Morgunblaðið - 01.05.1968, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.05.1968, Blaðsíða 3
MOKGUNBLAÐIÐ MIÐVIK’UÖAGUI;' 1. MAÍ 1968 3 By rjunarf ramkvæmdi r Hafnar- fjarðarvegar boðnar út — Heildarkostnaður við hraðbrautina áœtlaðjr 120 milljónir KÓPAVOGSBÆR bauS í gær út byrjunarframkvæmdir við gerð hraðbrautarinnar, sem koma á í stað núv. Hafnarfjarðarvegar. Verður þessi hluti verksins unn inn í tveimur hlutum, annars vegar undirbygging eystri ak- brautar vegarins, tengivegar af Nýbýlavegi og hluti tegnivegar á Kársnesbraut, en hins vegar undirbygging vestari akbrautar- innar, hluta af Kársnesbraut og lokastig tengivegar á hana. Bygging brúar í eystri akbraut yfir Nýbýlaveg, Kársnesbraut verður boðin út innan skamms. Heildarkostnaður er áætlaður 120 milljónir. Af þessu tilefni bauð bæjar- FYLG/SKJAL NR. / AIreriAVEGUft' HAFNARFJA KÐARYEGUR '/ KOPAVOGSL AHD/ N\\V I.*FANG! | nrjrANai BKÝK stjórn Kópavogs til fundar með fréttamönnum og þeim, er unn- ið hafa að undirbúningi verks- ins, og skýrði frá aðdraganda þess, svo og hverjar hugmyndir eru um staðsetningu hraðbraut- arinnar. Verður hraðbrautin fuil byggð með þremur akreinum á hvorri braut, sem verða aðskild- ar með miðeyju. Ekki verða þó gerðar nema tvær akreinar hvorum megin fyrst í stað. Á þessu ári og því næsta er áætlað, að lokið verði fyrsta stigi gerðar hraðbrautarinnar. Er það gerð brautarinnar með tveim akreinum frá bæjarmörk- um Reykjavíkur í brekkuna skammt sunnan Kársnesbrautar, Nýbýlavegar, auk tenginga við fyrrgreinda vegi og bráðabirgða tengingu úr eystri akbrautinni í Dalbrekku og vestari brautinni í gamla Hafnarfjarðarveginn. Ennfremur verða byggðar brýr fyrir hraðbrautina yfir Kárs- nesbraut, Nýbýlaveg. Eins og fyrr segir hefur und- irbygging brautarinnar verið boðin út og skal skila tilboðum fyrir 22. maí n.k. Er hér aðallega j um jarðvinnsiu að ræða. Verkið | verður ekki boðið út á erlendum i vettvangi, enda sagði bæjarstjóri, að bæjarstjórn treysti islenzkum aðilum fyrir verkinu og vildi stuðla að eflingu ísl. verktaka. Er áætlað að vinna að eystri hlutanum á þessu ári, en að j þeim vestari á árinu 1969. Þá I verður ennfremur lokið yfir- byggingu brautarinnar og gerðar i brýr í vestari hlutann, en eystri | brúin verður byggð á þessu ári. ! Áætlaður kostnaður við þess- 1 ar framkvæmdir eru áætlaðar 60 j —70 milljónir, en ' gerð allrar j hraðbrautarinnar er ætluð á að i muni kosta um 120 milljónir. Verkfræðiskrifstofa Stefáns j Ólafssonar annaðist könnun j verksins, þ.e. gerð teikninga og | undirbúning að framkvæmdum. Ennfremur hafa verkfræðingarn- ir Guðmundur Magnússon og Theódór Ólafsson unnið við könnuna ásamt Stefáni. Af hálfu bæjarstjórnar Kópa- vogs hefur fjögurra manna nefnd fylgst með framgangi máls ins, bæjarfulltrúarnir Ásgeir Jó hannesson, Björn Einarsson, Sig urður Helgason og Sigurður Grétar Guðmundsson, formaður nefndarinnar. Auk þeirra hefur bæjarverkfræðingur Kópavogs, Ólafur Jensson fylgzt með verk- Telkningin sýnir hvernig framkvæmdum við fyrsta hluta verksins verður hagað við gerð hraðbrautarinnar um Kópa- vog. Myndin sýnir líkan af hraðbrautinni. Bygging brúa yfir þver- vegina. Nýbýlavegur — Kársnesbraut er nýmæli í vegagerð hérlendis. Grumman-flugbátarnir bráölega í notkun — takist samningar við Varnarliðið, segir Pétur Sigurðsson, forstjóri SVO sem getið var í Mbl. á sunnudag hefur dómsmálaráð- herra heimilað Landhelgisgæzl- unni að semja um leigu á tveim- ur flugbátum af svonefndri Grumman Albatros-gerð. Mbl. hefur leitað frekari upplýsinga um þetta mál hjá Pétri Sigurðs- 1. maí kaffi f DAG, 1. maí, verður kaffisala í Iðnó að venju. Er ætíð vel til þess vandað, úrvalsbrauð og kökur á boðstólum. Húsið er op- ið frá kl. 2,30 e. h. Vclhjóli stolið BLÁU vélhjóli, R-1101, sem er Honda 50, árgerð 1966, var stol- ið frá Rauðarárstíg 42 aðfaranótt sl. þriðjudags. Þeir, sem kynnu að geta gefið upplýsingar í málinu, eru beðn- ir að snúa sér til rannsóknarlög- reglunnar. syni, forstjóra, og tjáði hann blaðinu, að málið ætti sér all- langan aðdragana eða hátt á ann- að ár, en virtist nú ekki eiga svo langt í land. Hugmyndina kvað Pétur ein- faldlega vera þá, að endurnýja gæzluflugvélin Sif meðan sölú- verðmæti hennar væri fyrir hendi og þá helzt án þess að leggja út í verulega fjárfestingu. Peningana hyggst Landhelgis- gæzlan spara til þyrlukaupa, en á framtíð þeirra kvað Pétur ekki vera neinn vafa. Gæzlan hefði hins vegar ekki fjárhagslegt og tæknilegt bolmagn í slík kaup, en hann kvað unnið jafnt og þétt að því að svo verði. Gat hann þess, að nýlega hefði einn flug- manna lokið þyrluflugprófi. Páll Halldórsson, flugmaður hjá Landgræðslunni. Pétur Sigurðsson kvað Sif nú vera orðna 25 ára gamla og nú styttist óðum í mikla fiokkunar- viðgerð, sem kosta mun mikið fé. Við þann kostnað vill Land- helgisgæzlan helzt losna og selja vélina áður en til viðgerð- arinnar kemur. Sif er nú eina Skymaster-flugvélin, sem í not- kun er hérlendis, en áður fyrg áttu bæði flugfélögin slíkar flug vélar. Við athugun á hentugum vél- um í staðinn fyrir Sif kom í ljós, að unnt yrði að fá annað hvort keytpa eða leigða tvo sérstak- lega byggða björgunarflugbáta, með hagkvæmum kjörum. Bátar þessir hafa reynzt mjög vel, hafa verið notaðir mjög víða og hafa mikið flugþol. T. d. nota Norðmenn þá mikið til kennsiu og björgunarstarfa. Pétur sagði hins vegar, að hugurinn stæði alltaf til þyrl- anna. Hann gat þess, að nýlega hefði dómsmálaráðherra, Jó- hanni Hafstein gefizt kostur á að reyna Sikorsky-þotu, eT hann var staddur erlendis í sambandi við skírn varðskipsins Ægis. Hefði hann flogið með þyrlu danska flughersins frá björgun- arstöð hersins við Álaborg og sagði Pétur, að sér væri óhætt að fullyrða að áhugi ráðherrans á þyrlumálum Landhelgisgæzl- unnar, hefði sízt minnkað við kynnin af þyrlunni. Pétur gat þess að Landhelgisgæzlan hefði rætt við bæði framleiðendur og notendur þyrla víða um lönd og væri málið ofarlega í baugi inn- an Gæzlunnar nú. Albatrosarnir gætu hins vegar komið fljótlega í gagnið, takist samningar milli varnarliðsins og Landhelgisgæzlunnar. Grumm- an flugbátar hafa oft verið í not- kun hérlendis og eru þeir m.a. þekktir frá Keflavíkurflugvelli, þar sem þeir voru staðsettir til skamms tíma. Þá voru þeir einn- ig notaðir í innanlandsflugi hér fyrr á árum. Pétur Sigurðsson, forstjóri kvað það ekki minnsta kostnað- inn, að með þessu fengi Land- helgisgæzlan í fyrsta sinn tvo flugfarkosti, en iðulega hefur þurft að gripa til að leigja flug- vél. STAKSTEINAR „Strákar, sem hafðir eru til að æfa sig.....“ Stundum grípa þeir, sem í vök eiga að verjast til þess óyndis úrræðis að slá fyrir neðan belti. Þannig segir KB í röklausu og innantómu orðagjálfri um lands prófið í Alþbl. í gær — að gagn rýnendur þess séu áróðursmenn, sem hafa „stundum átt börn sem ekki hafa staðizt prófið ein- hverra hluta vegna.“ Þessa setningu skrifar ekki maður, sem trúir á málstað sinn. Ef umræðurnar um skólamál eiga að staðna í svo ófrjóu sjó- búðatali, sem raun ber vitni í málgagni sjálfs menntamálaráð herra, þarf víst ekki að búast við miklum úrbótum. En auðvitað verður hver og einn að skrifa eins og hann hef- ur vit og drengskap til — einn ig kb. ; Rússar á bak við réttarhöldin Fyrrverandi yfirmaður tékk- nesku leyniþjónustunnar hefur greint frá því, að Stalín sjálfur hafi fyrirskipað hreinsanir með- al tékkneskra kommúnista árið 1952. Einnig hefur hann skýrt frá því, að Mikoyan, fyrrv. for- seti Sovétríkjanna, sá, sem manna lengst stóð af sér valda- baráttuna í Kreml, hafi sinn er- indarekstri fyrir Stalín vegna þessara hreinsana og stappað stál inu í fylgisveina hans í Prag. S Sjálfsmorðalda sú, sem gripið hefur um sig meðal fyrrverandi leiðtoga tékkneska kommúnista- flokksins, sýnir með hvílíku hug arfari þeir líta drýgðar dáðir sínar í þjónustu Stalins og vænt anlega einnig alheimskommúnis- mans. Sú spurning vaknar, hversu langt hinir frjálslyndari vald- hafar í Tékkóslóvakíii muni ganga í því að afhjúpa afrek fyr irrennara sinna í baráttu þeirra við að tryggja sig í sessi. Og einnig, hve langt þeir geta geng ið, áður en tékknesika þjóðin krefst þess, að frumrót þessarar ógæfu hennar, hinu kommúniska þjóðfélagi, verður varpað fyrir róða. Frumleg viðhorf í Timanum í gær birtist ræða er Skúli Guðmundsson, alþing- ismaður, flutti á verkalýðsráð- stefnu. Lýsir hann þar viðhorf- um sinum til verkfalla og bar- áttu fyrir hærri launum. í ræð- unni koma m.a. fram eftirfar- andi viðhorf: „Viðleitni manna yfirleitt bein ist að því að afla sem mestra tekna. Og atvinnutekjur manna þurfa að ná vissri hæð, til þess að þeir geti komizt sæmilega af. Og það er gott að menn hafi miklar tekjur, ef þeir verja þeim til gagns fyrir sig og þjóðfélagið. En takmörk eru fyrir því, hvaða gagn menn liafa af mikium tekjum til per- sónulega nota.“ Grumman Albatros-flugbátur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.