Morgunblaðið - 27.06.1967, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.06.1967, Blaðsíða 28
28 MORGUSNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JUNI 1967. EFTIR KRISTMANN GUÐMUNDSSON ykkar um tíma“, sagði Danó við Ómar Holt, er þeir voru á leið til stjörnuskipsins. ,,Það er leið- inlegt að þið skulið enn ekki haía náð saimbandi við þæf* vit- verur aðrar, sem á hnetti ykkar búa — á sömu bylgjulengd og þið. Þar eru að minnsta kosti fjórar tegundir slíkrar, auk mannanna, en þið meðhöndlið þær allar eins og skynlausar skepnur. Að vísu eru maurarn- ir á jörð þinni ekki háþróaðir, en hafa þó náð langt á sinni braut og það væri gaman fyrir ykkur að geta talað við þá“. „Þetta lagast bráðum", mælti Míró Kama. „Þeir eru þegar byrjaðir að spjalla við höfrung- ana“. Er þeir komu um borð færði stjörnuskipið sig innar í sól- kerfið. Voru nú skoðaðir þrír skordýrahnettir í viðbót, en. þarna var þróun þeirra lífvera allsráðandi. Loks kotnu þeir að lítiili veröld, á stærð við Mars, mjög nærri hinni rauðu sól. Eng- in höf voru þar, aðeins vötn og elfur, en landrými mikið og allt vaxið fjólubláum skógi. Heitt var niðri á hnettinum, en þó vel líft mönnum, enda komust geim- fararnir brátt að því, er þeir flugu yfir skógana í diskum sín- um, að þarna var fullt af verum í mannsmynd. Raunar bar mest á stórum, litfögrum fiðrildum, er hvarvetna voru á sveimi inn- an um krónur trjánna, sem voru víða prýddar litfögrum blóm- um. En mannverurnar höfðu gert sér frumstæða bústaði í rjóðr- um, og á hæðadrögúm, þar sem gróður var strjáll. Fólk þetta gekk nakið. Það var fremur smá- vaxið, en mjög fagurlega skap- að, og svipmót þess benti tli að það væri ánægt með tilver- una. „Þetta verðum við að atihuga", sagði Danó. Hann sat við firð- sjána, ásamt Ómari Holt og Míró Kama. „Hafið þið nokkru sinni séð unaðslegri mannverur — Íítið á hjónakornin, sem eru að leika sér þarna á flötinni und- ir ávaxtatrjiánum! Þau gætu áreiðanlega sýnt þennan dans sinn hvar sem væri, við mikla hrifningu á'horfenda. Diskurinn nam staðar yfir sléttu rjóðri í skóginum, og geimfararnir virtu fyrir sér tvær ungar manneskjur, er stigu þar dans af þvílíkum þokka og leikni að hrein unun var á að horfa. Þetta var ljósbrúnt fólk, með granna líkami, og fegurð þess svo fullkomin sem væri það vordraumur ástfanginna guða. Stór og dökkfjólublá augu þess „Carter“ veggflísar VANDAÐAR ENSKAR POSTULÍNSFLÍSAR í STÆRÐUNUM: 10x10 cm., 7.5x15. cm. og 10x20 cm. EINNIG SÁPU- OG SVAMPSKÁLAR TIL INN- MÚRUNAR. MIKIÐ LITAÚRVAL. FLÍSALÍM OG FUGUSEMENT. J. Þorláksson & Mmann hf. Bankastræti 11 — Skúlagötu 30. — Nú ertu búin að fá svefnpoka, og þá geturðu ekki líka fengið tjald. ljómuðu af barnslegu sakleysi, hreinleika og gleði. „Hér verðum við að fara var- lega í sakirnar“, sagði Danó lág- róma. „En ég get ekki stillt mig um að kynnast þeim dálítið nán- ar — enda skylda mín. Við skul- um heilsa þeim með okkar ljúf- ustu tónurn". Diskurinn seig ofurhægt niður í rjóðrið, en frá honum barst þýð og viðkvæm hljómlist, er minnti á „bænina" í Finnlandía. Átti hún einkar vel við ljósraur.t sólskinið og blíða kyrrðina á þessum fagra stað. Pilturinn og stúlkan héldu áfram leik sinum, eins og ékkert hefði í skorist, þar til diskurinn lenti skamimt frá þeiim og geim- fararnir stigu út. Þá loks hættu þau, studdu hendi á öxl hvors annars og biðu átekta. Ómar Holt andaði að sér fersku loftinu, sem var fullt af angan blóma og gróðurs. Svo gekk hann til móts við unglingana, ásarnt Danó og Míró Kama; var Lolla Hratari einnig í fylgd með þeim, svo og Me-lú Ga-ia og fmenna Kha. Höfðu þau öll krosslagðar hendur á brjósti, og snéru lófarnir upp. Þau fóru hægt og gætilega, til að styggja ekki hinar ókunnu manneskjur, en þær hreyfðu sig ekki úr spor- um, og var hvorki ótta né undr- un að sjá í svip þeirra. Piltur- inn var þó alvarlegur í bragði, en blítt bros lék um varir stúlk- unnar. Allt í einu réttu þau upp hendur sínar til hálfs og tónuðu bæði sama orðið: ,.EUóí“. Það minnti á mildan hörpuhljóm. 9vo mælti stúlkan með lágum og ljúfum rómi: „A ili ema ollóa“. Lolla hóf þá samræður við þau, og innan stundar tókst •henni að skilja mál þeirra nokk- urnveginn. „Þau bjóða okkur hjartanlega velkomin", sagði hún, og aldrei þessu vant var enginn fýlusvipur á andliti henn ar. „Hugur þeirra segir þeim, eins og þau komast að orði, að við séum gestir úr annarri ver- öld. Ég er hrædd um að þau geti lesið hugsanir okkar, svo það er vissast að láta ekki á því bera hvað við erum vond og spillt!“ Lolla glotti og gaut augum til félaga sinna. Svo hélt hún áfram að ræða við unglingana, og áður Tökum að okkur: NÝLAGNIR VIÐGERÐIR HEIMILISTÆKJA TEIKNUM RAFLAGNIR en langt um leið virtist hun mæla reiprennandi á tungu þeirra, eins og þau væru gamlir kunningjar. „Þetta er undarlegt fólk“, sagði hún loks. „Mér skilst að það sé háþróað andlega en véltækni hefur það enga — og samt fæ ég ekki betur skilið en að það þekki hana. Ég held að við höfum fundið hérna eitthvað sem er mjög óvenjulegt?" Danó fór nú að leggja spurn- ingar fyrir unglingana, með að- stoð Lollu, og stóð ekki á greið- um svörum: „Við erum full- komlega hamingjusöm á hnetti okkar, og lifum í friði við al1 ar aðrar verur. Fiðrildin eru vinir okkar, og við tölum við þau með 'hugsanaflutningi. Þau eru skyni gædd og góð í sér. Við störfum saman að viðhaldi gróðursins, og það hefur aldrei verið neinn ágreiningur okkar á milli. Dýra- tegundir eru hér fáar og frið- samar, þær lifa á grasi og laufi. Allir hafa það sem þeir þarfnast og sækjast ekki eftir öðru. Hing- að hafa áður komið menn, sem líktust ykkur. Þeir girntust perlurnar, er finnast á strönd- um vatnanna, og við gáfum þeim þær fúslega. Þeir vildu gefa okkur sitt af hverju í staðinn, o.g við vorum þeim þakklát fyrir góðviljann, en okkur vantaði ekki neitt". VIÐGERÐIR Á ELDRI LÖGNUM VIÐGERÐIR f SKIPUM GÓÐ ÞJÓNUSTA „Eru þessar perlur ekki fall- egar?“ spurði Danó. „Hvers vegna viljið þið ekki eiga þær sjálf ?“ „Börnin okkar leika sér stund- um að þeim, og við sjáum fegurð þeirra, þótt hún jafnist ekki á við dýrð hins daglega lífs, þar sem hvert augnablik er öllum perlum fegra“. „Trúið þið á Guð?“ spurði Danó. „Guð? — Áttu við ljósið sem hefur skapað allt? — Já, ég sé að svo er, og þá höfum við sama átrúnað. En það sem býr í Ijós- inu talar við huga okkar, og kennir okkar að njóta þess sem okkur er gefið, á réttan hátt. Það birtir okkur einnig þá leyndar- dóma tilverunnar, sem við erum fær um að skynja. Við vitum að til er mikill fjölda annarra hnatta, og að menn og dýr lifa þar lífi sínu. Nú sjáum við f huga ykkaf, að þið eigið heima á þessum hnöttum, í fjarlægð. Við vonum að þið hafið ánægju af að heimsækja okkur, og allt sem við megum fyrir ykkur gera er sjálfsagt og velkomið", Danó brosti glettnislega. „Mættum við þá setjast hérna að hjá ykkur — og heldurðu að stúlkurnar ykkar myndu vilja þíðast karlmenn frá öðrum hnöttum?" „Ertu orðinn vitlaus, maður!" tautaði Lolla en þýddi þó spurn- inguna. Pilturinn og stúlkan svöruðu bæði í senn: „Verið þið eins lengi og þið sjálf viljið. Og þið getið reitt ykkur á að stúlkurn- ar okkar munu fagna ykkur af öllu hjarta". Danó hristi höfuðið alveg dol- fallinn. „Við erum á hraðri ferð núna,“ sagði hann. „En fagur er 'heimur ykkar og þið indæl- asta fólkið sem ég hef fyrirhitt í öllu sólnaihverfinu. Hingað vil ég koma þegar líður á líf mitt og aavintýraþrá minni er svalað.14 Hann hugsaði sig um andartafe, og spurði síðan: „Eiga konurnar hérna lifandi börn — eða egg?“ „Ég sé í huga þínum hvað þú átt við,“ anzaði pilturinn. „Börn CHJÐMUIVDVR HE\KDIKTSSO.\ LÖGG. RAFVIRKJAMEISTARi RAFTÆKJAVINWSTOFAK TEKGILL SÓLVALLAGATA 72 — REYKJAVlK — SlMI 22530 - HEIMA 38009

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.