Morgunblaðið - 01.05.1968, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR, 1. MAÍ 1968
y .—--->JRJLA1F/SLAM
Rauðarárstíg 31
S'imi 22-0-22
IVIAGIMUSAR
5KIPHOl,Tl21 SJMAR2H90
eftir Jokun simi 40381 V
1-44-44
5.
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokua 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingálfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sími 14970
Eftir loknn 1497« eða 81748
SigurUur Jónsson.
BÍLALEIGAINI
- VAKUR -
Snndlaugavegi 13. Sími 35135.
Eftir Iokun 34936 og 36217.
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
NÝIR VW 1300
SENDDM
SÍMI 82347
Skolphreinsun
Losa um stífluð niðurfalls
rör. Niðursetningu á brunn-
um. — Smáviðgerðir. Vanir
menn. Sótthreinsum að
verki loknu. — Sími 23146.
Vnrahlutir
í 0PEL
Bremsuhorðar.
Bremsuhlutir.
Oemparar.
Spindilkúlur.
Stýrisendar. ^
Slitboltar.
Rafmagnshlutir.
Kúplingspressur .
Vatnsdælur.
og fleira.
Ávallt fyrirliggjanði úrval
varahluta í flesta bila .
Kristinn Guðnason hf.
Klapparstíg 27 - Sími 12314.
jr Vandlifað eftir
stjörnuspám
Þorsteinn Árnason skrif-
ar:
Heiðraði Veivakandi!
Mikii menningarbót þykir
mér að þvi, að islenzk dagblöð
skuli vera farin að birta stjörnu
spár. Á því leikur enginn vafi,
að afstaða himintungla, vetrar-
brauta og stjarnþokna til fæð-
ingarstaðar okkar á fæðingar-
stundu stjórnar gervöllu Mfi
okkar, þar eð geimgeislar og
þyngdarlögmál aiheimsins
hljóta að hafa afdrifarík áhrif
á starf heilafrumanna og sál-
arlífsins. Okkur eru ásköpuð
örliög, um ieið og við fæðumst,
því að t.d. staða Neptúnusar
gagnvart KarLsvagniuum (og
Venus, ef hún er í alheimsnorð
ur frá hvirfilpunkti gagnstæðs
punkts í jarðmiðju frá Keops-
pýramída reiknað) stjórnar
óhjákvæmilega starfsemi kyn-
ferðislífsins og námslöngunar
fram að landsprófsaldri. (Eftir
það tekur afstaða Örvandiistár
og Pólstjörnu til Sikileyjar
við).
Ég les með áfergju stjömu-
spár dagþlaðanna, en sartt bezt
að segja þykir mér all-vand-
lifað efthr þeim, þar sem þeim
ber ekki nógu vel saman.
^ „Á ég að kaupa
átta kók eða tvær?“
Til dæmis sagði konan
við mig eftir kvöldmat 27.
marz: „Æ, góði skrepptu nú út
í sjoppu og kauptu kók“. Áður
en ég fór út, fór ég að hugsa
um það, hvort ég ætti að kaupa
tvær, sem nægðu okfcur um
kveidið, eða átta, sem mundu
duga í fjögur kveld. Ég leit í
Stjömuspá Vísis og gáði að
nautsmerkinu, en undir) þvi er
ég fæddur. Þar stóð: „Fjármél
og afkoma verða ofarlega á
baugi og dagurinn sæmilegwr
að minnsta kosti til alis konar
verzlunarviðskipta, undirritun-
ar samninga og þess háttar“. —
Bezt að hafa átta og láta skrifa
þær, hugsaði ég. Svo kíkti ég
í stjömuspá Mcrrgunblaðs ins,
svona til vonar og vara, þá brá
mér, því að þar stóð: „Fjárfest-
ingar eru vafasamar í dag og
einhverjar svefiur óhjókvæmi
legar“. Nú, hver skrambinn,
sagði ég uppbátt við sjálfan
mig, en fór síðan inn í her-
bergi dóttur minnar, sem á
danska „pocfcet“-bók með spám
fyrir alH árið 1968. Þar stóð:
„Gættu veskisins vei í dag, því
að ekki er allt sem sýnist í
kringum fjárútlát þin. Hugsan-
legt, að reynt verði að gabba
þig í viðskiptum“. Jæja, þarna
eru þá tvær spár á móti einni,
— það er bezt að kaupa ekki
nema tvær kók. Þegar ég var
kominn í frakkann, sagði ég
fjölskyldunni frá þesisum ólífcu
spám. Son,ur minn brá þá við
og sagðí: Bíddu, meðan ég gái
í blaðið, sem ég er með inni hjá
mér. Það var þá enskt tímarit
fyrir unglinga og stjörnuspá
fyrir tvær vikur á baksáðu. Þar
gaf að lesa (i lauslegri þýð-
ingu): „Hamingjusami nauts-
merkismaður! í dag er heilla-
dagur þinn í hvers konar við-
skiptum. Láttu till skarar
skríða, hikaðu ekki lengur, en
festu kaup á hlutunum, sem
þig hefur lengi langað í! (Auð-
vitað að því lilskiidu, að banka-
bókin ieyfi það!) Koma tímar,
koma ráð! Taktu ákvörðun í
dag!“
Nú var ég orðinn alveg rigl-
aður, og varð það úr, að sonur-
inn var sendur út eftir. fjórum
kókflöskum. (Ég blandaði
mína út í rommglas, til þess
að jafna mig).
★ Vantrúin læðist að
Nú hefi ég að sjálfsogðu
hagað lífi mínu fram að þessu
aS mestu eftir stjörmispám,
þar sem þær eru vísindalega
sannaðar. Þó hefir mér alltaf
þótt dáHtð einkennilegt, að
maður skuli þurfa að lesa sér
til uim þetta í merkum Möðum,
bókum og tímaritum, fyrst lifs-
ráisin er svona örugglega og
óhagganlega ákvörðuð fyrir-
fram. Ætti þetta þá ekki allt
að koma aí sjálfu sér? Nei, það
er betra að vi'ta vissu sína, og
fyrst Kaldear hinir fornu
fundu þetta út, (áður en þeir
fundu hjölbörurnar upp), þá má
treysta þessum spádómum.
ir Er Jeane Dixon
í þjónustu Rússa?
Spáfrú Morgunblaðsins,
hin munnfríða Jeane Dixon,
gengur nokkuð langt í því að
veita Sovétríkjunum hernaðar-
legar upplýsingar. Það er að
segja, hún lætur Rússa vita,
hvað hún veit um uppfinningar
þeirra, og geta þeir að sjálf-
sögðu hagað sér eftir því. Vit-
neskja um vitneskju andstæð-
ingsinis er mikils virði. Til
dæmis ljóstrar hún upp eftir-
farandi vitneskju sína í
Morgunblaðinu 26. marz:
„Rússar taka nú miklum
framförum í notkun rafsegul-
magns í geimferðum. Bylting
eins og sú sem ég sé fyrir hjá
þeim í þessum efnum myndi
færa þá svo mikið framar
Bandaríkjamönnum að það er
vafasamt hvort við næðum
þeiim nokkum tíma. Ég sá
kassa sem er um það bil meter
á kant. í þessum kassa eru
efni sem rafmagn kemst ekki
í gegnum, þau eru ekki leiðari.
Orkugjafinn virðist vera geim-
geislar. Þegar geimgeislarnir
beinast niður og lenda á kasis-
anum setja þeir af stað ein-
hverskonar hreyfingu, sem
veldur efnabreytingum á inni-
haldinu. Við þetta myndast út-
geislun sem breiðist út í „leið-
ara lagið“ á efninu. Það virðist
svo hafa áhrif á upphaflega
geislavirkni efnisins í kasisan-
um og við það myndast stjórn-
anlegur rafsegulskjöldur sem
er nok.kurskonar hrindi'r og
mjög öflugur.
Þennan skjöld geta Rússar
virkjað til geimferða. Ég hef
séð geimgeisla fara með gífur-
legum hraða um himinihvoJtfið.
(Mér sýniist himinihvolfið vera
frábær leiðari fyrir rafmagn).
Geislarnir — ég hef séð þá
hverfa í jörðina — lenda á mis-
munadi þéttum jarðefnum og
sundrast þá í aliar áttir. Um
leið mynda þeir rafsegulskjöld.
Virkjun skjaldarins mun færa
með sér óþrjótandi og ótak-
markaða orku því að nýir og
nýir geimgeislar endurhlaða
hann í sífeltu. Þessir geislar eru
okkur Hfgjafi, þeir eru lífgjaf-
ar öllum hlutum. Ég veit líka
að þegar fram líða tímar munu
vísindarannsóknir sanna að
þessir geislar eða réttara sagt
vöntun á þeim var orsökin fyr-
ir útrýmingu margra lífvera á
löngum liðnum áru-m.
Ég veit ekki hvað þetta Þýð-
ir, en ég vona innilega að við-
komandi yfirvöld geri nauðsyn-
legar ráðstafanir."
Mér finnst alveg hræðilegt
að láta Rússa vita, að við vit-
um um þetta. Er ekki hægt að
gera ei’t'hvað í þessu?
•fc Antikrislur sviðinn
á skutinn
Hins vegar er mér hugg-
un í sjádiómi víðfrægs stjörnu-
prófessors í Kanda (af frönsk-
um zígaunaættum), en hann
segir í nýútkomnu spádóma-
hefti: „Rússar eru með aðstoð
letttnesks gyðings að finna upp
hroðalegt tortímingartæki, sem
getur eyt öllu lífi innan 1630
kikSmetra radíus (geisla) á 1630
sekúndum. Tækið verður senni
lega fulsmíðað í lok febrúars
1973, en við þurfum ekki að
ótlast, því að það springur þá
í höndum þeirra. Upp úr bál-
inu stígur Antikristur, sviðinn
á baki, en þá mun Messías
birtast að nýju og yfirvinna
hann. Þá hefst þúsundáraríkið,
þegar ail'lir lifa í friði, sátt og
samlyndi, og ijónið miun leika
sér v ð lambið í orðanna fyllstu
merkingu".
Ég lifi því í voninni.
Virðingarfyllst,
Þorsteinn Árnason“.
Úrsmiðni Laugavegi 25
Úr — klukkur — gjafavörur
Þar sem verzluninni verður lokað um næstu helgi,
verða allar vörur seldar með miklum afslætti.
Notið tækifærið og gerið góð kaup.
Úrsmiður Laugavegi 25
Ingvar B. Benjamínsson.
TIL SÖLIi I
SAFAMYR
Af sérstökum ástæðum er til sölu glæsileg 7 herbergja sérhæð
ásamt bílskúi- og frágenginni lóð í Safamýri.
Hæðin er 157 ferm. 4 svefnherbergi, húsbóndaherbergi, stofa,
boröstofa, skáli, eldhús, þvottaherbergi (inn af eldhúsi), bað-
herbergi, og gesta WC í forstofu. íbúðin er öll teppalögð og
með harðviðarinnréttingum. í kjallara fylgir hlutdeild í sameiginlegu þvottaherbergi. sérgeymsla og
Fasteignaþjónustan,
Austurstræti 17, 3. hæð, (Silli og Valdi) sími 16870.
Ragnar Tómasson hdl. Stefán J. Richter
Simi 24645 Sími 16870
heima 24493 heima 30587