Morgunblaðið - 06.04.1967, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 1967.
Karjalainen, utanríkisráðherra Finna í viðtali við Mbl.:
Aðild Færeyja og Álandseyja að
Norðurlandaráði aðskild mál
— Ehrnrooth, þingmaður Sænska þjóðarflokksins, telur
mólið eitt og hið sama
Helsingfors, 5. apríl.
Frá Styrmi Gunnarssyni,
blaðamanni.
í VIÐTALI við Morgunblað-
ið í dag gerði Karjalainen,
utanríkisráðherra Finnlands,
grein fyrir afstöðu Fiinna til
aðildar Færeyja að Norður-
landaráðinu. Hann sagði:
— Sjónarmið okkar er, að
hér sé fyrst og fremst um
innanríkismál Dana að ræða.
Við fyrstu sýn virðist manni,
að þeir eigi að leysa þetta
mál innan sinnar eigin sendi-
nefndar með aðild fulltrúa
Færeyja að henni. Nú hafa
Danir lagt til, að Færeyingar
verði meðlimir í ráðinu. Við
getum athugað þann mögu-
leika. í því sambandi kem-
ur ýmislegt til greina.
f fyrsta lagi, að Færeying-
ar verði áheyrnarfulltrúar, í
öðru lagi, að þeir verði áheyrn
arfulltrúar með málfrelsi, en
ekki atkvæðisrétt. Slíkt
mundi krefjast breytinga á
samþykktum ráðsins. Áður
en við getum haldið áfram á
þeirri leið, verðum við að
undirbúa málið og athuga þá
möguleika, sem fyrir hendi
Nú hefur hins vegar verið
ákveðið, að málið verði tek-
ið upp hjá ríkisstjórn land-
anna.
— En hvað um stöðu
Álandseyja?
— Álandseyjar eru finnskt
innanríkismál á sama hátt og
Færeyjar eru danskt innan-
ríkismál. Við teljum, að hér
sé um tvö aðskild mál að
ræða — sagði Karjalainen, ut
anríkisráðherra Finna.
Georg Ehrnrooth, þingmað
ur fyrir Sænska þjóðarflokk-
iinn lýsti því hins vegar yfir
í viðtali við Mbl. í dag, að
mál þetta hefði verið rætt í
finnsku sendinefndinni á
Norðurlandaráðsfundinum og
væri hún sammála um, að
Álandseyjum bæri sams kon-
ar aðild og Færeyjum. Hann
sagði, að hér væri uim sama
mál að ræða og ef Færeying-
ar fengju aðild að Norður-
landaráði, yrðu Álandseyjar
einnig að fá hana. .
Álandseyjar fengu heima-
stjórn 1921, sem Þjóðabanda-
lagið gamla tók ábyrgð á.
Þær hafa eigið landsþing og
eigin fána, sem er eins og
hinn íslenzki, að öðru leyti
en því að krossinn er gulur
í stað þess að vera hvítur.
Ehrnrooth sagði, að Álands-
eyjar hefði ekki sett opinber-
lega fram óskir um aðild að
Norðurlandaráði, en að full-
trúi þeirra í ríkisþinginu
finnska fylgdist af áhuga
imeð Færeyjamálinu og á-
Ahti Karjalainen,
utanríkisráðherra
hugi væri mikill á Álands-
eyjum á beinni þátttöku í
starfi Norðurlandaráðs.
Þingmaðurinn kvaðst telja
það eðlilega lausn, að Færeyj
ar og Álandseyjar fengju að-
ild með atkvæðisrétt um
þau mál, sem þau snerta sér-
staklega.
Því má bæta við, að íbúar
Álandseyja munu vera rúm-
lega 20 þúsund talsins.
Nýtt skref Norðurlandca
í Kennedy- viðræðum?
Genf 5. apríl, NTB. — Viðræð-
umar milli Norðurlanda og
aðildarríkja Efnahagsbandalags
Evrópu um tolialækkanir, sem
eru iiður í Kennedyviðræðunum
svonefndu, hafa í dag einkennzt
af alvöru og vonieysi og árangur
reynzt harla lítill. Þó mun hafa
náðst samkomulag í grundvallar-
atriðum um nýjar reglur til að
sporna við óréttmætum undir-
boðum, (dumping) auk þess sem
sendinefnd Norðurlandanna lagði
fram nýjar tillögur, sem að sögn
talsmanna norrænu sendinefnd-
arinnar hafa það væntanlega í
för með sér. að viðræðumar
geta tekið nýja stefnu.
Eftir þvf, sem næst verður
komizt hjá nefndarmönnum, eru
tillögur þessar í raun og veru
uppkast að tvíhliða samningi
milli Norðurlandanna og Efna-
hagsbandalagsins um gagnkvæm-
ar tollalækkanir. Þar með er
svokallað „aðvörunarlistakerfi"
látið lönd og leið en með „að-
vörunarlistum", er átt við lista
yfir tilboð um tollalækkanir. sem
sjálfkrafa yrðu dregin til baka,
ef mótaðilinn byði ekki sams-
konar lækkanir Fram að þessu
hefur afstaða Norðurlandahna
byegzt á þessu kerfi.
Að sögn nefndarmanna hafa
þessir listar gegnt sínu hlutverki
að nokkru leyti. Þeir hafa orðið
til þess að knýja fram betri til-
boð af hálfu Éfnahagsbandalags-
ins en ella — en nefndarmenn
telja nú , að viðræðurnar geti
S/jow laus gegn
10.000$ fryggingu
New Orleans, 5. apríl.
AP-NTB.
AÐ loknum fjögurra mínútna
réttarfundi í New Orleans í dag
Iýsti kaupsýslumaðurinn Clay
L. Shaw því yfii að hann væri
saklaus af þeirri ákæru að hafa
tekið þátt í samsæri um að
myrða John F. Kennedy Banda-
ríkjaforseta Var réttarfundi síð-
an frestað til 5. maí nk. en með-
an verður Shaw laus gegn
10.000 dala tryggingu .
—■ Humprey
Framhald af bls. 1
i’æðufundum Kiesingers og
Humphreys, báðum löngum.
Ekkert var uppskátt látið eftir
fund þeirra í dag um það hvað
þar hefði borið á góma. Er Kies-
inger ávarpaði Humphrey og
bauð hann velkominn, sagði
hann að V-Þjóðverjar myndu
aldrei gleyma því, sem Banda-
ríkjamenn hefðu gert fyrir Evr-
ópu með Marshall-áætluninni.
Hann kvað samband V-Þýzka-
lands við Bandaríkin hafa orð'.ð
æ nánara síðustu tvo áratugina
og vinátta landanna hefði runnið
sitt reynsluskeið en V-Þjóðverj-
ar myndu einskis láta ófreistað
til þess að sú vinátta mætti enn
aukast og eflast.
Clay L. Shaw, 54 ára að aldri,
var handtekinn 1. marz sl. eftir
að Jim Garrison, ríkissaksóknari
í New Orleans hafði kannað
morðmálið upp á eigin spýtur.
Garrison heldur því fram, að
Clay haf: haft samvinnu við Lee
Harvey Oswald og flugmanninn
Ddvid W Ferrie, um að myrða
Kennedy forseta. Ferrie fannst
látinn nokkrum dögum eftir að
vitnaðist að Garrison tengdi
hann við málið. Shaw hefur stað
fastlega neitað að hafa verið við
málið riðinn.
Þá berast þær fregnir frá
Houston í Texas, að Norman
Hooten, fyrrum lögreglumaður
í Dallas hafi sagt af sér starfi
vegna ágreinings við yfirmann
sinn. Singleton að nafni. Hoote.n
var fangavörður í ríkisfangels-
inu í Dallas, meðan Jack Ruby
sat þar fyrir morðið á Lee Har-
wey Oswald — og segir hann
að Ruby hafi látið ýmislegt upp-
skátt við sig varðandi morðmál-
ið sem hann ætli nú að taka sam
an í bók Þessi fyrirhugaða bók
segir Hooten að hafi orðið mis-
klíðarefni sitt og Singletons —
hafi yfirmaðurinn sagt, að hann
hefði ekkert við það að gera að
skrifa bók né blanda sér á nokk-
urn hátt í mál þetta.
nel-
hótunum
ekki áfram byggzt á svo
kvæðum atriðum sem
og aðvörunarlistum.
Þessar nýju tillögur, þar sem
gert er ráð fyrir, að fram komi
öll tilboð og gagntilboð, má því
telja nýtt jákvætt skref í við-
ræðum þessum. Norðurlöndin
hafa nú látið Efnahagsbandalag-
inu í té nákvæman lista yfir þær
tilslakanir, sem þau telja sér
fært að gera og jafnnákvæman
lista yfir þær tilslakanir, sem
þau vænta frá Efnahagsbanda-
laginu .
Ekki er vitað, hvernig fulltrú-
ar Efnahágsbandalagsins taka
þessum nýju tillögum, þar eð
þær hafa svo nýlega borizt þeim
í hendur. Hinsvegar segir í
skýrslu sem í dag var birt hjá
bandalaginu, um Kennedy-við-
ræðurnar fram til þessa, að
bandalagið eigi að halda fast við
afstöðu sína, eins og hún er nú
og hvika ekki frá henni í neinum
meiri háttar atriðum. er upp
kunna að koma í viðræðunum.
Segir i skýrslunni, að fulltrúar
Efnahagsbandalagsins, hafi orð-
ið fyrir vonbrigðum vegna af-
stöðu Norðurlandanna. en ráð-
herrafundur bandalagsins hafi
heitið því að taka til nákvæmr-
ar at.hugunar þau vandamál, er
Norðurlöndin telji skipta mestu
máli, það er að segja, svo fram-
arlega sem Norðurlöndin falli frá
öllum hótunum um að draga til-
boð sín til baka.
Forseti Póllands
heimsækir páfann
Rómaborg, 5. apríl — AP-NTB
FORSETI Fóllands, Edward
Ochab, kemur til Rómaborgar á
fimmtudag í þriggja daga op-
inbera heimsókn. Er búizt við,
aS hann gangi á fund Páls páfa
VI áður en heimsóknlnni Jýkur
og er mikils vænzt af þeim
fundi í Páfagarði, þar sem bjart
sýni er ríkjandi um að sam-
skipti kaþólsku kirkjunnar og
pólsku ríkisstjórnarinnar kunni
að batna. Er vonast til þess, að
þessi fundur forsetans og páf-
ans verði grundvöllur til lausn-
ar þem deilum, sem verið hafa
með kaþólskum og kommúnist-
um sl. tuttugu arin.
Ekki hefur verið skýrt opin-
berlega frá fundi þessum í
Rómaborg, en iregnin höfð eft-
ir góðum heimildum í Páfa-
garðL Ochab verður annar
kommúnistaleiðtoginn, sem Páll
páfi hittir á skörnmum tíma, —
hann ræddi við forseta Sovét-
ríkjanna, Nikolai Podgorni, í
janúar sl.
Gosport, Englandi, 5. apríl
AP.
• Mountbatten, lávarður var í
dag skorinn upp við kviðsliti í
sjúkrahúsi flotans. Líðan hans
er, að sögn lækna, góð eftir at-
vikum.
Mál Svetlönu fyrir
indverska jbingið
Samband rikrs og kirkju 1
Póllandi hefur heldur skánað
að undanförnu. Hefur páfi sent
einn sinn helzta samningamann
Agostino CasjroJi, til Varsjár til
þess að kanna möguleika á var
anlegu samkomalagi. Hefur Cas
areli verið nokkrar vikur í Pól-
landi en fer /æntanlega aftur til
Rómar inn?n skamms.
Páll páfi fékx ekki að heim-
sækja Póllar.d í tilefni nátíða-
haldanna, sem þar voru vegna
þúsund ára afmælis ríkis og
kirkju. Var ástæðan ágreining-
ur milli stjórnar kommúnista-
flokksins og kaþólska kardínál-
ans Stefans Wyszynski. Hann
hefur spyrnt opinskátt gegn öll
um tilraunum kommúrista til
þess að auka áhrif sín í trúar-
lífi landsins og hefur sjálfur öfl
ugan stuðning meðal þjóðarinn
ar. Páfi hefur lagt til að sér-
stakur sendiboði kirkjunnar setj
ist að í vestur og norðurhéruð-
um Póllands, — héruðum sem
komu í hluti Pólverja eftir
heimsstyrjöldina, en sú hug-
mynd hans er kommúnistastjórn
inni sár þyrnir í augum.
Nýju Delhi, 5. apríl NTB.
Viðskiptamálaráðherra Ind-
lands, Dinesh Singh, sagði,
fundi í indverska þinginu í dag,
að Svetlana Stalínsdóttir hefði
aldrei farið þess á ieit við hann,
að hlutast til um að hún fengi
landvist í Indlandi. Svetlana,
sem var gift frænda Singhs,
dvaldist með fjölskyldu hans, áð
ur en hún fór tii Sviss.
Singh var að svara gagnrýni
stjórnarandstöðunnar vegna máls
Svetlönu, sem andstaðan taldi
að stjórnin hefði ekki fjallað
skynsamlega um. Var skorað á
bæði Singh og Indiru Gandhi,
forsætisráðherra, að segja af sér
vegna máls þessa. Borin var fram
tillaga um að sérstakri nefnd
yrði falið að kanna framkomu
þeirra í málinu — en sú tillaga
var felld við atkvæðagreiðslu.
Stjórnarandstaðan byggði gagn
rýni sína á bréfi, sem sósíalista-
leiðtoganum, Ram Manohar
Lohia, barzt frá Svetlönu, en þar
sagði hún, að Dinesh Singh
hefði tjáð sér að henni yrði ekki
leyft að dveljast í Indlandi vegna
fyrirsjáanlegrar andstöðu Sovót-
stjórnarinnar.
Utanríkisráðherrann, Chagla
sagði að Svetlana hefði aldrei
óskað hælis í Indlandi — en
slíkri málaleitun hefði án efa
verið vinsamlega tekið.
— Aden
Framhald af bls. 1
Verkalýðsfélögin, sem í dag
skárust úr leik, voru félög oiíu
verkamanna, liafnarverka-
manna og bankastarfsmanna. Er
viðbúið að afstaða þeirra verði til
að kynda undir eldum ósam-
komulagsins milli NLF — þjóð
lega frelsisfylkingarinnar og
FLOSY, sem eru samtök þau,
er Egyptar styðja til að freisa
suðurhluta Jemen. FLOSY haíði
krafizt þess, að verkfallið yrði
í sex daga.
Frá þvi á sunnudag hafa 5 arab
ar verið drepnir og meðal þeirra
er einn af foringjum FLOSY,
Haide Shamshair og var hann
grafinn við hlið þriggja sona
annars forystumanns samtak-
anna, sem skotnir voru til bana
á heimili föður síns fyrir nokkr
um vikum. Á legstein Shams-
hair var letrað nafn banamanns
hans sem sagður er frá NLF og
hefur talsmaður FLOSY lýst því
yfir, að tíu menn frá NLF verði
drepnir í hefndarskyni fyrir
morð Shamshairs.