Morgunblaðið - 31.10.1967, Page 4

Morgunblaðið - 31.10.1967, Page 4
1 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUÐAGUR 31. OKT. 1937 > magnúsar skipholti21 símar 21190 eftir lokun sJmi 40381 SIM' 1-44-44 mufirn Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald Símí 14970 Eftir lokun 14970 eða 81748 Sigurður Jónsson BÍLALEIGAN - VAKUR - Sundaugaveg 12 . Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. Hreinsum rúskinnskápur, jakka og vesti. Sérstök meðhöndlun. Efnalaugin Björg, Háaleitisbr. 58—65, sími 31380, útibú Barmahlíð 6, sími 23337. AU-ÐVITAÐ ALLTAF ★ Til gangandi vegfarenda „Ein ósektuð“ skrifar: „Kæri Velvakandi: Mig langaði að skrifa fáein- ar línur varðandi gangbraut- ir. Hvemig er það með gang- andi vegfarendur? Hve há er sektin, sem þeir þurfa að greiða, séu þeir staðnir að því: að ganga yfir götur á rauðu ljósi, áð líta ekki í kringum sig, áður en þeir ana út á göturnar (ekki á gangbraut- um!, eða að ganga út á göturn- ar fyrir bifreiðarnar og treysta á að þær stanzi? Ég hef nefnilega hvergi séð neitt getið um þá upphæð, það hefur einhvern veginn farið framhjá mér, en sennilega er sektin ekki lægri en 2.000.00 kr., sé miðað við taugaáfallið, sem margir bifreiðastjórar verða fyrir, þegar þeir þurfa að snögghemla og sjá, áð þar munaði mjóu. Og yrði slys, þ. e. ef bifreiðastjórinn næði ekki að stanza, hverjum ætli yrði um kennt? Örugglega ekki hinum gangandi vegfaranda, eða hvað? Hvernig má það vera, að fólk í fullu fjöri, ef svo mætti segja, lítur ekki bet- ur ’ kringum sig, áður en það gengur yfir merkta gangbraut? Því hlýtur þó að vera það ljóst, að bifreiðar aka á bá'ðum ak- reinum og það gæti komið bif- reið, sem einhverra hluta vegna stanzaði ekki, jafnvel þó þeim bæri skylda til. Getur fólk virkilega virt sinn rétt svo sér fyrir hann? mikiis, að það bókstaflega fórni sér fyrir hann? Víst eru alltof margir bif- reiðastjórar, sem virða að vett- ugi rétt hinna gangandi og svo margt annað í umferðinni, en það ætti fólkið líka allt að vita (og veit) og vera við því búið. Svo eru líka margir gang- andi, sem virða að vettugi rétt bifreiðanna og sem bifreiða- stjórarnir þurfa að umbera, með því að snögghemla eða jafnvel aka á staura, hús eða næsta bíl til að komast hjá slysi, sem auðvitað er þá samt sem áður orðið slys. Já, þeir eru áreiðanlega ekki færri vegfarendurnir gangandi, sem virða að vettugi rétt öku- tækjanna, og það gremst mér mikið, að alltaf og undantekn- ingarlaust skuli bifreiðastjóra vera um kennt, verði gang- andi vegfarandi fyrir bifreið hans. Hve oft hef ég séð fólk ganga yfir götu á rauðu ljósi? Þau skipti eru því miður ótelj- andi. Eða þegar fólkið gengur yfir gangbrautir með „ÉG Á RÉTTINN" skrifað þvert yfir merkissvipinn á andliti þess, og svo gengur það' yfir á helmingi lengri tíma, en þáð þyrfti, þótt það gangi í rólegheitum. Auðvitað ber ökumönnum skylda til að stanza við merkt- ar gangbrautir, og er vítavert, að þeir ekki skuli gera það, en eru kr. 1.500.— ekki nokk- uð djúpt tekið í árinni? Og að Hvað kostar að fá teppi yflr allt gólfið? gangandi vegfarendur skuli treysta því eins algjörlega og raun ber vitni, nær ekki nokk- urri átt, enda er það þá, sem slysin verða. GANGANDI VEGFAREND- UR! Því ekki að vinna saman með bifreiðastjórum, og t. d. ef þið ætli'ð yfir merkta gang- braut og bifreið stanzar, því þá ekki að FARA VARLEGA og athuga, hvort önnur bifreið er sjáanleg, og ef svo er, þá einfaldlega að rétta út höndina og BÍÐA þangað til bifreiðin hefur stöðvazt? Svo mættu ökumenn athuga við merktar gangbrautir að gefa stefnuljós í þá átt sem auða akreinin er, svo að næsti bifreiðarstjóri héldi, að þið ætluðu’ð að beygja inn á hana og þar af leiðandi hægði á sér og stanzaði að lokum. Ein ósektuð“. ic Ádrepa um umferðarmál „Ein í Kópavoginum" skrifar Velvakandi bréf, og fjallar fyrri hluti þess um hið gamla og góða sjónvarpsmál. Síðari hluti bréfsins hljóðar svo: „Ég skrifaði nú út af öðru, sem mér liggur þungt á hjarta, það eru þessi gangbrautarslys. Þau eru alveg voðaleg og eiga ekki að koma fyrir, og ég geri rá'ð fyrir því, að allir öku- menn þekki skyldur sínar við zebra-strikin og merkingu á götum og gangstéttum ásamt umferðamerkjum og reglum, en það er eitt sem vantar stór- um á í okkar góðu borg og það er fólkið, sem gengur eftir gangbrautunum og anar þegar því dettur í hug beint út á akbrautir þvers og kruss og langs fyrir bílana, svo að hrein- asti voði er, og mörg slys hafa hlotizt af. Væri ekki tími til kominn að taka i öxlina á því og sekta það, eins og á að fara að gera við bílstjóra, sem gerast brotlegir við gangbraut? að eru ekki alltaf þeir, sem eru sekir; kynni'ð ykkur, hvernig fólkið fer hér út í umferð á götunum. Það þarf að sekta það á staðnum, eða láta það ganga í viku með breiða (gula) borða á handleggnum öðrum til viðvörunar um, að þarna séu lögbrjótar á ferð og öku- menn þurfi áð passa sig sér- staklega á þessu fólki. Kæri Velvakandi, ég óska þér gæfu og gengis, og gott er margt í pistli þínum. Ein í Kópavoginum". it Upplýsingar frá Lögreglimni Lögreglan hefur beðið Velvakanda fyrir eftirfarandi: „í dálkum þínum 27. okt. sl., er rituð ágæt grein um um- ferðarmál og kemur þar m.a. frain, að lögreglan oftúlki þann rétt, sem g,angandi fólki, er ætl aður á gangbrautum og sé það mikill skaði. í þessu tilefni þyk ir rétt að rifja upp þær reglur, er gilda í þessu efni, í umferð- arlögum og Iögreglusamþykkt: Umferðarlög: í 47. gr. 3. málsgr., segir svo m.a.: Eigi má aka fram úr ökutæki á vegamótum, beygjum, ef þær eru brattar eða þröngar, né við eða á afmörkuðum braut- um fyrir gangandi fólk. í 48. gr. 6. málsgr.: Öku- mönnum ber að draga úr hraða eða nema staðar, ef nauðsyn krefur vegna fótgangandi veg- farenda á merktum gangbraut- um. í 91. gr. 3. málsgr., segir svo m.a.: Þar sem merkt er gang- braut yfir veg, skulu menn nota hana, er þeir ætla yfir veginn. Ef ekki er gangbraut, skulu menn ávallt ganga þvert yfir veg með jöfnum hraða. Gangandi menn skulu gæta vel að umferð, áður en farið er yf- ir veg. f 29. gr. Lögreglusamþykktar Reykjavíkur, segir svo m.a.: Við gangbrautÍT skulu bifreiða stjórar, hjólreiðamenn og aðr- ir ökumenn gæta sérstakrar varkárni og nærgætni. Skuiu þeir nema staðar við gangbraut ir, ef vegfarandi er þar á ferð framundan ökutækinu eða á leið í veg fyrir það. Ennfremur skulu ökum'enn nema staðar við gangbrautir, ef vegfarandi biður sýnilega færis að komast yfir götu. Þegar ökumenn af þessum ástæðum hafa hafa numið staðar, skulu þeir bíða unz hinir fótgangandi vegfar- endur eru komnir leiðar sinnar. Fótgangandi vegfarendur eru og skyldir til að gæta almennr- ar varkárni, er þeir leggja leið sína út á gangbrautir. Sérstak- lega skulu þeir gæta þess, að ökutæki sem nálgast, hafi næg- an tíma og svigrúm til þess að nema staðar utan markalínu gangbrautarinnar, ef þess er þörf. Túlkun lögreglunnar á fram- angreindum reglum, takmark- ast af ofangrendum reglum og verður að vera innan marka þeirra. Lögreglan". Mýtt sófasett „Kosmos 68“ Hjá okkur er glæsilegasta úrval af sófasettum og húsgagnaáklæðum á ís- landi. Dönsk sófaborð í úrvali. Sófaborð sem hægt er að breyta í borðstofuborð. Það bezta er ódýrast. qpana <J Slmi-22900 Laugaveg 26 f

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.