Morgunblaðið - 31.10.1967, Side 19

Morgunblaðið - 31.10.1967, Side 19
MORÖUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. OKT. 1967 19 Fylgja verður eftir þeirri uppbyggingu Há- skölans, sem nú er hafin Úrbófa þörf í bókasafnsmálum — skorft r á vísindamönnum — námstími til almennra prófa styttist — marka þarf sam- rœmda stefnu í vísindamálum — Úr rœðu háskólarektors, Ármanns Snœvars, á Háskólahátíðinni fyrsta vetrardag „AF ÖLLUM veikum þáttum í háskólastarfinu hér er einna brýnast að efla þann, er lýtur að bókasafni og lestrarsals- rými. Ríkisvaldið lagði ekki um áratugaskeið — allt til 1961 — fé af mörkum til bókakaupa fyrir Háskólann, og enn hef- ir því miður ekki fengizt viðurkenning á því sjónarmiði, sem háskólaráð stendur einhuga að, að fjárveitingar til há- skólabókasafns til bókakaupa eigi ekki að vera lægri en til Landsbókasafns — og eru þó fjárveitingar til þess alltof litlar. Nú er háskólabókasafn u.þ.b. hálfdrættingur við Landsbókasafn. Húsnæði háskólabókasafns er svo lítið, að undrun sætir, og er það því þakkarverðara, hversu mikið þar hefur verið unnið af einstökum þegnskap og atorku bókavarða. Þolir nú enga bið að taka ákvörðun um stefn- una í bókasafnsmálum — telur háskólaráð, að því máli verði að ráða til lykta á þessu háskólaári. Geymslurými safnsins er þrotum — lestrarsalsrýmið er miklu takmarkaðra en svo, að sæmilegt sé, og öll aðstaða til úrvinnslu og þjónustu er mjÖg örðug. Er nú tvennt til ráða, annað að þjóðbókasafn verði reist með aðild háskólabókasafns, eða hitt, að sérstakt háskólabókasafn verði byggt“. Þannig komst háskólarekitor, Ármann Snævarr, m.,a. að orði í ræðu sinni á Háskólahátíðinni fyrsta vetrardag. Hóf rektor mál sitt með því að minnast bveggja látinna kennara Háskól- ans, Benedikts Jakobssonar, íþróttakennara og prófessors Kristins Stefánssonar. Þá vék hann að því, að 102 kandidatar hefðu brautskráðist frá Háskól- anum á sl. háskó'laári, fleiri en nokkru sinni fyrr, og þegar inn- ritunum væri lokið í desember mætti gera ráð fyrir að u.þ.b. 400 nýstúdentar yrðu innritaðir. Þeir nýstúdentar, er þegar hafa innritað sig á þessu hausti, alls 364, skiptast þannig á deild- ir: guðfræði 7, læknadeild 78, lögfræði 43, viðskiptafræði 43, heimspekidaild 147, verkfiraeðii 30 og B.A.-verkfræðideild 16. Stúdentar Háskólans eru nú alls 1330. iHáskólarektor gat þess, að óvenju miklar breytingar hefðu orðið á kennaraliði Háskólans, og hefðu aldrei bætzt jafn mörg ný embætti og á síðaðsta há- skólaári. Þór Vilhjálsmsson var skipaður prófessor í löglfræði og Ólafur Hansson prófessor í sagnfræði og Ian Kirfby settur prófessor í ensku. Þá var Guð- laugur Þorvaldsson skipaður prófessor í viðskiptafræðum, dr. Gísli Fr. Petersen prófessor í röntgenfræðum og Pétur H. Jakúbsson prófessor í kvensjúk- dómum og fæðingarhjálp. Þá hefur dr. Gunnar Böðvarsson verið skipaður prófessor í jarð- eðlisfræði frá 1. janúar 1968 að telja. Prófessorsembættinu í lyfja- fræði hefur verið ráðstafað svo, að dr. Þorkell Jóhannesson hef- ur verið ráðinn til að gegna því. Prófessor Steingrímur J. Þor- steinsson hefur leyfi frá kennslu þetta háskólaár. Hefur Andrési Björnssyni, lektor, verið falið að gegna embætti hans, en Óskar Halldórsson, cand, mag. gegnir lektorsstarfinu. Prófessor Guðni Jónsson hefur leyfi frá kennslu- störfum sakir veikinda, og ann- ast prófessor Magnús Már Lár- usson kennslu hans, en þeir Jón Sveinbjörnsson lektor og Jón Hnefill Aðalsteinsson, fil. lic. hafa á hendi kennslu prófessors Magnúsar í guðfræðideild. Nýr gistiprófessor í bandarísk- um bókmenntum er Benjamin Hickok frá ríkisháskóla Midhi- gan í East Lansing, en Donald M. Brander M.A., sem gegnt hef- ur sendikennarastarfinu í ensku, hefur látið af störfum. Finnski sendikennarinn, Juha Kalervo Peura, hum. kand. og rússneski sendikennarinn Vladimir A. Milovidov hafa látið af störfum. Nýr sendikennari í rússnesku er prófessor A. I. Shirochenskaya, en finnskur sendikennari er væntanlegur síðar. Guðmundur Arnlaugsson hefur látið af dós- entssitörfum, en í hans stað hef- ur dr. Halldór Elíasson verið settur dósent. Heimir Áskelsson dósent hefur einnig látið af störf um og í hans stað hefur dr. Alan Boucher verið settur dósent. Skipaðir hafa verið þrír lekt- orar í lögfræði, þeir Gaukur Jör- undsson, fúlltrúi yfirborgardóm- ara, Jónatan Þórmundsson, full- trúi saksóknara, og Sigurður Línda.1, hæstaréttarri'tari. Nýi íþróttakennari hiefur verið skip- aður, Valdimar Örnólfsson, menntaskólakennari. Sbunda- kennarar hafa verið ráðnir: Auður Þórðardóttir M.A. 1 latínu, Bergsteinn Jónsson cand. mag. í sagnfræði, og Björn Jó- hannesson M.A. í ensku. Nýir sérfræðingar hafa verið ráðnir að Raunvísindastofnun Háskól- ans, þeir Gunnlaugur Elíasson, dr. Hal'ldór Elíasson, dr. Vil- hjálmur Skúlason og Þorvaldur Búason. Þá vék rektor að gjöfum, sem Háskólanum hafa borizt, fyrst bókagjöfum frá franska sendi- ráðinu í Reykjavík, mienntamála ráðuneyti Spánar, háskólaforlag- inu í Osló o.fl. Ennfremur gjöf frá séra Sophus L. Thormodsæt- er, sem lézt 1931, en gjöfin var afhent sl. vetur. Var þaÖ pen- ingagjöf, er nemur tæpum 70 þús. ísl. kr. Hafði sami m.aður á sínum tíma arfleitt Háskólaibóka safnið að miklu bókasafni, rösk- lega 6000 bindum. Frá forráða- mönnum J. Þorláksson & Norð- mann barst 100 þús. kr. gjöf til Minndngarsjóðs Jón verkfræð- ings Þorlákssonar. Þá hefur Háskólanum verið afhent tæp- lega ein og hálf milljón kr. af dánargjöf úr búi Vestur-íslend- ingsins Páls Guðmundssonar frá Rjúpnafelli, sem verja skal til að treysta tengsl Háskóla Manitoba- ríkis og Háskóla íslands. Þá hef- ur Volkswagenverk í Hannover gefið Háskólanum 1.6 milljónir kr. til kaupa á vísindaritum, svo og til að skiptast á vísinda- mönnum milli Þýzkalands og ís- lands o.fl. Háskólasjóður h/f Eimskipafélags fslands hefur enn aukizt. Á sl. háskólaári fluttu 20 vís- indamenn fyrirlestra í boði Há- skólans. Rektor ræddi síðan um bygg- ingu Árnagarðs og sagði að þar fengi Háskólinn u.þ.b. 2000 fer- metra húsnæði, þ.á.m. yrðu all- m.argar kennslustofur og sémínar stofur, lestrarsalur og 15 vinnu- herbergi fyrir kennara auk hús- rýmis fyrir Orðabók Háskólans. Þessi bygging ætti að verða til- búin haustið 1909 og yrði við það mikil úrbót í húsnæðismál'um Háskólans. Væri ekki vanþörf að bæt,a úr, því að skólinn byggi við geysilega húsnæðiskreppu og við mat á kennsluhúsrými fyrir Háskólann á næstunni væri sýnt, að þessi nýja bygging væri ekki á neinn hátt fullnægjandi miðað margir hverjir ekki í hyggju að leggja stund á langt nám, er þeir innnita sig. Væri út af fyrir sig mikilvægt að stúdentar tækju snemma ákvörðun um þetta, en Háskólinn vildi koma fleiri stúdentum ti'l þroska en raun bæri vitni, og yrði að leita til þess færra úrræða af fullkomnu raunsæi. Siðan sagði rektor: „Tvimælalaust þarf að efla kynningu á Háskólanámi í menntaskólum og vinna skiipu- lega að þeim málum. Þegar í Há- skólann kemur, er brýn þörf á ráðunautum við nám í hverri grein, er leiðbeini stúdentum og leggi þeim margvísleg ráð, enda eigi stúdentar aðgang að slíkurn manni. Hefir háskólaráð oftar en einu sinni óskað eftir heimild til ráðningar slíkra manna. Kennslu á fyrsta ári þarf að sníða meira við hæfi byrjenda en nú er gert og reyna að brúa bilið milli þessara tveggja skóla- heima á sem virkastan hátt. í flestum eða öllum deildum Há- skólans eru nú forpróf þegar á fyrsta ári, og er það til stónbóta, því að mikilu skiptir, að sem fyrst á námsferli manns sé úr því skorið, hvort stúdent sé hæf- ur til þgss náms, sem hann hefir skráð sig til, og til þess að stúdent fái að öðru leyti vitn- skólans snúið sér í auknum mæli að því að sinna þeim, sem eru í sérnámi, leiðbeina þeim og skipúleggja nám þeirra. Að sínu leyti er það mjög til athugunar, að þessir menn verði ráðnir til að annast vissa kennslu fyrir stúdenta, er stunda nám til al- mennra háskólaiprófa, og hefir það gefið góða raun bæði í Bandaríkjunum og Svíþjóð. IHáskólanektor ræddi þetta mál mál nokkuð frekar. Kvaðst hann mæla með skyldu til tímasóknar yfirleitt, en hins vegar finndist sér koma til greina að leggja á menn skyldu að skila námsefni hvers árs eða misseris á nánar tilteknum tíma. Umræður í hóp- um, semínaræfingar og ýmis- konar leiðsögn í námi þyrfti að fara í vöxt, en fyrirlestrar að minnska í sambandi við nám til almiennra háskólaprófa. í fra.mhaldi af þessu kom rekt- or að því atriði, að fjöldi þeirra, sem ljúka stúdentsprófi hér á landi er lægri en á hinum Norð- urlöndunum að Danmörku und- anskilinni. Varpaði hann í því sambandi fram þeirri sipurningu, hvort það væri þjóðfélaginu örugg.lega fyrir beztu, að allir þeir, sem námsgetu hafa til að ljúka stúdentsprófi, stefni að því marki. í lok ræðu sinnar fóru Ár- Rektor Háskólans, háskólaráð og háskólakennarar ganga inn í upphafi Háskólahátíðar. Ljósm. Kristinn Benediktsson). við hinar miklu þarfir næstu ár. Rakti rektor síðan tölfræðilega væntanlegan stúdentafjölda næstu ár og kom þar fram, að þrátt fyrir nýju viðbótiina, sem fæst með Árnagarði verður hús- næði orðið of lítið þegar eftir 1970. Síðan sagði hann: „Ég minni á þá staðreynd mönnum til umhugsunar, að tala þeirra, er ljúka stúdentsprófi á landi hér mun tvöfaldast á næstu 7-8 árum, og mig uggir, að á næstu árum verði vaxan.di örð- ugleikar á því fyrir íslenzka stúd enta að fá að'gan.g að erlendum háskólum, svo mjög sem að- streymi að þeim vex með ári hverju. Háskólanefndin, ■ sem nú starfar, mun taka þessi mál til rækilegrar íhugunar, en vonandi mun hún láta frá sér fara megin- sjónarmið um eflingu Háskólans síðar á þessu háskólaári". Háskólarektor drap á það, er hann ihefði gert að umræðuéfni á síðasta háskólaári, hver hundr- aðshluti skrásettra stúdenta iyki námi við skólann. Athugun, sem fram hefði farið, sýndi að til- tölulega lítill hluti stúdenta hættu við nám sitt eftir að þeir hefðu stundað það í þrjú misseri, en þeir, sem hættu fyrr, hafi eskju um, hversu hann standi að vígi í náminu. Af ýmsum ástæðum tel ég, að greina eigi betur en nú er gert milli hinna almennu háskólaprófa og fram- haldsnáms eða sérnáms í grein, greina eigi milli undergraduate nám.s og graduate náms, og miða yfirleitt við það, að hægt sé að Ijúka hinum almennu háskóla- prófum, kandídatsprófi eða B.A.- prófi, eftir 4 ár. Síðan taki við sér.nám fyrir þá, sem vilja halda lengra, og það nám þarf að styrkja stórkost'lega hér við skól- ann og taka upp margvíslega kennslu fyrir þá, sem búast und- ir meistarapróf, licentiatpróf og doktorspróf. Fjöldi þeirra kandídata héðan frá Háskólan- um, sem Ijúka þessum æðri próf- um, er allt of takmarkaður. Er þetta vandamál sjaldan rætt, en er þó eitt brýnaista áhugam.ál okkar Háskólans manna. Hér liggur mikið við — Háskólinn og aðrar vísindastofnanir fá ekki þann vísindalega mannafla, sem þeim er brýn þörf á, nema aðstreymi verði talsvert meira en nú er að þessu ví’sindalega sér námi. Ég ætla, að ef námstími til hinna álrnennu háskó.laprófa er styttur, geti prófessorar Há- manni Snævarr, háskólarektor orð á þessa l'eið: „Með þessu háskólaári kveðj- um við annan þriðjung þessarar aldar og leggjum á bratta síðasta þriðjungsins. Stúdentar, sem nú hefj.a nám við Háskólann, munu verða vel flestir rösklega fimmt- ugir við pæstu aldamót, og eiga þá enn mörg starfsár eftir, ef þeim verður lífs auðið og heilsu. Sú menntun, sem við veitum þessum ungu stúdentum á því að duga þeim m.a. á næstu öld. Þessi tilhugsun vekur margvís- legar hugrenningar u’m mark- mið menntunar og inntak henn- ar á þessari öld hraðfley.gra framfara og breytingar — þegar ný ví'SÍndaleg uppgötvun kann allt í einu að kollavarpa því, sem haft hefir verið fyrir satt um langan aldur. Menn verða bljúgir andspænis umhugsuninni einni saman. Vissulega ber að hafa hugfastar þessar breytingar, sem í vændum eru, en hver kynslóð verður allt að einu að skila þeim vísindaiega fjársjóði, sem hún ræður yfir, til næstu kynslóðar — með allsherjar fyirvara um, að ávallt sé skylt að hafa það, er sannara reynist. Framhald á bls. 21

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.