Morgunblaðið - 16.04.1967, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.04.1967, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. APRÍL 1967. m ■ n—w-i.ii-wiu.mi UNDIR VERND skugga af manni i dyrunum. Snöggvast tók hjartað í henni viðbragð og henni leið illa. — Góði guð láttu betta vera hann Davíð, sagði hún við sjálfa sig En andarcaki seínna, þegar húr. kom frair í búðina, fann hún hendur sinar giipnar föstu taki af sterkum karlmannshöndum, og hún neyrði rödd, sem hún kannaðist svo vel við, segja: — Pauia, hvað það var indæl-t að sjá þig aftur. Þetta var Don Wainwright. Hann sneri henni í hring og sagði: — Lofðu méi að líta ofurlítið á kaupsýslukonuna. Hugsa sér þig standa í búð, Paula. Nú, en vitanlega ertu vön leikföngum frá henni frænku þinni. Ég hef alltaf verið að hugsa um að skreppa i borgina síðan þú fórst eftir Maysie Greig: að heiman, en fannst ég aldrei geta komizt burt, Þetta er höfuð ókosturinn á iðjuleysinu. Maður fær aldret tíma til neins. Hann rak upp hrossahlátur. — En nú, þegar ég er loks kominn, þá kem ur þú út að borða með mér. Þér þýðir ekkert að segja nai. Ég sting upp á, að við förum í skárri garmana og förum í Sav- oy. — Já, það vil ég gjarna, sagði hún, en hún leit snöggvast á klukkuna um leið og hún sagði það. Hálfsex. Það var engin von til að neitt heyrðist frá Davíð héðanaf. — Hvenær losnarðu héðan? Og hvar og hvenær get ég vitjað þín? — Ég losna héðan ekki fyrr en klukkan sex og svo verð ég að fara heim og hafa fataskipti. Það er rétt við Sloanetorgið. Ef þú getur sótt mig þangað klukk-- an hálfátta eða litlu seinna. Og svo gaf hún honum heimilsfar.g- ið. Hann þrýsti hönd hennar aft- ur. — Ég skal koma. Þú ve'zt, hvað ég hef saknað þín. Ég .... En í sama bili opnuðust dyrnar og Davíð gekk inn. Don sleppti hönd hennar og tautaði með sjálfum sér: — Er þetta viðskiptavinur? — Davíð sagði: — Kem ég til óþæginda? — Nei, nei. Paula greip and- ann á lofti, og henni létti svo mjög, að hún gat ekkert sagt, nema: — Nei, alls ekki. Hún sneri sér að Don, sem hafði gengið yfir í hinn endann á búðinm og virtist önnum kaf- inn að skoða björn á þríhjóli. — Don, mig langar til að kynna þér vin minn. Hr. Wainwrig'ht — hr. Hankin. Svo sagði hún við Davíð og gleðin skein ekki aðeins út úr rödd hennar, held- ur fór um hana alla: — Don er gamall vinur minn. Hann er frá Harton, þar sem ég fæddist. — Já, sagði Don og hló hressi lega. — Ég varð þeirrar náðar aðnjótandi að hossa þessari dömu á hné mér þegar hún var í stíf- uðum kjól og með gullið hrokkið hár, ZZ12" — Ég er með allskonar skila- boð til þín frá henni Agötu frænku, bætti hann við. — En það getui nú beðið þangað til í kvöld. — Ertu upptekin í kvöld. Paula? sagði Davíð. Ég rakst bara hingað inn, í þeirri veiku von, að þú gætir komið út að borða með mér. — Því miður, sagði Paula, en um leið hefði hún getað hrist hann. Hversvegna gat hann ekki komið fyrr? Hefði hann bara hringt fyrir hálftíma! — Jæja ég ætla að halda á- fram, sagði Don. — Ég sæki þ:g, eins og við töluðum um, milii hálfátta og átta. Vei-tu sæl á meðan. Sælir, hr. Hankin. Og svo gekk hann út. Davíð og Pauia urðu eftir ein. Davíð saeði: — Það var leiðinlegt þetta i kvöld. Vitanlega var það mér að kenna, að hafa ekki talað við þig fyrr. — Já, þú hefðir getað hringt dálítið fyrr, samþykkti hún. Hann sagði, án þess að títa á hana. — Ég hei svo afskaplega mikið að gera. Ég vissi ekki fyrr en á síðustu stundu, hvort ég yrði laus í kvöld. En kannski getum við farið út seinna? — Já. þakka þér fyrir, sagði hún Svc dró hún snöggvast að sér andann og bætti við. — Ég er laus annað kvöld. Það færðist skuggi yfir andlit hans. — Því miður, á morgun er laug ardagur, er það ekki? Það er dálítið .... hann hikaði — erfitt fyrir mig að komast út á laug- ardögum Ég var víst búinn að segja þér það. Og ég er hræddur um, að sama sé að segja um sunnudaginn. Hann brosti ofur- lítið. — Maður er talsvert bund inn við fjölskytduna, skilurðu. — Já, maður er það víst, sagði hún Allt í einu greip hana megn óvild gegn fjölskyldu hans og það hve mikinn tíma hún tók fyrir honum. Gat hann ekki ver ið ungur með hanni og skemmt sér? Húr, mundi allt í einu eftir því, sem Lance hafði verið að segja um mamonn, sem hafði verið giftur áðui og væri eins og hús fulit af draugum. Það var ekki hæg* að skipulegga líf sitt með slíkum manni, því að það var þegar skipulagt. — En kannski mánudag eða þriðjudag7 sagði hann. — Ég verð frjálsari í næstu viku. Gæt um við ekki borðað kvöldverð snemma og farið svo í leikhús eða eitthvað út að dansa? — Það væri ágætt, samþykkt.i hún. En einhvern veginn fann hún ekki til neinnar hrifningar. — Segjum þá á þriðjudag. London er ekkert sérlega lífleg á mánudögum. Hún reyndi að koma sér að því að spyrja um ungfrú Free- man, en einhvern veginn kom hún sér ekki að því. En hún spurði eftir börnunum og hann sagði henni, að Faith hefði dott- ið af baki og Michael hefði feng ið kvef, en væri nú að skána. Hann stóð þarna og skrafaði þangað tii hún lokaði búðinni og ók henni þá heim til hennar, og virtist eiga bágt með að skilja við hana. Hún vissi vel, að hefði hún boðið honum það, hefði hann komið inn. Peysur og peysusett. Lambsull og Casmir — skozk úrvalsvara. Kærkomin fermingargjöf. Verzlunin Laugavegi 19. Skrifstofustarf Stúlku vantar okkur sem fyrst, til almennra skrif- stofustarfa, svo sem vélritunar, verðútreikninga, og fleira. Upplýsingar ekki gefnar í síma. ^ KB.HRISTJÁNSSDN H.F. U M B D B Ifl SUDURLANDSBRAUT 2 • SÍ'MI 3 53 00 Stúlkur Stúlkur, 18 ára og eldri, með nokkra enskukunn- áttu geta fengið skemmtilegt sumarstarf frá miðj- um júní til septemberloka við ýmis þjónustustörf á sumarhótelum í Suður-Englandi. Upplýsingar veitir: FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN Austurstræti 17. »*—" FERMINGARMYNDAMÓTÖKUR í STUDIO GESTS- LAUFÁSVEGI 18 - SÍMI 24028 ÞESSAR MYNDIR VORU TEKNAR EFTIR FERMINGARNAR UM SÍÐUSTU HELGI. — FERMINGARKIRTLAR Á LJÓSMYNDASTOFUNNI — í MYN DATÖKUNNI ERU TEKNAR MYNDIR í OG ÁN KIRTILS. MYNDATÖKUR ALLA DAGA VIKUNNAR, OG Á KVÖLDIN. — PANTIÐ TÍMA SEM YÐUR HENTAR. - STUDIO CESTS - LAUFÁSVECI 18 - SÍMI 2-4028

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.