Morgunblaðið - 31.10.1967, Síða 28

Morgunblaðið - 31.10.1967, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. OKT. 1967 MARY ROBERTS RINEHART: SKYSSAN MIKLA Loksins farun ég mér atvinnu í borginni hjá fyrirtæki, ©n kreppan var ekki lengi að ganga af því dauðu. Skamma stund hafði ég ofurlitlar tekjur af fasteign föður míns. Bn svo var hluti af henni seldur upp í skatta og afgangurinn gerði ekki betur en að standa undir sér. Þar eð liftryggingin hans hafði öll farið upp í skuldir, var ég raunveru- lega alveg auralaus. Ég vil ógjarnan minnast þess- ara ára, þegar ég varð að draga við mig mat í borginni, og svo þetta eilífa fatnaðar-vandamál, flutningur úr einni skrifstofu í aðra. Stundum gat ég staðið í skilum við ungfrú Mattie og klætt mig sæmilega. Og svo varð ég vitanlega ástfangin á þessu tímabili. Ég get hlegið að því nú orð- ið. Bill Sterling var upprunninn þarna í þorpinu og bezti læknir- inn okkar. Hann var fjórtán ár- um eldri en ég, sem var nítján ára, stór og herðabreiður, sannar lega ekki fríður en ég tók þetta afskaplega alvarlega. Ég fann mér upp átyllur til að koma í stof una til hans, o>g gekk framhjá húsinu hans á kvöldin, í þeirri veiku von að sjá hann stíga upp í bílinn eða út úr honum. Eina ástæðan til þess að ég er að minnast á þetta nú, er sú, að Bill átti síðar meir hlutverki að gegna í sögunni minni.... Og hvað ástaræfintýrið snerti, þá leysti Bill sjáltfur þann vanda, á sinn eiginn sérstæða hátt Hann hafði stungið hitamæli upp í munninn á mér, leit alvarlega á hann þegar hann tók hann aftur, hallaði sér aftur á bak í stólnum og horfði á mig brosandi — Hættu nú þessu, Pat, sagði hann. — Ég get ekki verið að senda þér reikninga fyrir ekki neitt. Þú ert eins heilbrigð og bezt getur orðið. Líklega hef ég roðnað, því að hann hal’laði sér fram og klapp- aði mér á höndina. — Það er allt í lagi, sagði hann. Við erum beztu vinir, er það ekki? Ég kann vel við þig og þú við mig. En næst þegar ég kem með hita- mæli þarf hann að sýna eitt- hvað, og það er bannað að leggja hann við hitaflösku fyrst. Það leið heilt ár áður en ég gat litið á hann án þess að roðna en ég hafði gott af þessu. Nú hafði hann lengi verið að draga sig eftir Lydiu. Ég held, að þau hafi viljað giftast, en Audrey var eitthvað lítið um hann. Og þessi óbeit Audrey á Bill Sterling átti eftir að hafa slæmar afleiðingar. Hann kom heim til Lydiu dag- inn áður en ég fór þaðan. Hann kyssti Lydiu, eins og kæruleys- islega og sló á öxlina á mér. — Jæja, hvernig kunnirðu við Maud? — Ég kunni ágætlega við hana. Þakka þér fyrir að benda henni á mig, Bill. — Ég sagði henni, að þú værir til fyrirmyndar um allan dugn- að, háttvísi og nærgætni, sagði hann hógværlega. — Einnig það, að þú mundir láta hann Tony í friiði, þar eð þú værir pipar- mey af sannfæringu. Hvernig gengur ykkur að undirbúa sam- kvæmið? Ég fór skömmu seinna, en ég fór ekki beint heim til ungfrú Mattie. Ég ók í hægðuim mínum fram og aftur um göturnar, hortfði á húsin og velti því fyrir mér, hvert álit Sbúarnir hefðu á Maud. Þetta var eitthvað svo 5 ótrúlegt. En svo var hugurinn líka við kvöldboðið og dansleik- inn, sem í vændum var, og ég var að fara yfir gestaskrána í huganum. Ég man, að það var dansleik- ur í Beverley-klúbbnum þetta kvöld, og þegar ég ók þar frarn hjá, sá ég Audrey Morgan, sem stóð þar úti í forskálanum og leit út eins og einhver ljósálfur við hlið himnaríkis. En vitanlega stóð hún ekki lengi þarna ein. Það fylgir þes.s- um Audreyum í heiminum, að þær hafa alltaf einhverja karl- veru sveimandi kring um sig. 1 þetta sinn var það Larry Hamil- ton, og ég þaut aftur yfir gesta- skrána í huganum. Jú, Larry var þar, svo að ég fór heim í her- bergið mitt og svaf fjandalega illa, því að hundrað gylltir stól- ar voru á sveimi í hausnum á mér, með útsaumuðum setum, sem áttu að koma úr borginm, og svo var það kjóllinn minn, með víðu pilsi og ekki of fleg- in.n, og yfirleitt var þarna allt á ferðinni, sem dansleiknum til- heyrði. Og það var lika einmitt þetta allt, sem líf mitt snerist um, JJfenwood strauvélin Yður eru frjálsar hendur við val og vinnu Simi 11687 21240 Vikuþvottinn, Iök:, sængurver, borðdúka, handklæði, kodda- ver o. fl. o. fl. cr nú hægt að strauja á örskammri stund. I>ér setjist við vélina slappið af, látið hana vinna allt erfiðið. Engar erfiðar stöður við strau- borðið. Kenwood strauvélin lðsar yður við allt crfiðið, sem áður var. Á stuttum tíma komist þér upp á lag með að strauja skyrtur og annan vandmeðfarinn þvott vel og vandlega. Lök, sængur- ver og önnur stærri stykki er hægt að strauja án allra vand- kvæða í Kenwood strauvél- inni, sem er með 61 cm valsi. Þér getið pressað buxur, stífað skyrtur og gengið frá öllum þvotti í Kenwood strauvélinni eins og fullkominn fagnaður. Verð aðeins kr: 5.350. Viðgerða- og varahlutaþjónusta Guð! Mamma! Ætlarðu að láta sjá þig í þessum síðdruslum? næstu þrjá dagana. Tony Wain- wright var ekki heima og sýndi sig ekki fyrr en síðdegis veiziu- daginn, Um það leyti var ég orð in alveg ringluð, þó að ég léti ekki á því bera. Þegar penninn minn valt inn undir leðursóf- ann í herberginu, sem nú var orðið skrifstofa mín, þá skreið ég eftir ihonum. Og svo lá ég þarna bara kyrr, úttauguð eftir að hafa viðhaft orðbragð, sem Weaver gamli hafði sagt, að væri óvið- eigandi fyrir unga dömu. Ég heyrði rólega rödd uppi yfir mér. — Svona fallegir fætur og svona ljótt orð'bragð, sagði hún ávítandi. — Hjálpi iriér allir heilagir! Ég reis upp, bálvond. — Hugsið ekki um fæturna á mér, sagði ég reiðilega. — Ef yð- ur langar að vita það, eru þeir sáraumir. — Ég var heldur ekki með neinar áhyggjur út af þeijn- Þetta er ungfrú Abbot, er ekki svo? Þetta var í fyrsta sinn, sem ég sá Tony Wainwright almenni- lega. Hávaxinn ungan mann með róleg frá augu og glettnisbros á vör. — Sjáið þér til, sagði hann, — þér eruð búin að þræla yður ærða. Því ekki að koma út og fá sér svolítið frískt loft? Ég er búinn að senda Maud í rúmið. Af konu að vera, sem hefur stað ið í veizlu'höldum alla sína ævi, er hún alveg búin að gera út af við sig. En hvað gengur að? Ég kærði mig ekkert um að fara að segja honum það. Ég sagði bara, að ég hefði verið að hugsa um að koma mér einhvers staðar fyrir, -og þá helzt hjá Bu-rton, sem er aðal geðveikra- hælið okkar þarna. Samt skyldi ég nú koma út með honum, ef hann bara vildi stilla sig um að nefna samkvæmið á nafn, því að þá mundi ég öskra upp yfir mig ef hann gerði það. Síðan þvoði ég mér um hendur og and- lit í snyrtiherberginu, sem til- heyrði skrifstofunni, en hann horfði á af miklum áhuga. — Ekki hafði ég hugmynd um, að nokkur ung stúlka notaði leng ur sápu á andlitið á sér, sagði hann. — Það hlýtur að vera áhriíf af auglýsingum, En þér hafið fa’llega húð. — Já, það er bara eitt af töfr- um mínum, sagði ég og fylgdi honum síðan út fyrir. Þetta var í fyrsta sinn, sem é'g hafði komið inn í „leikhús- ið“, en eins og allt annað þarna á Klaustrinu, var það miklu stærra en ég hafði gert mér í hugarlund. Það var byggt á of- urlitlum gilbakka, og þakið á (VÖRUÚRVAL.) -----v---- HACO súpur vV • • URVALSVORUR Ó. JOHNSON & KAABER HF,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.