Morgunblaðið - 17.04.1968, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1966
13
Tvær sýningar
f BOGASAL
ÞESSA dagana sýna tvær lista- 1
konur verk eftir sig í Bogasal
Þjóðminjasafnsins, eru það þær
*El|ín Pétursdáttir Bjarnason)
ogVigdís Kristjánsdóttir- Vig-
dís er vel kunn fyrir myndvefn
að sinn en Elín er næsta óþekkt
nafn hér heima, enda hefur hún
starfað ytra allt frá því hún
hóf nám í K.höfn fyrir 23 árum,
þar sem hún naut kennslu úr-
valsmanna líkt og Elof Risebye
og Vilhelms Lundström við list
háskólann þar í borg. f Boga-
salnum getur að lita 12 stein-
þrykkmyndir (litografíur) eft-
Elínu og er jafnan ánægjulegt
þegar sú listgrein er kynnt hér,
en verk þessi orka frekar á
mig sem skólavinna en afger-
andi hlutir því svo er sem lista-
konan virðist frekar hafa ver-
ið að þreifa fyrir sér í ókann-
aðri tækni, fundið í henni marga
og ríka möguleika, en verið full
hikandi við hin viðameiri átök.
Listræn útfærsla verka Elínar
ber svip af langri dvöl listakon-
unnar í borginni við sundið —
það er mildur blær yfir þessum
verkum Elínar einna helst vöktu
athygli mína myndir eins og
„Kranium" (2), „Sitjandi módel
(9) og „Portræt“ (12). Ég þyk-
ist vita að veigameiri verk liggi
eftir þessa listakonu og undrast
að hún skuli ekki frekar velja
þau til sýningar hér, en kannski
eigum við eftir að sjá þau áður
en langt um líður.
ingsformuðum teppum sinum
finnst mér hún á þessari sýn-
ingu ekki ná yfir heimilisiðnað-
arstigið, þótt hún sýni þar einn-
ig góða kunnáttu á handverk-
inu, en þessa sína ágætu kunn-
áttu getur hún vissulega hag-
nýtt betur svo bera teppi eins
og „Hvíti galdur“ (1), „Bólstr-
ar“ (3) og „Mosaik" (8) órækan
vott um. Sýningunni hefði mátt
koma betur fyrir en það er
sannarlega ekki vandalaust að
setja upp sýningu á jafn ólík-
um listgreinum í svo takmörk-
uðum sal sem Bogasalurinn er,
svo vel fari.
Frances Stone
í sölum Ameríska bókasafns-
ins við Hagtorg sýnir um þess-
lar mundir amerísk listakona
Frances Stone 17 myndir, flest-
ar unnar í olíu, það eru þó ekki
olíumyndirnar sem virðast sterk
asta hlið listakonunnar heldur
myndir líkt og nr. 2 „Crevasse"
sem er unninn íblandaðri tækni
og nr 16 „Fire and Ice“ unnin
í collage.
Bragi Ásgeirsson
Nauði?npriippboð
sem auglýst var í 66, 68. og 71. tbl. I/ögbirtingabilaðs
1967 á Fálkagötu 23 A, þ ngl. eign Árnu Steinunnar
Rögnvaldsdóttur, fer fram eftir kröfu Arnar Þór hrl.,
Þorvalds Lúðvikssonar hrl., og Sigurðar Sigurðssonar
hrl., á eigninni sjálfri, laugardaginn 20. apríl 1968,
ki. 10.30 árdegis.
Borgarfógetaembaettið í Reykjavik.
Vestur-þýzkir kvenskór frá Libelle
Ný
sending
Stórkostleg fjölbreytni
í litum og gerðum —
AUSTURSTRÆTI 18 -
SKOVAL EY MUNDSSON ARKJ ALLARA
Vigdís Kristjánsdó'ttir sýnir að
þessu sinni 14 teppi mjög ólík
í stíl, stærð og útfærslu, í sum-
um teppanna nostrar hún svo til
ótakmarkað við viðfangsefnið og
bregður þá fyrir mjög róman-
tískum viðhorfum, en í öðrum
teppum vinnur hún í stórum og
heilum flötum og er mér engin
launung á að þau finnst mér
bera af á sýningunni, bæði eru
þetta meiri vefnaður og öflugri
átök við liti og form. í renn-
Jofndægraól
í Mývatnssveit
Björk. 23 marz.
Síðastliðið laugardagskvöld,
var haldið í Hótel Reynihlíð svo-
kallað — Jafndægraát, hið
fyrsta sem hér hefur verið hald-
ið með því nafni. Þrátt fyrir
mjög slæmt veðurútlit og veður-
spá, mættu þarna yfir 100 manns.
Mjög var rausnarlega á borð
borið, og ekkert við nögl skor-
ið, þar var hangikjöt, harðfisk-
ur, smjör, laufabrauð, flatbrauð,
svið og fjölmargir aðrir réttir,
sem ég kann ekki að nefna.
Veizlu og jafndægramatstjóri
var dr. Einar Tjörfi Elíasson.
Fórst honum það starf með mikl-
um ágætum.
Þó svona ríkulega væri á borð
borið, varð maturinn mjög ó-
dýr, enda imnu margir sjálf-
boðaliðar að matargerðinni. Áð-
ur en máltíðin hófst flutti sókn
arpresturinn stutta borðbæn.
Ennfremur stjórnaði hann al-
mennum söng meðan á borð-
haldinu stóð.
Eftir að staðið var upp frá
borðum, skemmtu menn sér við
dans og leiki af miklu fjöri fram
eftir nóttu.
Þegar þessari ánaegjulegu
skemmtun var lokið, var komin
öskrandi stórhríð. Áttu því sum-
ir í erfiðleikum með að komast
heim vegna dimmvirðris og veð-
urofsa. Þeir sem iengri leið
þurftu að fara, gistu á sam-
komustað þar til veðrinu fór að
slota um morguninn.
Þótt svona gerningaveður
kæmi, er fyrsta Jafndægraát var
haldið í Mývatnssveit vona ég
að slíkar samkomur verði fast-
ur liður f árlegu skemmtana-
haldi hér í sveitinni.
STÓRFELLD VERÐLÆKKUN
Tímabundin verðlækkun framleiðenda gerir oss nú kleyft að
bjóða yður SCOUT 800 á stórlega lækkuðu verði.
Örfáar bifreiðir til afgreiðslu strax.
Ármúla 3 Reykjavík,
síml 38900
SCOUT 800 hefur þegar sannað ágæti sitt við
íslenzkar aðstæður. Drif á öllum lijólum, tvöfalt
hemiakerfi og frábær stýrisbúnaður tryggja yður
fullkomið öryggi í akstri, hvort sem leið yðar
liggur um torleiði íslenzkra óbyggða eða hrað-
brautir þéttbýlisins.
Tryggið yður þessa frábæru bifreið með því að panta
tímanlega.
Kristján