Morgunblaðið - 11.06.1968, Blaðsíða 30
30
MORCUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 196'8
Akureyringar unnu KR 3-0
og hafa náð traustu forskoti
Kári Árnason skoraði öll mörkin
Akureyringar komu til leiks
við KR á Laugardalsvelli á
sunudag og heim héldu þeir
með verðskuldaðan yfirburða-
sigur 3 mörk gegn 0. Kári Árna
son skoraði öll mörk Akureyr-
ar og var hraði hans eilíftvanda
mál fyrir vörn KR— og það
vopnið sem þeir aldrei réðu við.
Eftir þennan sigur hafa Akur-
eyringar fengið „óska-byrjun“ í
mótinu, þveröfugt við það sem
þeir hafa átt að venjast undan-
farin ár.
Kári Árnason.
Málin taka að líta alvarlega
nt fyrir KR. Liðið sýndi væg
ast sagt mjög slakan leik móti
Akureyringum og verði ekki
allmikil breyting á leik KR-
fatga munu þeir aftur verða í
fallhættu, þrátt fyrir góða
vallaraðstöðu og erlendan
þjálfara frá áramótum.
Byrjun leiksins var einna
bezti kafli hans. Akureyringar
sóttu þegar frá byrjun meS bet-
ur skipulögðum leik, heilsteypt-
ara liði með stuttum sendingum
og einnig nýtingu kantanna.
Fyrsta góða markskotið átti
Eyleifur og Samúel tókst að
bjarga með snarræði eftir að
hafa í fyrstu hálfvarið hið fasta
skot.
Upp úr þessu upphlaupi ná
Akureyringar snöggri sókn sem
endar með því að Valsteinn
vippar knettinum yfir Guðmund
markvörð Pétursson, en mark-
stöngin varð KR til bjargar.
Mörkin.
Leikurinn varð síðan þóf-
kenndari, en alltaf höfðu Akur-
eyringar undirtökin, spiluðu bet
ur, skipulegar og að ákveðnara
marki.
Á 39. mín er gefin langsend-
ing fram yfir vallarmiðju og
Kári brunar á eftir, vinnur
kapphlaup við Þórð Jónsson,
leikur á Guðmund markvörð og
sendir í mannlaust markið.
Þetta var eina mark fyrri hálf
leiks.
í upphafi hins síðari fær
Kári aðra slíka sendingu og hef
ur sent knöttinn framhjá Guð-
mundi markverði. En viljandi
eða óviljandi fær Kári högg í
magann frá Guðmundi. Ekkert
var dæmt, en illa leit þetta út
frá stúkunni séð.
Á 9. mín leikur Steingrímur
upp hægri kantinn, allt að enda
mörkum leikur á tvo varnar
menn og gefur síðan út og fyrir.
Kári nær að skalla í mjög erf-
iðri aðstöðu. Fallegt mark.
Á 17. mín innsigla Akureyring
ar sigur sinn. Upphlaupið hefst
á miðju, þar sem Akureyringar
vinna nokkur návígi. Síðan er
sent út á v. kant til Valsteins
sem leikur nær markinu og gef-
ur fyrir til Kára er skorar sitt
þriðja mark með öryggi ogsnar
ræði.
Sigur Akureyringa var ekki
aðeins verðskuldaður heldur
voru þeir nær því að vinna með
enn meiri mun, en að KR-ingar
að ná marki.
Allan tímann höfðu Akureyr-
ingar betur í spili, náðu oft lag-
legum stuttum þríhyrningssam-
leik, sem oft var þó of þröngur
og rólegur. Útherjarnir áttu
skemmtilegan leik og ógnandi
ekki sízt þar sem hraði Kára
ógnaði svo mjög.
Vörnin var þétt með Jón Stef
ánsson og ekki síður Pétur Sig-
urðsson sem styrkar og öruggar
stoðir. Samúel má sýnilega enn
gæta sín á úthlaupum og stað-
setningum, þó ekki reyndi mikið
á hann nú. Guðni og Magnús
réðu vailarmiðjunni langtímum
saman.
Leikur KR var allur í molum
og skipulagslaus. Slitnaði oft ó-
trúlega í sundur liðið, svo þung
inn varð enginn í sókninni og
mátturinn minni í vörninni. Ein-
staka leikmaður barð'st af
hörku og stundum af meira
kappi en forsjá, en í heild var
liðið sundurlaust og máttlaust.
A.St.
Þessi mynd er frá leik úrvalsins við Schwartz-Weiss á föstu-
daginn. Markvörður Þjóðverja ver hér skemmtilega, en fast er
að honum sótt af Reyni. Markvörðurinn átti sinn þátt í að ó-
sigur Þjóðverja varð ekki stærri.
Valur vann Keflvíkinga
3-0 í kulda og rigningu
VALUR sigraði Keflavík með 3
mörkum gegn engu í leik sem
fram fór í Keflavík gærkvöldi.
Leikurinn var háður í SA-hvass-
viðri og rigningu. Það þarf eng-
inn að búast við góðri knatt-
spyrnu við slíkar aðstæður, en
eins og oft vill verða með óveð-
ursleiki þar sem höfðuskepnurn-
ar leggjast á eitt með að hrella
bæði leikmenn og áhorfendur,
þá bauð þessi leikur upp á mörg
spennandi augnablik.
Forysta Vals
Valsmenn tryggðu sér forystu
þegar á 4. mín. með viðstöðu-
lausu skoti Gunnsteins Skúla-
sonar frá vítateigshorni. Um það
bil mín. síðar voru Keflvíkingar
í sókn og fengu dæmda horn-
spyrnu. Uppgötvaði dómarinn,
Magnús Pétursson, þá að horn-
fánana vantaði og stöðvaði lei'k-
Fimm ferðir til Eyja og
leik enn frestað
Eyjamenn vonsviknir yfir að Fram
kom ekki og að daufheyrst
er við þeirra tillögum
Á sunnudaginn átti að fara
fram leikur í Vestmannaeyjum
milli Eyjamanna og Fram. Fram-
liðið fór aldrei til Eyja ogskeyti
var sent til Eyja um að leiknum
væri frestað. Alls fóru þrjár
flugvélar til Eyja þennan dag
og hefur „fjarvist" Framliðsins
þar, og frestunin gert Eyjamönn
um gramt í geði, svo vægt sé
tekið til orða, og leituðum við
því skýringar hjá báðum aðil-
um.
Árni Njálsson framkv.stjóri
KSÍ sagði okkur söguna þann-
ig:
Fram átti að fara flugleiðis til
Eyja kl 1.30. Frá FÍ er hringt
rétt fyrir eða um kl. 1 og sagt
að ófært sé og farþegar beðnir
að hafa samband við afgreiðslu
FÍ kl. 4 síðdegis.
15-20 mín. síðar er afturhringt
og sagt að nú sé fært og farið
verði kl 2. Ég lét strax í ljós
efasemdir um að takast mætti
að ná til allra og spyr hvað sé
hægt að gera og fæ það svar að
hægt muni að bíða í 15-20 mín.
Allt var sett í gang að ná í
liðsmenn og dómaratríó. K1 2.15
eru allir mættir nema 3-4 leik-
menn Fram og annar línuvarð-
anna. Afgreiðslumanninum er
tilkynnt að þýðingarlaust sé að
nokkur fari ef leikmenn vanti
og bað ég um enn frekari frest
og er enn beðið nokkrar mínút-
ur unz kallað er út í flugvél-
ina. Þegar hér var komið vaint-
aði tvo leikmenn, en upplýsing-
ar voru fengnar um að þeir væru
á leiðinni út á völl.
En vélin fór kl. 2.25 og 10 mín
síðar eru allir mættir.
Þá er spurzt fyrir um aðrar
ferðir og fengnar upplýsingar
um að næsta áætlunarflug sé kl
18.45. Með þeirri vél voru laus
10-12 sæti en um var að ræða
22 sæti (19 Framara og 3 dóm-
ara) Hefði e.t.v. verið hægt að
komast af með 18 sæti, (15 og 3)
en ekki minna. Þegar málið lá
þannig fyrir, og ekki náðist í
neinn Mótanefndanmanna, til-
kynnti ég Fram að leiknum væri
frestað og sendi hraðskeyti til
Eyja um hið sama. Var það und-
irritað „Mótanefnd KSÍ“ og tel
ég rnig sem framkvæmdastjóra
KSÍ, og þá um leið starfsmann
Framhald á bls. 19
inn og þurftu leikmenn að híma
nokkra stund aðgerðarlausir í
óveðrinu þar til úr var bætt.
Keflvíkingar sóttu mikið í fyrri
hálfleik, en skotin vantaði til að
mörkin fengjust.
Á 30. mín. voru nokkur spenn-
andi tækifæri, þegar boltinn
hrökk af Kjartani og Hermann
náði knettinum og átti skot í
stöng.
Á 33. mín tók Magnús Törfa-
son aukaspyrnu. Knötturinn lé i
netinu en dómarinn dæmdi ógilt
vegna rangstöðu.
Um miðjan síðari hálfleik
meiddist Kjartan markvörður
Keflavíkur og kom Skúli Sig-
urðsson inná. Stuttu síðar skor-
aði Hermann annað mark Vals
og rétt fyrir leikslok Skoraði
Framhald á bls. 19
Evrópukeppni landsliða, úrslit:
Ítalía - Júgóslavía, 1 -1
eftir framlengdan leik
heimsmeistararnir góðan leik.
Bobby Charlton skoraði eftir 40
mínútna leik og Geoff Hurst
bætti öðru við eftir 70 mínútur.
Enska liðið sýndi nú prýðis góð
an leik, sem fyrr segir, og mun-
urinn hefði getað orðið meiri.
Dómari var Istvan Zolt frá Ung-
verjalandi.
Italir
sigruðu
í GÆRKVÖLDI léku ítalir og
Júgóslavar aftur tll úrslita um
Evrópubikar landsliða. Ítalía
vann 2-0. Léku ftalir hratt og
áttu frainan af góð færi m.a.
varði markvörður Júgóslava
meistaralega. Mörk ítala komu
á 13. og 31. mín fyrri hálfleiks.
Júgóslavar sóttu mjög í lok
fyrri hálfleiks og allan þann síð-
ari en vöm ítalanna var þétt fyr
ir. Munaði þó mjóu einkum í eitt
skiptið, að Júgóslavar næðu að
skora.
ftalir og Júgóslavar léku til
úrslita í Evrópukeppni Iandsliða
í Rómaborg s.l. laugardag. Jafn-
tefli varð bæði liðin skoruðu eitt
mark. Júgóslavarnir voru mun
hættulegri í sínum sóknarlotum
og áttu jafnframt betri leik. ftal
ir, sem voru án Rivera, misstu
fljótt tökin á miðju vallarins og
sköpuðu „sorglega fá tækifæri
fyrir sína framherja" eins og ít-
ölsku blöðin orðuðu það. Dzajic
skoraði gott mark fyrir Júgósl-
ava á 40. mín.
Það kom í hlut Domenghini
(Inter) að jafna fyrir ítali á
81. mín. Eftir fullan leiktíma (90
mín.) var framlengt í hálftíma,
en hvorugu liðinu tókst að skora
sem fyrr segir. Gottfried Di-
enst (Sviss) dæmdi leikinn og
þótti takast heldur illa upp, og
leikurinn heldur grófur. Dienst
dæmdi úrslitaleik heimsmeistara
keppninnar í Englandi 1966, milli
Þjóðverja og Englendinga. Á-
horfendur voru 90 þús.
Englendingar sigruðu Sovét-
ríkin í keppninni um þriðja sæt-
ið í Evrópu bikarlandsliða á ítal
íu s.l. laugardag með tveimur
mörkum gegn eingu.
Leikurinn var prúðmannlega
og vel leikinn, sérstaklega áttu