Morgunblaðið - 11.06.1968, Blaðsíða 32
jíuÐNINGSWWJN* SEN
esjfíSSSS*" ’3
ER
SÍMI
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNI 1968
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA-SKRIFSTOFA
SÍIVll
4 umferðarslys
FJÖGUR umferðarslys urðu í
borginni í gær, og var þar í þrem
ur tilfellum um að ræða slys á
h.jólandi fólki.
Fyrsta slysið var'ð um kl. 11 í
gærmorgun á gatnamótum Rauð
arárstígs og Miklubrautar. Þar
var fólksbifreið á leið austur
Miklubraut en beygði til vinstri
norður Rauðarárstíg í sama
mund og fullorðinn maður kom
á reiðhjóli vestur Miklubraut.
Lenti hann á hægri hlið fólks-
bifreiðarinnar, og féll í götuna.
Hlaut hann áverka á andliti og
Framhald á bls. 24
Góð aðsókn að
Kjarvalssýningunni
Mynd nr. 16 á sýningunni. — Haustlitir.
HÁTT á fjórða þúsund manns
Wseíðism hafa séð Kjarvallssýninguna „All
ir íslendingar boðnir", sem nú er
Bandarískt stórf yrirtæki hef ur áhuga
á vinnslu perlusteins í Loðmundarfirði
haldin í Listamannaskálanum.
Hefur aðsókn verið mjög góð, að
því er Alfreð Guðmundsson, for
stöðumaður sýningarinnar tjáði
Mbl. í gær, en um helgina komu
um 3000 manns.
Sýningin, sem líklega verður
hin síðasta, er haldin er í Lista-
mannaskálanum, en hann verður
rifinn á næstunni, verður opin
dag hvern frá því kl. 10 til 22.
Jarðfrœðingur þess tór austur og kynnti sér aðstœður
STÓRFYRIRTÆKIÐ Johns-
Manville Ltd. í Bandaríkjunum,
það sama sem selur kísilgúrinn
við Mývatn, hefur nú sýnt á-
huga á svokölluðum perlusteini
í Loðmundarfirði með tilliti til
vinnslu hans og útflutnings. Fyr
ir helgina kom einn af jarðfræð-
ingum fyrirtækisins, Eldon Lom
nes, til landsins og fór með Þor-
leifi Einarssyni, jarðfræðingi,
austur í Loðmundarfjörð til að
skoða perlusteininn í fjallinu og
aðstæður allar og taka af perlu
steininum sýnishorn, sem verða
á næstu vikum efnagreind í
rannsóknarstofum fyrirtækisins
í Bandaríkjunum. Verði tekin
ákvörðun um að halda málinu
áfram, mun fyrirtækið láta bora
á staðnum í ágúst í sumar og
hefur verið leigður kjarnabor til
þess. En með borunum einum er
hægt að kanna magn efnisins
þarna og stærð berggangsins,
sem perlusteininn myndar.
Lomnea jarðfræðingur tjáði
fréttamanni Mbl., sem var með
í ferðinni austur í Loðimindar-
fjörð (og segir frá ferðinni á
bls. 12 í blaðinu), að áhugi fyrir
tækis hans á að athuga hvort
hagkvæmt væri að vinna perlu-
stein í Loðmundarfirði stæði m.
a. í sambandi við það að hægt
sé að flytja hann sem kjöilfestu
í sömu skipum sem hinn létta
kísilgúr. Perlusteinninn er
miklu þyngri og ekki eins verð-
mætur og því dýrt að flytja
hann einan sér. Einnig kaupir
fyrirtækið nú hráefni úr perlu-
steinsnámum í Grikklandi og
flytur til London, en þær nám-
ur gætu verið ótryggar. Aftur á
móti kæmi þar til greina, þó
sjálft hráefnið reynist nægilega
gott og mikið, að hvorki er höfn
né vegársamband við Loðmund-
arfjörð og dýrt vegarstæði með
hlíð fjarðarins til Seyðisfjarðar,
sem sennilega yrði útflutnings-
höfn. Sá háttur er á hafður um
perlustein, að hann er malaður
og síaður áður en hann fer í
skip, en upphitun og endanleg
vinnsla fer fram á ákvörðunar-
stað. Tilbúinn er hann of fyrir-
ferðarmikill og dýr í flutingi.
Mölun og síun færi því fram
hér. En jarðfræðingurinn tók
fram að þetta væru aðeins byrj
unarathuganir hjá fyrirtækinu,
eftir að hafa fengið og efna
greint sýnishorn frá í haust.
Nýtt og myndarlegt
Borgarbókasafn
— verður byggt í nýja miðbœnum
Byrjað er á að teikna nýtt
bókasafnshús fyrir Borgarbóka-
safn Reykjavíkur, en þvi hefur
verið valinn staður í nýja mið-
bænum á mótum Miklubrautar
Háskólaráö veitir 5 millj. til
Félagsstofnunar stúdenta
HÁSKÓLAREKTOR, próf Ár-
mann Snævarr, skýrði frá því í
ræðu í gær, að Háskólaráð hefði
ákveðið að leggja fram til Fé-
Síldveiðisjó-
menn boða
verkfall 18. júní
SJÓMENN á síldveiðiflotan-
um hafa boðað verkfall frá og
með 18. júní hafi ekki samizt við
útgerðarmenn fyrir hann tíma.
Lausir samningar eru við Faxa-
flóa, á Snæfellsnesi, við Suður-
nes og við Eyjafjörð, en ekki á
Vestfjörðum, Austfjörðum og i
Vestmannaeyjum. Verkfallsboð-
unin mun því ná til um það bil
60 hundraðshluta síldveiðiflot-
ans.
lagsstofnunar stúdenta 5 milljón
ir króna aí happdrættisfé til
byggingar félagsheimilis stúd-
enta.
Við athöfn þá, sem efnt var til
í gær, þegar kandídötuim frá Há-
skóla íslands voru veitt bréf sín,
flutti háskólarektor, Ármann
Snævarr ræðu, þar sem hann
s'kýrði frá starfsemi háskólans
og gat hann þess, að Háskólaráð
hefði ákveðið að veita Félags-
stofnun stúdenta 5 milljón króna
styrk af happdrættisfé til að
koma á fót félagheimili stúdenta.
— Þakkaði Höskuldur Þráinsson,
form. Stúdentaráðs, Háskólaráði
fyrir stuðning og velvilja í garð
stúdenta að lokinni ræðu rekt-
ors.
Félagsstofnun stúdenta á ræt-
ur sínar að rekja til samviinnu
Stúdentaráðs, Háskólaráðs og
menntamálaráðuneytis af hálfu
ríkisstjórnarinnar, þessir aðilar
undirbjuggu lagafrumvarp um
stofnunina, sem samþykkt var á
síðasta Alþimgi. Hefur reglugerð
stofnunarinnar nú verið staðfest
og skipað í stjórn hennar, en þar
eiga sæti fimm menn: 3 frá Stúd
netaráði, 1 frá Háskólaráði og 1
frá menmtamálaráðuneytinu. —
Stofnunin hefur það hlutverk að
annast rekstur í þágu stúdenta
og stuðla að framkvæmdum á
því sviði og stjórna þeim.
í fjölda mörg ár hefur verið
rætt um byggingu félagsheimilis
stúdenta sem reist verður við
vesturenda Gamla Garðs. Nokkur
undanfarin ár hefur ríkissjóður
veitt fé til byggingarinnar og hef
ur sú upphæð miðast við milljón
krónur á ári, enda þótt hún hafi
stundum orðið lægri. Byggingar-
framkvæmdir við félagsheimilið
eru ekki hafnar, en verið er að
vinna nauðsynlega undirbúnings.
og Kringlumýrarbrautar. Arki-
tektar eru Gunnlaugur Halldórs
son og Guðmundur Kr. Kristins
son.
Sérstök nefnd skipuð af borg
arstjóra hefur gert tillögur og
áætlun um þetta nýja hús fyrir
aðalsafn Borgarbókasafnsins.
Leggur hún til að húsið verði
reist í þremur áföngum, en end-
anleg stærð hússins er um 4000
ferm. Og nefndin leggur til að
fyrsti áfangi 2000 ferm., verði
Framhald á bls. 24
Helga Bachmann með silfurlamp
ann í gærkvöldi. — Ljósm. Kr.
4(Ben.
Helga Bachmann
hlaut silfurlampann
HELGA Bachmann, leikkona,
hlaut silfurlampann í ár — verð-
laun leiklistargagnrýnenda dag-
blaðanna. Helga hlaut 675 stig af
700 mögulegum fyrir hlutverk
Heddu Gabler í samnefndu leik-
riti Ibsens.
Næstflest sig hlaut Kristbjörg
Kjeld, 475 stig fyrir hlutverkið
Normu í „Vér morðingjar" eftir
Guðmund Kamban og Violu í
„Þrettándakvöldi" eftir Shake-
speare.
Þorsteinn Ö. Stephensen fékk
þriðju hæstu stigatöluna, 175
stig fyrir hlutvekið Davíð í
„Sumarið 37“ eftir Jökul Jakobs-
son.
Fjórði hæsti að stigatölu var
Jón Sigurbjörnsson, 100 stig.
Hlaut hann þau fyrir leik sinn
sem assessor Brack í „Heddu
Gabler“.
50 stig hlutu: Robert Arnfinns
son fyrir leik sinn sem Jón Hregg
viðsson í fslandsklukkunni,
Valdimar Helgason fyrir leik
sinn sem Jón varðmaður í ís-
landsklukkunni og Guðmundur
Pálsson fyrir leik sinn sem Mad-
sen í Leynimel 13.
Þetta er í annað sinn, sem ís-
lenzk leikkona hlýtur silfurlamp
ann. Áður hlaut Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir lampann — árið
1061. Það var fyrir hlutverkið
Elísu Gans í „Engill horfðu
heim“ eftir Thomas Wolfe.