Morgunblaðið - 11.01.1967, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1967.
Þriðja hollenzka
prinsessan giftist
HIN þriðja í röðinni af fjórum
dætrum Juliönu Hollandsdrottn-
ingar og Bernhards prins, hin
24 ára gamla prinscssa Mergriet
Leiðrétting
í FRÉTT á annarri síðu Mbl. i
gær var frétt um deilu póst-
kvenna og póstyfirvalda vegna
launamála. Fréttin var höfð
eftir Matthíasi Guðmundssyni
póstmeistara í Reykjavík og inn
í hana slæddist mishermi sem
leiðréttist hér með. Aftarlega í
fréttinni átti að standa:
„Þá sagði Matthías, að kon-
urnar hefðu farið fram á að fá
helming þeirrar upþhaeðar, er
bréfberar fá sem fata og skó-
styrk eða 1500 krónur á ári í
hlutfalli við vinnutíma þeirra.
Krafa þessi yrði sett til réttra
aðila, þegar hún hefði verið bor-
in formlega fram.“
! Francisca giftist í dag hollenzk-
, um manni af borgaralegum ætt-
um, Pieter Van Vollenhoven, 27
ára gömlum syni auðugs verk-
smiðjueiganda.
Enginn ágreiningur stjóm-
málalegs eðlis varð til vegna
þessa hjónabands og var það
laust við þær deilur og atvik.
sem þeim fylgdu, er Irene prins-
essa giftist 1964 spönskum prinsi
og er Beatrix krónprinsessa
giftist á sl. ári þýzka sendiráðs-
starfsmanninum Claus von Ams-
berg.
Að lokinni vígslunni, sem var
bæði borgaraleg og kirkjuleg,
óskaði borgarstjórinn í Haag
prinsessunni til hamingju með
það, að hún andstætt sínum
Systrum hefði valið Hollending
að eiginmanni. Hin nýgiftu hjón
kynntust við háskólann í Leyden,
þar sem þau voru bæði við nám.
ERNEST HAMIITON
(London)
1 Anderson St.
England.
Limited
London S. W. 3.
LÓÐUNARTÆKI FYRIR BLIKKSMIÐI.
Afar ódýr frímerki
frá Austurríki
Tvö þúsund og átta hundruð falleg, mismunandi
safnfrímerki og sérfrímerki, raunverulegt verð-
mmti um 320 mörk en í auglýsingaskyni aðeins
300,00 íslenzkar krónur, gegn póstkröfu, svo lengi,
sem birgðir endast. — Póstkort nægir.
MARKENZENTRAI.E, Dempschergasse 20,
1180 Wien.
Varðbergs-félag
stofnað í Keflvík
NÝLEGA var haldinn í Kefla-
vik stofnfundur félagsins VARÐ
BERGs, félags ungra áihuga-
manna um vestræna samvinnu.
Félagið í Keflavík er 9. Varð-
bergs-félagið, sem stofnað er á
landinu.
Á stofnfundinum var kosin sex
imanna aðalstjórn og sex manna
varastjórn. Stjórnarkjör fór
þannig, að formaður er Kristján
Guðlaugsson; 1. varaform. Guð-
finnur Sigurvinsson; 2. varaform.
Guðmundur Sigurðsson; ritari
Hilmar Jónsson; gjaldkeri Frið-
rik Georgsson og meðstjórnandi
Árni R. Árnason.
Varastjórn skipa: Albert Al-
bertsson, Árni V. Árnason. Guð-
brandur Þorsteinsson, Ingvar
Guðmundsson, Pétur Guðmunds
son og Sigurður Eyjólfsson.
Varðberg
í Siglufirði
FYRIR nokkru var haldinn aðal
fundur Varðbergs á Siglufirði.
Stjórn félagsins skipa nú:
Kjartan Einarsson, formaður;
Skarphéðinn Guðmundsson rit-
ari; Gústaf Nílsson gjaldkeri; og
varastjórn: Bogi Sigurbjörnsson,
Meyvant Rögnvaldsson og Þór-
hallur Daníelsson.
Varðberg
á Akranesi
VARÐBERG, félag ungra áhuga
manna um vestræna samvinnu
á Akranesi, hélt aðalfund sinn
6. desember síðastliðinn.
Á fundinum var kosin sex
manna aðalstjórn fyrir næsta
starfsár, og er hún þannig skip-
uð: Svanur Geirdal, formaður;
Bjöm H. Björnsson 1. varaform.
Helgi Andrésson 2. varaformað-
ur Haukur Ármannsson, ritari
Ólafur J. Þórðarson gjaldkeri og
Einar Ólafsson meðstjórnandi.
Ennfremur avr kosin þriggja
manna varastjórn. í henni eiga
sæti Halldór Jóhannsson, ólafur
Jónsson og Sigurður Vésteinsson.
Aðstoðarstúlka
óskast á tannlækningastofu við Miðbæinn. Tilboð
með uppl. um menntun og fyrri störf sendist afgr.
Mbl. fyrir laugard. merkt: „8203“.
Enskunám í Englandi
SCANBRIT Student Services mun að venju skipu-
leggja námskeið fyrir erlenda nemendur í Englandi
á sumri komanda ásamt flugferðum báðar leiðir
í fy igd með leiðsögu manni. Um fleiri staði verður
að ræða en nokkru sinni áður til þess að hópurinn
dreifist sem mest. Aldrei nema einn nemandi frá
hveju landi á hverju heimili. Upplýsingar gefur
Söivi Eysteinsson, Kvisthaga 3, Reykjavík, simi
14029.
Blaðburðarfólk
VANTAR í KÓPAVOG.
Talið við afgreiðsluna í Kópavogi, sími 40748.
BLAÐBURÐARFOLK
1 EFTIRTALIN HVERFI:
VANTAR
Seltjarnarnes —
Skjólbraut
Skerjafjörður —
sunnan fiugv.
Ásvallagata
Túngata
Lambastaðahverfi
Nesvegur
Meistaravellir
Seltj. - Melabr.
Vesturgata I
Kjartansgata
Njálsgata
Meðalholt
Miðbær
Fálkagata
Snorrabraut
Laugav. - efri
TaliÖ við afgreiðsluna, sími 22480
Skrifstofustúlka
Óskum að ráða duglega skrifstofustúlku nú þegar.
Verzlunarskóla- eða hliðstæð menntun æskileg.
Uppiýsingar á skrifstofunni, ekki í síma.
G. J. Fossberg
Vélaverzlun h.f., Skúlagötu 63.
Mistök í lyfja-
merkingu
valda dauða
Brússel, 9. jan. — NTB.
MILLI 10 og 20 manns hafa látizt
af völdum mistaka við lyfjamerk
ingar á sjúkrahúsi í Charleroi í
suðurhluta Belgíu. Sjúkrahús-
stjórnin hefur viðurkennt að mis
tök þessi hafi valdið dauða nokk-
urra sjúklinga, en ekki er búizt
við að nokkurn tíma verði upp-
lýst hve margir hafa látizt síðan
lyf þetta var tekið í notkun fyr-
ir tveimur árum. Belgísk heil-
brigðisyfirvöld rannsaka nú mála
vexti.
ÚTSALA
á allskonar kápum, jökkum
og sloppum
LAUGAVEGI 116
Til sölu
6 herb. ibúð á jarðhæð í nýlegu þribýlishúsi við
Kópavogsbraut. íbúðin getur einnig hentað 2 fjöl-
skyldum sem þekkjast vel. Fyrir hendi eru 2 eld-
hús nú þegar. Verð kr. 1100 þús. Útb. kr. 630 þús.
Áhvílandi lán eru aðallega til 8—10 ára.
FASTEIGNASALA
Sigurðar Pálssonar byggingameistara og
Gunnars Jónssonar lögmanns
Kambsvegi 32 — Símar 34472 og 38414.