Morgunblaðið - 19.07.1968, Page 15
15
MORGUNBLAÐIÐ, POSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1968
LAND HÖRMUNGANNA
Milljónir munu deyja
fyrir ágústlok berist
ekki aukin hjálp
eins einkennisbúningfum. Hér sést skæruliðasveit í rakamett-
Eina vonin er vopnahlé og hugs
anleg stjórnmálaleg lausn, sem
fylgdi í kjölfar þess. En horf-
ur á þessu sviði eru síður en
svo bjartar. Biafrastjórn hvatti
10. júli til þess enn einu sinni,
að samið yrði um vopnahlé taf
arlaust, og sáttasemjari yrði
fenginn til þess að stjórna
samningaviðræðum milli henn
ar og stjórnarinnar í Lagos.
Jafnframt staðfesti Biafra-
stjórn, að tafarlaust vopnahlé
væri eina ráðið til þjargar
h-undruðum þúsunda m-annslífa
og til lausnar flóttamanna-
vand-amiálinu, sem er geigvæn-
legt.
Sambandsstjórnin í Lagos
krefst þess bins vegar, að Bi-
aframenn láti af kröfum sínum
um sjálfstæði, jafnvel áður en
til vopnahlés kemur, en Biafra
menn hafa neitað og neita enn
að koma til viðræðna á þess-
um grundvelh. Auðskilið er, að
Biaframenn vilji ekki fórna
sjálfstæði sínu, áður en'til við-
ræðna kemur. en þeir geta ekki
búizt við að halda því, þegar
rætt er um heildarlausn vanda-
málsins. Stjórnin í Lagos getur
ekki á hinn bóginn búiz' við
því að ná sæ' tum við fólk, sem
hún hefur kúgað í grimmdar-
legu borgarastríði, án pess að
hún bjóði þeim jafnframl land
til að lifa í, sem hún af heimsku
sinni svipti það fyrir 18 mán-
uðum, þegar hún ætlaði að
skipta landin í í 12 ríki.
Grundvallar þörf er á því að
tryggja líf op limi Iboa í fram-
tíðinni og finna einhverja leið
til þess. Einnig verður I.agos-
stjórnin að milda afstöðu sína
til framtíðarlandamæra Ibo-rik-
is innan sambandsríkisms Níg
eríu. Eins og fram hefur kom-
ið nær Biafra yfir þrju ríki,
þegar Nígeríu hefur verið r-kipt
í tólf sambandsríki, eins og
Gowon og stjórn hans lögðu
til. Sérstakar ráðstafanir eru
nauðsynlegar til þess að
tryggja framtíð Port Harcourt,
en íbúar hafnarborgarinnar
telja sig til Iboa, enda þótt
borgin standi sögulega séð utan
þess landsvæðis, þar sem þeir
eru fjölmennastir.
Utan framangreindra vanda-
mála er sá meginvandi, að fá
Iboana í sem ríkustum mæli til
þess að laga sig aftur að da.g-
legu lífi í Nígeríu. án þess að
biðja þá um að stofna iífi s'nu
í hættu vegna nýs kynþátta-
stríðs. Aðeins á þann hátt verð-
ur fundin framtíðarlausn á
vandamálunum. Er til of mil ils
ætlast að vænta þess, að stjórn-
in í Lagos hafi öðlazt þá vizku,
að veita sigraðri þjóð það. sem
hún vildi ekki veita henni, á
meðan hún var ósigruð?
¥ ¥ ¥
Minna hefur verið ritað um
styrjöldina ’ Nígeríu og hörii -
ungarnar í Biafra heidur en
aðra atburði eins og til dæmis
styrjöldina i Víetnam. Skvring-
in á því felst líklega ? þeirri
staðreynd, að stórveldin eiga
þar ekki hlut að máli og styrj-
öldin í Nígeríu hefur ekki snert
deilumál þessara ríkja eim og
stríðið í Víetnam. Sem dæmi um
viðbrögð kommúnista við skrif-
um um stríðið í Nígeríu eru
skrifin í íslenzka kommun-
istamálgagninu, sem hafa ein-
Hermenn Biafra klæðast ekki
uðuni frumskógi.
kennzt af fullyrðingum um það,
að með því að vekja athygii á
stríðinu sé verið að slæva á-
huga fólks á stríðinu x Vict-
nam og fela „þjóðarmorð“
Bandaríkjamanna þar.
Sem dæmi um áhugaleysi
heimsins á hörmungunum í Bi-
afra má nefna þá staðreynd, að
Rauði krossinn sendi í apxíl
hjálparbeiðni til allra san-
bandsfélaganna í hinum ýmsu
löndum heims, en hinn 1. júlí
s.l. höfðu aðeins 19 þjóðir svar-
að hjálparbeiðninni. Framlag
brezka Rauða krossins nam þá
979 sterlingspundum, en banda-
ríski Rauði krossinn hafði
ekki 'einu sinni svarað boiðn-
inni.
Bretar eru flæktir inn í
styrjöldina í Nígeríu. Að
nokkru leyti má rekja haua til
þeirrar ákvörðunar embættis-
manna í nýlendustjórn brezka
heimsveldisins þess efnis, að x
Nígeríu skyldi stofnað eitt ríki
án tillits til þeirra kynþáita,
sem landið byggja. Bretar v.'rð-
ast fremur hliðhollir sambands-
stjórninni í Lagos og hafa að
nokkru lagt henni lið, en vegna
þessa hefur Ojukwu, ofursti, f.ít
ar en einu sinni ráðist harka-
lega að brezku verkamarna-
flokksstjórninni og sakað hana
um hlutdeild í þjóðarmorðina í
Biafra. Þá hafa Sovétríkin ’agt
Lagos-stjórninni eitthvert iið,
meðal annars látið henni í té
flugvélar. Jafnframt þessu
styðja Egyptar sambandsstjórn-
ina, þar sem leiðtogar hennar
eru flestir múhameðstrúar og
hafa egypzkir flugmenn flogið í
árásarferðir til Biafra. Indversk
ir flugmenn hafa einnig tekxð
þátt í slíkum ferðum.
Lýðveldið Biafra hef"r ver-
ið viðurkennt af fjórum Afriku
ríkjum, en þau eru Tanzania,
Gabon, Fílabeinsströndin og
Zambía. Höfuðstöðvar Biafra
manna í Evrópu hafa vexið í
Lissabon í Portúgal og þaðan
fluttu þeir í upphafi vopn og
vistir til hers síns. Þá er tsl-
ið, að Frakkar hafi veitt Biafra
mönnum stuðning, en áhugi
Frakka á hinum auðugu olíu-
lindum í Austurhéraðinu mun
ráða nokkru um þá afstöðu.
Einnig má telja fullvíst, að Bi-
aframenn njóti stuðnings frá
Kína, en leiðtogarnir í Peking
leggja sig mjög fram xxm að
efla áhrif sín í Afríku.
Biaframenn reka öfluga
fréttastofu í Genf, sem hof starf
semi sína 15. janúar s.l. Frétta-
stofan hefur sent frá sér 225
fréttatilkynningar frá brí hun
hóf starfsemi sína og hún sk’pu
leggur ferðir fréttam-xnna til
Biafra. Fréttastofan nefnist
„Markpress" og veitir banda-
rískur auglýsingamaður, WiJli-
am Bernhardt, henni forstöðu.
Meðal frétta sem þaðan hafa
verið sendar var ein 16. maí,
þar sem skýrt var frá því, að
Biaframenn hefðu drepið 260
brezka hermenn úr hópi 6x)0
manna, sem brezka stjórnin heí
ur verið sökuð um að hafa lán-
áð sambandsstjórn Nígeríu, áð-
ur en ráðizt var inn í Port Har-
court.
Áhugi Bandaríkjamanna á
styrjöldinni í Nígeríu virðist
takmarkaður, eins og kemur e.
t.v. bezt fram í viðbrögðum
bandaríska Rauða krossins við
hjálparbeiðninni til hans.
Á Norðurlöndum hefur áhugi
manna á hörmungunum í Biafra
farið vaxandi og þar hafa saín
azt vistir matvæla og annars,
sem sent er áleiðis til 3iafra,
enda þótt treglega gangi að
koma því til skila vegna þver-
móðskunnar og stoltsins, sein
enn ríkir meðal leiðtoga hinna
stríðandi kynþátta.
BjöB.
Varlega áætlað er talið, að 4 milljónir flóttamaxxna séu í Bi-
afra, þeirra á meðal eru 1,8 milljón Iboar, sem flúðu úr Norð
urhéraðinu 1966. Forstöðumenn hjálparstofnana telja hörm-
ungamar í Nígeríu hinar mestu nokkurs staðar síðan heims-
styrjöldinni lauk.
Kortið sýnir Austurhéraðið, eins og sambandsstjómin í Lagos
vill, að því verði skipt i þrjú smærri ríki. Skyggði hlutinn
sýnir landssvæði það, sem Biaframenn ráða nú yfir.