Morgunblaðið - 27.04.1968, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1968
M. Fagias:
FIMMTA
KONAN
fínt, en þó ekki ókurteist að
koma seint, skrautbúin í kápu úr
hreysikattarskinni eða chinhilla
og alsett dýrum gimsteinum.
Hún var í för með manninum
sínum, og allir herrarnir, sem
fyrir voru, heilsuðu henni með
lotningu.
Nemetz hafði kunnað betur
við hana en nokkra hinna fínu
frúnna sem hann átti að gæta
gimsteinanna á. Hún var sú eina,
sem lét svo lítið að tala við
hann, eða að minnsta kosti kinka
kolli til hans. Væri hann í boði
heima hjá henni sjálfri, gætti
hún þess alltaf, að hann tæki
þátt í kvöldverðinum og fengi
nóg í sig að láta.
Eftir 1924, þegar hann var
fluttur í morðdeildina og hafði
gengið frá kjólfötunum sínum og
sett í þau nóg af mölkúlum, sá
hann hana mjög sjaldan, en gat
hinsvegar fylgzt með ferli henn-
ar í slúðurflálkum blaðanna og
kjaftasögum. Einn afsettur kóng
ur Evrópu tók að gera tíð-
reist til Budapest, hennar
vegna. Árið 1930 fæddi hún
manni sínum dótturina Margit og
1933 tvíburana Miklos og Mi-
haly. Þessar tvær skirnarveizl-
ur voru merkustu viðburðir sam
kvæmislífsins þau árin, þar sem
ríkisstjórinn var viðstaddur með
frú sinni, svo og erkihertoga-
hjónin og allir höfðingjarnir á-
samt konum, ennfremur sá af-
setti — drottningarlaus.
Rétt sem snöggvast fann Ne-
metz til freistingar að spyrja
hana um þetta fall frá höllinni
til húsvarðaríbúðarinnar, en sá
sig um hönd. Hún virtist sjálf
hafa kosið að þegja um þetta
atriði, og þá ósk hennar varð
hann að virða. En annars þekkti
hann málið í öllum aðalatriðum.
Rudolf Maray-Moller var
gyðingur í aðra ættina. Fall
hans hófst árið 1938, þegar
hann missti austurrísku hlutabréf
in sín, fyrir tilverknað Hitlers.
Og á næstu árum voru allar
efnaverksmiðjurnar hans tekn-
ar eignarnárm af nazistunum.
Hann sat í fangabúðunum í Dac-
hau frá því í júnimánuðu 1944
og þangað til Bandaríkjamenn
komust þangað. Þá gat hann val-
ið um að setjast að í vestur-
löndum eða hverfa aftur til
Ungverjalands. Hann kaus hið
síðarnefnda. Húsið hans hafði
verið eyðilagt í innrásinni, en
fyrir eitthvert kraftaverk voru
öll dýru málverkin hans ó-
skemmd. Með miklum söknuði
seldi hann þau og hóf síðan
endurreisn húss síns og tilveru
allrar. En 1949 sat hann aftur
í fangabúðum, þó ekki þeim
sömu og áður. Og nú var það
ekki vegna þess, að hann var
gyðingur, heldur stóreignarhað-
ur. Síðan hafði ekkert af hon-
um frétzt. Líklega hlaut hann
að vera dáinn, hugsaði Nemetz.
Og sama hefði getað átt við um
konu hans, sem hafði ekki strok-
ið með kónginum sínum fyrir
syndaflóðið, heldur verið kyrr
hjá manninum sínum. Og nú sat
hún hér, andspænis Nemetz, í
eldhúsi, sem var undirlagt af
kakalökum, með dílótt andlit,
fingur kreppta af gigt og fall-
ega hökuna, þar sem vottað'i I
fyrir ókvenlegum skegghárum.
— Frú Moller ... ég hef
heyrt, að synir yðar og maður-
inn yðar hafi ekki verið sér-
lega vinveittir Tothfólkinu.
Þetta Hafði enginn sagt hon-
um, en hann hætti á spurning-
una, uppá von og óvon.
— Já, það er ekki nema satt
sagði hún.
— Hversvegna? Hvað höfðu
þeir móti Tothfólkinu?
— I sjálfu sér ekkert sér-
stakt. Það var hr. Toth, jsem
byrjaði. Hún sagði „hr.“ en ekki
„félagi“. — Ég held hann hafi
ekki kært sig um. að tvíburarn-
ir ynnu í sömu verksmiðjunni
og hann sjálfur. Leðurverksmiðj
unni Veritas. Jú, annars, okkur
var nú reyndar búið að lenda
43
saman við hann áður. Eiginlega
alveg síðan við komum hingað,
1952. Hann var umboðsmaður
fyrir húsið, og sem slíkur hafði
hann leyfi til ... ja, hvað skul-
um við segja ... að skipta sér
af. Hvort stiginn væri almenni-
lega þveginn? Tæmdum við rusla
föturnar í tæka tíð? Höfðum við
auga með gestum tiltekins leigj-
anda? Hún þagnaði snögglega
og bætti svo við í flýti: — Það
var nú annars ekkert alvarlegt.
Við reyndum að forðast rifrildi.
Nemetz tók eftir því, hve um-
hugað henni var um að gera
lítið úr ósamkomulaginu milli
þeirra. Hún sat þegjandi, svo að
hann varð að ýta undir hana
að halda áfram.
— Og hvað meira, frú Moller?
Hún dró djúpt andann. — Aitl
fór vel, þangað til drengirnir
fengu vinnuna í Veritas, fyrir
hreina tilviljun. Það eru um það
bil tvö ár síðan. En síðan hefur
Toth róið að því öllum árum
að . ..
— Að hverju?
— Að koma okkur út úr hús
veitingahúsið
ftSKUR
BÝÐUR
YÐUR
l
HELGARMATINN
i handhœgum umbúðum til að táka
HEIM
GRILLAÐA KJtJKLINGA
ROAST BEEF
GLÓÐARSTEIKT LAMB
GLÓÐARSTEIKT NAUTAFILLÉ
ÍGLÓÐARST. GRÍSAKÓTELETTUR
HAM BORGARA
Gleðjið frúna —
f fjölskyldma — vinina
— njótið
hinna Ijúffengu rétta
heima t stofuyðar.
Ef þér óskið
getið þér hringt og pantað •
við sendum leiguhíl
með réttina heim
tilyðar.
K S KU R maireidir fyriryður
alla daga vikunnar
Sudurlamhb raut 14 sími S8550
— Já, alveg rétt, fyrir 20 árum lá vegurinn hér í gegn.
inu og drengjunum úr verksmiðj
unni. Það leið langur tími áður
én honum tókst það. Jafnvel
þótt hann væri orðinn forstjóri.
Verkstjórinn drengjanna kunni
vel við þá og tók svari þeirra.
En loks veitti hr. Toth betur.
Hann gat komið á þá kæru fyr-
ir skemmdarstarfsemi. Hann út-
vegaði nokkur Ijúgvitni og loks
voru þeir dæmdir í 18 mánaða
nauðungarvinnu. Þeir áttu fjóra
mánuði eftir þegar byltingin
leysti þá úr haldi.
— Hvaða tilgang getur Toth
haft með þessari framkomu
sinni? spurði Nemetz.
Frú Moller yppti öxlum. —
Ég veit það ekki, en svo virðist
sem þeir hafi komið auga á
einhverja óreglu í verksmiðj-
unni. En það er mín eigin til-
gáta og kannski út í bláinn.
Sjálfir hafa drengirnir ekki sagt
eitt orð í þá átt.
Nemetz vildi gjarna hafa get-
að rétt út hönd og klappað
henni, til þess að róa hana, en
jafnframt varð hann að muna,
hver þau voru — hann lög-
reglumaður en hún grunuð.
—- Afsakið, hélt hún áfram,
—- en þetta lætur í eyrum eins
og einhver vitleysa hjá mér.
Því að svona nokkuð ... ég á
við lognar ákærur og allt þess-
háttar, er daglegt brauð hvort
sem er. Tímarnir eru nú einu-
sinni svona. Og það eru til
• verri húsbændur en hr. Toht.
Maðurinn minn og ég höfum
aldrei beitt því sem gerðist gegn
honum. Nú kom einhver órói í
röddina. — Við erum búin að
gleyma því fyrir löngu. Ég veit
svei mér ekki, hversvegna ég
| fór að minnast á það núna.
: Kannski bara vegna þess, að
| ég óttaðist, að þér kynnuð að
j komast að þessum sektardómi
og fá rangar hugmyndir um
drengina mína. En þeir eru svo
inndælir drengir, glaðlyndir og
duglegir. Það er skammar-
legt, að þeir skuli þurfa að láta
sér nægja að vera bara verka-
menn. En ef við nú vinnum . . .
vinnum byltinguna — geta þeir
j kannski haldið áfram námi. Þeir
i voru búnir með tvö misseri í
27.APRÍL.
Hrúturinn 21 marz — 19 apríl
Þú fæið óvæntar og gleðilegar fréttir, sem sennilega standa
í sambandi við starf þitt eða rannsóknir einhvers konar. Skipu-
leggðu sumarleyfið.
NautiS 20. apríl — 20 maí.
Þú gerir tilraun til að miðla málum í deilu einhverra þér
nákominna, en skynsamlegra væri að þú færir að því sem gát
Það er exki sterkasta hlið þín að koma á sáttum stríðandi aðila.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní
Þér hefur borizt upp í hendur eitthvað óvænt seim þú ættir
að kynna þér betur. Kvöldinu skaltu verja til skynsamlegra og
uppbyggilegra rökræðna við vini.
Krabbinn 21. júní — 22 júlí
Deildu hugmyndum þínum með ættingjum, sem skilja þær
og meta. Fjölskylduimálin ánægjuleg. Þú skalt fara í leikhús
1 kvöld.
Ljónið 23 júlí — 22 september
Ekki skaltu gera ráð fyrir mi'klum skilningi hjá þínum nán-
ustu á vandamálum þínum. Gerðu þér ljóst, að þú verður að
standa einn og sinn og gerðu það virðulega.
Jómfrúiu 23. ágúst — 22. september
Viðskipti í blóma í dag, þú færð sennilega greiðslur langt að
fyrir einhver verk, sem þú hefur unnið að upp á síðskatið
Veittu fjölskyldunni hlutdeild í hagnaðiinum.
Vogin 23. september — 22. október
Þú skah ganga úr skugga um hvað þú raunverulega vilt og
hvað fyiir þér vákir, áður en þú biður um það Málamiðlun
sennilega heppilegust fyrir báða aðila.
Drekinn 23. október — 21. nóvember
Þú mátt búast við því, að þróun mála taki nú stöfck næstu
daga og skalt vera undir það búinn Skipuleggðu starf þitt eftir
megni og rendu að fara eftir því.
Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember
Líkur til að þú hefir fulla ástæðu til að vera bjarteýnm Maki
þinn eða náinn ættingi mun ná góðum árangri í starfi síniu og
full ástæða fyrir þig að gleðjast með.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar
Ástandið breytist lítið í dag Hugarangur þitt er enn, þú ætt-
ir samt að forðast að láta á því bera, nema þú sért viss um
að einhvei geti hjálpað þér. Notaðu kvöldið til lestrar eða Iþrótta
iðkana.
Vatnsberinn 20. janúar — 18 febrúar
Gleymdu ekki að standa við loforð þín einkum þegar yngri
meðlimir fjölskyldunnar eiga í hlut Kvöldið skaltu nota tii góðr
ar skemmtunar með kunningjuinuim.
Fiskarnir 19. fkbrúar — 20. marz
Næstu vikur verða að öllum Hkindum annasamar, og þú ættir
að taka þvl með brosi á vör og sömuledðis vera ekki alltaf
svona dæmalust uppstökkur og viðskotaillux