Morgunblaðið - 05.05.1968, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.05.1968, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAEHÍ), SUNNUt)AGUR 5. MAÍ 1998 * -j===>BIUU£fEJUi TA&MSl* Rauðarárstíg 31 Sími 22-0-22 í MAGNÚSAR skipholti21 símar21190 eftir fokun simi 40381 ■ ^ s'M' 1-44-44 mmw Hverfisgrötu 108. Sími eftir lokua 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald Sími 14970 Eftir lokun 14970 effa 81748 Sigur3ur Jónsson. BÍLALEIGAIM - VAKUR - Sundlaugavegi 12. Simi 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. BÍLALEIGAN AKBRAUT NÝIR VW 1300 SENDUM SlMI 82347 Sbolphreinsun Losa una stífluð niðurfalls rin-. Niðursetningu á brunn- um. — Smáviðgerðir. Vanir menn. Sótthreinsum að verkj loknu. — Sími 23146. Barnnfntnaðnr * a tækilærisverði Nylonúlpur á 1—3 ára. Verð frá 275.— Ungbarnagallar 365.— Stretchbuxur á 1-5 ára 165.— Skriðbuxur 135.— Ódýrir telpnakjólar. Drengjaföt, verð frá kr. 165.— Peysur % úrvali. Náttföt verð frá 125,— Telpnasundbolir. Sumarhattar, frá kr. 65.— Póstsendum. Laugavegi 53. Simi 23622. ★ Unglingar og eyðslufé Björg ívarsdóttir skrifar. „Ágæti Velvakandi, um leið og ég þakka margar góðar lestrarstundir með þér vil ég og þakka hve fljótt og vel þu hefur komið til skila þeim bréf kornum sem ég hef sent frá mér, en því tek ég mér nú penna í hönd, að ég var rétt 1 þessu að lesa ágæta grein í Morgunblaðinu eftir frú Sigur- laugu Bjarnadóttur, hef ég þar engu við að bæta svo prýðileg voru þessi orð frúarinnar, og kem ég þakklæti mínu hér með á framfæri. En hvers vegna er ég þá að skrifa? Jú, eftir lest- ur umræddrar greinar vaknaði hjá mér gömul gremja, sem ég var búin að svæfa, sennilega vegna andvaraleysis. Þetta er atvik sem gerðist um miðjan vetur, en þá bitnaði gremja mín á 13 ára gömlum syni mín- um. Ég ætla mér ekki að koma með neinn reiðilestur núna held ur benda á staðreyndir ef það mætti verða til þess að opna augu foreldra fyrir því að vera vel á verði. Já, fyrst og fremst verða heimilin að vera máttar- stólpi þjóðfélagsins, það er gömul og ný saga, ég vildi margt fleira segja um þau mál, en vegna plássleysis læt ég þetta nægja. Því sný ég mér nú að efni máls þessa sem línum þessum voru ætlaðar. Ég sé það núna að ég verð að telja mér og börnum mínum það til tekna að hafa ekki skipt við fyrirtæki Guðlaugs Bergmanns nema að einu dæmi undanskildu. Ég hef aldrei þurft að borga fyrir neina sektarkennd hvað^ börn- um mínum við kemur. í þetta eina umrædda skipti vantaði drenginn minn bindi ásamt vasa klút í jakkavasa. Eftir að hafa kynnt mér verð á hlutum þess- um lét ég hann fá peninga, en það stóð þannig á heima að ég gat ekki farið með honum enda taldi ég það óþarfa þar sem 13 ára drengur átti í hlut og búið var að ákveða verð og gerð hlutanna. Nú 40 kr. átti hann að fá til baka þegar viðskiptum væri lokið eins var búið að ákveða hvar verzlað skyldi, sem sé í tízkuverzlun- inni Karnabæ. Það er ekki að orðlengja þetta meira, en hann fór og keypti ljómandi fallegt ráutt bindi og vasaklút við, en þar fylgdi böggull skammrifi, í staðinn fyrir 40 kr. sem hann átti að fá til baka kom hann aðeins með 10 kr. hversvegna? Jú, hann keypti tvö ómerki- leg blikkmerki sem hvort um sig kostaði 15 kr. pr. stk. eða alls 30 kr. og á þessum merkjum voru ensk stikkyrði en íslenzka þýðingin var „Ég er tilbúinn" og „Ég er LSD neytandi“ og þeir sem fylgjast eitthvað með unglingavandamálum í dag vita hvað það þýðir. Ekki veit ég hvort unglingar eru farnir að neyta þessara eiturlyfja hér á landi, en hitt veit ég að þessh 3 stafir merkja mikið böl í heim inum í dag, þarna var í það minnsta fyrh auglýsingarbrell- an höfð í frammi við óþrosk- aðan ungling. Það er þetta sem mér finnst svo löðurmannlegur verzlunarmáti. Það er ráðist á garðinn þar sem hann er lægst- ur, því hvergi er betri grund- völlur hjá svona pröngurum en einmitt óþroskaðh unglingarn- h. Auðvitað var þarna vel skipmiögð auglýsingarherferð í verzluninni sjálfri því starfs- fólkið var allt skreytt með , þessum merkjum, og svona skraut gleður augu ungling- anna. Hver ber svo ábyrgðina á þessu, er leyfður gjaldeyrir fyr h svona drasli? Ég reyndi tvisvar að. ná tali af forstjóra fyrirtækisins, en hann var í hvorugt skiptið við, svo ég lét þetta mál niður falla í það sinn. Ég ræddi lengi við dreng inn um gildi peninga og eins að reyna að greina kjarnann frá hisminu, því endurtek ég að það er fyrst og fremst hlut- verk heimilanna að vera á verði. Þetta er kannske ekkert stórmál, en þar liggur hundur- inn grafinn við verðum að kom- ast fyrir meinsemdina strax í upphafi, vera aldrei sofandi á verðinum. Ég hef áður í vel- vakanda minnst á skólabún- inga, undir nafninu húsmóðir, hafa fleiri rætt það mál og ekki sízt unglingarnh sjálfir og er ég enn hlynnt því máli, en auð vitað innan vissra takmarka. Kannske að Guðlaugur Berg- mann vildi taka það mál til at- hugunar, það væri ómaksins vert að reyna að græða á ein- hverju öðru en hrjáðum barns og unglinga sálum. Að lokum þetta, eigum við ekki að taka höndum saman og hlúa að vel- ferð barna okkar, því þó þau séu falleg, greind og þroskuð líkamlega, þá eru þau enn á mótunarstiginu, ráðvillt og ó- hörðnuð, þessvegna þurfa þau traustan bakgrunn og þar er verksvið heimilanna, ég held að þá séu þau líka betur und- h það búin að mæta lífinu með öllum sínum freistingum. Meðal annarra orða hver þarf ekki á trausti og stuðningi að halda. Með fyrirfram þökk fyrir birt- inguna. Björg Ivarsdóttir, Fjölnisveg 9. ★ Hvar er peysan? Mig langar til að koma öðru á framfæri við þig, Velvakandi góður, ef það er pláss fyrir það. Svoleiðis er að drengur, sem ég á, 17 ára, tapaði grárri peysu, handprjónaðri með kaðlamunstri, sennilega í Vals- heimilinu eða á knattspyrnu- velli Fram. Nú erum við bæði búin að auglýsa eftir peysunni og spyrjast fyrir um hana án árangurs. En ef svo vildi til, að einhver, sem læsi þessar lín- ur hefði orðið var við umrædda flík þætti mér vænt um ef hann vildi vera svo góður að hringja í síma 16881, þá verð- ur honum launað fyrir. Vel- vakandi minn, ef þú hefur ekki pláss fyrir þetta kvabb, þá nær það ekki lengra. Sama 'jt' Skítur og matur Hrönn Jónsdóttir skrifar: Gaman hafði ég að heyra í Rafni Díla bónda um dagnin er hann réðist svo harkalega á sóðaskap í sambandi við mat- væli, hér á landi. Einhvernveg- in var frásögnin hálf þoku- kennd og fékk ég aldrei skil- ið hvort maturinn, sem honum fannst svona óframbærilegur, var keyptur hrár eða soðinn eða unninn og á ég þar við pylsur, kjötfars eða bjúgu þeg- ar ég tala um unninn mat. Á þeim 6 árum sem ég hef fengist við matreiðslu hef ég sjaldan eða aldrei orðið vör við mat í búðum sem hægt er að kalla sóðalegan og hef ég þó víða verzlað og búið í mörg- um bæjarhlutum. Það eru þá helzt kartöflur, rófur og fleiri garð ávextir sem eru stundum dálítið moldugir og sviðin eru oft dálítið sótug og svört. Þetta er náttúrulega óskapleg- ur sóðaskgpur í augum sumra manna og ætti að skylda slát- urfélagið til að leggja sviðin í klór eða eitur sóda og láta þá í Grænmetisverzluninni bursta kartöflurnar upp úr ræstidufti. að þreyttar og þjakaðar nútíma húsmæður skuli þurfa að verka þetta sjálfar. Ég skil heldur ekkert í heil- brigðiseftirlitinu að banna ekki annan eins sóðaskap og berjaferðirnar á sumrin. Aldrei er að vita hvar blessaðar roll- urnar gera sín stykki út i guðs grænni náttúrunni og geta menn hæglega orðið fárveikir af tilhugsuninni einni um að hafa farið í berjamó og úðað í sig hráum berjum óvitandi um sóðaskapinn í sauðkindinni. Samt er mér ómögulegt að muna eftir neinum sem látizt hafi af þeim sökum að hafa farið í berjamó eða éta hráa rófu eða gulrót. Hreinlæti í meðferð matar er betra hér en í mörgum stærri og þróaðri löndum og eftirlit með þeim málum mjög gott. Til dæmis er hvert einasta egg hreinsað áður en það kemur á markaðinn og er það engin smá ræðis vinna. En máltækið segir að illt sé að gera svö öllum líki og sumir eru aldrei ánægð- ir með eitt eða neitt. Það líður ekki sá dagur að einhver nöldri ekki yfir enihverju í dálkum Velvakanda . Er ekki mikið betra að safna nöldrinu saman og gefa það út í bók- ar formi til dæmis fyrir jól- in? Efast ég ekki um að það yrði auðseld vara jafnvel vin- sælli en æviminningar og sög- ur Guðrúnar frá Lundi og Ingibjargar Sigurðardóttur. Að síðustu óska ég lesendum gleði- legs sumars og góðrar — berja- sprettu. - PARÍS Framh. af bls. 1 ann samkvæmt tilmælum frá rektor hans, en vinstri sinnaðir stúdentar höfðu efnt þar til fundar í því skyni, að ræða lok un háskólans í Nanterre, en ástæðan fyrir lokuninni var mikil áróðursherferð vinstri sinnaðra stúdenta, sem hætt höfðu að sækja fyrirlestra og höfðu í frammi hótanir gagnvart háskólakennurunum og öðrum stúdentum. Markmið stúdentafundarins í Sorbonne var að hvetja stúd- enta til þess að koma í veg fyr- ir fund, sem aganefnd háskól- ans í Nanterre hyggst halda á mánudaginn kemur. Aganefnd- in hefur ákveðið að kalla fyrir sig foringja vinstri sinnaðra stúdenta, Daniel Cohn-Bendt og fleiri, til þess að þeir geri grein fyrir atferli sínu í Nanterre að undanförnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.