Morgunblaðið - 19.07.1968, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1968
iÞAÐ var skömmu fyrir norr-
æna vinabæjamótið í Kefla-
vík að áhugi nokkurra manna
vaknaði fyrir því, að gefa for-
seta bæjarstjórnar Keflavík-
ur — hver sem hann verður
hverju sinni — sitt fagurbúna
einkennismerki.
Jóhann Ellerup apótekari
hafði um það alla forustu, svo
Bankastofnanir í Keflavík
og nokkur önnur fyrirtæki
stóðu að þessari gjöf.
Á einum bæjarstjórnarfundi
fyrir stuttu síðan, komu þeir
Jóhann Ellerup og Guðmund-
ur Guðmundsson, sparisjóðs-
stjóri í heimsókn og afhentu
keðjuna og lögðu hana um
herðar núverandi forseta
bæjarstjórnar, Alfreðs Gísla-
sonar bæjarfógeta.
Gripur þessi er hinn vegleg
asti í alla staði og á eftir að
einkenna forseta bæjarstjórn-
ar Keflavíkur, hver sem
hann kann að verða hverju
sinni.
Bankarnir, og þeir aðrir,
sem að þessu stóðu, eiga mikl
ar þaikkir skilið fyrir hugul-
semi þeirra og háttvísi. Þegar
tímar líða verður þess minnzt
með þakklæti og virðingu,
um hvers háls keðjan kann að
verða hverju sinni.
Á norræna vinabæjarmót-
inu skartaði forseti bæjar-
stjórnar með keðjunni og
þótti öllum vel til fallið.
— Það er ekki mitt að bera
fram frekari þakkir til gef-
enda, nema sem einn úr hópn
um, en þessi veglegi gripur
verður seint fullþakkaður, því
hann á eftir að verða sómi
Keflavíkur — og minning um
árið, sem hann kom — í júlí
1968. —hsj—
sem hans var von og vísa.
Niðurstaðan varð sú, að nú
er komin forkunnarfögur silf-
urkeðja, sem verður í fram-
tíðinni einkennismerki for-
seta bæjarstjórnar Keflavík-
ur. Keðja þessi er handunnin
úr silfri og bæjarmerki Kefla-
víkur er unnið í emaleringu
og mjög fallegt áferðar.
Alfreð Gíslason, bæjarfógeti, tekur við keðjunni úr hendi
Guðmundar Guðmundssonar, sparisjóðsstjóra.
Forsetakeðjan,
Erlendur Jónsson
skrifar um
BÓKMENNTIR
fSLAND f MYNDUM
Samivel: GOLDEN ICE-
LAND. 307 bls. Almenna
bókafélagið. Reykjavík, 1968.
ÍSLANDSBÓK Samivels, sem Al-
menna bókafélagið hefur nú sent
á markaðinn í enskri þýðing
Magnúsar Magnússonar, er fall-
eg bók og vegleg. Að meiri hluta
er þetta myndabók, er hefst þó
á hundrað blaðsíðna samfelldum
texta. Það er ekki ferðasaga, eins
og maður kynni að ætla, heldur
sagnfræðilegar staðreyndir og
hugleiðingar höfundarins um
þau efni. Sagt er frá siglingum
fornþjóða um Norðurhöf, þar á
meðal frá sjóferð Pyþeasar frá
Massilíu, sem var þá grísk ný-
lenduborg á Miðjarðarhafs-
strönd, en heitir nú, eins og
kunnugt er, Marseilles. Sumir
fræðimenn hallast að því að Py-
þeas frá Massílíu hafi fyrstur
manna litið augum þetta land
okkar, sem löngu síðar nefndist
ísland. Það hefur þá gerzt framt
að hálfri fjórðu öld fyrir Krists
burð. Pyþeas getur með dálitlum
rétti talizt hafa verið Frakki —
eins og höfundur bókarinnar.
Þá segir frá víkingaferðum
norrænna manna, fundi íslands
og- landnámi og fyrstu byggð,
uppruna íslenzks þjóðfélags, ís-
lenzkri fornmenning og fleira.
Höfundur hefur aflað sér mik-
ils fróðleiks um efnið, sem hann
síðan færir í laglegan búning
með ijóðrænu ívafi frá sjálfum
sér. Hann tilreiðir hin gömlu
fræði aðgengilega fyrir ókunn-
uga. Frá mörgu hverju segir
hann prýðisvel í stuttu og gagn-
orðu máli. Við mundum að vísu
segja sumt á annan veg. En það
er annað mál.
Samivel hefur mætur á efni
sínu. Viðhorf hans eru jákvæð.
Hann skrifar af talsverðri inn-
lifun og kunnugleika. Og velviid
hans til íslands má lesa milli lín-
anna.
Hann freistast lítt til að magna
efni sitt með ýkjum. Þó finnst
mér of djúpt í árinni tekið, að
íslenzki veturinn sé samfelld sex
mánaða nótt. Sú staðhæfing er
margendurtekin. Lí'klega ætlast
höfndur ekki til, að hún sé skil-
in mjög bókstaflega. Annars er
það nú einhvern veginn svo, að
mörgum manninum, sem á ann-
að borð gerir sér grein fyrir
löndum, finnst einhvern veginn
eins og ísland liggi norðar en það
er — ef til vill vegna gráðu-
bauganna á Evrópukortinu, sem
færa miðjuna niður, en endana
upp, þannig að ísland getur fljótt
á 'litið virzt vera á sömu norð-
lægri breidd og nyrzti hluti Nor-
egs. Má þá vera, að einhverjir
átti sig ekki á því, að sá sem
t.d. siglir frá Vestmannaeyjum
til Þrándheims í Noregi, stefnir
beint í austur, þó strikið á venju
legu korti vísi niður á við, og, að
Bodö í Norður-Noregi er norðar
en Kolbeinsey, sem í vitund okk-
ar þrumir þó norðar en allt, sem
norðlægt er.
Sífellt brennur fyrir brjóstinu
á okkur, hversu er’lendar þjóðir
gera sér jafnan rýrari hugmynd
um ísland en efni standa til,
enda þó okkur þyki lítt frá smæð
inni dragandi. En staðreynd er
það, engu síður, að margir út-
lendingar álíta, að hér sé aðeins
örfátæk veiðistöð á lítilli Nifl-
heimsey, þar sem fáeinir fiski-
menn dragi fram þægindasnautt
og frumstætt líf og fylgist tak-
markað með því, sem gerist í
veröldinni, eða, eins og segir í
kápuauglýsingu Golden Iceland:
„Hvaða hugmynd vekur nafnið
,ísland‘ með allt of mörgum Evr-
ópubúum? Að það sé lítil eyja,
hrjóstrug og liflaus, djúpt grafin
einhvers staðar í isþoku heim-
skautsins ..."
Ef til vill á það við fleiri lönd,
að heimurinn geri sér ranga og
óljósa hugmynd um þau. Land-
fræðilega séð er ísland útkjálki.
Margfaldaðar samgöngur hafa
litlu .breytt í þeim efnum, enn
sem komið er.
Við spyrjum því í hvert sinn,
er fréttist, að á leiðinni sé bók
eins og þessi íslandsbók Sami-
vels: hefur hún kynningargildi
fyrir o’kkur? Skrifi útíendingur
um ísland af litlum skilningi,
háði og spotti (eins og einn landi
Samivels skrifaði fyrir nokkrum
árum), fyllumst við réttlátri
reiði. En skrifi hann vel um okk-
ur, lofi okkur og prísi, verðum
við harla ánægð.
Engin bók er alveg á'hrifalaus,
þó ein bók hafi lítil áhrif í ver-
öldinni. Allar bækur, sem skrif-
aðar eru um ísland fela því í sér
einhverja land'kynning, hvort
sem þær teljast góðar eða vond-
ar.
í bók Samivels er íslandi nú-
tímans lýst í myndum og stutt-
um skýringartextum, sem prent-
aðir eru í einu lagi á eftir mynd-
unum. Ég leiði hjá mér að ræða
um myndirnar frá faglegu sjón-
armiði. En óhikað má telja, að
þær veiti allglögga hugmynd
um landið og þjóðina, að svo
miklu leyti sem hægt er að lýsa
landi og þjóð með myndum.
Samivel kynnir landið líkt því,
sem það kemur okkur heima-
mönnum fyrir sjónir, hvorki
fegrar það né lýtir. Ljósmyndar-
ar hans fara ekki að dæmi sumra
íslenzkra póstkortaljósmyndara,
sem troða sér inn í kjarrið í
Tjarnargarðinum til að Ijós-
mynda 'Háskólann gegnum lauf-
þykknið, svo því virðulega húsi
sýnist hafa snjóað niður í frum-
skógi.
Samivel dregur ekki fjöður
yfir íslands miklu auðn, sem
okkur þykir svo sem nógu hrika-
leg — hvað mun þá útlendingum
finnast, sem hafa kannski aldrei
fyrr komið til staðar, þar sem
ekki sér hús og menn og tré,
hvert sem litið er. Myndir Sami-
vels sýna fyrst og fremst landið,
en lí'ka breidd þjóðlífsins, líf og
starf þjóðarinnar í dagsins önn,
víða með landið að baksviði.
Golden Iceland er bók, sem
hægt er að mæla með. Að vísu
mun hún ekki leiðrétta rangar
hugmyndir heimsins um Island;
litlu breyta í þeim efnum. Hún
er ekki nema dropi í þann 'haf-
sjó upþlýsinga og auglýsingar,
sem steypa þyrfti yfir veröldina,
áður en hinn dæmigerði meðal-
maður í heiminum fengi loks þá
hugmynd um ísland, sem við
teldum sæmilega rétta.
Ef til villl gerist það aldrei.
En rit Samivels er auðvitað jafn
góðra gjalda vert, þó ekki sé tal-
að um það gagn, sem við kunn-
um að hafa af slíku riti.
Bókin Golden Iceland er prent-
uð í Frakklandi eins og frum-
útgáfan, en hún hlaut þar sér-
staka viðunkenning fyrir fagurt
útlit. Um þýðing Magnúsar
Magnússonar treystist ég lítt til
að dæma að öðru leyti en því, að
mér þykir hið enska heiti bók-
arinnar óheppilegt. Fáeinar prent
villur hnaut ég um.
Erlendur Jónsson.
lípjO^ Allar
gerdir
Myndamóta
Fyrir auglýsingar
Bcekur og timarit
Litprentun
Minnkum og Stcekkum
OPÍÐ frá kl. 8-22
MYJVÐAMÓT hf.
simi 17152
MORGUNBLADSHUSINU
Til leigu
5 herb. íbúð við Bergstaðastræti. íbúðin er laus strax.
Leigist til haustsins.
6 herb. íbúð í fjölsbýlishúsi við Fellsmúla.
íbúðin verður laus 1. ágúst.
Málflufnings og
fasfeignasfofa
t Agnar Gústafsson, hrl. j
Björn Pétursson
fasteignaviðskip ti
Austurstræti 14.
i Simar 22870 — 21750. j
Utan skrifstofutíma:
35455 —