Morgunblaðið - 22.08.1967, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.08.1967, Blaðsíða 19
MORGrTJNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1967 19 Flugdagurinn FLUGDAGURINN var á laug- ardaginn í ágætu veðri. Mikill fjöldi fólks fylgdist með hinum ýmsu sýningaratriðum af áhorf- endasvæðinu á Reykjavíkur- flugvelli og ofan af Öskjuhlíð. Flugmálafélag íslands stóð fyrir flugdeginum eins og endra nær og var þetta sá níundi í röðinni. Fyrsta atriðið á flugsýning- unni var hópflug tuttugu og sex litilla flugvéla yfir horgina. Síð- an sýndi Þórður Hafliðason, ís- landsmeistari í svifflugi, list- flug á svifflugu g Elíeser Jóns- son listflug á Tékknesiku fim- leikavélinni. Þrír Flugbjörgunarsveitar- raenn stukku út úr flugvél í fallhlífum og lentu mjög nálægt ákveðnum stað. Eiríkur Krist- insson, stökkkennari, stökk síðan úr rúmlega 3ja kílómetra hæð og lét sig falla langa hrið áður en hann opnaði fallhlífina. Þetta atriði vakti vafalaust mesta at- hygli ahorfenda. Gullíaxi, Boeing-þata Flug- félagsins flaug lágt yfir vellin- um ásamt Candaair RR 400 skrúfuþotu Loftleiða og orustu- vélar af Keflavíkurflugvelli þutu yfir áhorfendur. Flugdagurinn 1967 tókst vel á flesta lund, ekki sizt vegna hins prýðilega veðurs. — Hong Kong Framihald af bls. 1 voru staddar bundnar við jörðu en allri umferð, sem von var á í dag, var beint til Manila, Tai- pei og Bangkok. Flest skip í höfninni í Hong Kong héldu á haf út, en ferjur allar hættu ferð um nokkru eftir hádegi og sömu leiðis sporvagnar og strætis- vagnar bæði í Hong Kong .sjálfri, í Kowloon og á öllu svæð inu milli þeirra og allt að landa- m-ærunn Kína, tæpum 40 'km. norðar. Enga leigufeíla var að fá í borginni og einkabifreiðar voru varaðar við að fara eftir vegum þa>r sem von var á skriðu föllum. Úrhellisrigning var í Hong Kong og dró ekki úr henni eftir hádegið. Hálf tylft vega var ófær af skriðuföllum og tveir vegna rafmagnslína sem fallið höfðu yfir þá í óveðrinu. Nakk- ur slys hafa orðið á rnönnum, en ekki dauðsföll svo vitað sé. Veð- ur.firæðingar sögðu, að fellibyl- urinn myndi fara yfir Kína- strönd hjá portúgölsku nýlend- unni Macao, tæpum 65 km. vest- an Hong Kong, á mánudags- kvöld og var þar mikill viðbún- aðurl að mæta „Kötu“. Ofbeldi linni 15. september Hermt er, að Mao Tse tung háfi fyrirskipað Rauðu varðlið- unum að hætt skuli öllum of- beldisaðgerðum 15. septembec n.k. ella muni Kínaher skerast í leikinn. Peking-útvarpið tilkynnti í dag, að andstæðingar Maos hefðu ráðizt að Rauðum varðliðum í Tzekung í Szechuan-fylki i marz sl. og kúgað grimmúðlega en ekki til lengdar. Herinn ræður úrslitum í málgagni miðstjórnar kin- verska kommúnistaflokksins, „Rauða fánanum“, sagði á sunnu dag, að það væri Kínaher að þakka að sjá mœtti nú ifyrir full- an sigur Mao-sinna í menningar byltingunni miklu, herinn hefði ráðið þar úrsilitum. Ágreiningur með Lin Piao og Chiang ching? Þjóðernissinnastjórnin á For- mósu kvaðist hafa það eftir njósn urum sínum á meginlandinu, að upp væri kominn ágreiningur með Lin Piao, varnarmálaráð- herra Kína og Chiang ching, eig inkonu Mao Tse tungs. Fylgdi það sögu, að þessu til staðfest- ingar væri það, að rauðir varð- liðar sem Chiang ching hefði látið senda til Lhasa frá Peking ynnu þar yfirmanni herstjórnar innar í Tíbet, Ohang Kuo-hua hershöfðingja, allt það ógagn er þeir mættu og það í trássi við samkomulag, sem þeir hefðu gert sin í milli hershöfði'nginn og Lin Piao. „Skuld“ Breta við Kína Ekki linnir hótunum kín- verskra yfirvadda um að reka Breta burt frá Hong Kong. Á sunnudag fjallaði „Dagblað þjóð arinnar" í Peking um málið og sagði, að brezka nýlendan hefði verið hluti Kínaveldis frá örófi alda, en Bretar hrifsað hana úr höndum Kínastjórnar eftir ópí- umstríðið fyrir rúmri öld og síðan lagt undir sig Kowloon og nærliggjandi héruð og þessa skuld yrðu Bretar fyrr eða síð- ar að greiða Kínverjum. Þá báru kínversk yfirvöld firam harðorð mótmæli á sunnudag g'egn meintri ofsókn Breta á hendur kínverskum blöðum og blaðamönnum í Hong Kong og hótuðu öllu illu ef ekki yrði geng ið að kröfuim þeim er settar voru fram í þessu sambandi, m.a. þeim að þrjú blöð sem bönnuð hafa verið fái að k'oma út á ný og sleppt verði úr haldi 53 mönn um sem handteknir hafa verið. Bretar neituðu að taka á móti mótmælaorðsendinguhni, sögðu orðalag hennar óviðurkvæmilegt og ekki viðtöku veitandi. Ekki voru Bretar ýkja áhyggjufullir vegna mótmælaorðsendingarinn- ar og bentu á að Kína hefði til þesa sent Bandaríkjunum 438 „alvarlegar viðvaranir“ vegna brota gegn loifthelgi Kina. Bretar krefjast verndar til handa brezkum borgurum í Kína Birezka stjórnin áminnti í dag Kínastjórn um ábyrgð þá er á henni hvíldi að tryggja líf og limi ferezkra borgara í landinu. Rauðir varðliðar réðust á Æöstu- dagskvöld inn á heimili frétta- ritara Reuters í Peking, Anthony Greys, sem situr nú í stofufang- elsi í mótimælaskyni við aðgerð- ir brezkra yfirvalda í Hong Kong síðustu daga gegn blöðum kommúnista í nýlendunni. Pestu varðliðarnir upp áróðursspjöld á veggi en unnu ekki spjöll á hús inu sjálfu og gerðu ekki Grey mein. Lögreglumenn eru á verði við húsið, en símasambandslaust er við fréttaritarann og hann þyí ekki sjálfur til frásagnar um at- burði. Heitið 25.000 Hong Kong-dölum til höfuðs banamanni tveggja barna Yfi'rvöld í Hong Kong hafa heitið 25.000 Hong Kong-dölum, ja.fnvirði 4.500 Bandaríkjadala eða tæpum 200 þúsundum ísl. króna, hverjum þeim er veilt geti upplýsingar er leiði til hand töku þeirra er urðu að bana tveimnr kínverskum börnum á sunnudag sl. voru börnin tvö, átta ára telpa og tveggja ára bróðir hennar, að leik á götu úti er sprengja sprakk í námunda við þau og varð 'báðum að bana. Onnur sprengja sprakk í Hong Kong sama dag og er nú tala þeirra er látizt hafa í sprengju- tilræðum og öðrum áþekkum at- vikum að undirlagi kommúnista' í nýlendunni undanfarna þrjá mánuði, komin up í 28. Lögregl- an í Hong Kong leitar nú ákaft hermdarverkamanna kommún- ista og í dag voru gerðar óvirk- ar 11 sprengjur sem fundust víða í nýlendunni, þar af tvær • við barnaleikvöll í Kbwloon. RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA.SKRIFSTOFA SÍIVll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.