Morgunblaðið - 13.05.1967, Page 18

Morgunblaðið - 13.05.1967, Page 18
mr íbúðir f fjölbýlishúsum f samvinnu vi8 hlutað- •igandi sveitarfélög. Láglaunafólk í verkalýðsfélög- «m skal hafa forkaupsrétt að Ibúðum þessum, og mr heimilt að veita meðlimum verkalýðsfélaga lán «il kaupa á íbúðum, sem nemur */s hlutum af verð- ■næti íbúða, og skal þá telja gatnagerðargjald með ▼erðmæti íbúðanna. Lán þessi skulu vera til 33 ára, afborganalaus fyrstu þrjú árin, en endugreiðast síð- an á 30 árum. Að öðru leyti verða lánskjör hin sömu ©g lánskjör annarra íbúðalána húsnæðismálastofn- unarinnar. Er þegar hafinn mikill undirbúningur að fram- kvæmd áætlunar um byggingu 1250 íbúða á fimm árum í samvinnu við Reykjavíkurborg, samkvæmt þessari heimild. Mun innan skamms hefjast bygg- ing 350 íbúða samkvæmt þessari byggingaáætlun. 4) Leiguibúðir sveitarfélaga og Öryrkjabandalagsins Á árinu 1965 var húsnæðismálastjórn ennfremur heimilað að veita sveitarfélögum og öryrkjabanda- lagi íslands lán til byggingar leiguhúsnæðis í kaup- etöðum og kauptúnum. Lánsfjárhæð á hverja íbúð skal vera allt að 34 hlutum verðmætis íbúðar. Ung hjón og aldrað fólk skal að öðru jöfnu sitja fyrir um húsnæði í leiguíbúðum þessum. Aukin hlutdeild opinberra lána i byggingarkostnaði Hlutfall opinberra lána í byggingarkostnaði íbúða hefur hækkað mjög mikið á undanförnum árum. Samkvæmt athugun, sem á þessu hefur verið gerð 1 Reykjavík, var hlutfall þetta komið upp i 28,4% árið 1964, (var 8,6% árið 1958), og má reikna með, að hlutfallið hafi verið svipað annars staðar á land- inu. Síðan hafa opinberar lánveitingar til íbúða- bygginga almennt hækkað mjög mikið, svo að víst má telja, að þetta hlutfall hafi enn hækkað, auk þess sem vissum hópum húsbyggjenda hefur með lögum verið tryggt enn hærra hlutfall. Mikill hluti húsbyggjenda nýtur nú orðið einnig lána úr sér- stökum lífeyrissjóðum, svo að stór hluti þeirra fær a.m.k. 50% byggingarkostnaðar í föstum lánum. I Fjáröflun. Helztu ráðstafanir, sem af ríkisvaldsins hálfu hafa verið gerðar til þess að tryggja fjármagn til hækk- unar íbúðalána, hafa verið þessar: 1) skyldusparnað- ur einstaklinga 16—25 ára hefur verið hækkaður úr 6% í 15% af launatekjum. 2) Tryggingafélögunum hefur verið gert að verja 25% af ráðstöfunarfé sínu til kaupa á íbúðalánabréfum húsnæðismálastjóm- *r. 3) Lagður hefur verið á launagreiðendur almenn- ur launaskattur að upphæð 1% af greiddum vinnu- launum og hvers konar atvinnutekjum öðum en tekjum af landbúnaði. 4) Akveðið hefur verið, að árlegu framlagi ríkissjóðs til atvinnuleysistrygginga akuli varið til kaupa á bankavaxtabréfum almenna veðlánakerfisins. 6) Ríkissjóður greiðir árlega 40 millj. kr. framlag til Byggingarsjóðs ríkisins. 6) Heimild Veðdeildar Landsbanka íslands til útgáfu bankavaxtabréfa, sem nam 150 millj. kr. á ári í 10 ár, hefur verið hækkuð 1 400 millj. kr. á ári ótímabundið. Lækkun byggingarkostnaðar. Til þess að stuðla að lækkun byggingarkostnað- ar hafa aðflutningsgjöld af tilbúnum húsum og hús- hlutum verið lækkuð verulega. Þá er það meðal verk efna Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins. að vinna að endurbótum í byggingariðnaði og lækkun kostnaðar við mannvirkjagerð. Iðnaðarmálaráðherra hefir skipað sérstaka nefnd, sem vinna skal að at- hugun á byggingarkostnaði í landinu. Er þess vænzt, að athuganir þessara aðila geti leitt til þess að tak- ast megi að lækka nokkuð byggingarkostnað íbúðar- húsnæðis. Með byggingu hinna 1250 íbúða fyrir lág- launafólk, sem að framan voru nefndar, verður lögð aérstök áherzla á að sannreyna, hve mikið megi lækka byggingarkostnað með góðri skipulagningu og fullkomnustu tækni, sem við verður komið. Tryggingabætur margfaldaðar Efling almannatrygginga hefur verið einn þýð- ingarmesti þáttur þeirrar stjórnarstefnu, sem fylgt hefur verið frá árinu 1960. Höfuðáherzlan hefur verið lögð á að bæta hag þeirra þegna þjóöfélagsins, sem við lakasta lífsaðstöðu búa, einkum aldraðs fólks og öryrkja, einstæðra mæðra og barnmargra fjölskyldna. Þegar við framkvæmd viðreisnarráðstafananna árið 1960 voru bætur almannatrygginga hækkaðar mjög mikið, sérstaklega fjölskyldubætur og elli- og örorku- lifeyrir, til þess að koma í veg fyrir, að verðhækk- anirnar, sem leiddi af þessum ráðstöfunum, yllu kjara- skerðingu hjá þeim, sem sízt máttu fyrir henni verða. Auk þeirra hækkana, sem stóðu í beinu sambandi við viðreisnarráðstafanirnar, var elli-, örorku- og barnalífeyrir hækkaður um 20%, þannig að kjör þeirra, sem þessara bóta njóta, urðu þá þegar betri en þau höfðu áður verið. Síðan hafa verið gerðar margar þýðingarmiklar endurbætur á tryggingalöggjöfinni og bætur hækkað- ar mjög mikið. Árangurinn er sá, að íslenzka þjóðin býr nú viö meira efnahagslegt öryggi en nokkru sinni fyrr, og er í hópi þeirra þjóða, er bezt búa að þeim þegnum sínum, sem vegna erfiðra ástæðna þarfnast aðstoðar þjóðfélagsheildarinnar til þess að njóta mannsæm- andi lifskjara. Aldraðir búa við aukið öryggi. Bætur almannatrygginga. Þýðingarmesta grein almannatrygginga eru Iífeyr- istryggingar, en þær taka til ellilífeyris, örorkulífeyr- is, makabóta, fjölskyldubóta, bamalífeyris, mæðra- launa, fæðingarstyrks, ekkjubóta og ekkjulífeyris. Bætur lífeyristrygginga munu á árinu 1967 nema yfir 1.000 milljónum króna, en þær námu á árinu 1959 tæplega 154 millj. kr. Mest mun ganga af þessari fjárhæð til ellilífeyrisgreiðslna, eða yfir 500 millj. kr., en í fjölskyldubætur verða greiddar um 250 millj. kr., í örorkulífeyri og örorkustyrk um 130 millj. kr. og um 135 millj. kr. í aðrar bætur lífeyristrygginga. Til annarra greina almannatrygginganna, slysa- trygginga og sjúkratrygginga, munu á árinu 1967 renna um 45 og 405 millj. kr., eða samtals 450 millj. kr., en á árinu 1959 námu bætur slysatrygginga tæp- lega 12,4 millj. kr. og útgjöld sjúkratrygginga um 86 millj. kr. Samtals geta bótagreiðslur almannatryggingia á ár- inu 1967 þannig numið allt að 1.500 millj. kr. Verður ljóst, hversu niikla fjármuni hér er um að ræða, þeg- ar athugað er, að þetta er u.þ.b. 100 millj. kr. hærri upphæð en varið var til íbúðarhúsabygginga í öllu landinu árið 1965. Helztu nýmæli á viðreisnartímabilinu. 1) Allar bætur almannatryggingá hafa verið stór- hækkaðar — og miklum mun meira en nemur verðhækkunum og hækkun á vísitölu fram- færslukostnaðar. 2) Afnumin hefur verið skiptingin í 1. og 2. verð- lagssvæði. Allar bætur almannatrygginga eru nú hinar sömu hvar sem er á landinu, en áður voru þær fjórðungi lægri á 2. verðlagssvæði, sem náði yfir allt landið utan kaupstaða og kauptúna með 2000 íbúum eða fleiri. 3) Fjölskyldubætur eru nú greiddar með öllura börnum yngri en 16 ára. Fyrir 1960 voru ekki greiddar fjölskyldubætur með fyrstu tveimur börnum í fjölskyldu, aðeins hálfar fjölskyldu- bætur með þriðja barni, en fullar bætur með fjórða barni og fleirum. Og með almannatrygg- ingalögunum frá 1963 var ákveðið, að fjöl- skyldubætur skyldu einnig greiddar með þeira börnum, sem njóta barnalífeyris eða eiga fram- færsluskyldan föður utan fjölskyldunnar. 4) Nú njóta ellilífeyris- og örorkulífeyrisþegar fulls lífeyris, þó að þeir hafi jafnframt aðrar tekjur. Áður en hin svokölluðu skerðingarákvæði voru afnumin á árinu 1960, voru slíkar tekjur dregnar frá lífeyrisgreiðslum eftir vissum reglum. «) Með almannatryggingalögunum frá 1963 „var heimilað, að sérstakir lífeyrissjóðir verði viðbót- arsjóðir við almannatryggingar, en til þess eru þó nauðsynlegar vissar breytingar á reglura lífeyrissjóðanna. Aður áttu þeir, sem rétt höfðu til bóta frá lífeyrissjóðum, yfirleitt ekki rétt til sams konar bóta frá lífeyristryggingunum. «) Réttur ekkna til lífeyris hefur verið aukinn verulega. Nú fær kona, sem verður ekkja 50 ára að aldri, t.d. lífeyri sem nemur 25% af ör- orkulífeyri, en fékk áður aðeins 10%, 60 ára ekkja fær 75% í stað 58% og 65 ára ekkja 100% í stað 88%. 7) Mæðralaun, sem greidd eru ekkjum, ógiftura mæðrum og fráskildinn konum, eru nú greidd móður með einu barni yngra en 16 ára og full mæðralaun (þ.e. upphæð jafnhá ekkjulífeyri) eru nú greidd móður með þremur börnum eða fleirum. Fyrir 1960 fengu einstæðar mæður ekki greidd mæðralaun nema þær hefðu a.m.k. tvö börn á framfæri sínu, og full mæðralaun voru ekki greidd fyrr en börnin voru fjögur eða fleiri. 8) Slysadagpeningar og sjúkradagpeningar eru nú greiddir í allt að 52 vikur í stað 26 vikna áður. Hækkun bótanna. Eftirfarandi yfirlit um upphæðir bóta lífeyristrygg- Inga annars vegar í árslok 1959 og hins vegax í jan- úar 1967 sýnir vel hina stórfelldu hækkun bótanna á viðreisnartímabilinu, en vísitala framfærslukostn- aðar hefur á sama tima hækkað um 95%. Miðað er við bótagreiðslur fyrir heilt ár, nema annað *é tekáð íram. mml 1M| 18 A FRAMFAHALEIÐ U.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.