Morgunblaðið - 06.04.1967, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.04.1967, Blaðsíða 20
20 MOHGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 1967. HARÐPLAST INNRÉTTIIMGAR L I T A V A L H. BENEDIKTSSON, H F. Suðurlandsbraut 4 Fyrir ferminguna unglingaskrifborð, skatthol, kommóður, svefnbekkir, speglakommóður, o.m.fl. KVIKSJÁ — — — — —k- FRÓÐLEIKSMOLAR Eitt lengsta stríö í Evrópu mæltu afnámi frelsislöggjafar- af æðstu mönnum ríkisins og verið saman af hreinni tilvilj- byrjaði með því að annar flokk iinnar, sem keisarinn hafði ritara kastað út um gluggann un undir glugganum. En þetta nrinn lét kasta foringjum hins komið á í trúmálum. Rökræð- — 17 metra niður. Þeir sluppu „giuggaútkast" í Prag varð flokksins út um gluggann. Þetta unum lauk með því, að einn af á lífi, þar sem þeir féllu of- upphafið á Þrjátíu ára stríöinu átti sér stað, þegar mótmælend- mótmælendunum kallaði „út an á rusl, sem safnað hafði í Evrópu. ur í Prag 23. maí árið 1618 mót- með hann“, og var þá nokkrum — Benedikt Framhald af bls. 18. mundi núna, ef hann faefði lifað. Benedikt var það sérstaklega lagið að byggja upp þrek þeirra, sem hann þjálfaði. Hann taldi það líka fyrsta skilyrði, sem upp fylla bæri, að menn loftuðu sjálfum sér, yrðu nógu þrek- miklir, þó kæmu afrekin í kjöl- farið. Og þá ber að minnast allra snúninga hans og snatts fyrir deildina og einstaka félaga. Hann lagði sig í líma til að ungl- ingarnir kæmust til starfa sér til þroska, en sem jafnframt gæfu þeim tómstundir til æfinga. Trúnaðarstörf öll, sem á Bene- dikt hlóðust, yrði of langt mál að telja öll, sömuleiðis ritverk hans, sem þó urðu ekki jafn mife il að vöxtum og æskilegt hefði verið vegna hinnar ágætu þekk- ingar hans og reynslu á ílþrótta- mál-um. Heiðursviðurkenningar hlaut hann margar fyrir störf sín, en þó mun honum hafa þótt vænzt um, þegar honum var veittur styrkur úr Vísindasjóði til þrek- rannsókna þeirra, sem hann var hér brautryðjandi um. Benedikt Jakobsson var tvl- giftur. Fyrri kona hans (1932) var Vivian Signe Aurora, dóttir Ottos Holm, stórbónda í Uppsöl- um í Svíþjóð. Varð þeim fjög- urra mannvænlegra bama auð- ið: Ingunnar Brynhildar. sem gift er Gunnari Franzén, verk- fræðingi í Stokkhólmi, Elínar Solveigar. fconu Jóhannesar Vestdal, stórkaupmanns í Rej'kja vík, Þóris Jakobs Gunnars, sem er að ljúka námi I verfcfræði og eðlisfræði í Stokklhólmi nú á þessu vori, og Hallgríms, sem nemur læknisfræði við Háskóla íslands og kvæntur er Guðrúnu Jörundsdóttur. Seinni kona Benedifcts tarð 19öl Gyða Erlendsdóttir húsa- meistara Erlendssonar. Á hón þrjár dætur uppkomnar af fyrra hjónabandi, Sigríði Steinu, sem gift er Gunnari Jónssyni, arki- tekt, Þórdísi og Sigríði Báru Rögnvaldsdætur. Gekk Benedikt þeim í föður stað og reyndist þeim í hvívetna hið bezta. Börn þeirra Benedikts og Gyðu eru Ragnheiður Lilja, sem fermd var sunnudaginn eftir lát föður síns, og Benedikt. Er fjölskyldu hans allri að sjálfsögðu sárastur harmur kveðinn við hið snögga fráfall Benedikts, enda þótt það hafi mörgum öðrum orðið mikil missa og víða sé þar nú skarð fyrir skildi sem Benedikt hlífði áður. En það er huggun harmi gegn, að þeir einir geta mikið misst, sem mikið hafa átt, og eftir lif— ir minningin um góðan eigin- mann og góðan föður og vissan um endurfundi. Guð blessi minningu þessa látna vinar mins. ÞS. t Ég þekkti Benedikt Jakobs- son fimleikaþjálfara um 20 ára skeið. Kynni okkar urðu slífc, að við ákváðum að minnast upp hafs þeirra hátíðlega í Buenos Aires næsta ár. Af því verður ekki héðan af, en ég mun gera það með sjálfum mér. Hamborg 5/4 ’67. Pétur Ólafsson. Afli Ólafsvíkurbáta Ólafsvík, 4. apríl. AFLI Ólafsvíkurbáta frá 16. 3. til 31. 3. var 1642 lestir, en heild- araflinn frá áramótum til 31. 3. er 3845,5 lestir í 474 róðrum. Á sama tíma í fyrra var afl- inn 5346 lestir. Hæstu bátar nú eru Steinunn með 485.6 lestir í 41 róðri, Jón Jónsson með 390 lestir í 39 róðrum og Valafell SH 227 með 374,7 lestir í 40 róðrum. Hæsti bátur í fyrra var á sama tíma með 630 lestir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.