Morgunblaðið - 31.10.1967, Blaðsíða 22
't
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. OKT. 1967
Guðjón H’örleifsson
Brunnstíg 8, Hafnarfirði
f. 29. 6. 1919 d. 9. 11. 1967.
Gísli Hjörleifsson
Vesturbraut 6, Keflavík
f. 32. 2. 1923 d. 17. 9. 1967.
Magnús Hjörleifsson
Heiðargerði 35 Reykjavík
f. 16. 6.1921 d. 3. 9. 1962.
Þrír bræður — Kveðja
Kveðja frá
Inga, Kristrún og börnum
þeirra.
Þegar vor:ð varma
veldi sínu beitir,
þá er blíðum bjarma
brugðið yfir sveitir.
Hátt í himínljósin
horfa frjálsir bræður.
Út við bláan ósinn
eiga saman ræður.
Svipur ungra sveina
sýndi þrótt í geði,
augun engu leyna
allt er líf og gleðl
En bernskan var liðin
og bræðurnir þrír
á brekkuna framtíðar sóttu,
um torleiði veganna byggðu
sér brýr,
og bræðurnir liðtækir þóttu.
Þeir unnu sér frama,
þeir áttu sér nafn.
En árdegið naumast var liðið,
er banvæna þokuna braut
yfir stafn
og bræðrunum lokaðist sviðið.
Því daprast vor hugur,
sem drúpandi rós
og dimman um sálina fiæðir.
En bræðurnir áttu sér
leiðsöguljós
þann loga, sem drenglyndið
glæðir.
Þvi blessum við dægrin,
er dvöldust þeir hér.
En Drottinn, sá fardögum ræður,
þá hugþekku drengina
helgaði sér.
og heimti til sín, þessa bræður.
Vér skiljum þó ilia þann
skapanna dóm
að skyldu þeir falla svo ungir,
í hjartanu finntt okkur
hræðilegt tóm
og hérvistardagarnir þungir.
En minningarljósin þau
merla svo skær
að mjúklega sorgina stillir.
Við samhljóma bænanna
söknuður grær,
og sálina rósemi fyllir.
Við felum þér Jesús vorn
framtíðar hag
og föðurnum lotningu sýnum,
en bræðurnir öðlist sinn
upprisudag
í ástríka faðminum þínum.
E. J. E.
t
Ólafur Ólafsson
bóndi, Skálavík,
andaðist á Landsspítalanum
mánudaginn 30. okt.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristín Ólafsdóttir.
t
Maðurinn minn og faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Guðlaugur Eiríksson,
Meiðastöðum, Garði,
andaðist í Sjúkrahúsi Kefla-
víkur að morgni 30. október.
Björg Erlendsdóttir.
t
Elskulegur eiginmaður
minn, sonur, bróðir og tengda
sonur,
Hannes Thorarensen
lézt í Landsspítalanum 30.
þ. m.
Inga Bryde Thorarensen,
Eyþóra og Henrik
Thorarensen,
Louise Erna og Hulda
Thorarensen,
Karen og Claus Bryde.
t.
Eiginmaður minn og faðir
okkar,
Magnús Jóhannesson,
Björk, Reykholtsdal,
andaðist í Sjúkrahúsi Akra-
ness 28. þ. m.
Sigurborg Þorleifsdóttir
og böm.
t
Sonur okkar,
Þórarinn Jónsson
andaðist sunnudaginn 29. þ.m.
Gunnlaug Hannesdóttir,
Jón Þórarinsson.
t
Útför hjartkærrar konu
minnar og móður,
Lovísu Halldórsson
Kópavogsbraut 62,
fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 1. nóv. kl.
1.30.
Þeim, sem vildu minnast
hinnar látnu, er vinsamleg-
ast bent á Styrktarfélag van-
gefinna.
Helgi Halldórsson,
Erla Helgadóttir,
t
Hjartanlegustu þakkir fyrir
auðsýnda samúð og hluttekn-
ingu, með blómum, krönsum
og samú'ðarskeytum við and-
lát — og jarðarför konu
minnar, móður okkar, systur
og mágkonu,
Indíönu ólafsdóttur.
Jón Bergmann Bjarnason,
Sigríður Jónsdóttir,
Magnea Rafnsdóttir,
Dagmar Ólafsdóttir,
Jón Bjarnason,
Haukur Ólafsson,
Valborg Jónsdóttir,
Unnur Ólafsdóttir,
Gísli Jakobsson.
t
Þökkum hjartanlega samúð
og velvild við andlát og út-
för dóttur minnar,
sem andaðist 4/10
Guðrúnar Magnúsdóttur
ljósmóður.
Fyrir hönd ættingja
Margrét Eyjólfsdóttir.
t
Hjartans þakklæti til ykkar
allra við andlát og jarðarför
Fjólu Gísladóttur
Ilofteigi 20.
Böm, tengdaböm og
barnaböm,
Ingvar Guðfinnsson.
t
Hjartans þakkir sýnda sam-
úð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
önnu Þórðardóttur.
Kristín Ingvarsdóttir,
Steinþór Ingvarsson,
Sveinn Jónsson,
Pálfríður Guðmundsd.
og böra.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
ÉG fer öðm hverju í kirkju, og ég held að prestur-
inn sniki peninga í hvert einasta skipti, sem ég kem.
Ég er orðinn dauðleiður á þessu peningastagli kirkj-
unnar. Er það viðeigandi, að kirkjan sé sí og æ að
tala um peninga?
Það er hugsanlegt, að þér farið svo sjaldan í
í kirkju, að svo vilji til, að þér komið þar á „fjár-
hags-sunnudeginum“, en hann er venjulega einu
sinni á ári. Nei, það sómir sér ekki, að kirkjan tali
um peninga í tíma og ótíma. En hefur yður nokk-
urn tíma hugkvæmzt, að presturinn neyddist aldrei
til að tala um peninga af stóli, ef söfnuðurinn greiddi
Drottni það, sem hann skuldar honum? Það er í raun
og veru merki um andlega fátækt safnaðar, ef nauð-
synlegt reynist að leggja áherzlu á „gjafir“. Menn
gefa örlátlega, ef þeir eru við góða andlega heilsu.
En þegar andinn veiklast, er peningaveskið það
fyrsta, sem sýnir merki sjúkleikans. Ástfanginn pilt-
ur telur ekkert of gott handa þeirri, sem hann elsk-
ar. En ef hann glatar ástinni, hverfur jafnframt löng-
unin til að gefa.
Þegar þér því eruð að segja mér, að í söfnuði yðar
verði að „sníkja“ peninga, eruð þér í raun og veru
að lýsa ástandi safnaðarins og sjálfum yður. Ráð-
gjafar í hjúskaparmálum segja, að „peningamál“ séu
eitt af því, sem veldur erfiðleikum í hjónabandi, og
hið sama á sér stað í söfnuðunum. Fjárhagsvanda-
málin verða fá, þegar við elskum Drottin af allri
sálu, öllum huga og öllum mætti.
Kanada færir
úf landhelgina
Ottawa, 27. okt., AP.
Kanadastjórn kunngerði
í dag, að hún mundi færa út
landhelgi sína í náinni fram-
tíð. Paul Martin, utanríkis-
ráðherra Kanada sagði í dag,
að árið 1964 hefði þjóðþingið
samþykkt lög, sem fyrst og
t
Alúðarþakkir fyrir auð-
sýnda samúð við fráfall
Guðmundar Knútssonar
Guðfinna Breiðfjörð,
Jónína B. Ingvarsdóttir,
Kristjana, Gyða og
tengda- og barnabörn.
fremst heimiluðu útvíkkun
landhelginnar úr þremur í
tólf mílur. Lög þessi áttu
ekki að ganga í gildi fyrr en
Kanadastjórn hefði ráðfært
við við þau lönd, sem hags-
muna áttu að gæta þessu
viðvíkjandi. Löndin voru:
Noregur, Bandaríkin, Bret-
land, Danmörk, Frakkland
og Portúgal.
Hvað Frakkland áhræðri var
áðallega rætt um farvötnin um-
hverfis eyjarnar St. Pierre og
Miquelon.
Paul Martin sagði, að í ná-
inni framtíð mundi ríkisstjórn-
in birta nýjan lista um land-
helgisútfærslurnar, þar sem
fram kemur að landhelgislínan
undan ströndum Labradors verð
ur færð út og gildir það jafnt
fyrir suður- og suðausturströnd
Labradors.
Hjartans þakkir til allra, er sýndu okkur hluttekn-
ingu og vinarhug við andlát og jarðaiför
MARGRÉTAR SIGTRYGGSDÓTTUR
Akureyri.
Júlíus Júlíusson,
Sigtryggur Júlíusson, Jóhanna Jóhannsdóttlr,
Alfreð Júílusson, Ingibjörg Þorleifsdóttlr,
Aðalsteinn Júlíusson, Áslaug Guðlaugsdóttlr,
Baldur Benediktsson, barnabörn og aðrii vandamenn.
Til leigu
5 herb. íbúð í fjölbýlishúsi við Hvassaleiti. fbúðin
er laus til íbúðar strax.
Nánari upplýsingar gefur
MÁLFLUTNING- OG FASTEIGNASTOFA
Agnar Gústafsson, hrl.,
Björa Pétursson: fasteignaviðskipti,
Austurstræti 14, símar 22870. 21750.