ég er leikmaður og veit ekki mik ið um kirkjusiði, en líklega á- líka og almennt gerist. Mér fannst ekki ná nokkurri átt að bjóða fólki slíkan málflutn- ing í útvarpi, sem Andrés gerði Þetta var ósanngjarn málflutningur og næstum ræt- inn. G-uðsþjónustan var svo há tíðleg og falleg, og það, sem biskupinn sagði með sérstök- um ágætum. Ég hefi haft þetta á orði við kunningja mína og hafa þeir undantekningarlaust verið mér sammála. Hyers vegna er maðurinn að særa fólk með svona fjarstæðu? Annars held ég líka, að eitt- hvað sé bogið við suma prest- ana upp á síðkastið. Ég hefi heyrt í útvarpsmessum hjá nokkrum þeirra, einkum þeim, sem ég hefi heyrt að nefndir eru víðsýnir eða fxjálslyndir, (þeir nefna sig þetta stundum sjálfir), að þeir hafa talað um einhverja háskalega „ka- þólsku" og lögbrot, sem hafi haldið inreið sína í kirkjuna, Þeir eru ekkert mjúkmálir um þetta og finnst mér það nú gagnstætt venju þeirra, þegar þeir eru að predika stundum. Samt tala þeir svo óljóst, að ekki er gott að átta sig á, hvað þeir eru að ráðast á. Ég hefi farið nokkrum sinn- um í kirkju, einkum upp á síð kastið og þá hefir hin fagva 'Háteigskirkja oftast orðið fyr- ir valinu. Þar hefi ég tekið eft ir því, að messur fara fram með nokkuð öðrum hætti, en hjá öðrum prestum. í þessari kirkju hefir presturinn sér til aðstoðar ungan mann eða unga menn. Kann ég þessu vel og koma þeir fjarska fallega frarru Allt finnst mér þar vera gert með sérstaklega geðfelldu móti. Það er hátíðleiki og frið- ur, sem einkennir þessar mess- ur. Sérstaklega falla mér i geð altarisgöngurnar. Þar sam einast friður og látleysi og margir finnst mér ganga þar til altaris, jafnvel margt ungt fólk, og er það þá varla eins trúlaust og sumir ætla. Söng- flokkurinn í kirkjunni held ég að hljóti að vera einhver sá bezti í borginnL Kannske að það sé þetta, sem verið er að kenna okkur að sé „kaþólska“? Ég fæ ekki komið auga á lög- brot eða „kaþólsku“ í þessum athöfnum. Ég fer líka í kirkju til að njóta þess, sem þar fer fram. En satt er það, að þarna er eitthvað nýtt á ferð, sem allir sanngjarnir menn hljóta að meta, og ekki sízt það, að til skuli vera prestar, sem þora að leggja út á nýjar brautir. Mér finnst nú að víðsýnir prest ar eða frjálslyndir ættu að kunna að meta þessar nýju leiðir, ef þeir ætla ekki að kafna undir nafni. Sé svo að þeir kunni ekki að meta þetta, ættu þeir að vera þeim mun ánægðari með sínar gömlu at* hafnir, því að þær hljóta að vera hættulausar og láta svo aðra óáreitta með það, að taka áhættu þess, sem þeim geðj- ast að. — S.Þ.“ I Vesturbænum Til sölu eru 3ja herbergja íbúðir á hæðum í sam- býlishúsi við ReynimeL íbúðimar seljast tilbúnar undir tréverk og sameign úti og inni fullgerð. Hitaveita. Malbikuð gata. Örstutt í Miðbæinn. Teikningar til sýnis á skrifstofunni. ÁRNI STEFÁNSSON, HRL. Málflutningur. Fasteignasaia. Suðurgata 4. Sími: 14314. Fokheldar hæðir Höfum til sölu tvær fokheldar hæðir með upp- steyptum bílskúr á 1. og 2. hæð á góðum stað í Kópavogi. íbúðimar eru 5—6 herb. og eldhús, geymsla, þvottahús. Allt á sömu hæð. Arin í stofu, stórar suður og vestursvalir. Sér inngangur fyrir hvora hæð. Fylgifé, allir ofnar opnanleg fög og svalahurðir fylgja. Stærð ca. 147 ferm. 100 þús. lánað til 4ra ára. Beðið verður eftir fyrri hluta af húsnæðismálaláni. Einnig er til sölu á sama stað 4ra herb. jarðhæð með öllu sér með sömu kjörum. Teikningar liggja fyrir á skrifstofu vorri. Mjög glæsilegar eignir. TRYGGINGA og FASTEIGNIR Austurstræti 10 A 5. hæð, sími 24850, kvöldsími 37272. IBM-götun Stúlka óskast strax til starfa við IBM-götun. Nokkur reynzla nauðsynleg. Umsóknir skulu hafa borizt til skrifstofu starfs- mannahalds fyrir 15. janúar nk. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofum félagsi.is.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.