Morgunblaðið - 16.04.1967, Síða 16
16
MOKOUNBL.AÖIÖ, SUNNUDAGUR 16. APRlL 1967.
r
í
\
\
<
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
I
s
s
l
1
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
í lausasölu kr.
Áskriftargjald kr. 105.00
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur,
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn ‘Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
7.00 eintakið.
á mánuði innanlands.
argjald kr. 105.00 á mánuði innanlands. j
BYGGINGAR-
KOSTNAÐ URINN
mki
UTAN ÚR HEIMI
Lincoln Center, taliff frá vinstri: New York State Theater, Metropolitan-óperan, Vivian Beau-
mont-leikhúsið í baksýn, og Philharmonic Hall.
Alþjóðleg listahátíð
í New York í sumar
MIKIL alþjóðleg listahátíð
verður haldin í Lincoln Cent-
er for the Performing Arts
í júní og júlí í sumar og
stendur í fimm vikur. Verður
þar flutt tónlist, óperur, leik-
rit, dans og sýndar kvikmynd
ir frá ýmsum löndum heims.
Porstöðumaður hátiðarinnar
verður hinn kunni hljóm-
sveitarstjóri Leonard Bern-
stein. Hann er eins og stend-
ur í orlofi frá Fílharmoníu-
hljómsveitinni og mun hann
flytja nokkur verk samin fyr-
ir hátíðina.
Hamborgar-óperan mun nú
í fyrsta sinn heimsækja
Bandaríkin og hefur hún tíu
sýningar frá 23. júní til 10.
júlí. Meðal annars flytur hún
Mathis der Maler, eftir Hinde
mith, Hacobovsky og ofurst-
inn, Lulu, Der Freischutz,
The Visitation eftir Schuller,
og The Rakes Progress eftir
Stravinsky. Einnig munu
tveir af fremstu rithöfundum
Þjóðverja, Gunther Grass og
Hans Magnus Enzensberger,
lesa úr verkum sínum 28.
júní.
Rússar taka þátt í hátíðinni
og bjóða meðal annars upp á
ballett í Metropolitan-óper-
unni í fyrri hluta júní. Verða
á sýningum þessum beztu
dansarar Rússa, meðal ann-
ars frá ballettunum í Kirov,
Úkraínu og Georgíu, til við-
bótar dönsurum frá Bolshio-
ballettinum. Eitt af fremstu
ljóðskáldum Sovétríkjanna,
Andrei Vozenesensky, les úr
verkum sínum í Philharmonic
Hall 21. júní.
Tékkar halda kvikmynda-
vikur á hátíðinni 16. júní til
1. júlí. Verða þá sýndar nýjar
tékkneskar kvikmyndir í sýn
ingarsal Museum of Modern
Art.
Helzta leikrit á hátíðinni
mun verða frumsýning á leik
ritinu Óþekkiti hermaðurinn
og kona hans, eftir brezka
leikritahöfundinn og leikar-
ann Peter Ustinov. Verður
leikritið flutt frá 27. júní til
29. júlí í Vivian Beaumont-
leikhúsinu.
Bath-hátíðarhljómsveitin
kemur fram í Bandaríkjun-
um í fyrsta sinn, undir sitjórn
Yehudi Menuhin og leikur
hann einnig einleik.
Einnig heyrist í fyrsta sinn
í New York hljómsveitinni
L’Orchestre de la Suisse
Romande, undir stjórn stofn-
anda hennar Ernest Anser-
ment og heldur hún tvenna
hljómleika, í Philharmonic
Hall, þann 25. og 26. júní.
Metropolitan-óperan áætlar
að hafa á dagskrá sinni, með-
an á hátíðinni stendur, ýms-
ar vinsælustu óperur, sem
þar eru fluttar, svo sem Un
Ballo in Maschera, La Travi-
ata, Lohengrin, La Gioconda
og Töfraflautuna.
Dagana 12., 14., 15., 16. og
17. júní stjórnar Andre Koste
lanetz utanhússhljómleikum,
sem eru hluti af hátíðinni.
Mörg verk verða flutt þar,
sem sérstaklega hafa verið
samin fyrir hátíðina.
Indverski gítarleikarinn
Ravi Shankar og tónlistar-
menn hans halda hljómleika
í Philharmonic Hall 11. júlí.
Annar þekktur indverskur tón
listarmaður, Bismallah Khan,
heldur tónleika ásamt hljóm-
sveit sinni 14. júlí.
Loks stjórnar japanski
hljómsveitarstjórinn Seiji Os-
awa New York Philharmonic
hljómsveitinni, er hún flytur
Joan of Arc at he Stake eftir
Honegger. — Fjöldi annarra
listamanna kemur einnig
fram á hátíðinni.
Að undan,förnu hafa spunn-
izt allmiklar umræður á
opinberum vettvangi um
byggingarkostnað hér á landi
eftir að í ljós kom, að Bygg-
ingarfélag verkamanna og
sjómanna, sem málfundafé-
lagið Óðinn stendur að, hef-
ur byggt fjölbýlishús við
Reynimel, þar sem bygging-
arkostnaður hefur reynzt
miklum mun lægri heldur en
almennt söluverð sambæri-
legra íbúða er.
Af þessu tilefni hafa ýmsir
aðilar látið frá sér heyra og
nú síðast hefuir Meistarasam-
band byggingarmanna sent
frá sér yfirlýsingu um málið,
þar sem það sjónarmið er
sett fram, annars vegar, að
mikii eftirspurn eftir hús-
næði hafi að mestu ráðið
verðlagi á fbúðum og hins
vegar, að ágóðinn hafi lent í
höndum annarra en bygging-
armeistara.
Allar eru þessar umræður
gagnlegar að svo mikiu leyti,
sem þær varpa skýrara ljósi
á orsakir hins háa byggingar-
kostnaðar en þó hafa þær
mjög farið inn á þá brauit að
hinir ýmsu aðilar hafa borið
af sér sakir um sinn hlut í
hinum háa byggingarkostn-
aði.
í yfirlýsingu Meistarasam-
bands byggingarmanna er
sérstaklega tekið fram, að
fleiri aðilar en bygginga-
meiistarar byggi íbúðir tii
þess að selja og vitaskuld er
það rétt. Bæði byggingar-
samvinnufélög og önnur bygg
ingarfélög einstakra stétta og
starfshópa hafa fengið lóðir
undir fjölbýlishús og byggt
fyrir félagsmenn sína. En
ástæða er til þess að benda
á, að nokkurs misskilnings
gætir í yfirlýsingu Meistara-
sambandsins, þegar fjallað er
um úthlutun lóða undir fjöl-
býlishús í Árbæjarhverfi sum
arið 1965, en í yfirlýsingunni
segir að „byggingarmeistarar
og fyrirtæki þeirra fengu lóð
ir undir 46 stigahús en aðrir
aðilar, félög og einstaklingar
lóðir undir 58 stigahús. Það
er síðan orðið ljóst að þessir
einstaklingar og félög fengu
lóðirnar eingöngu til þess að
selja íbúðirnar, sem þar voru
byggðar". Staðreyndin er sú,
að við úthlutun fjölbýlishúsa
í Árbæjarhverfi sumarið
1965 fengu byggingameistar-
ar og fyrirtæki þeirra 617
íbúðir til byggingar, einstakl
ingar fengu aðeins 47 íbúðir
og byggingarsamvinnufélög
115. Þá er það auðvitað frá-
leit fullyrðing að halda því
fram, að þeir einstaklingar,
sem fengu þessar 47 íbúðir
hafi fengið þær sérstaklega
til þess að selja. Vel má vera,
að einhverjir þeirra hafi selt
sínar íbúðir, m.a. af þeim sök
um, að þeir hafi þegar til
kom, ekki haft fjárhagslegt
bolmagn til þess að halda
þeim, en af hálfu Reykjavík-
urborgar var þeim að sjálf-
sögðu ekki úthlutað í því
augnarmiði sérstaklega, að
þær yrðu seldar. Þegar lóð-
um var úthlutað í Elliðavogi
fengu byggingameistarar 120
íbúðir, einstaklingar 24 íbúð-
ir og byggingarsamvinnufé-
lög 36 íbúðir. Þegar hins veg-
ar lóðum var úthlutað undir
fjölbýliishús í Fossvogi fengu
einstaklingar 252 íbúðir,
byggingarsamvinnufélög 66
íbúðir, byggingarfélag verka-
manna 72 og úthlutað var
vegna erfðafestulanda 12
íbúðum. Við þessa úthlutun
rfkti sú ákveðna stefna
Reykjavíkurborgar að laða
saman einstaklinga, sem hug
höfðu á íbúðum í fjölbýlis-
húsum til samstarfs um lóða-
úthlutun, með það sérstak-
lega fyrir augum, að þessir
einstaklingar fengju íbúðirn-
ar á kostnaðarverði.
Kjarni þessa máls er hins
vegar vafalaust sá, að tækni
nútímans hefur ekki hafið
innreið sína nægilega mikið
í byggingariðnað hér á landi.
Dæmið um byggingu Bygg-
ingarfólags verkamanna og
sjómanna við Reynimel sýn-
ir glögglega, að hér er hægt
að byggja ódýrt, ef að því er
stefnt, og um það hugsað en
líklegra er þó þegar ti)l þess
kemur að lækka byggingar-
bostnað almennt, að það
verði ekki gert nema með því
móti, að hér rísi upp stór,
öflug og fjársterk byggingar-
félög, sem hafi yfir að ráða
allri nútímatækni í bygging-
ariðnaði og byggi í einu íbúð
ir svo hundruðum skipti. Og
æskilegt væri. að byggingar-
iðnaðarmenn sjálfir hefðu
forgöngu um myndun sl'íkra
fyrirtækja.
SIGUR ÍHALDS-
FLOKKSINS
Drezki íhaldsflokkurinn
** vann mikinn srgur í
bæjar- og sveitarstjórnar-
bosningunum, sem eru nýaf-
staðnar í Englandi. íhalds-
menn unnu sinn mesta sigur
í Stór-London, þar sem þeir
hlutu 82 borgarful'ltrúa af
100 en Verkamannaflokkur-
inn, sem haft hefur meiri-
hluta í borgarstjórn Lund-
úna frá árinu 1934 hlaut að-
eins 18 fulltrúa kjörna. —
íhaldsflo<kkurinn vann einnig
á víða úti um land og náði
meirihluta í fjölmörgum
sveitarstjórnum frá Verka-
mannaflokknum.
Hér er annars vegar um
mikið áfall að ræða fyrir
Verkamannaflokfcinn og ríkis
stjórn Harolds Wilsons og
hins vegar mikinn sigur fyrir
íhaldsflokkinn og ekki sízt
leiðtoga hans, Edward Heath.
Sigur íhaldsflobksins er svo
mifcill, að hann bendir ótví-
rætt til megnrar óánægju
með stjórn og stefnu Verka-
mannaflokhsins, enda hefur
Verkamannaflokksstjórnin í
starfi sínu gengið þvert í
gegn ýmsum helztu stefnu-
málum sínum í kosningunum.
Þessi kosningaúrsli't eru
fyrstu góðu tíðindin, sem í-
haldsflokkurinn fær eftir
kosningaósigurinn 1964 og
benda tvímælalaust ti'l þess,
að íhalsflofckurinn undir for-
ustu Heaths sé nú að ná sér
á strik aftur.
KVENNADEILD
RAUÐA-
KROSSINS
CJkýrt hefur verið frá því í
^ blöðum, að stofnað hafi
verið kvennadeiild Rauða
kross Íslands og er ástæða
til að fagna þvi. Hér er um að
ræða veigamikið spor í þá
átt að efla stórum starfsemi
Rauða krossins því að alkunn
ur er dugnaður kvenna í hin-
um ýmsu félagssamtökum,
sem vinna að mannúðar- og
l'íknarmálum.
Rauði kross íslands hefur
með höndum þýðingarmikið
verkefni og hefur leyst það
vel af hendi víða um heim.
Starfsemi hans hefur reynzt
góð landfcynning fyrir ís-
land eins og t.d. sú aðstoð
sem hann hefur veitt í Alsír.
Þess vegna ber að fagna
hverju því skrefi, sem verð-
ur tiil þess að efla Rauða
kross Íslands.