Morgunblaðið - 11.06.1968, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1968
r—:-------------------—
F Eennaraskóla Islands var í gaer
ISlitið við hátíðlega athöfn í Há-
Bkólabíói. Skólastjórinn dr.
Broddi Jóhannesson ávarpaði
nemendur og afhenti þeim próf-
Skírteini. M.a., sem ávörpuðu
nemendur voru Gylfi Þ. Gíslason
menntamálaráðherra.
| Með skólaslitunum í gær lauk
'tBO. starfsári skólans og um leið
nrðu tímamót í sögu skólans, er
hann í fyrsta sinn útskrifar
gtúdenta.
| Á síðastli'ðnu hausti hófst
Tkennsla í kennaradeild stúdenta
I septemberbyrjun. Þá hófust
námskeið í stærðfræði og eðlis-
tfræði fyrir gagnfræðinga, sem
hugöust setjast í I. bekk skólans.
22. september hófst svo í fyrsta
sinn kennsla í hinni nýju mennta
deild skólans, en nemendurnir,
Hluti nýútskrifaðra kennara úr Kenaraskóla tslands. (Ljósm. Mbl. A. Johnsen).
Fyrstu Ken naraskólastú dentar nir á
60. skólaári Kennaraskóla íslands
- 65 kennarar úr kennaradeild - 26 stúdentar úr
menntadeild - Rætt við tvo nýbakaða stúdenta
sem allir hafa áður lokið al-
mennu kennaraprófi þreyta stúd
entspróf að loknu eins vetrar
námi í deild þessari.
Um mánaðarmótin september
— október hófst síðan kennsla í
öðrum deildum skólans.
Nám hóf alls 671 nemandi og
skiptusit þeir í 27 bekkjardeildir.
Auk þessara föstu bekkjardeilda
skiptust nemendur við nám sitt
og starf í smærri og stærri starfs
hópa eftir því, sem hentast þótti,
má þar til dæmis nefna 16 fyrir-
lestrahópa (2—4 bekkjardeildir í
hverjum), 32 gengi (fámennir
vinnuhópar, sem vinna undir
leiðsögn kennara sinna áð fræði-
legum athugunum, einkum í sam
bandi við kenaraprófsritgerðir í
kennslufræ'ði). 17 flokka í bók-
legum og verklegum kjörgrein-
nm. Einnig var, sem undanfarin
tíir, á vegum skólans fámenn
deild, sem bjó sig undir nám
i framhaldsdeild Bændaskólans á
Hvanneyri.
Við skólann störfuðu á árinu
26 fastir kennara auk skólastjóra.
Stundakennarar voru 54. Lausir
æfingakennarar voru 81.
! Jólapróf var þreytt í öllum
bóklegum deildum skólans dag-
ana 12.—18. desember.
Kennslu lauk 24. apríl í
menntadeild, en 27. apríl í öðr-
um deildum skólans. Vorpróf
hófst 2. maí. II. bekkur lauk
prófum sínum 17. maí, en tók
eftir það þátt í viku vettvangs-
kennslu í náttúrufræði, sem kenn
arar skólans og aðrir kunnáttu-
menn í þeim greinum önnuðust.
Lokaprófum við skólann lauk
6. júná. Próf þreyttu samtals 668
nemendur, þar af 5 utanskóla.
Prófi luku og stóðust 617. 19 eiga
ólokið prófum sökum veikinda
eða af öðrum gildum ástæðum,
32 hafa gengið frá prófi eða fall-
ið, langflestir í I. bekk.
1 kennaradeild stúdenta mættu
til kennaraprófs 67 nemendur, 65
luku og stó'ðust próf, 2 eiga ólok-
ið prófum.
Hæstar einkunnir hlutu:
Júlíana Lárusdóttir Std. B. 8.91
Helga Möller Std. A. 8.60
Anna Trygvadótir Std. A. 8.48
I mentadeild luku 26 nemend-
ur stúdentsprófi.
Hæstar einkunni hlutu:
Guðfinnur P. Sigurfinnsson 8.96
Oddný Eyjólfsdóttir 8.51
Ólafur H. Jóhannesson 8.22
Þórður Helgason 8.22
Meðaleinkunn hjá stúdentum
var 7.52.
Að vonum var létt yfir náms-
fólkinu, þegar það kom út úr Há-
skólabíói þa rsem skólaslitin fóru
fram. Nýstúdentar voru með
hvíta kolla og nýútskrifaðir kenn
arar með svartar húfur. Hjá flest
um nýju kennaranna liggur fyrir
að fara í kennslustarf víðs vegar
um landið, en margir stúdentarn
ir hyggja á framhaldsnám í Há-
skóla íslands og víðar.
Við ræddum við tvo nústúdent
ana, þau Álfheiði Einarsdóttur
úr Reykjavík og Þórólf Magnús-
son frá Eskifir'ði. Við spurðum
þau fyrst að því hvernig vetrar-
starfið hefði gengið hjá fyrsta
árgangi menntadeildar. Álfheið-
ur sagði að það hefði gengið
ágætlega. Það hefði verið farið
eftir ákveðinni námsskrá, sem lá
fyrir samkvæmt þeim kröfum,
sem gerðar eru um stúdentspróf
úr Kenntu’askóla íslands og sag’ði
hún að öll kennsla hefði gengið
samkvæmt áætlun.
Alls voru það 26 stúdentar,
sem útskrifuðust úr Kennaraskól
anum og þar af var einn utan
skóla.
Er við spurðum að því hvort
kennaraskólastúdentspróf væri
hliðstætt öðrum stúdentsprófum
hérlendis svaraði Þórólfur:
„Þessum vetri var ætlað að brúa
það bil, sem er á milli stúdents-
prófs og kennaramenntunar í mis
munandi námsefni og prófið er
kannski helzt hliðstætt máladeild
Nýstúdentarnir: Alfheiður Einarsdóttir og Þórólfur Magnússon.
arstúdentsprófi og veitir t.d. ekki
réttindi til setu x verkfræ’ðideild
Háskóla íslands. Strax í upphafi
skólaárs máttu nemendur velja á
milli latínu og eðlisfræði, en að
öðru leyti höfðu allir sama náms-
efni.“
Alltént eru þó húfurnar eins
sögðum við.
„Já, já“, svaraði Þórólfur bros-
andi, það má líta á prófið og
húfuna, sem aðgöngumiða að Há-
skólanum.
Álfhei'ður brosti dulræðu brosi
þegar við inntum hana eftir þvf
hvort hún ætláði í framhalds-
nám oig sagði: „Já, ég ætla 1
framhaldsnám í Háskólanum
væntanlega, en ég veit ekki enn-
þá hvað verður fyrir valinu. Mig
langar í fornleifafræði, en það er
ekki hægt að læra hana hér,
þess vegna er ég ekki ráðin enn.“
Við spurðum að því hvort flest
ir stúdentar myndu fara í fram-
haldsnám og Álfheiður svaraði
því til að líklega færu flestir í
framhaldsnám, en þó væru nokkr
ir, sem myndu hefja kennslu
strax. Þórólfur brosti til skóla-
systur sinnar og sagði: „Kven-
fólkið er nú fallvalt í þessu eins
og við vitum, þær týnast úr lest-
inni í langskólanámi. En kven-
fólkfð hér á landi lifir líka 5 ár-
um lengur að meðaltali, heldur
en sterka kynið.“
„Að heyra í þér Þórólfur,“ svar
aði Álfheiður, „ég veit nú ekki
betur en að kvenfólkið dugi bezt,
svona yfirleitt.“
Þórólfur sá að hann var kom-
inn út á hála braut og sagði
ekkert, en þegar við spurðum að
þvi hvernig væri að vera í hópi
fyrsta árgangs stúdenta úr Kenn
araskólanum svaraði hann því til
um leið og hann tók ofan hvítu
húfuna áð það væri alveg sér-
sök tilfinning og að sig hefði
alltaf langað til þess að verða
tímamótamaður og lengra komst
hann ekki því að Álfheiður greip
fram í fyrir honum hlæjandi og
sagði honum að hætta nú áður
en það yrði um seinan.
Þórólfur sagðist hafa mikinn
áhuga á þjóðfélagsfræði, en þvl
mfður væri ekki hægt að læra
þau fræði hér heima og þvf
ætlaði hann að lúra á frekari
ákvörðun í sumar.
Álfheiður sagðist vera atvinnu
laus í sumar, en Þórólfur bjóst
við að vinna við sumarbúðastarf
á Austurlandi, ef veður leyfði.
„Prófin voru að vísu erfið,"
sagði Álfheiður, „en fyrirkomu-
lagfð á þeim var mjög vel skipu-
lagt með upplestrardögum á
milli.“
Að síðustu spurðum við þau að
því hvemig félagsstarfið hefði
verið hjá bekknum og Þórólfur
svaraði því til að veturinn hefði
verið sérstaklega skemmtilegur
og bekkj arandinn góður, enda
hefði verið mjög gott samband
á milli nemenda og kennara.
Vfð kvöddum nú þetta hressi-
lega fólk, sem hefur lokið einum
áfanga fyrir átök hversdagslífs-
ins og óskum þeim og skólafélög
um þeirrra allra heilla.
Robert Kennedy
In memoriam
*
Otryggt atvinnuástand
menntaskólanema
Sharp noise
A shadow hits the screen
Deep silence
Our soul bitterly weeping.
Once more
A beloved brother
Killed by Cain’s finger
In hate pulling the trigger
Beware of him
Hiding in your own mind
Lest still worse things
Should happen.
Nor is violence
The way out
Nor emtiness God
In sacrifice seek
Shadows we see
For the sake of the light
So too in grief
God is nearest.
Hvellur hljómur
Skellur skuggi á tjaldl
Djúp þögn
Sál vor sáran grætur
Enn á ný
Ástfólginn bróðir
Féll er fingur Kains
Fullur heiftar gikkinn dró
Varizt hann
I hugarfylgsnum sjálfra ykkar
Að annað en verra
Eigi viiji til
Ekki er ofbeldi
Úrlausn nein
Né tómleiki nokkur Guð
t fórn má finna
Lítum við skugga
Ljóssins vegna
Svo er og Guð
I sorg næstur
Úlfur Ragnarsson
SÍÐARI hluta vetrar var sett á
laggim'ar nefnd í M. R„ sem at-
huga skyldi útlit á atvinnuhorf-
um nemenda skólans í sumar. —
Könnum, sem gerð var nokkru
fyrir próf í vor á vegum nefndar
ininaT leiddi í ljós, að ótryggt
ástand var í atvinnumálum nem-
enda.
Eftir próf tók nefndin til starfa
við atvinnuleit, sem gengið hefur
mjög treglega til þessa. Nefndin
hefur alls staðar mætt miklum
skilningi hjá þeim aðihim, sem
hún hefur leitað til, og kann hún
þeim beztu þakkir fyrir, en
vegna hins slæma ástands á
vinnumarkaðinum yfirleitt, hef-
ur ekki reynzt unnt að leysa úr
atvinnumálum nemenda, nema
að mjög takmörkuðu leyti.
Á atvinnuleysisskrá hjá nefnd.
inni eru 66 nemendur úr 3, 4. og
5. bekk, þ. e. a. s. þeim hluta
nemenda, er þegar hafa lokið
l>rófum, en slæmt ástand mun
ríkja í 6. bekk, vegna þess hve
seint stúdentsprófum lýkur. Af
þessum 60 nemendum eru 18
stúlkur og 42 piltar.
Engum getur dulizt hversu
mikilvægt það er í þjóðfélagi
okkar íslendinga að skólafólk,
sem hyggur á langskólanám geti
unnið sér inn nokkra fjárupphæð
í sumarleyfinu.
Þess vegna viljum við skora á
atvinnurekendur og alla þá, sem
kunna að geta veitt liðveizlu í
þessum efnum að hafa nemendur
Menntaskólans í Reykjavík í
buga, ef þeir þurfa á góðu vinnu-
afli að halda.
Aðsetursstaður nefndarinnar
er í nýbyggingu Menntaskólans
og eru símar hennar 21070 og
16292.
(Fréttatilkynning frá atvinnu-
nefnd Menntaskólans í Rvík).
Stefán Einars-
son prófessor
heiðraður
NOKKRIR vinir, samstarfsmenn
og nemendur prófessors Stefána
Einarssonar í sex þjóðlöndum
hafa gefið út afmælisrit honum
tii heiðuns, en prófessor Stefán
varð sjötugur á sl. ári. Nýlega
hefir háskólarektor afhent pró-
messor Stefáni eintak af ritinu
í umboði höfunda og fordagsins.
í ritið skrifa sextán kunnir fræði
menn, þ.á.m. prófessorarnir Dag
Strömback, Einar Haugen, Ge-
orge Lane, Kemp Ma’lone, Marg
areth Schlauch og Sven B. F.
Jansson.
í ritinu, sem er 196 tíls. að
stærð, er skrá um rit og rit-
gerðir eftir prófessor Stefán Ein
arsson.
(Frá Háskóla íslands).