Morgunblaðið - 03.08.1968, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1968
Varð að leita hafnar
með Hans Sif
SVFI iær
símsvnra
Sú nýbreytni hefur nú verið
tekin upp hjá Slysavarnafélagi
íslands, að það hefur tekið sím-
svara í þjónustu sína.
Þeir, sem óska aðstoðar SVFÍ
utan skrifstofutíma, geta feng
ið upplýsingar í númeri símsvar
ans um það, hver svarar hjálp-
arbeiðni hverju sinni.
Símanúmer símsvarans er
20360
Um verzlunarmannahelgina
gæti símsvarinn komið í góðar
þarfir, en til þess að vera við-
búið óhöppum á landi, hefur
Slysavarnafélagið velbúinn björg
unarbíl til reiðu alla helgina.
Félagar úr björgunarsveit Ing
ólfs munu annast talstöðvarvakt
ir en þjónusta sjúkrabifreiðar-
innar verður að sjálfsögðu í
samvinnu við lögreglu og Slysa-
varðstofu Reykjavíkur.
Auk þessa mun þyrla SVFÍ og
Landhelgisgæzlunnar verða til-
tæk, ef á þarf að halda.
(Fréttatilkynning frá Slysavarn
arfélagi fslands.)
GOTT veiffiveður var á síldar-
miðunum á miðvikudag og að-
fararnótt fimmtudags. Kunnugt
var um afla sjö skipa sem feng-
ið höfðu samtals 916 lestir. Hæst
ur var Bjartur NK., sem var á
landleið með 250 lestir. Þessi
skip tilkynntu um afla:
Landað í Haförninn: Harpa
RE 90 lestir, Magnús NK 30,
Árni Magnúss. RE 36.
í salt: Júlíus Geirmundss. ÍS
40 lestir.
Á landleið: Bjartur NK 250
lestir, Barði NK 240, Fylkir RE
230.
Neskaupstað, 2. ágúst —
ÞÝZKI dráttarbáturinn „Fair
Play“ sem var á leið til Dan-
merkur með Hans Sif, varð að
leita hafnar í Neskaupstað í
gær vegna þess að lekinn á
skipinu jókst mjög og önnur
dælan sem var um borð bilaffi.
Fréttaritari blaðsins í Nes-
kaupstað hafði samband við
Schuldt, skipstjóra, sem sagði,
að þeir hefðu lagt af stað frá
Raufarhfn kl. 1 í fyrrinótt.
Fimm menn voru um borð í
Hans Sif, og höfðu þeir tvær
kraftmiklar dælur. Þegar þeir
voru um 60 sjóm. út af Norðfirði
bilaði önnur dælan og hin hafði
varla undan, enda kom þá í Ijós,
LAXVEIÐI hefur víðast verið
góð í sumar, og jafnvel ár sem
óttazt var að yrðu lélegar, hafa
gefið góða veiði. Morgunblaðið
hafði samband við skrifstofu
veiðimálastjóra og fékk uppgef-
inn fjölda laxa, sem fengizt
höfðu úr nokkrum ám fram að
28. júlí.
Úr Elliðaám höfðu fengist 634,
að lekinn hafði allmjög aukizt.
Ákvað skipstjórinn þá að leita
hafnar, og þegar komið var inn
til Neskaupstaðar var lest skips-
ins hálffull af sjó. Lekinn var
þá orðimn það mikill, að ein
dæla hafði alls ekki undan og
var slökkviliðið komið til að-
stoðar. Skipstjórinn sagði, að
þeir hefðu haft suðvestan kalda
og veðrið verið ágætt. Óákveðið
var í gær hvað yrði til bragðs
tekið. Skipstjórinn var að hafa
samband við útgerð sína um,
hvort þeir ættu að bíða meðan
skipið yrði þétt. Dráttarbátur-
inn er ekki stór fleyta, aðeins
173 brúttótonn, en með 1300 hest
afla vél og talinn fullgóður sem
úthafsdráttarbátur. — Ásgeir.
úr Laxá í Kjós 923 og úr Mið-
fjarðará 371. 1 Miðfjarðará hefur
verið léleg vei'ði tvö síðustu ár
og menn óttuðust að hún yrði
jafnvel enn lakari nú. Framanaf
gekk veiðin fremur treglega, en
síðustu vikuna mjög vel og komu
þá á land 193 laxar.
í Blöndu var mikil gegnd og
höfðu fengist úr henni 340 laxar,
en úr Svartá, sem rennur í hana,
höfðu fengist 43. Úr Víðidalsá
höfðu fengist 198 laxar. Það er
nú komið undir lok í Borgar-
firði, en veiðitímabilinu þar lýk-
ur hinn 20. ágúst. Tölur lágu
ekki fyrir, en vitað var að vei'ðin
hefur verið betri en á sama
tíma í fyrra.
í Flókalund 09
Bjarkarlund
PATREKSFIRÐI, 2. ágúst. —
Veður hefur verið hér fremur
leiðinlegt, en samt sem áður fer
verzlunarmannahelgin í hönd
sem og annars staðar. Ijeið unga
fólksins liggur í Bjarkarlund,
að Húsafelli og svo auðvitað í
Flókalund, sem er í næsta ná-
grenni við okkur. — Trausti.
GÓÐ LAXVEIÐI
— 923 laxar úr Laxá í Kjós
— IUiðfjarðará reynst vel
Bættir eru bænda hættir
— Ný bók um landbúnað, sögu og þróun
ÚT er komin bók um landbún-
affinn, sögu hans og þróun, og
heitir hún, Bættir eru bænda-
hættir. Útgefendur eru Óskar
Lárusson og Örn Johnson jr.
Bókin er 176 síffur í striga-
bandi Hún er prentuff í Grafík
h.f. Bókin er myndskreytt af
Halldóri Péturssyni, en kápu-
teikning og umbrot er eftir Ást-
mar Ólafsson. t bókina rita 28
þjóffkunnir menn um landbúnaff
hver á sínu sviffi.
Bókin er gefin út vegna land-
búnaffarsýningarinnar og mun
kosta þar 470 kr., sem er forlags
verð.
1 formála bókarinnar segja út-
gefendur m.a.: „Landbúnaður hef
u,r allt frá því, er ísland var num
ið, verið aðalatvinnuvegur þjóð
eirinnar, og bændur borið uppi
íslenzka menningu, andlega og
verklega. En á síðustu árum hef-
ur orðið mikil röskun í íslenzku
þjóðfélagi. Bændum fækkar, og
landbúnaður þokar fyrir öðrum
atvinnugreinum, svo sem fisk-
veiðum og iðnaði. Hvertig hafa
bændur brugðizt vfð þeim vanda,
sem að hefur steðjað? Hver er
staða landbúnaðar í dag? .
í bók þessari er reynt að svara
þessum spurningum og reyndar
fjölmörgum öðrum. Eru hér sam
an teknar tuttugu og átta rit-
gerðir eftir þjóðkunna forvígis-
menn landbúnaðarins, og rekja
þeir fjölþætta sögu hans og þró-
un. Af þessum greinum má
marka, hvernig bændastéttin
hefur kappsamlega stefnt að því
að hagnýta sér margháttaðar nýj
ungar í verklegum efnum sér og
alþjóð til farsældar.“
Þeir sem skrifa í bókina eru:
Herra Kristján Eldjárn, forseti
íslands, Ingólfur Jónsson, land-
búna'ðarráðherra, Dr. Sigurður
Þórarinsson, jarðfræðingur, Þór-
ir Baldvinsson, arkitekt, dr.
Bjarni Helgason, jarðvegsfræð-
ingur, Jónas Jónsson, jarðræktar
ráðunautur, Steindór Steindórs-
son, skólameistari, Ingvi Þor-
steinsson, magister, Páll Berg-
þórsson, veðurfræðingur, Hákon
Bjamason, skógræktarstjóri, dr.
Sturla Friðriksson, erfðafræðing-
ur, Pálmi Einarsson, landnáms-
stjóri, Guðmundur Jónsson,
skólastjóri, Árni G. Pétursson,
sauðfjárræktarráðunautur, Ólaf-
ur E. Stefánsson, nautgriparækt-
arráðunautur, Gunnar Bjamason,
rá'ðunautur, Páll A. Pálsson, yfir
dýralæknir, Óli Valur Hansson,
garðræktarráðunautur, Þór Guð-
jónsson, veiðimálastjóri, Sveinn
Einarsson, veiðistjóri, Árnþór
Einarsson, kjötiðnaðarmeistari,
Pétur Sigurðsson, mjólkurfræði-
kandidat, Agnar Guðnason, ráðu
nautur, Ólafur Guðmundsson, til
raunastjóri, Gunnar Guðbjarts-
son, form. Stéttarsambands
bænda, Arnór Sigurjónsson, rit-
höfundur, Þorsteinn Sigurðsson,
form. Búnaðarfélags íslands og
Sveinn Tryggvason, framkv.stj.
Framleiðslurá'ðs.
Útgefendur boðuðu fréttamenn
á sinn fund í gær, og sýndu þeim
bókina, sem er vönduð að allri
gerð. Sögðu þeir, að frágangur
væri vandaður eins og hægt
væri, m.a. væri prentun tvöföld,
vegna mynda. Hugmynd að bók-
inni er ung, fóru um fjórir mán-
uðir til undirbúnings útgáfunni.
Sögðust þeir vilja þakka öllum
greinarhöfundum fyrir lipurð og
velvild.
Dómnefnd Bústaffasóknar er fjallar um verfflaunaveitingu fyrir
beztu lóffaumgengnina. Á myndinni eru Otto A. Michelsen, Jón
as Hallgrímsson, Jóhanna Hansen og Hermann Ragnar Stefáns-
son. Á myndina vantar Ólaf B. Guffmundsson.
Verölaun fyrir
fallegustu lóðina
I BÚSTAÐASÖKN eru mörg fé-
lög starfandi, kvenfélag, ung-
mennafélag og bræðrafélag. Nú
hefur Bræðrafélag sóknarinnar
hafið sókn í fegrun og góðri um
gengni í hverfinu. Tilefni þessa
átaks, er bréf, er borizt hefur frá
Otto A. Michelsen með ósk um
að fegra og prýða umhverfi
þetta, og jafnframt því, að veita
verðlaun fyrir bezt hirtu lóðina,
húsið og umhverfið, og er þá um
leið átt við götuna fyrir framan
húsið.
Sérstök nefnd var kosin til að
dæma í þessum efnum, en hana
skipa: frú Jóhanna Hansen, Otto
A. Michelsen, Ólafur B. Guð-
mundsson, Hermann Ragnar
Stefánsson og Jónas Hallgríms-
son.
Ekki hefur ennþá verið ákveð-
ið, hvernig verðlaununum verð-
ur háttað, hvort veittir vehða
peningar eða heiðursskjal, en
verður ákveðið síðar, nefndin
vonar, að þetta verði a.m.k. spor
í áttina til þess, að fólk fari að
hirða betur um lóðir sínar og
landareignir.
IUatvöru- og kjötkaup-
menn ræða vandamál sín
— á ráðstefnu I
KAUPMANNASAMTÖK íslands
efna til ráffstefnu aff Bifröst í
Borgarfirffi dagana 25.—23.
ágúst næstkomandi. Ráffstefnan
er fyrir matvöru- og kjötkaup-
menn hvaffanæva aff af landinu
og er henni ætlaff þaff megin-
verkefni, aff kryfja til mergjar
ýmis vandamál er matvörudreif
ing í landinu hefur í för meff
sér <*g reyna aff komast aff niff-
urstöffu um leiffir til úrbóta.
Bifröst
Nokkrir affilar utan stéttarinnar
hafa veriff fengnir til aff gera
ýmsum málaflokkum skil, en
síffan munu þau rædd af ráff-
stefnuaðilum sjálfum.
Meffal annars verffur fjallaff
um kvöld og helgarsölu verzl-
ana, verfflagsmál, samstarf kaup
manna og heildverzlana, umbúff
ir, verzlunina og bankann og
dagleg vandamál ýmisleg.
Stálstríð í
Bandaríkjunum
Washington 2. ágúst. AP-NTB.
MÖRG stærstu stálframleiðslu-
fyrirtæki Bandaríkjanna til-
kynntu í gær mikla verffhækkun
á stáli effa sem svarar 399 ísl.
kr. á lest, effa 5%. Þaff var
Bethlehem Steel, annaff stærsta
fyrirtækiff sem fyrst ákvaff verff
hækkunina en önnur fyrirtæki
fylgdu í kjölfariff, þar á meffal
Bandaríska Stálsamsteypan, sem
er stærsta fyrirtækiff.
Johnson Bandaríkjaforseti hef
ur fordæmt hækkunina og í dag
veitti hann bandaríska varnar-
málaráðuneytinu heimild til að
flytja viðskipti sín til fyrir-
tækja, sem ekki hafa hækkað
verði’ð. Johnson kvaddi leiðtoga
Bandaríkjaþings til fundar við
sig í Hvíta Húsinu í gærkvöldi
til þess að ræða orsakir og afleið
ingar verðhækkunarinnar á
bandarískt efnahagslíf. Stjóm-
málafréttaritarar segja, að forset
inn hafi reiðst mjög er verð-
hækkunin var tilkynnt og kanni
nú allar hugsanlegar leiðir til
þess að brjóta hana á bak aftur.
Ekki er þó talið líklegt að for-
setinn biðji um heimild þings-
ins til að knýja stálfyrirtækin
til að lækka vehðið aftur.
Talsmaður Bandarísku Stál-
samsteypunnar sagði á fundi með
fréttamönnum í gær, að verð-
bólgan í landinu og hækkuð
vinnulaun hefðu valdið því að
óhjákvæmilegt hefði verið að
hækka verðið. Talið er áð verði
ekki hægt að fá stálframleiðend-
ur til þess að lækka verðið aftur
muni hækkunin kosta banda-
ríska neytendur sem svarar 6,3
milljörðum ísl. kr.