Morgunblaðið - 19.07.1968, Síða 27
MORGUN’BLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1968
27
Menntamálaráðherra-
fundur Norðurlanda
— hefst i Reykjavík í dag
- TÉKKÓSLÓVAKÍA
Framhald af bls. 1
í kvöld eftir að orðsending
forsætisnefndarinnar var birt
og sagði, að flokkur hans
væri staðráðinn í að halda
fast við núverandi stefnu
sína. Hann sagði, að flokkur-
inn óskaði að skapa sósial-
isma, sem ekki hefði glatað
mannlegum eiginleikum, og
hann væri ákveðinn í að
hvika ekki frá þeirri stefnu,
sem mótuð hefði verið í janú
ar á þessu ári og nyti stuðn-
ings tékknesku þjóðarinnar.
Þjóðin vildi halda áfram
breytingum í lýðræðisátt og
væri frábitin því að taka
aftur upp fyrri stjórnarháttu.
Dubcek skoraði á tékknesku
þjóðina að sýna flokksforyst
unni fullan samstarfsvilja til að
takast mætti að koma á þeim
breytingum, sem æskilegar væru
og nauðsynlegar. Dubcek sagði,
að það hefði orðið Tékkóslóv-
akiu dýrt að taka ákvarðanir án
þess að leita álits og vilja þjóð
arinnar. Almenningur hefði ver-
ið óánægður með fyrri foringja,
og eftir langar og erfiðar raun-
ir gæti nú hver tékkneskur borg
ari sagt skoðun sína á hrein-
skilinn og sæmandi hátt, enda
væri flokkurinn að öðlast traust
fólksins á ný. Það er fásinna,
sagði Dubcek, að halda að við
getum sigrast á öllum vandræð-
um án þess að gera skyssur, en
við finnum það öll að breyting-
ar til hins betra eru hafnar. Eng
Inn getur betur dæmt um þarfir
tékknesku þjóðarinnar en komm
únistaflokkurinn, og við mununi
ekki víkja hársbreidd frá yfir-
lýstri stefnu okkar.
Dubcek sagði að Tékkar væru
þakklátir stuðningi frá öllum
bræðraflokkum og þeir hefðu
engan áhuga á að þröngva skoð
unum upp á þá. Ef það væri
reynt hefðu Tékkar svikið eigin
kenningar um að hver einstakur
flokkur eigi að móta sína stefnu
og afstöðu. „Við óskum þess að
sósíalisminn nái að skjóta djúp-
um rótum í landi okkar, sá
sósialismi sem skírskotar til sam
vizku þjóðarinnar. Það sem við
þörfnumst nú er stuðningur og
traust almennings í landinu,"
sagði Dubcek að lokum.
Bréfið sem kommúnistaflokkar
nir fimm, þ.e. flokkar Sovétríkj-
anna, A-Þýzkalands, Póllands,
Ungverjalands og Búlgaríu
aendu, var birt opinberlega í
dag. Þar segir m.a. að fulltrúar
nir hafi áhyggjur af þeirri þró-
un mála, sem hafi orðið í Tékkó
slóvakíu, en þeir hafi ekki lagt
til að gripið verði til þess ráðs
að hlutast til um þau mál, þar
sem réttur hvers einstaks komm
únistalands um að ráða málum
sínum sé virtur.
Á hinn bóginn geti flokkarnir
ekki leyft, að utanaðkomandi öfl
beini bræðraþjóðum af brautum
kommúnismans og stundi hreina
andbyltingu og veki upp þá
hættu, að Tékkóslóvakía fjar-
lægist bræðrabönd kommúnism-
ans. Þetta sé ekki einkamál
Tékka, heldur snerti hvern ein-
stakan kommúnistaflokk og
hvert ríki, sem tengd séu vin-
áttu og hugsjónaböndum. Minnt
er á þýðingu Varsjárbandalags-
ins fyrir sjálfstæði, öryggi og
frið í Evrópu, og ennfremur seg-
ir að aldrei verði leyft, að ónýtt
ur verði sá árangur sem komm-
únisminn hafi náð. Það verði
aldrei leyft, að heimsvaldasinn-
ar fái komið því til leiðar —
hvort sem það yrði með friðsam-
legu móti eða ekki — að mis-
klíð kæmi upp á meðal kommún-
istaflokkanna, og breyti valda-
jafnvægi Evrópu sér í hag. Þá
er í bréfinu gefið í skyn, að
heillavænlegast væri að taka
aftur upp vandlegt eftirlit með
blöðum og öðrum fjölmiðlunar-
tækjum.
Nokkru eftir að bréf þetta
hafði verið birt, sendi svo for-
sætisnefndin frá sér orðsendingu
eins og getið er fyrr í frétt-
tomi. Þar segir m.a. að það mundi
koma aif stað alvarlegum átökum
í Tékkóislóvakíu,ef aftur yrðu
teknir upp stjórnarhættir Stal-
ínstímans. Þá mundi meirihluti
þjóðarinnar rísa upp öndverður,
ekki aðeins félagar í kommún-
istaflokknum, heldur einnig
verkamenn, bændur og mennta-
menn. f orðsendingunni neitar
forsætisnefndin því harðlega, að
hér sé um „andbyltingarstarfs-
semi“ að ræða og segist ekkisjá
neinn raunhæfan grundvöll fyr
ir slíkri fullyrðingu. Þá er því
og visað á bug að Tékkar hafi
í hyggju að breyta utanríkis-
stefnu sinni. Ennfremur segir,
að Tékkar séu reiðubúnir til
beinna viðræðna við fulltrúa
annarra kommúnistaflokka, en
á hinn bóginn ætli flokksforyst
an sér að sanna, að unnt sé að
stjórna án skriffinnskuveldis
og lögregluaga. Mest er um vert
að flokkurinn eigi stuðning þjóð
arinnar, segir í tilkynningunni.
Niðurstöður opinberrar skoð-
anakönnunar, sem voru birtar í
Prag í dag, sýndi að mikill meiri
hluti tékknesku þjóðarinnar
stendur með flokksleiðtoganum
Dubcek og 91% þeirra, sem
spurðir voru vildu að hersveit-
ir Sovétríkjanna héldu tafar-
laust af tékknesku landi.
Samkvæmt fréttum AP og
NTB fréttastofanna heldur flutn
ingur sovézkra hersveita áfram.
f yfirlýsingu forsætisnefndar-
innar var á einum stað vikið að
þeim og sagt, að Tékkar mundu
ávallt standa við allar skuld-
oindingar gagnvart bandamönu
um sínum í Varsjárbandalaginu.
Enginn vafi hafi nokkru sinni
verið um almenningsálitið í land-
inu gagnvart heræfingunum fyrr
en brottflutningi hersveitanna
var hvað eftir annað frestað.
Tass-fréttastofan skýrði frá
því í dag, að ambassador Tékka
í Moskvu, Kouchy hefði gengið
á fund ritara miðstjórnar komm
únistaflokksins, Katusev. Tekið
j var fram, að viðræðurnar hafi
verið vinsamlegar. Katusev var
í sovézku sendinefndinni, sem
sat fundinn í Varsjá. Stjórnmála
fréttaritarar telja, að Kouchy
hafi afhent svar forsætis-
nefndarinnar við bréfinu marg-
nefnda.
Heimildir í Prag höfðu fyrir
satt í kvöld, að Titó Júgóslavíu-
forseti mundi koma til Tékkó-
slóvakíu á mánudag, og Ceas-
escu forseti Rúmeníu einhvern
næstu daga, til að sýna í verki
samstöðu með tékknesku flokks
leiðtogunum.
NTB-fréttastofan segir að
bandarískir stjórnmálasérfræð-
ingar telji ósennilegt, að Sovét-
stjórnin muni grípa til hervalds
í Tékkóslóvakíu, til að stöðva
þá lýðræðisþróun sem þar eigi
sér stað. Hins vegar kunni þó
að bregðast til beggja vona, ef
tékkneskir forystumenn geri rót
tækar ráðstafanir, svo sem að
lýsa yfir hlutleysi landsins eða
reyni með öðrum leiðum að rjúfa
tengsl Tékkóslóvakíu við önnur
kommúnistaríki.
Frá Frakklandi berast þær
fregnir, að franski kommúnista-
foringinn Waldeck Rochet muni
koma til viðræðna til Prag á
morgun. í Kaupmannahöfn til-
kynnti foringi danskra kommún
ista, Knud Jespersen að danski
kommúnistaflokkurinn væri
mjög fylgjandi tillögu franskra
kommúnista um fund evrópskra
kommúnistaleiðtoga til að ræða
málefni Tékkóslóvakíu. Jesper-
sen bætti við, að danski flokk-
urinn væri hlynntur breytingum
á stjórnarháttum Tékkóslóvak-
íu. Talsmaður ítalskra kommún-
istaflokksins tók í dag eindreg-
ið undir þá hugmynd franskra
skoðanabræðra að sameiginlegur
fundur fulltrúa kommúnista í
Evrópu yrði haldinn.
Moskvublaðið Pravda birti í
dag Varsjárbréfið. j grein
Pravda gætir og allmikillar
þykkju vegna skrifa tékkneskra
blaða um sovézka herliðið í Tékk
óslóvakíu og segir, að blöðin
hafi notað æfingcirnar til að æsa
upp tortryggni og úlfúð á sov-
ézku hersveitunum.
Mikil fundarhöld voru víða í
Sovétríkjunum í dag, í verk-
smiðjum og áýmsum öðrum
vinnustöðum, þar sem fjallað var
um Varsjár-bréfið. Hvarvetna
virtist hugur í mönnum að koma
í veg fyrir að svo fari fram, sem
nú horfir í Tékkóslóvakíu og
mikillar gagnrýni gætir í garð
hinna tékknesku leiðtoga.
Utanríkisráðherra Breta, Ste-
wart hvatti í dag Sovétmenn til
að blanda sér ekki í innanríkis-
mál Tékka og sagði, að ástand-
ið hefði stórlega versnað eftir
Varsjárfundinn. Stewart lagði
áherzlu á, að Bretar mættu ekki
á neinn hátt hafa afskipti af
þessum málum.
Fundir munu einnig hafa ver-
ið haldnir um málið um borð í
ýmsum sovézkum skipum, sem
taka þátt í flotaæfingum Var-
sjárbandalagsins og hvarvetna
kom fram stuðningur við stefnu
og viðhorf sovézkra stjórnvalda
til mála í Tékkóslóvakíu.
Seint í gærkvöldi hafði NTB
fréttastofan það eftir áreiðanleg
um heimildum að Sovétstjórnin
hefði fallizt á tillögu Tékka um
fund fulltrúa þessara tveggja
flokka. Talið er, að fundurinn
verði haldinn á laugardag eða
sunnudag, en ekki er enn ákveð
ið hvar fundurinn verður hald-
inn.
—HEYBANDSVEGUR
Langur heybandsvegur
Framhald af bls. 28
slægjum þarna í ár, bæði bænd
ur austan úr Holtum og eins
menn úr nágrenninu, en Þistil-
firðingarnir voru fyrstir til að
biðja um það og svo eiga þeir
sjálfsagt erfiðast. Það verður
skemmtilegt að geta orðið að liði
á þennan hátt, ef þetta heppnast,
sagði Vigfús. Hægt væri að
byrja slátt þarna, en hann ætti
von á Norðanmönnum undir mán
aðarmót. Spurður um leiguskil-
mála af slægjunum, svaraði Vig-
fús því til, að þær mundu verða
leigðar eftir því sem af þeim
kæmi. Eiginlega væri meira um
vert að geta hjálpað en ganga
frá því nú.
Ekki strá handa 500 fjár.
Þá hringdi Mbl. norður að
Svalbarði og náði tali af Þor-
láki Stefánssyni, bónda, föður
Sigtryggs sem tekið hafði slægj-
urnar á Ölfusárbökkum. Sima
samband var mjög slæmt, en þó
náðust svolitlar upplýsingar.
Þorlákur sagði, að um þennan
heyskap á Suðurlandi yrðu lik-
lega fjórir aðilar úr Þistilfirði
Mundi Sigtryggur fara suður eft
ir helgina með 2-3 menn og lík-
lega eitthvað af vélum. Þetta
væri mikið umstang, en varla
væri nokkra slægju að hafa í
nágrenninu. Túnin væru geró-
nýt. Einasta slægjan á Svalbarði
er nýrækt frá í fyrra. Af henni
má fá hey handa kúnum tveim-
ur sem mjólka fyrir heimilið. En
að auki hafa þeir feðgar 500
fjár og verða að afla heyja með
einhverju móti handa þeim.
Varla mun hægt að sækja
lengra slægjuna og heybands-
vegur verður langur. Líklega
verður að vélbinda heyið og
flytja sjóveg norður, en það
mun ekki enn ákveðið.
— Skálholtshátíð
Framhald a( hls. 28
syngur Skálholtskórinn, for-
söngvarar Ingvar Þórðarson og
Sigurður Erlendsson, lúðraþyt
úr Þorlákstíðum annast trompet-
leikararnir Jón Sigurðsson og
Sæbjörn Jónsson og organleik-
ari er Jón Ólafur Sigurðsscn.
Söngstjóri er dr. Róbert A. Ott
ósson, söngmálastjóri Þjóðkirkj-
unnar.
Samkoman í kirkjunni hefst
kl. 16.30 með því að Jón Óiafur
Sigurðsson leikur á orgel. Þá
flytur Matthías Jóhannessen,
skáld ræðu, Gunnar Björnsson
leikur einleik á knéfiðlu. Þá
flytja nemendur úr Langholts-
skóla helgileikinn „Boðið“ eftir
Hauk Ágústsson, stud. theol.
Ruth Little syngur einsöng með
undirleik Roberts A. Ottosson-
ar, sr. Magnús Guðjónsson flyt.-
ur bæn og les úr ritningunni og
að lokum verður almennur söng-
ur.
í DAG, 19. júlí, koma mennta-
málaráðherrar Noröurlanda sam
an til fundar í Reykjavík, en
slíkur ráðherrafundur er hald-
inn árlega til skiptis í aðildar-
löndunum. Norrænn mennta-
málaráðherrafundur á íslandi
var síðast haldinn árið 1963.
Þátttakendur í fundinum
verða:
Frá Danmörku:
Menntamálaráðherra Helge
Larsen og ráðuneytisstjórarnir
Eiler Mogensen, H. H. Koch
og Henning Röhde, deildar-
stjóri, Björn Brynskov og
Hjalte Rasmussen, fulltrúi.
Frá Finnlandi:
Ráðuneytisstjóri Heikki Hosia,
fyrrv. menntamálaráðherra,
og deildarstjóri Matti Aho og
Matti Gustafson.
Frá Noregi:
Menntamálaráðherra Kjell
Bondevik og ráðuneytisstjór-
arnir Henrik Bargem, Ené-
vald Skadsem og K. Engan,
ráðunautur.
- ÍRAK
Franuhald af bls. 1
drepnir í bardögum, er byiting-
in var gerð á miðvikudag. Kvcld
blaðið „Etelat“, sem hefur frétt
sína eftir fréttamanni í írak
sjálfu, segir ennfremur, að
margt fólk hafi verið lagt inn á
sjúkrahús eftir byltinguna, en
áður hafði verið fullyrt, að bylt-
ingin hefði farið fram án blóðs-
úthellingar.
Blaðið segir, að til blóðugra
átaka hafi komið milli lífvarða
Arefs og hermanna sem styðja
nýju byltingarstjómina.
Hörðustu átökin urðu í
grennd við Basra nálægt Persa-
flóa einungis 20 km frá íröksku
skýrir frá því, að stu'ðningsmenn
kommúnista hefðu verið úr röð-
um og hafnarverkamanna í borg
inni hefðu barizt við hlið her-
mannanna, sem styddu byltingar
foringjann, Ahmed Hassan A1
Bakr.
Samkvæmt frásögn Etel’at var
ástandið í Basra enn ótryggt i
dag. Stríðsvagnar umkringdu
höll landsstjórans þar, fallbyss-
um hafði verið komið fyrir út-i á
götum og vopnað lið gekk um
borgina.
Blaðið skýrði frá því, að r.iik-
il sundurþykkja væri milli leið-
toga byltingarinnar og heldur
því fram, að frekari atburða sé
að vænta í írak.
- SÖLTUNARSÍLD
Fr.amliald af bls. 28
f yfirnefndinni áttu sæti:
Bjarni Bragi Jónsson, deildar-
stj. í Efnahagsstofnuninni, lem
var oddamaður nefndarinnar,
Aðalsteinn Jónsson og Jón Þ.
Árnason, fulltrúar síldarkaup-
enda og Kristján Ragnarsson og
Tryggvi Helgason fulltrúar sfid
arseljenda.
Á fundi Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins í dag var ennfremur
ákveðið, að lágmarksverð á
síld, sem afhent er utan hafna
til söltunar um borð í skipum á
miðunum framangreint tímabil,
skuli vera:
Hvert kg. kr. 1.90 eða hver
uppmæld tunna, 120 lítrar kr.
205.00.
Verðið er miðað við kaup á
síldinni upp til hópa komna í
um hleðslutæki.
(Frá verðlagsráði sjávarútvegs-
insy
Frá Svíþjóð:
Menntamálaráðherra Sven Mo
berg, ráðuneytisstjóri Lennart
Sandgren, Jan Stiernstedl,
prófessor Arne Engström og
Ilmar Bekeris.
Af Islands hálfu munu sitja
fundinn:
Menntamálaráðherra, dr. Gylfi
Þ. Gíslason, Birgir Thorlacius,
ráðuneytisstj., Ármann Snæv-
arr, háskólarektor, Helgi Elí-
asson, fræðslumálastjóri, Knút
ur Hallsson, deildarstjóri og
Árni Gunnarsson, stjórnarráðs
fulltrúi.
Á fundinum verður meðal
annars rætt um samræmingu
skólakerfa á Norðurlöndum, nor
rænt og alþjóðlegt samstarf á
sviði vísinda og annarra menn-
ingarmála, norræna þjóðfræða-
stofnun, Menningarsjóð Norður-
landa, norræna eldfjallarann-
sóknarstöð á íslandi, aðsböðu ís-
lendinga til náms í húsagerðar-
list á Norðurlöndum og fleiri
mál.
(Frá menntamálaráðuneytinu)
VEÐRIÐ
Veðurhorfur kl. 22 í gærkvöldi:
Suðvesturland A og SA kaldi,
og síðan stinningskaldi, þykknar
upp og dálítil rigning á morgun.
Faxaflói: SA og A-kaldi og
síðar stinningskaldi, þykknar
smám saman upp, víðast þurrt.
Breiðafjörður og Vestfirðir og
■miðin: SA- og A- gola og síðar
kaldi, bjartviðri. Norðurland til
Austfjarða og miðin: Hæg breyti
leg átt, víðast léttskýjáð, en þoku
slæðingur á miðunum. Suðaustur
land og miðin: Stillt og bjart
veður í fyrstu, en austan kaldi
á morgun og skýjað. Norðaustur
djúp, Færeyjadjúp, SV- 3 vind-
stig, skýjað með köflum, en
þoka á Norðausturdjúpi. Síldar
miðin við Svalbarða: Hæg suð-
læg átt, skýjáð og sums staðar
þokuslæðingur.
Horfur á Iaugardag: Hæg
breytileg átt og víðast bjart veð
ur á Norður- og Austurlandi. SA
gola eða kaldi og sums staðar
dálítil súld á Suðurlandi og smá
skúrir Vestanlands.
Týnd Keflnvíkur-
triflo hindin
í GÆRKVÖLDI var trillu frá
Keflavik með tveimur mönnum
á saknað. Höfðu þeir farið frá
Keflavík kl. 2—3 á miðvikudag,
en ekkert til þeirra spurzt í ann-
an sólarhring. Hóf björgunar-
sveitin Stakkur þá leit í sam-
ráði við Slysavarnafélagið. Leit-
arflokkar bjuggu sig undir að
leita á landi og flugvél frá flug-
félaginu Þór leitaði yfir flóan-
um.
Kl. 11.50 fundu bátarnir Jök-
ull og Fróði trilluna. Var hún
við Þormóðssker út af Mýrurri.
Var kompásinn brotinn, menn-
irnir vatnslausir orðnir, en heil-
ir á húfi og báturinn óskemmd-
ur.
Fegrunornefnd
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
hetfur tilnefnt Jónínu Guðmunds
dóttur í fegrunaxnefnd. Einnig
hefur Arkitektafélag fslands til
nefnt Þorvald S. Þorvaldsson í
sömu nefnd. En formaður henn-
ar er garðyrkjustjóri borgarinn
ar, Hafliði Jónason.