Morgunblaðið - 05.12.1967, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. DES. 1967
Rættumveðrið
ÞAÐ er líklega fátt eins um-
rætt manna á milli og veðrið
og hefur hver og einn sitt að
að segja þar um. Okkur datt
í hu; að hittta veðurfræðing-
ana okkar að máli og fá hjá
þeim samanburð á veðrinu í
nóvember síðustu ár. Við lit-
um fyrst inn á skrifstofu
Veðurstofunnar í Stýrimanna
skólanum og síðan hittum við
veðurfræðingana sem voru á
vakt á veðurstofunni í flug-
turninum á Reykjavikurflug-
velli.
Veðurstofa íslands er ekki
hálfrar aldar gömul, en elzta
veðurkortið á Veðurstofunni
er frá janúar 1920. Veður-
athuganir byrjuðu að vísu
1845 í Stykkishólmi, á vegum
fslenzka bókmenntafélagsins
og í sambandi við skozka vís-
indafélagið, en þær athuganir
voru stað- og tímabundnar.
Danir munu hafa stundað veð
urathuganir hérlendis frá
1874 og fram að 1920, en þá
hættu þeir og tók við Veður-
stofa fslands, sem spratt þá
út frá „Löggildingarstofu
voga og mælitækja“, og voru
fyrstu veðuriýsingar teknar
1. jan. 1920.
Við hittum fyrst að máli
Hlyn Sigtryggsson, Veður-
stofustjóra og Öddu Báru Sig
fúsdóttur, veðurfræðing, og
spurðum þau um veðurfar í
nóvember síðustu ár.
Hiynur: „Það hefur verið
heldur umhleypingasamt núna
síðustu daga, en það er ekki
neitt óvenjulegt, ég held að
: •
Jónas Jakobsson veðurfræðingur og Knútur Knudsen veð-
urfræðingur við gerð veðurkorta á Veðurstofunni í gær.
það væri óvenjulegra ef það
væri ekki. Tíðarfar í nóvem-
‘ber í fyrra var kalt lengst af
og með afbrigðum umhleyp-
ingasamt.“
Adda Bára: „Skýrslur sýna
að nóvember núna er frekar
kaldur og 2 stigum kaldari
en í meðalári, en meðalhiti í
t.d. Reykjavík í nóvember
siðustu þrjú ár hefur alltaf
verið sá sami, 0,6 stig. Á Ak-
ureyri var meðalhiti nóv. ’67
—0,9 stig, en var í fyrra —0,4
stig.“
Hlynur: „Talað er um storm
þegar veðurhæðin fer í 9 vind
stig, eða meira og í nóv. í
fyrra voru 3 stormdagar á
móti 2 í ár og 8 sinnum voru
8 vindstig eða meira í nóv.
í fyrra.“
Adda Bára: „f fyrra hélt
des. áfram að vera kaldur og
umhleypingasamur eins og
nóvember og þá voru þessir
mánuðir báðir slæmir veður-
farslega séð. Meðalhiti er mið-
aður við 30 ára tímabil, það
er núna tímabilið 1931—1960
og þá var meðalhiti nóvem-
ber 2,6 stig í Rvík, þannig að
við frá meðallagi síðustu þrjú
ár, miðað við nóvember, er
2 stig undir meðallagi og er
nokkuð furðulegt að það skuli
vera það sama þrjú ár í röð.
Árin 1966 og 1967 eru bæði
köld ár miðað við 30 ára tíma
bilið.“
Hlynur: „Það er alþjóðasam
komulag að nota 30 ára tíma-
bil til viðmiðunar í skýrslu-
gerð um veður og þannig verð
ur næsta tímabil, sem miðað
verður við frá 1960—1990. En
auðvitað gerir Veðurstofan
samanburð á færri árum en
þessu langa tímabili."
Adda Bára: „í nóvember
síðasta ár voru 32 sólskins-
stundir, en í nóvember sl.
voru 52 sólskinsstundir og í
meðalárferði eru sólskins-
stundir 32.“
Þannig er það imeð veðrið, á
voru landi, það er ekki svo
mikill múnur frá ári ti'l árs,
en það geta aftur á móti dtm-
ið yfir flest afbrigði veðurs á
einum og sama deginum.
Veðurstofunni í flugturnin-
um á Reykj avíkurflugvelli
hittum við Jónas Jakobsson
ísinn eins og hann var norður af íslandi 1. des. síðastliðinn.
veðurfræðing og spurðum
hann um veðurhorfur næstu
daga.
— „Það er kuldi á næstu
grösum og það virðisit vera að
ganga í norðanátt úr þessari
óstillingantíð mieð vaxandi
frosti og í bili verður líklega
ekki umhieypingasamt. Veður
útlitið tol. 14 4. des. hljóðaði á
þessa leið:“ Kl. 14 var allhvöss
NV-átt og snjókoma með 5—6
stiga frosti norðanlands og við
SV-ströndina var alihvasst á
vestan með éljagangi og 3ja
stiga frosti, en á Austfjörð-
uim og SA-landi var NV-kaldi,
léttskýjað og frost 2—5 stig.“
Eins og veðurútlit var í gær
kólandi veðri og má búast við
voru horfur á norðanátt og
að hafísinn hrekist nær land-
Mönnum er vafalaust í
fersku minni helztu óihöpp
sem hentu í nóvember s.l., en
til fróðleiks Og samanburðar
teljum við hér upp helztu
skaða og hrakninga, sem
hentu í nóvember sáðasta ár.
Helztu gkaðar og hrakning-
ar í nóvember 1966:
Mikil hálka var á götum
og vegum í þessum mánuði,
og urðu margir árekstrar.
Þ. 7. varð árekstur á Kefia-
víkurvegi og þ. 12. á Hafnar-
fjarðarveginum. Þ. 19. urðu
10 árekstrar á Akureyri, og
mörg umferðaóhöpp í Reykja-
vík þ. 23. Þ. 25. varð bílslys
í Flóa, en farþegar meiddust
litið, og sama dag valt vöru-
bíll út af hafnargaj-ði á Siglu-
firði og skemimdist mikið.
Þ. 9. fauk áætlunarbifreið út
af veginum hjá Þyrli í svipti-
vindi. Bifreiðin skemmdist
mikið, og nokkrir farþegar
meiddust. Þ. 18. var Mýrdals-
vegurinn ófær vegna vatna-
vaxta. Þ. 25. sökk síldarbátur
um 23 sjómílur austsuðaustur
frá Dalatanga. Áhöfnin bjarg-
aðist. Það tók af fjárhúsi á
Arnarstapa þ. 26. Víða urðu
skaðar í ofsaveðrinum þ. 27.
og aðfaranótt þ. 28. Trilla
sökk á Áskógarströnd, og
önnur barst upp á malarkamb
og brotnaði eitthvað. Skemmd
ir urðu á bát og raflínum í
Hrísey, og bátar sukku á
Hauganesi. Togarann Hrím-
bak rak á land við Gierárósa.
Rafmagns- og símabilanir
urðu út með Eyjafirði, og í
Axarfirði kringum Kópasker
varð einnig rafmagnslaust.
Eitthvað fennti af fé í Þing-
eyjarsýslu. Járnplötur tók af
húsi og hey fauk á Hafunsá á
Fljótdalshéraði og járnplötur
af nýrri hlöðu á Vagnsstöðum
í Suðursveit. Ennfremur tók
þak af húsi á Skógum og fjós-
þak á Raufarfelli. Víða brotn-
uðu rúður af grjótfoki undÍT
EyjafjölLum."
Tjónið í árekstr um s I. föstudag
talið vera 350 þúsund krónur
GÍFURLEG hálka hefur verið
á götum Reykjavíkur nokkra
undanfarna daga, og samfara
því hafa orðiff mörg umferff-
aróhöpp og slys. Föstudag-
urinn síffastliðinn var
einna verstur þessara daga,
og einn árekstrahæsti dagur-
inn á þessu ári. Lauslega
áætlað, tjón á farartækjum
þennan eina dag er frá 210-
350 þúsund krónur — ná-
kvæmari tölur er ekki hægt
að fá að svo stöddu.
Við brugðum okkur til um-
ferðarlögreglunnar á Snorra-
braut, og ræddum þar við
Óskar Ólason, yfirlögreglu-
þjón, og Hörð Valdimarsson
hjá slysarannsóknardeild lög-
reglunnar. Þeir upplýstu, að
skráðir árekstrar á föstudag-
inn hefðu, verið 35 talsins, og
lætur því nærri, að um 70 bif-
reiðar hafi því skemmzt
meira eða minna á þessum
eina degi.
Fæstir þessara árekstra
munu þó hafa orðið mjög
harðir, og skemmdir yfirleitt
ekki verulega miklar. Hörður
tjáði okkur að flestir árekstr-
arnir hefðu orðið á tímabil-
inu frá hádegi og fram til
klukkan sjö að kvöldi. Við
fengum að líta í bók þá, þar
sem árekstrar þessir eru
skráðir og sást þar, að fyrsti
áreksturinn hafði ekki orðið
fyrr en kl. 10.20 um morgun-
inn, en hinn síðasti um kl. 20
Langflestir árekstrarnir urðu
milli kl. 1 og 3, stundum að-
eins með 5-10 mínútna milli-
bili.
Um orsakir árekstranna . er
það að segja, að stór hluti
þeirra stafaði af því, að öku-
menn gættu þess ekki að hafa
nógu langt bili ?. milli farar-
tækjanna, og voru því aftan-
ákeyrslur tíðar. Ennfremur
var mjög algengt að ökumenn
ækju bifreiðum sínum of
greitt að gatnamótum, svo að
þær runnu í hálkunni út á
aðalbrautir, er ökumaðurinn
hemlaði ,og lentu þar á a-nn-
ari bifreið.
Óskar Ólason sagði okkur,
að árekstratalan í sl. viku
hefði verið mjög há, t.d. hefði
orðið 25 árekstrar mánudag-
inn 25. nóvember. Þó væri
árekstrartalan fyrir nóvem-
bermánuð núna lægri heldur
en í sama mánuði í fyrra, eða
256 talsins núna miðað við
280 í fyrra. Óskar sagði, að
þannig væri það reyndar um
flesta mánuðina það sem af er
þessu ári, og hefðu aðeins
tveir mánuðir núna hærri
árekstratölu nú en sömu m!án-
uðir árið 1966.
Ljóst er að föstudagurinn
sl. hefur verið tryggingar-
félögunum æði dýr, enda þótt
ómögulegt sé, enn sem komið
er, að segja nákvæmlega um
tjónið, sem hlauzt á þessum
eina degi.
Við snerum okkur til Ólafs
B. Thors, deildarstjóra hjá
bifreiðadeild Almennra trygg
inga, og spurðum hann álits á
tjóninu. Hann kvaðst ekki
vita, hve stóran hluta Al-
mennum tryggingum bæri að
greiða af þessu tjóni, þar
sem tryggingarfélaginu hefði
enn ekki borizt lögregluskýrsl
ur. Hann gat þess að fyrir um
tveim árum hefði meðaltjón
í árekstri verið reiknað út og
hefðu öll tryggingarfélög
landsins tekið þátt í því. Kom
í ljós að meðaltjón í árekstri
nam 10 þúsund kxónum og
taldi hann, að sú tala hefði
ekki breytzt mikið á síðustu
tveimur árum. Samkvæmt því
má áætla að tjónið af völdum
árekstranna á föstudag ihafi
numið 350 þúsund krónum.
Þá höfðum við einnig sam-
band við Bruno Hjaltested hjá
Samvinnutryggingum. Hann
sagði, að mjög erfitt væri að
átta sig á því, hve mikið tjón
hefði orðið þennan dag, en
taldi að næst því mætti kom-
ast með því að hafa til hlið-
sjónar meðaltjón undanfar-
inna ára. Hann kvaðst hafa
reiknað út meðaltjónið í
árekstri hjá samvinnutrygg-
ingum í fyrra, og hefði það
numið 6-7 'þúsund krónum.
Taldi hann það vera mjög
svipað nú.
1
2L.......... ........................- •
ðftanákeyrslur voru tíffar á föstudag, og hér sjást 3 bílar í einum sbkum árekstri.