Morgunblaðið - 27.04.1968, Blaðsíða 23
MOTtGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUU 27. APRÍL 1968
23
Elín Ragnheiður Þorsteinsdótti
Þorbjörg Stefánsdóttir
og Jón Þorsteinsson Eskifirði
Hjónin í Bakaríinu á Eski-
firði þau Ragna og Jón Þor-
steinsson munu lengi skipa veg-
legan sess í huga mínum og
þannig mun fleirum farið. Kem-
ur þar margt til og þá ekki
sízt veglyndi þeirra sem átti sér
lítil takmörk, ljúflyndi sem ein-
kenndi allt þeirra líf, kurteisin
og hið vingjamlega viðmót. Á
erfiðum árum á Eskifirði urðu
margir þeirrar gæfu aðnjótandi,
að þessi ágætu hjón tóku eftir
þeim, sáu hvar skórinn kreppti
og réttu sína hjálparhönd svo lít
ið bar á og þetta var gert af
svo einstakri hlýju að það var
gott ofanálag góðrar gjafar.
Ekki minnist ég þess að þau
hjón færu nokkurntíman í mann
greinarálit. Þau voru samhent.
Jón rak um fjölda ára snyrti-
lega brauðgerð á Eskifirði, auk
þess er hann hafði ýmsan ann-
an varning á boðstólum. Hann
var forsjáll og farsæll í æfi'
starfi. Jón var Rangvellingur að
uppruna, kominn af hinni kunnu
Víkingslækjarætt, og stóðu þar
að honum traustir stofnar. For-
eldrar hans voru Margrét Jóns-
dóttir og Þorsteinn Einarsson.
Jón var myndarlegur að vallar-
sýn og höfðinglegur í sjón og
reynd. Snemma kom hann á
Eskifjörð og vann þar lengi hjá
Tuliniusi í brauð og sælgætis-
gerð. Hann var einn af áhuga-
mönnum um íþróttir og iðkaði
þær mikið um aldamót ásamt
öðrum undir stjórn hins vinsæla
sýslumanns Axels Tuliniusar.
Elín Ragnheiður var fædd 24.
júní 1879 að Dyrhólum í Mýr-
dal. Foreldrar hennar voru merk
ishjónin Matthildur Guðmunds-
dóttir ljósmóðir og Þorsteinn H.
Árnason hreppstjóri. Þau áttu
alls 6 börn og eru enn á lífi
tvær dætur þeirra. Ragnheiður
ólst upp í foreldrahúsum til tví-
tugs og einhvernveginn var það
nú svona að hún korh til Eski-
fjarðar og þar lágu leiðir þeirra
Jóns saman báðum til gæfu og
Eskfirðingum til mikils gagns.
Þau Jón og Ragnheiður eignuð-
ust þrjá syni, Þorstein Hjört,
sem dó um fermingaraldur, gott
mannsefni, sem mikið var sakn-
að, Hlöðver, sem fetaði í fótspor
föður síns og sá um rekstur
brauðgerðarinnar og verzlunar-
innar þangað til nú fyrir fáum
árum að hann tók við hafnar-
stjórn á Eskifirði, og Baldur Óla
tannlækni á Neskaupstað.
Ragnheiður var einstök hús-
móðir sem sýndi sig í því að
þángað sóttust ungar stúlkur
eftir að komast í vist þegar sú
atvinnugrein stóð með blómá.
Hún var mikil hannyrðakona, og
því mikill hagur fyrir stúlkurn-
ar því þar lærðu þær margt
nytsamlegt. Það var vissulega
gaman að koma á heimili þeirra
hjóna, snyrtimennskan og alúð-
in sem þar mætti manni, hafði
þau áhrif að jafnan var hlakk-
að til næstu samfunda. Þau
hjón voru mér og mínum góð í
þess orðs fyllstu merkingu og
ég var eins og í upphafi var
sagt, ekki einn um vinsemd þess-
ara ágætu hjóna.
Jón Þorsteinsson andaðist 9.
júní árið 1954, en Ragnheiður
27. febr. s.l. Var því langur
vinnudagur beggja, en hann var
fæddur 30. marz 1872. Þau gift-
ust 9 ágúst 1908 og hófu brátt
byggingu hins veglega húss, sem
þótti Grettistak á þeim árum.
Margrét móðir Jóns naut þar
góðrar umönnunar þeirra hjóna
þangað til hún lézt í hárri elli
árið 1917. Glaðværðin og góð-
vildin entist þeim alla æfi, og
sannaðist vissulega á þeim hið
fornkveðna að hláturinn lengir
lífið, þ.e. gleðin og ánægjan ger-
ir lífið allt bjartara og lang-
lífara.
Nú þegar þessi ágætu hjón
eru bæði horfin okkar mannlegu
sjónum vil ég ekki láta hjá líða
að minnast þeirra með virðingu
og þökk, og ég mun ætíð geyma
mynd þeirra ofarlega í safni
minninganna. Ég veit með vissu
að þau eiga góða heimvon, þann-
ig var líf þeirra. Þau vissu
það að lífið var skóli undir æðra
og fullkomnara líf og það gilti
að standast prófið í lífsreynslu
ævinnar. Þar var allt til vandað
og veit ég að þau uppskera
trúrra þjóna laun. Margir þakk
látir hugir fylgja þeim er leiðir
skiljast. Fylgi þeim því jafnan
guð og góðir eng'lar á vegum
eilífs lífs.
Blessuð sé minning mætra
Árni Helgason
Guðsteinn Gíslason
slökkviliðsm. - Kveðja
AÐ rmorgni þesis 23. aprfl s.l. var
hringt til mín og hér tilkynnt
Lát Guðste ns Gislaeonar, Hring-
braut 66, Keflavík.
Ég varð_ harmi lostin við þessa
helfregn. í blóma 'lífisine, rétt um
sumarmál kveður hann okkur
öll og kemur ekki framar. Þetta
lögmiál hfsinis eT og verður alltaf
jafn torskilið og alltaf jafn óháð-
in gáta hversvegna einmitt hann
eða hún kvaddi svona skyndi-
lega. En eigi má sköpum renna.
Hugur minn leitar aftur í tim-
ann, mörg ár, þegar Guðsteinn
fyrst kom til Kefilavíkur ungur
drengur. Hann var fæddur í
Reykjavík 2. janúar 1932, sonur
hjónanna Halldóru Þorsteins-
dóttur ,sem Látin er fyrir 21 ári
og Gísla Einarssonar, sem nú
li'ggur á sjúkra/húisi og g-etur ekki
fyigt syni sínum síðasta spölinn.
Guðsteinn ólst upp í stórum
systkinaihópi, en bömin voru 15.
Ungur fór Guðsteinn utan og var
í farmennsku í tvö ár, en hugur-
inn vildi heim og heim kom
hann. Hann vann við sjóinn og
aila aðra algenga vinnu framan
af, seinna var hann við bifvéla-
virkjun og þá komu hæfileikar
hans vel í Ijós, en hann var
einkar hagur maður og lék alit
í höndum hams. Síðar stofnaði
hann ásamt Einari bróður sinúm
eigið bifvélaverkstæði. Störf
hans voru ölLum tii fyrirmyndar.
f Keflavík fann hann stærstu
hamingju Lífs síns, eiginkonuna.
Hann giftist Ólafíu B. Guð-
mannsdóttur árið 1957 og eignuð-
ust þau þrjú eLskuleg börn Örn
10 ára, Lilju 6 ára og Hilmar
á ára. Ásamt konu s:n>ni hafði
Guðsteino búið fjöllskyldunni
elskulegt heimili, ekki aðeins
fjölskyidunni heldur og öilum,
sem leið áttu um hús þeirra.
Þess skal getið að Guðisteinn átti
eina dóttur, sem han>n eignaðist
áður en hann giftist, hún er 16
ára og heitir Gréta Þuríður
Eydal og á heim.a í Borgarnesi.
Guðsteinn var að eðlisfari
duluT og fiáskiptinn, en eignaðist
sarnt fjöida vi-na, því þeir eru
margir, sem vi'idu eiga þennan
trauista og góða mann að vini og
féiaga, hann var líka glaður í
vinahópi, þá spilaði hann og
söng, þannig man ég 'hann sein-
a>st.
Ég var svo lánsöm að vera með
þeim hjónum fyrir réttum fjór-
um mánuðum, þá eins og svo
oft áður gat Lóa ekki dulið ást
þá og virðingu, sem hún bar í
brjósti til mannsinis síns. Það
var falleg sjón. Þau báru þessa
rólegu hamingju svo greinilega
með sér, mér leið vel nálægt
þeim, svo mun um fleiri. Börnin
þeirra þrjú fiá að arfi þá eigin-
leika, sem að góðir og haminigju-
samir foreldrar geta veitt, en það
er ást og umburðaTÍymdi. Heim-
ilið þeirra var þeim allt, enda
voru þau samhent í því sem öðru
að gera það að hlýjum og falleg-
um íverustað, svo sem raun ber
vitni um.
Fyrir tveimur árum réðst
hann til sLökkviliðs Keflavíkur-
fLugvallar, þar mun hann hafa
komið sér einkar vel og ætlaði
að gera þau störf að æfistarfi
sínu. Hann var fljótur að vinna
sig í álit þar, sem ekki er á alira
færi. f stuttu samtali við einn
af yfirmönnum hans sagði hann
mér að Guðsteinn hafi verið
hvers manns hugljúfi og aðals-
merki hans hafi verið drenglyndi
og samvizkusemi. Er hægt að fá
fallegri eftirmæli?
Lóa mín, þessar línur eru ekki
ætlaðar til að koma fram tárum,
heldur til að þakka þér og hon-
um fyrir ómetaniega viðkynn-
ingu. Ég bið svo algóðan Guð
að blessa þig og börnin ykkar.
Mínar einlægustu samúarkveðj-
ur flyt ég einnig öldruðum föður,
systkinum og tengdamóður Guð-
steins svo og öllu tengdafólki
hans.
Guðbjörg Þórhallsdóttir.
Húsey, Hróarstungu
Á FÖGRUM sumardegi 8. júlí
1891 fæddist að Klúku í Útmanna
sveit stúlka, er hlaut nafnið Þor-
björg, en foreldrar voru hjónin
Guðný Ólafsdóttir og Stefán
Bjarnason, er lengi bjuggu á
þeim bæ við góðan orðstír. Voru
þau þess um komin að veita
þessari dóttur ágætt uppeld’,
sem hún bjó að til æfiloka.
Á yngri árum mun hún hafa
búið sig sem bezt undir lífsstarf
sitt, en dvaldist sem mest í föð-
urgarði. 29. júlí 1922 giftist Þor-
björg Nielsi Stefánssyni. Ári síð-
ar fengu þau ábúð á hálfri Hús-
ey í Hróarstungu, sem er mikil
kostajörð, og þar var heimili
hennar frá þeim tíma. Það mun
hafa verið áform þessara ungu
hjóna, er þau stofnuðu heimili,
að gera það myndarheimili, og
sú var líka raunin, .og var hlut-
ur Þorbjargar í þeim efnum
ágætur. Það er nú svo að hann
er oft langur og annasamur
starfsdagur húsfreyju á stóru
sveitaheimili. Svo var einnig í
hennar starfi. Á vorin er önn
dagsins mikii í Húsey. Þar er sel
veiði góð, og það starf krefst
mikillar fyrirhyggju og vinnu.
Þá var fljótlega tekið til við
að byggja stór fjárhús og hlöður
og íbúðarhús, en hlunnindi voru
að vísu trjáreki á Héraðssönd-
um.
En tíminn líður fljótt. Haust-
ið 1943 svífur dökkur skuggi
yfir þetta friðsæla heimili og
hafði á Urott með sér húsbónd-
ann á miðjum aldri. Þá var hljótt
á því heimili og víðar. Það undr-
aði mig, yfir hvað miklum krafti
þessi kona átti að ráða, hún
missti svo mikið og börnin
þeirra, og öll sveitin okkar. Það
fóru erfiðir tímar í hönd, en það
fannst lítt á henni ,enda bar hún
ekki tilfinningarnar utan á sér.
Hún var áreiðanlega mikil táp-
kona, og skildi það mörgum bet-
ur, að starfið göfgar.
Þeim hjónum varð 5 barpa
auðið, en eitt dó skömmu eftir
fæðingu, en hin eru:
Stefanný, húsfreyja í Húsey.
Sesselja, húsfreyja á Skjöld-
ólfsstöðum á Jökuldal.
Soffía, húsfreyja á Selfossi.
Jón læknir í Svíþjóð.
Þorbjörg sál. var ekki áber-
andi kona út á við. Hú* var í
kvenfélagi sveitarinnar og vildi
veg þess sem mestan, og gæfu-
kona var hún. Ævifélagi hennar
var mesti öndvegismaður og
börnin öll vel gerð, og hafa hlot-
ið góðan þroska. Þá var hún
einnig þess umkomin að geta
annazt aldurhnigna foreldra, er
húmaði að fyrir þeim. Þá verður
því sízt gleymt, hve oft var gest
kvæmt í Húsey, og þær frábæru
viðtökur sem gestir urðu þar að-
njótandi.
Það er fallegt i Húsey á vorin,
þetta iðandi líf, og mikill fugla-
kliður. Við blasir hinn fagri og
víðfeðmi fjallahringur Fljóts-
dalshéraðs, og í hafi hin prúða
Bjarnaey, í túni stór seftjörn, er
nær heim að hlaðvarpa. Allt
þetta myndar eina órjúfandi
heild, blandaða nið tveggja stór-
jökulvatna, Lagarfljóts og Jök-
ulsár á Brú. I þessu umhverfi,
sem augað á svo gott með að una
við, og hugur og hönd að starfa
>fyrir, helgaði Þorbjörg sál. alla
starfsorku sína, og var starfi og
stöðu trú til hinztu stundar. Fyr-
ir langt og annasamt húsmóður-
starf í Húsey ávann hún sér virð
ingu og vináttu allra þeirra, sem
höfðu kynni af henni. Fyrir
nokkrum árum hætti Þorbjörg
búskapnum og við tóku dóttir
hennar og tengdasonur, og hafa
þau haldið öllu í góðu horfi, en
hún var sem fyrr óþreytandi að
búa sem bezt að hag heimilisins,
þá einnig reiðubúin að rétta öll-
um börnum sínum hjálparhönd,
svo sem hún megnaði og í fjar-
lægð voru.
Á öndverðum þessum vetri
kom Þorbjörg sál hingað suður
til dóttur sem búsett er á Sel-
fossi, og ætlaði að eiga dvöl hjá
henni um skeið. En það fór á
annan veg, heilsu hennar hnign-
aði fljótlega eftir að hún kom.
Hún lézt í sjúkrahúsinu á Sel-
fossi 9. febrúar s.l., sofnaði svefn
inum langa rólega, er strengur-
inn brast.
Kæra vinkona, ég þakka þér
af heilum hug alla samfylgdina,
mér finnst að það hafi syrt að
í sveitinni okkar, þegar þú ert
horfin.
„Vér komum og förum, sem
fannir um vor,
fár veit er líður, vor ævinnar
spor“.
Anna Ólafsdóttir.
- FERMING
Framhald af bls. 20:
Sveinn Sverrisson, Hólabraut 12
Sæmundur Hafsteinsson,
Álfaskeiði 14
Tryggvi Harðarson, Tjarnarbr. 11
Þórir Gíslason, Merkurgötu 11
Ægir Þorláksson, Þúfubarði 12
STÚLKU:
Guðrún Kristjánsdóttir,
. Hverfisgötu 54
Helga Jónsdóttir, Hörðuvöllum 1
Hulda Markúsdóttir, Háabarði 11
Ragnheiður Ásdís Gunnarsdóttir,
Norðurbraut 31
Sigríður Jóhanna Friðriksdóttir,
Hraunhvammi 3
Sæunn Egilsdóttir Strange,
Þrastahrauni 5
Ferming I.ágafelli sunnudaginn 28.
april kl. 14.
Prestur: Sr. Bjarni Sigurðsson.
DRENGIR:
Ágúst Þór Árnason. Álfheimum 8
Birgir Finnbogason, Selási 13
Guðbjartur Árni Guðnason,
Álafossi
Guðni Þór Guðmundsson,
Þormóðsdal
Gunnar Hansen, Álafossi
Lágafelli
Jón Sveinbjörn Haraldsson,
Lágafelli
Pétur Thors Lágafelli
Sigurjón Ásbjörnsson Álafossi
STÚLKUR:
Bjarnveig Pálsdóttir, Bjarkarholti
Hanna Erlendsdóttir, Hömrum
Helga Jónsdóttir, Suður-Reykjum
Margrét Gústafsdóttir, Hraunbæ 88
Þórsmörk
Margrét Þóra Baldursdóttir,
Þórsmörk
Rósa Árnadóttir, Árbakka
Rósa Ragnarsdóttir, Reykjavöllum
Sigríður Sveinsdóttir, Bjargi
Sjöfn Benjamínsdóttir, Álafossi
Þorgerður Einarsdóttir, Hraunbæ96
Þórunn Gísladóttir, Selási 9
Ferming Mosfelli sunnudaginn 28.
apríl kl. 11.
Prestur: Sr. Bjarni Sigurðsson.
DRENGIR:
Baldur Rafnsson, Selási 3C
Bjarki Jónsson, Árvangi
Diðrik Ásgeir Ásgeirsson,
Suður-Reykjum
Gunnlaugur Jón Hreinsson,
Helgadal.
Halidór Ómar Sigurðsson,
Kleppsvegi 122
Helgi Halldórsson,
Smálandsbraut 17
Jens Indriðason, Víðigerði.
STÚLKUR:
Guðrún Friðriksdóttir, Reykjalundi
Hlíf Ragnheiður Heiðarsdóttir,
Æsustöðum.
Yvonne Patricia Carrol,
Reykjahlíð.