Morgunblaðið - 05.05.1968, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUD'AGUR 5. MAÍ 19G8
19
Safnið, sem bærinn gaf sjálf um sér í afmælisgjöf.
- ESBJERG
Framhald af bls. 14.
with his boots on“, og smeygði
sér því úr fasta stígvélinu sem
hvarf fyrir borð með netinu.
Ahöfnin gat varla stillt sig um
að hlæja en reiði skipstjórans
var svo ógurleg að brosin föln
uðu fljótt. Hann reif hitt stíg-
vélið af sér og grýtti því af
mikih bræði langt út í sjó.
Síðan þrammaði hann inn í
klefa sinn og lét ekki sjá sig
næsta klukkutímann.
En viti menn. í>að fyrsta sem
kom upp þegar þeir byrjuðu
að draga inn netið var útflúr-
að leðurstígvél, ennþá fast í
netinu. Og þá gat ekkert hald-
ið aftur af skipshöfninni, þeir
bókstaflega veinuðu af hlátri.
Og Jespersen gamili fékk aft-
ur tár í augun af hlátri þegar
hann sagði mér söguna.
Því miður varð ég áð yfir-
gefa gamla garpinn fyrr en ég
vildi, því að í hinum enda bæj-
arins beið alþjóðleg sjávaraf-
urðasýning.
Þar kenndi margra grasa og
voru margar sýningardeildir,
m.a. höfðu vinir okkar Fær-
eyingar eina þar sem þeir
sýndu hvemig þeir vinna ým-
islegt sem þeir draga úr sjó.
Þar voru einnig líkön af ný-
móðins fiskiskipum og ýms-
um nýungum á sviði fiskveiða
og fiskileitar. Þar hefur áreið-
anlega verið margt á sjá fyr-
ir íslenzkan sérfræðing í þess-
um efnum, en engan tókst mér
að finna þann stutta tíma sem
ég dvaldist þar.
----o---
Þegar á allt er litið er það
kannski ekki svo einkennilegt
áð Esbjerg skuli hafa svona
mikil hátíðahöld vegna 100 ára
afmælis hafnarinnar. íbúarnir
eru um 75.000, og þar hafa 600
fiskiskip heimahöfn. Auk þess
eru gríðarstórar verksmiðjur
út um allt þannig að mestur
hluti íbúanna byggiir afkornu
sína á hafinu, eins og við Is-
lendingar gerum. Og eins og
á íslandi er ástandið ekki al-
veg eins gott þessa dagana. Af
einhverjum ástæðum er dönsk
• rauðspretta nú orðin svo tii
óseljanleg erlendis. og sala á
öðrum neyzilufiski gengur ekki
vel. Að vísu var síðastliðið ár,
metár hvað snertir veiði fisks
til bræðsJ.u, en eftirspurnin
eftir fiskimjöli og olíu er sem
kunnug't er heldur lítil, og
hvað hefur metveiði að segja
ef afurðirnar seljast ekki. Sjó-
mennirnir eru samt bjartsýnir.
Þeir þek'kja það frá hafinu að
á eftir öldudal kemur öldu-
toppur, og eftir honum bíða
þeir þolinmóðir.
ÓH Tynes.
Gullverðið
39,6 dalir
London, 3. miaí. NTB-AP.
GULL hækkaði um 15 cent í
verði á gullmarkaðnum í
London í dag, og er verðið nú
39.60 dollarar únsan. Gullið
hefur þá hækkað um rúm-
lega 2.90 dollara í verði síðan
4. .apríl, og nemur verðhækk-
unin 93.000 dollurum tonnið.
Þvi hefur verið spáð, að þegar
verðið komist í 40 dollara úns
an reyni spákaupmenn að Iosa
sig við gullbirgðir þaer, sem
þeir hömstruðu þegar gullæð-
ið stóð sem hæst og þá Iækki
verðið aftur í 35 dollara, sem
er hið skráða gengi.
Fjölskyldur
American Field Service á fslandi óskar að komast
í samband við fjölskyldur sem vildu taka að sér
16 ára bandarískan skiptinemanda á tímabilinu
20. júní — 20. ágúst.
Miðað er við að fjölskyldan sé venjuleg íslenzk
fjölskylda, foreldrar bæði orðin 35 ára, unglingur
sé á heimilinu og að skiptinemandinn verði með-
tekinn sem einn af fjölskyldunni og finni að hann
sé velkomnn.
Vinsamlega hafið samband við Jón Steinar Guð-
mundsson, Grundargerði 8, sími 33941 sem fyrst.
Kastæfingar
Útiæfingar eru hafnar fyrir félaga SVFR. þriðju-
dags- og fimmtudagskvöld kl. 8—10 við Rauðavatn.
Fyrir félaga í SVH. fimmtudagskvöld á skólamöl-
inni við lækinn.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur,
Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar.
Kvenskátaskólinn
á Úlfljótsvatni
verður starfræktur í sumar, eins og undanfarin ár.
Dvalartímar verða eftirfarandi:
18. júní — 29. júní fyrir telpur 7—11 ára
1. júlí — 12. júlí — — — —
15. júlí — 26. júíí — — — —
29. júlí — 9. ágúst — — — —
12. ágúst — 23. ágúst — — — —
26. ágúst — 1. sept. — — 12—14 —
Hverri telpu gefst aðeins kostur á dvöl eitt tímabil.
Tekið verður á móti pöntunum á skrifstofu Banda-
lags ísl. skáta, að Tómasarhaga 31, Reykjavík ög
í síma 23190 mánudag 6. maí kl. 2—6 e.h.
Bandalag íslenzkra skáta.
Iðnskólinn í Reykjnvik
Verknámsskóli fyrir þá, sem hyggja á störf í málm-
iðnaði og skyldum greinum, verður starfræktur frá
byrjun september til maíloka næsta skólaár,
Kennsla verður bæði verkleg og bókleg og eftir
því sem aðstæður leyfa, í samræmi við reg'lugerð
um iðnfræðslu frá 15. september 1967.
Bóklega námið miðast við að nemendur ljúki
námsefni 1. og 2. bekkjar iðnskóla á skólaárinu.
Inntökuskilyrði eru að umsækjandi sé fullra
15 ára og hafi lokið miðskólaprófi. — Iðnnáms-
samningur er ekki áskilinn en nemendur, sem þegar
hafa hafið iðnnám og eru á námssamningi er að
sjálfsögðu einnig heimil skólavist.
Skráning nemenda fer fram í skrifstofu skólans
á venjulegum skrifstofutíma, til 24. þ.m. — Innritun
nemenda, sem ætla sér ekki í verknámsskólann,
mun fara fram í ágústmánuði n.k.
SKÓLASTJÓRI.
SUIVfARBIiSTAÐAPLAST-
SALERINII
með eyðingarvökva
Sérstaklega hentug þar sem
vatnslögn er ekki á staðnum.
Laugavegi 15,
sími 1-33-33.
Tilkynning iró
Biireiðaeftirliti ríkisins
Bifreiðaeftirlitið, Borgartúni 7, verður lokað
á laugardögum yfir sumarmánuðina frá maí
til septemberloka. Skoðun fer fram mánu-
daga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9—12
og 13—17. Fimmtudaga kl. 9—12 og 13—
18.30. FöstudÉtga kl. 9—12 og 13—16.30.
Bifreiðaeftirlit ríkisins.
Allir eru þeir vandlátir.
Allir velja jbeir Kóróna-töt
KCj'f^Ö N A ■ KÓRÖNaW K Ó'ÓÓ NaI KÓ'ÓtiNA
HiiliH /-ö t ■ ty-L ■ 1"““«
f /1! I
Kti'ótf)N A ■ KÓtöÖNA| KÖ'ótiN A ■ Kó’ÓtiN A
fú-c ■ - ■ iium 'jHv-t:
l/l/l/l