Morgunblaðið - 03.08.1968, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.08.1968, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1968 23 — Norræna húsið Framhald af bls. 24 skólarektor, sem. er formaður stjórnar hússins, og síðan full- trúi norrænu féíaganna á NorS- urlöndum, en á eftir honum tal ar form. Norræna félagsins ís- lenzka, Sigurður Bjarnason, rit- stjóri. Athöfninni um morguninm lýk ur með því, að Per Bortem, for- sætisráðherra Noregs flytur ávarp fyrir hönd ríkisstjórna hinna Norðurlandanna, en að lokum er gert ráð fyrir að dr. Bjarni Benediktsson, forsætis- ráðherra flytji ávarp. Að loknum hádegisverði mun Ivar Eskeland, forstöðumaður Norræna hússins flytja ræðu um húsið og tilgang þess. Að því loknu mún hann taka við gjöf- um til hússins, en þegar er vit- að um stórar gjafir frá ýmsum aðilum á Norðurlöndunum.. Nefndi Eskeland til dæmis á blaðamannafundinum, að helztu flugfélögin, Braathen, Flugfélag íslands, Loftleiðir og SAS myndu gefa stórar gjafir, en vænta mætti gjafa frá ýmsum aðilum öðrum. Að þessu loknu verður opn- uð í Norræna húsinu sýning á handiðnaði frá öllum Norður- löndumum 6, en þá sýningu myndi Roar Höyland setja upp. í sambandi við þessa sýningu ræddi Eskeland nokkuð um það hlutverk, sem Norræna húsið myndi gegna. Sagði hann, að húsið yrði opnað almenningi strax eftir opnunina og gæfist •þá hverjum, sem vildi, kostur á því að koma þar inn og nota sér þá fyrirgreiðslu og aðstöðu, sem hægt væri þar að láta í té. Handiðnaðarsýningin yrði þar opin að öllum líkindum til októ- berloka ogværi öllum frjálst að koma og skoða hana. Þá yrðu afnot af bókasafni hússins heim il öllum, sem vildu koma þangað til að lesa norrænar bækur, tíma rit eða dagblöð, eða hlusta á hljómplötur frá Norðurlöndun- um. Gat Eskeland þess, að nú þegar hefðu komið sjómenn af mokkrum skipum og beðið um að fá að sjá dagblöð frá lönd- um sínum, og sagðist vænta þess, að slík þjónusta gæti ver- ið rekin í ríkari mæli í framtíð- inni, því Norræna húsið myndi fá öll dagblöð Norðurlandanna send í flugpósti og myndu þau liggja frammi fyrir þá, sem þau vildu lesa. f Norræna húsinu er stórt bóka safn og verður þar komið fyrir bókum frá Norðurlöndunum. 1. nóveniber verður opnuð í húsinu sýning á bókum, fyrsta sinnar tegundar. Verða þar sýndar all- ar bækur, sem gefnar eru út á þessu ári á Norðurlöndum og eru ritaðar af innlendum höf- undum. Einnig verða sýndar þar bækur, sem þýddar eru af einu Norðurlandamáli á annað. Bókasafnið verður opið almenn ingi, eins og áður er sagt. Þar verða fyrst 12—15 þúsund bæk- ur á hillum til útláns eða lestr- ar á staðnum. Bækur þessar gefa Norðmenn, en síðan er ætl- unin að bæta allverulega við safn ið með sameiginlegri gjöf frá Norðurlöndunum. Fjölmörgum gestum hefur ver ið boðið að vera viðstaddir opn- un Norræna hússins, en ekki er vitað með vissu, hve margir munu koma frá hinum Norð-ur- löndunum, Þó mun láta nærri, að við opnunina verði allt að því 300 gestir. Meðal þeirra er- lendu gesta, sem vitað eT að verðiv iðstaddir eru: Frá Noregi Per Borten, forsætisráðherra, Kjell Bondevik, menntamálaráð herra, þrír stórþingmenn, þau Bertie Rognerud, Olav Hordvik og Guri Johannessen og háskóla rektorarnir í Osló og Björgvin. Frá Danmörku: K. Helveg Pet ersen. menntamálaráðherra. Karl Skytte, þingforseti, Erik Eriksen, fyrrv. forsætisráðherra. K. B. Andersen, þingmaður, Bent A. Koch, ritstjóri og há- skólarektorarnir Sören Sönen- sen og Mogens Bröndsted. Frá Færeyjum: Peter Mohr Damm, lögmaður, Jóannes Pat- ursson, konungsbóndi, N. J. Arge útvarpsstjóri og rithöfund- urinn og skáldið William Hein- esen. Grels Teir er fulltrúi finnsku ríkisstjórnarinnar við opnunina, en auk hans koma m.a. Georg Backlund, þingmaður, prófessor Matti Koskennienni og prófess or Alvar Aalto, sem teiknaði hús ið. Frá Svíþjóð kemur Ragnar iEdenmann sem fulltrúi ríkis- stjómarinnar, en meðal arunarra sænskra gesta verða Edv. Reuter swárd, ráðuneytisstjóri og menn frá háskólum. blöðum og út- varpL í sambandi við opnunina verð ur hátíðardagskrá í Þjóðleikhús- inu, þar sem listamenn frá Norð urlöndunum koma fram. Nýi palurinn í Arbæ, þar sem dansað verður um helgina, í smíðum. — Ljósm. Mbl. Kr. Ben. Stór sýningurpallur í Árbæ — Dansað þar á sunnudagskvöld NÝR sýningarpallur verður vígður í Árbæ um verzlunar- mannahelgina. Er þetta geysi- mikill pallur, 140 ferm. að stærð, og hefUr að undanförnu verið unnið að því að koma honum upp. Þennan pall á að nota um verzlunarmannahelgina. Verður dansað þar á sunnudagskvöld, en þá hefst dansleikur kl. 8. Hljóm- sveit Guðjóns Matthíassonar leik ur fyrir dansi, söngvari Sverrir Guðjónsson. Síðdegis á mánudag verður efnt til þjóðlegra skemmtana á palli þessum kl. 3-6 síðdegis ef veður leyfir. Þar mun Lárus Salomonsson sýna tök á steinum o. fl. Árbæjarsafn er opið dag- lega kl. 10-12 og 1-6. Og á sunnu dagskvöld verður dansleikur, sem fyrr er sagt, og jafnframt veitingar í Dillonshúsi. - BIAFRA Framhald af bls. 1 annarra er láta sig ástandið í Nígeríu máli skipta. Óttast marg ir, að ummælin kunni að eyði- leggjá grundvöllinn fyrir friðar viðræðunum í Addis Abeba og hvetja aðrar fyrrverandi ný- lendur Frakka í Afríku til að fylgja fordæmi stjórnarinnar viðurkenni hún Biafra. Brezku blöðin ræða í dag hvort hugsan- Indverski f lug- herinn á Islandi legt væri að Frakkar myndu í því tilfelli veita Biafrabúum hernaðarlegan stuðniing, en brezkir ráðherrar vísuðu þessu algerlega á bug og sögðu slíkt óhugsandi. Sambandsstjómin í Nígeríu kvartaði í dag yfir ummælum frönsku stjómarinnar og sagði, að hún hefði blandað sér í inn- anríkismál Nígeríu. Segir í yf- irlýsingu stjómarinnar viður- kenning á sjálfstæði Biafra og geti orðið til þess aðuppreisn- armenn hverfi frá samningum VARI.A eru þessir komnir til að hertaka ísland, hugsuðura við, þegar við sáum tvær flugvélar með merkjum ind- verska flughersins lenda á Reykjavíkurflugvelli um há- degisbilið í gær. En til þess að hafa vaðið fyrir neðan okkur, fórum við út á völl. Ekki gátum við séð þess nein merki, að þarna væri um vopnaðar flugvélar að ræða, en ekki vorum við fullkom- lega í rónni samt fyrr en við hittum einn indverskan flug- mann, sem var vopnaður brosinu einu saman. Hann sagði okkur, að þess- ar vélar væri indverski flug- herinn nýbúinn að kaupa frá De Havilland-verksmiðjunum í Kanada og væru þær nú á leið heim. Vélarnar eru af gerðinni Caribou og á ind- verski flugherinn 18 slíkar fyrir, en þær eru notaðar til alls kyns flutninga þar í landi. Aðalkosturinn við vél- arnar er, hversu stuttar flug- brautir þær þurfa, en full- hlaðin Caribou-vél þarf ekki nema 450 metra langa braut til flugtaks og lendingar. í hvorri flugvél eru fimm menn og flugu þeir frá Tor- onto til Goose Bay á sex tímum, en þaðan til íslands tók flugið átta klukkustund- ir. Flugþol þessara véia er átta klukkustundir, en í þess- ari ferð eru þær útbúnar aukaeldsneytisgeymum, sem auka fiugþolið upp í fimmtán klukkustundir. Flugmaður þessi áætlaði að heimferðin tæki um viku- tíma. um friðsamlega lausn deilunnar. Utanríkisráðherra Sambands- sjtórnarinnar, Okoi Arikpo sagði í dag, að færu friðarviðræðum- ar í Addis Abeba út um þúfur, myndi stjórnarherinn hefja stór felldar hemaðaraðgerðir gegn uppreisnarmönnum í Biafra. Alþjóða Rauði krossinn sendi í dag flugleiðis um 7 lestir af lyfjum og matvælum til Biafra frá spærusku eyjunni Femando. Po. Þetta er fyrsta flugferðin um margra vikna skeið. í yfirlýsing ingu frá Rauða krossinum segir í dag, að opnun landleiða til mat vælaflutninga sé eina viðun- anlega lausn málsins og því sé aðaláherzla lögð á samninga í þá átt. Önnur Caribou-vélin á Reykjavíkurflugvelli í gær, (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) Varð fyrir bíl TÍU ára telja meiddist nokkuð á fótum, þegar hún varð fyrir bíl á Sogavegi um klukkan 13:00 í gær. Telpan var að flýta sér til að ná í strætisvagn og hljóp hún yfir götuna í veg fyrir bílinn. Ekki kenndi telpan sér neins meins og fór hún með strætis- vagninum. En síðar, þegar hana fór að verkja í fæturna, fór móð ir hennar með hana í slysavarð- stofuna. Meiðsl hennar voru ekki alvarlegs eðlis, en lögregl- an vill brýna fyrir fólki að kalla ávallt á lögreglu og sjúkralið. þegar slíkir atburðir verða í um ferðinni. Stanzlaust Hug til Eyja ÞAÐ er að venju annasamt hjá Flugfélagi tslands vegna Þjóð- hátíðarinnar í Vestmannaeyjum og er flogið þangað stanzlaust, svo lengi sem skilyrði leyfa. A fimmtudag var ráðgert að fljúga tíu ferðir, en sökum veðurs var ekki hægt að byrja fyrr en kl. 7 um kvöldið. Var þá allur til- tækur flugfloti félagsins settur í flutninga til Eyja og voru fam ar sex ferðir með um 280 far- þega. í gær var byrjað að fljúga kl. 8.30 og var gert ráð fyrir að fara sextán ferðir, en í dag verða farnar fjórar. Til þess að anna öðru innanlandsflugi var Vis- countvél félagsins tekin í notk- un og sömuleiðis ein Douglasvél til viðbótar. Viscount vélin flaug til fsafjar'ðar, Akureyrar, Sauð- árkróks og Egilsstaða, en flug- brautin í Eyjum er of stutt fyrir svo stóra vél. — Sumarhdskóli Framhald af bls. 24 ónir króna úr Norræna menn- ingarmálasjóðnum og hefur skól inn gengist' fyrir rannsóknum á fjórum sviðum norræns menn- ingarlífs. f stjórn íslandsdeildar Nor- ræna sumarháskólans eru: Þór Vilhjálmsson, prófessor, formað- ur; Þorvaldur S. Þorvaldsson, arkitekt, ritari; dr. Bjarni Guðnason, prófessor og Úlfur Sigurmundsson eru framkv.stj. skólans hér í Reykjavík, en skól anum lýkur sunnudaginn 11. ágúst. Rómo gestrisni Djúpmanna í GÆRDAG komu tveir kennar- ar frá unglingaskóla í Leieester í Englandi að máli við Morgun- blaðið og báðu um að komið yrði á framfæri þökkum þeirra og sjö nemenda þeirra við alla þá, sem greitt hafa götu þeirra á íslandi. Hópurinn hefur að undan- förnu unnið að könnun á land- búnaði á Snæfjallaströnd og víð ar við ísafjarðardjúp. Leslie Morgan, sem var leiðangurs- stjóri, sagði, að sú gestrisni og hjálpsemi, sem hópnum hefði verið sýnd, hefði verið ólík öllu því, sem nokkurt þeirra hefði áður kynnzt. Til dæmis hefði fólkið oft komið að bæjum án þess að tilkynna ferðir sínar, rennblautt og hrakið. Hefði alis staðar verið tekið á móti þvi eins og það væri velkomnir boðs gestir. Sagði fararstjórinn, að þessar móttökur hefðu haft djúp og varanleg áhrif á unglingana og fararstjórana og myndu þau aldrei gleyma þeim móttökum, sem þau hefðu fengið í þessu landi. Báðu þau Morgunblaðið fyrir hj artanlegar þakkir til allra þeirra við ísafjarðardjúp og annarra, sem greitt hafa götu þeirra. VEÐRIÐ BÚIZT var við að regnsvæði gengi inn yfir austurland sl. nótt með allhvassri sunnan ítt, en að það næði ekki að ráði til norðausturlands. í lag er gert ráð fyrir að hann íangi í suðvestan og hætti að rigna. Eftir það verða skúrir en bjart á milli um vestan- rert land og bjart og hlýtt á lusturlandi. Þegar líður á rannudag má búazt við að þykkni upp með vaxandi t ;unnanátt vestanlands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.