Morgunblaðið - 27.04.1968, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1968
Ólöf Magnúsdóttir
Hnífsdal -
HINN 18. febrúar s.l. andaðist
frú Ólöf Magnúsdóttir frá Hnífs-
dal í sjúkrahúsi ísafjarðar, eftir
langa sjúkdómslegu. Var hún
jarðsett í Hnífsdal 24. febrúar að
viðstöddu fjölmenni.
Ólöf Magnúsdóttir var fædd
að Hóli í Bolungarvík 24. nóvem-
ber 1909. Var hún því á 59. ald-
ursári er hún lézt. Foreldrar
hennar voru myndarhjónin
Helga Ólafsdótir og Magnús
Tyrfingsson búendur á Hóli.
Ólst hún þar upp 1 fjölmennum
og mannvænlegum systkina-
thópi. Um tvítugsaldur leitaði
hún sér mennta í Reykjavík og
dvaldi þá m.a. á heimili Jóns
Helgasonar biskups og síðar hjá
Axel Tuliníus sýslumanni,
skátahöfðingja og íþróttafröm-
uði. Tókst traust vinátta með
Ihenni og þessu merka og góða
fólki.
Síðan lá leið Ólafar aftur
heim til átthaganna. Hún giftist
8. desember 1938 Einari Stein-
dórssyni framkvæmdastjóra og
um langt skeið oddvita í Hnífs-
dal, hinum ágætasta manni. Var
heimili þeirra jafnan me.ðal
fremstu heimila í byggðarlag-
inu. Eignuðust þau hjón eitt
bam er lézt við fæðingu. En tvö
börn, Hansínu og Ágúst, tóku
þau í fóstur, ólu upp og önnuð-
ust af hinu mesta ástríki. Var
Hansína kjördóttir þeirra. Er
hún nú gift og er búsett á ísa-
firði. Ágúst lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akur-
eyri vorið 1964. Er hann nú
kvæntur og er búsettur í Nes-
kaupstað. Ennfremur ólu þau
Ólöf og Einar upp elzta son
Hansínu, Einar Val, sem nú er
11 ára.
Ólöf Magnúsdóttir var mikil
mannkosta kona. Hún var félags
lynd með afbrigðum og tók mik-
inn þátt í félagslífi í Hnífsdal.
í allri framkomu var hún frjáls-
leg og elskuleg. Er það ekki of-
mælt að hún hafi notið vinsælda
allra er kynntust henni. Óeigin-
girni hennar, glöð lund og dreng
Minning
skapur sköpuðu henni allsstaðar
traust.
Ólöf bar langvinnan og erf-
iðan sjúkdóm af kjarki og æðru-
leysi. Lífsgleði hennac entist
henni fram í andlátið.
Á heimili hennar og Einars
Steindórssonar ríki innileg
hlýja og gestrisni. Var öll sam-
búð þeirra eins elskuleg og
hugsazt gat. Framkoma þeirra
mótaðist ævinlega af góðvild og
hreinskiptni. Minnist ég gest-
risni þeirra og alúðar frá fjöl-
mörgum heimsóknum á heimili
þeirra og fjölþættri samvinnu
við hinn starfsama og dugandi
oddvita. Það var sama, hvernig
á stóð. Hjá Ólöfu og Einari var
ævinlega allt hið bezta sjálfsagt,
og eðlilegt.
Mikið skarð er nú fyrir skildi
á heimili míns gamla og trausta
vinar. Að honum og fóstUrbörn-
unum þremur er harmur kveð-
inn. En minningin um ljúfa og
góða eiginkonu og móður er
huggun harmi gegn. Ólafgr
Magnúsdóttur er af öllum
minnzt með virðingu og inni-
legu þakklætL Vinir hennar og
heimilis hennar senda eigin-
manni hennar og ástvinum öll-
um einlægar samúðarkveðjur.
S. Bj.
Nauðimgaruppboð
Eftir kröfu Ólafs Þorgrímssonar hri. fer fram nauð-
ungaruppboð að Mávahlíð 25, hér í borg, mánudaginn
29. apríl n.k. kl. 3.30 e.h. og verður þar selt: ískista,
hakkavél og búðarvigt, talið eign verzlunarinnar
Krónan
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
_______________Borgarfógetaembaettig í Reykjavik.
Dráttarvagn
Dráttarvagn óskast til kaups.
Upplýsingar í síma 81104.
Naiiðnn garuppboð
sem auglýst var í 4., 6. og 8. tbl. Lögbirtingablaðs 1968
á Haðarstíg 6. þingi. eign Braga E narssonar, fer fram
eftir kröfu Iðnaðarbanka íslands h.f. og Gjaldheimt-
unnar í Reykjavík á eigninni sjálfri, þriðjudaginn
30. apríl n.k. kl. 3 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Ssvraa-M
30280 32262
UTAVER
Pilkinton’s tiles
postulínsveggflísar
Stærðir 11x11, 7^x15 og 15x15
cm.
Mikið úrval — Gott verð.
Skákin tekur mikinn tíma
frá náminu
SKÁKÞINGI fslands lauk nú
um páskana. Eins og kunnugt
er sigraði Guðmundur Sigur-
jónsson mótið og varð íslands
meistari í skák. Annar varð
Haukur Angantýsson, einn af
yngri skákmönnum okkar. Þá
fór einnig fram Hraðskákmót
íslands og þar sigraði Björn
Þorsteinsson, sem er einn af
traustustn skákmönnum okk-
ar. Við spjöllum lítillega við
þá af þessu tilefnL
„Hngsa að Friðrik blandi sér
í baráttuna“
Guðmundur Sigurjónsson
Skákmeistari íslands annað
sinn á Skákþingi íslands nú
um páskana. Guðmundur sigr
aði einnig í Haustmóti Tafl-
félags Reykjavikur, svo að
segja má, að hann hafi staðið
sig vel á skákmótum í vetur.
Með sigri sínum á þessum
tveimur mótum hefur hann
tryggt sér rétt til að taka þátt
í Reykjavíkurmótinu í vor.
— Já. Mótið var fremur erf-
itt, en það hefur oft verið
erfiðara, enda var mótstilhög
un mun léttari nú, aðeins tefld
ein skák á dag. Haukur Ang-
antýsson veitti mér líka harða
keppni til hins síðasta.
— Og þú tekur þátt í stór-
mótinu í vor?
— Já, ég hef ætlað mér það.
Það verður mjög erfitt mót,
erlendu gestirnir eru yfirleitt
atvinnuskákmenn og mjög
sterkir. Ég hugsa þó, að Frið-
uð erfitt að tefla mikið með
námi og ég held að fari ekki
vel saman.
— En nú eru nokkuð sterk-
ir skákmenn í Háskólanum.
Munuð þið ekki keppa neitt
á stúdentamótum á þessu ári?
— Ja, það verður stúdenta-
mót í Austurríki í sumar, en
óákveðið er, hvort við sendum
menn þangað.
Hraðskákmót eru meira til
gamans“
Björn Þorsteinsson er einn
i hópi okkar reyndustu skák-
manna. Hann varð íslands-
meistari í fyrra og hraðkkák-
meistari nú fyrir nokkrum dög
Björn Þorsteinsson
rik muni blanda sér í bar-
áttuna um efstu sætin.
— Krefst slíkt mót ekki tölu
verðs undirbúnings?
— Jú, en ég get ekki undir-
búið mig neitt frekar en ég
hef þegar gert. Ég hef teflt
mikið í vetur og verð að láta
það nægja, því að ég verð að
taka forpróf í lögfræði í vor.
Að vísu er fyrsta árið frekar
létt í lagadeild, en það er nokk
Haukur Angantýsson
— Hefur þú áður orðið hrað
skákmeistari Björn?
— Já, ég varð það í hitteð-
fyrra.
— Hver er munurinn á því
að keppa á slíku móti eða á
venjulegu skákmóti.
— Það er talsverður mun-
ur. Hraðskákmótið tekur
miklu skemmri tíma, og það
er meiri pressa að keppa á hin
um mótunum og fylgir því
meiri alvara. Hraðskákmót
eru svona meir til gamans,
enda fylgja því engin sérstök
réttindi. Það mega allir keppa
þar sem vilja, en ekki keppt
í flokkum eins á hinum mót-
unum.
■— Þú hefur þá ekki öðlazt
rétt til að keppa á Reykja-
víkurmótinu í vor með þvi að
vinna Hraðskákmótið.
— Nei, og það er ekki ör-
uggt, hvort ég tek þátt í því.
Ég þarf að tefla á svokölluðu
sex manna móti til þess að
öðlast réttindi þar, en þrír
efstu komast á stórmótið. Við
sem keppum þar erum Jón
Kristinsson, Leifur Jósteins-
som, Magnús Sólmundarson,
Jóhann Sigurjónsson, Gylfi
Magnússon og ég. En ég geri
Guðmundur Sigurjónsson
mér svona frekar vonir um að
komast, en það er eins og ég
sagði áðan ekki öruggt.
„Minn bezti árangur til
þessa“
Einn dimittend úr Mennta-
skólanum í Reykjavík er
Haukur Angantýsson. Hann er
einn efnilegasti skákmaður
okkar og varð annar á Skák-
þingi íslands. Við spurðum
hann að því, hvort hann vaeri
ekki ánægður með sína framm
stöðu á Skákþinginu.
— Jú, svaraði hann, „þetta
er líklegast bezti árangur,
sem ég hef náð, en annars
hef ég frekar lítið teflt í vet
ur. Mótið var nokkuð erfitt,
en þó var til bóta, að aðeins
var tefld ein skák á dag og
var það til mikils hagræðis.
Áður voru tefldar tvær skák-
ir á dag og oft biðskákir. Ég
held að þetta nýja fyrirkomu
lag hafi orðið til þess, að kepp
endur hafi yfirleitt sýnt sína
betri hlið.
— Er ekki erfitt að taka
þátt í svona móti og vera um
leið að lesa undir stúdents-
próf.
— Mótið tók nú ekki svo
mikinn tíma frá mér. Ég ein-
beitti mér bara þeim mun bet
ur gð skákinni, þegar ég tefldi
en eyddi litlum tíma í að stú-
dera skák utan mótsins og hef
svo að segja ekkert gert það
í vetur.
— Færð þú réttindi til að
tefla á stórmótinu í vor?
— Já, ég hef réttindi til
þess. Guðmundur Sigurjóns-
son hefur unnið sér réttindi
áður og ég fæ þvi að vera
með. Hins vegar get ég ekki
tekið þátt í þvi verð í stú-
dentsprófum þegar það stend
ur yfir. Það hefði vissulega
verið gaman að geta +ekið þátt
í þvi, en ómögulegt að fara
að gera sér neina rellu út af
því. Auk þess er ekki hægt
að fara út í svona sterkt mót
nema undirbúa sig vel og
rækilega undir það, en ég hef
ekki nóga þjálfun til þess.
að bezt
er að
auglýsa í
MIIRGUIiLM
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 4., 6. og 8. tbl. LögbirtingaMaðls 1968
á Ásgarði 19, þingl. eign Jónanns Sigurðssonar, fer
fram eftir kröfu Útvegsbanka fslands og Jóhanns
Ragnarssonar hrl., á eigninni sjálfri, þriðjudaginn
30. apríl n.k. kl. 11 árdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðnngaruppboð
Eftir kröfu Gunnars M. Guðmundssonar hrL, fer
fram nauðungaruppboð að Skipholti 25, hér í borg,
mánuidagmn 29. apríl n.k. kl. 2.30 síðdegis og verður
þar seld loftpressa, taLin ei-gn Garðar Siðmuncls-
sonar.
GreiSsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.