Morgunblaðið - 22.08.1967, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 22.08.1967, Blaðsíða 3
MORGUNELAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST Í967 3 FALLHLIFASTÖKK vakti mikla athygli áhorfenda á flugdaginn. Þrír menn, félag- ar úr Flugbjörgunarsveitinni, stukku fyrst saman, en síðan stökk kennari þeirra, Eiríkur Kristinsson, úr 9000 feta hæð og lét sig falla niður í 2500 feta hæð áður en hann opnaði fallhlífina. — Það te>kur rúmiar 40 sek - úndiur að detta þiennan spöl, segir Eiríkur okfcur. — I svona stökki, flötu stökki, er hraðinn orðinn 120 mílur á klukkustund eftir 12 sekúnd- ur. Efitir það eykst hann ekki. Mesti hraði, sem unnt er að ná er um 185 málur með delitaistöðu. — Ertu aldrei bræddur um að falllhlífin opnist ekki? — Nei, maður huigsar ekk- ert um það. Annars er sett undir þann leka með því að Eiríkur Kristinsson, nýstokkinn út úr flugvél. 300 kílómetrar á klukkustund Rabbað um fallhlífastökk við iiirak Kristinsson hafa aðra fallfhilíif til vara. Auk þess er sjálfvirkur út- búnaður á varafallJhlffinni, þannig að hún opnast sjálf- kraifa í 1000 feta hæð, ef aðal- f allihlíf in hafur ekki opnazt og maðurinn er ekki sjálf- bjarga. Fllest slys í falllhlífastökki hafa orðið þannig, að sitökkv- arar hafa drukknað eftir lend inigu. Núna á flugdaginn var þyrian tilbúin og bátur niðri við Slhellgeymana til vara ef okkur bæri af leið. — Hver er hraðinn við lend inigu? — Lendingarhraðinn er af- ar mlsjafn og fer eftir vind- hraða, gerð falllhlífar og því hvort lent er undan vindi eða upp í hann. Algengur lend- ingarlhraði með þeim falllhiláf- um sem við notum er eins og stokkið væri úr 1 Vá—2 m hæð. Það getur jafnvel orðið eins oig að stökfcva niður af stól. — Hvar lærðirðu lisltina? — Ég var í Bandaríkj.un- um, i Onange í Massadhusetts. — Get ég fengið kennsilu- táma hjá þér? — Ekki í bráðina, er ég hrædidur um. Ég hef ein- göngu kennt strákunum í Fluigibjörigunarsveitinni til þessa og ekki getað gefið al- menningi kost á kenmslu. Til þess þarf fleiri kenna,ra. Ég hef meira en nög að gera í frístundum. Þeissir þrír, sem voru með mér á fluigdaginn — þeir Gunnar Gunnarsson, Sigurður Bjarklind og Hermann Ise- barn — eru komnir lengst af þeim sem ég hef kennt, hafa 13—26 stökk að baiki, en alis hafa 25 stokkið hjá mér í Fluigbjöngunarsveitinni. Ætl- unin er að a.m.k. 10 manna sveit verði haldið í stöðugri þjáMun til björgunarstarfa. Eftir að strákarnir hafa lært hið venjulega stökk, verður farið að kenna þeim ýmislegt sem sérstafclega tilihieyrir björgunarstökiki. í sumar höf- um við yfirleitt stokkið hve- nær sem veður 'hefur leyft Þegar um byrjendur er að ræða, má ekki sitökfcva í meira en 12 hnúta vindi og skýjaihæðin verður að vena minnst 3500 fiet. f fyrstunni stökkva nemendurnir línu- stöklk — lína er fest í flug- véldna, og þegar stríklkar á henni opnast fallhlífin. Síðar er svo togað í handfang á fall hlifinni. — Hver.su oft hefur þú stokkið? — Um 140 sinnum. — Ekkert lofthræddur? — Nei. Sá, sem er ekki loiSt- hrædidur í flugvél er ekki loft hræddur í falLhlíf. — Nigería Framhald af bls. 1. um bifreiðum í sókn sinni, og eru brynvagnar Lagos-stjórnar á leið til Ore til varnair. Bryn- vagnar þessir eru af Panhard- gerð, smíðaðir í Frakklandi og búnir fallbyssum með 90 milli- metra hlaupvídd. Flugvélar stjórnarinnar í Biafra hafa ge>rt loftárásir á flugvöllinn við Kano í Norður- Nígeríu, og segjast fjugmennirn- ir hafa valdið miklu tjóni, m.a. skemrnt nokrar orustuflugvélar af gerðinni MIG-15, en vélar þess ar eru frá Sovétríkjunum. Tals- maður Lagos-stjórnarinar hafði áður tilkynnt að tékkneskar or- ustuþotur af gerðini L-29 hefðu gert loftárásir á staði í Biafra. Sagði talsmaðurinn ennfremur að brátt yrði hert mijög á loft- árásunum, enda herma fréttir, að Lagos-stjórninni berist nú her- flugvélar frá Sovétríkjunum, sem fluttar eru til Kano. Einnig herma fréttir, að sovézkir sér- fræðingar hafi komið til Nígeríu til að aðstoða við að setja þar saman Mig-flugvélar, sem þang- að voru fluttar flugleiðis ósam- settar. Þótt Lagos-stjórn hafi fjölda flugvéla til umráða, skortir hana tilfinnanlega flugmenn og hefur leitað fyrir sér víða um ráðningu flugmanna. Brezkur flugmaður, Gilbert að nafni, sem var í brezka flughérnum í hekns styrjöldinni síðari, skýxði frá því í London á sunnudag, að tveir Englendingar hefðu boðið sér eitt þúsund sterlingspunda mánaðarlaun (um 120 þúsund krónur) fyrir að fara til Nígeriu. Var 'Gil'bert tjáð, að tilgangur- inn nneð Nígeríuförinni yrði að- eins að þjálfa heimamenn í flugi. Ssinna var honum þó tjáð, að ef til vill yrði hann að taka þátt í loftárásum á Biafra, og hætti hann þá við förina. — Flóttamenn Framhald af bls. 1. Milli 680—750 fjölskyldum var á sunnudag veitt leyfi af ísra- elskum öryggisvörðum til að fara yfir fljótið, eftir að könnuð voru skjöl þeirra og vegabréf, til að ganga úr skugga um, að á meðal þeirra Jeyndust ekki menn úr neðanjarðarhreyfing- um arabískuim. Á fostudag leyfðu fsraelsmenn nær einungis konum, börnum og gamalmennuim að fara yfir fljót- ið, en á sunnudag var fjöldi ungs fólks meðal flóttamann- anna á heimleið. STAKSTEINAR Einstætt tækiíæri j Steindór Steindórsson skóla- meistari ritar fyrir skömmu for- ustugrein í tímarit sitt, Heima er bezt, um Surtseyjarráðstefnuna og þaff vísinda- og rannsóknar- starf, sem unniff hefur veriff í Surtsey. Telur hann þetta starf hiff merkilegasta. Tilkoma hinn- ar nýju eyjar hafi skapað ein- stætt tækifæri til þess að fylgj- ast með breytingum og sköpun landslags, bæffi jarffeldamyndun- inni sjáifri, og siffar hvernig ytri öfl móta landið og marka. Undir lok greinarinnar kemst Steindór Steindórssoií aff orffi á þessa leiff: Baráttan fyrir sjálfstæðri tilvern „Vér ræðum margt um vernd- un sjálfstæðis vors og ekki aff raunalausu. Barátta vor fyrir sjálfstæffri tilveru vorri í sam- félagi þjóðanna verffur háff á margskonar vettvangi. En ekki verffur um þaff deilt, aff eitt höfuffskilyrffi þess, aff viff fáum haldiff velli og fullri virffingu í því stríffi, er aff vér sýnum, aff hér búi menningarþjóð, sem ekki láti sitt eftir liggja í vís- indum og listum. Mönnum er tamt aff líta á íslenzka menn- ingu einungis sem hinn forna bókmenntaarf vorn, og honum einum eigum viff sjálfstæffi vort að þakka. Ekki skal ég draga úr ágæti fornbókmennta vorra né gildi. En nýr tími krefst meir en þess að horfa á gulnað bókfell. Náttúra lands vors er eigi síff- ur sérstæff en hin fornu ritverk. Og nútíminn er öld náttúruvís- indanna, og þaff er nú ljóst orff- iff, að iðkun þeirra vísinda er lífsnauðsyn hverri þjóð. Það er því hætt viff aff vér yrffum ekki hátt metnir, sem menningar- þjóð, ef viff létum rannsóknir á hinni sérstæðu náttúru landsins lönd og leiff, eða fengjum þá hluti í hendur erlendum áhuga- mönnum einum, svo sem gerist meffal hinna frumstæffustu þjóffa. Surtseyjarrannsóknirnar hafa gefiff oss sérstakt tækifæri. Þar hafa íslendingar haft forustu, og unniff svo vel, aff vakiff hef- ur athygli víða um lönd. En af sjálfsögffum ástæðum hefur veriff tekiff samvinnu og stuffn- ingi annarra þjóða, enda eru vísindin alþjóðleg og þekkja ekki Iandamæri. Meff þessum hætti hafa Surts- eyjarrannsóknirnar tvöfallt gildi fyrir oss. Þær eru merkilegt vís- indastarf, sem vinna þarf vegna þekkingarinnar, en þær eru oss einnig þjóðræknisstarf. Þær eru þáttur í að treysta s«ss vorn, sem sjálfstæffrar þjóffar í sam- félagi frjálsra menningarþjóða heims. Oss er því skylt aff fylgj- ast meff því starfi af áhuga.“ Vísindin efla alla dáð Vísindin efla alla dáff, sagffi skáldiff. Þaff er því vissulega rétt, sem skólameistarinn á Akureyri segir í þessari ágætu hugvekju, að íslendingar mega ekki van- rækja vísindalegar rannsóknir á náttúru Jands síns. Aff sjálfsögðu fer bezt á því aff íslendingar framkvæmi þessar rannsóknir sjálfir. Samvinna viff erlenda vsíindamenn um einstök verk- efni kemur þó að sjálfsögðu til greina. íslenzkir vísindamenn eiga í þakkir skilið fyrir starf sitt í I Suitsey. Þaff vísindastarf, sem ! þar hefur þegar veriff unnið hef ii' vakiff verffskuldaffa athygli. Mest er þó vert um þá lær- d >ma, sem af Surtseyjargosinu verffa dregnir og þá þekkingu, sem lagður hefur veriff grund- i völlur aff meff því vísindastarfi, ! ?em unniff hefur veriff í sam- • n ii viff gosiff.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.