Morgunblaðið - 03.08.1968, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.08.1968, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1968 innrás“ í Skotland Ilér er Bobby Charlton með hinn fagra Evrópubikar eftir slg- nr Manchester United gegn Benefica á Wembley-Ieikvangin- um í' vor. i þakklætisskyni fyrir það fordæmi er þær gáfu komandi kynsióðum64 Tólf af skærustu stjörnum á fyrri Olympíuleikum hefur ver- ið boðið til Mexicoleikanna í við urkenningarskyni fyrir afrek þeirra og þá athygli sem þau með afrekum sínum hafa vakið á Olympíuleikunum, og það for- dæmi, sem þau hafa verið kom- andi kynslóðum. Framkvæmda- nefnd Mexicoleikanna greiðir all an kostnað við för þeirra og dvöl í Mexico og þeim mun marg víslegur heiður sýndur verða. íþróttafólk þetta er: Patricia McCormick, Jesse Owens, Joh- nny Weissmúller og Robert Mat hias öll frá Bandaríkjunum, Dawn Frazer Ástralíu, Fanny Blankers-Koen Holllandi, Feirr eira da Silva frá Brasilíu Emil Zatopellk og Dana Zatopekova frá Tékkóslóvakíu, Vladimir Kutz og Valery Brummel frá Sovét- ríkjunum og Christian D'Oriola frá Frakklandi. íþróttafólk þetta hefur allt áunnið sér frægð fyrir afrek sín sem seint eða aldrei mun gleym- ast. Patricia McCormick vann fern gullverðlaun í dýfingum á tveim OL-leikum (1952 og 1956) Jesse Owens vann fern gull- verðlaun á OL 1936 (100, 200 og 4x100 m boðhlaupi og lang- stökki) Johnny Weissmúller vann fimm gullverðlaun á OL 1924 og 1928 (tvívegis 100 m skriðsund tvívegis 4x200 m skriðsund og 400 m skriðsiund) Robert Mathias sigraði í tug- þraut OL í London 1948 og í Helsingfors 1952. Dawn Frazer var fyrsta kon- an er unnið hefur þrenn gull- verðlaun í sömu grein, 100 m skriðsundi (í Melborne, Róm og Tokíó) Fanny Blankers-Koen vann fern gullverðlaun 1948 (100 og 200 m hlaup 80 m grindahlaup og 4x100 m boðhlaup) Ferreira da Silva vann gull- verðlaun í þrístökki 1952 og 1956 Emil Zatopek vann þrenin gull- verðlaun í Helsinki 1952 (5 km, 10 km og Maraþonhlaup) Sér- kennilegur stíll hans vakti gíf- urlega athyglL Dana Zatopekova vanin gull- verðlaun í spjótkasti 1952. Hún og maður hennar, Emil, settu „hjónamet" í verðlaunauppskeru sem er einstætt. Vladimir Kutz vann tvenn gull verðlaun (5 km og 10 km) í Melbourne. Valery Brummel vann siifur- verðlaun 1960 í hástökki og guU í sömu grein í Tokíó. Hann á enn heimsmet í greininni 2.28 m. Christian D'Oriola vann silfur verðlaun í skylmingum í London og gullverðlaun í sömu grein bæði í Helsinki og í Melbourne. 500 millj. manna sjá OL dagskrár í sjónvarpi CNDIRBÚNINGUR fyrir Olym- píuleikana í Mexico er nú kominn á lokastig. Lokið er einni æfingu (af fjórum ráðgerðum) á setn- ingarathöfninni, sem ævinlega hefur þótt einn af hápunktum hverra leika. Stöðugt fjölgar þeim löndum, sem beðið hafa um fyrirgreiðslu á sjónvarpsefni frá leilkunum og hafa þegar sex af stærstu alþjóð legu sjónvairpssamsteypunum þeg ar tryggt sér beina útsendingu og ná sendiragar þeixra til allra heimshluta. ísland er meðal 46 landa, sem þegar hafa tryggt sér sýningar- rétt á efni frá Qlympíiuleikunum og yfir standa sammingar við fuill trúa 17 annarra lamda. Að sjálf- sögðu verða sjónvarpsdagskrár frá leiikunum mismiunandi viða- miklar í hverju landi, suimax bein ar aðrar eftir á. En þessi fjöldi landa sam tryggt hafa sér sýningarétt er só rniesti sem um getur í sam- bandi við olympiskt efni. Mexico mun því óhjákvæmilega verða það landið sem mest og bezt hef ur verið kynnt í sjónvairpsstöðv um nm heiminn, og er svo sagt í fréttatiikynningiu frá Mexico að yfir 500 mi/lljónir mamna imuni fylgjast með þessum sjónvarps- sendingum. IVieistaramót Reykjavík- ur í frjálsum 8. og 9. ágúst MEISTARAMÓT Reykjavíkur í frjálsum íþróttum fer fram á íþróttaleikvangi Reykjavíkur- borgar í Laugardal dagana 8. og 9. ágúst 1968. Keppt verður þessum grein- um: Fyrri dagur: Karlar: 200 m hlaup, 800 m hlaup, 5000 m hlaup, 400 m grindahlaup, hástökk, langstökk, kúluvarp ,spjótkast, 4x100 m boðhlaup. Konur: 100 m hlaup, hástökk, kúluvarp, kringlukast, 80 m grindahiaup. Seinni dagur: Karlar: 100 m hlaup, 400 m hlaup, 1500 m hlaup, 110 m grindahlaup, stangarstökk, þrí- stökk, kringiukast, sleggjukast, 4x400 m boðhlaup. Konur: 200 m hlaup, lang- stökk, spjótkast, 4x100 m boð- hlaup. Mótið er stigakeppni milli Reykjavíkurfélaganna, og eru reiknuð stig af 6 fyrstu mönn- um og sveitum í hverri grein. Hverjum þátttakanda er aðeiins heimil þátttaka í 3 greinum 'hvorn keppnisdag auk boð hlaups. Þátttökutilkynningum ska skila til Einars Frímannssonar co. Samvinnutryggingar, Reykjj vík, þriðjudaginn 6. ágúst. 2 heimsmet í sundi TVÖ heimsmet voru sett sl. fimmtudag á sundmóti i Lin- :oIn, Nebraska, Bandaríkjun- um .Bæði metin voru sett í iömu grein, 400 m frjáls að- ferð. 1 karlagreininni synti Kanadamaðurinn Rarph Hutt an á 4:06,5 mín og Mike Burton (USA) synti einnig undir heimsmetstíma. Burton Fékk tímann 4:06,6. Mark Spitz (USA) átti eldra metið, 1:07,8 mín. Þá synti banda- ríska skólastúlkan Debbie Meyer á 4:26,7 mín og bætti útt eigið heimsmet um rúm- ar 2 sek. Enska knattspyrnan er nú að hefjast aftur eftir 3ja mánaða hvíld. Deildaikeppnm hefst laug- ardaginn 10. ágúst í öllum deild- um, en í dag werða allmargir „ upphitunarleikir “. Allmörg ensku félaganna leggja leið sína til Skotlands til að kljást við skozku fyrstu deildina og má nefna leiki eins og Celtic - Leeds, Rangers, Arsenal, Dundee - Q.P.R., Hibernian - Newcastle og Aberdeen - Black- pool. Þess er vert að minnast að Leeds lék þrisvar sinnum í Skot- landi s.l. leikár og tapaði ekki en vann heldur ekki leik, gerðu jafntefli við Rangers, Dundee og Hibemian. Aðalleikurinn í dag verður þó milli deildameistar- anna Manchester City og bikar- meistaranna West Bromwich Al- bion. í þessum árlega leik er leikið um forkunnarfagran far- and-skjöld úr skíra gulli. f fyrra varð jafntefli í þessum leik milli Manchester United og Tottinham, 3 — 3 og skoraði markvörður Tottenham, Jenn- ings, eitt markanna hjá Manch- ester Utd. Bobby Charlton vinsælastur BOBBY CHARLTON (Manchest er Utd.) hefur verið kjörinn vin sælasti leikmaður Englands af lesendum enska knattspyrnu- tímaritsins „Football Monthly". Oharlton hlaut 986 atkv., og George Best (Mancihester Utd.) var í öðru sæti með 907 atkv. Alan Ball (Everton) fékk 814, Jeff Astle (West Brom.) 736, Brian Labone (Everton) 720, Martin Peters (West Ham) 683, Colin Bell (Manchester City) 669, Charlie Cooke (Chelsea) 630, Norman Hunter (Leeds) 603 og í tiunda sæti er Rodney Marsh (Q.P.R.). Allir þessir tíu efstu eru sókn arleikmenn, nema Labone og Hunter. Fjórar af stjörnunum sem verða heiðurgestir í Mexico. Dawn Frazer, Emil Zatopek og Dana kona hans og Vladimir Kutz. Tólf frægar Olympíustjörn- ur heiiursgestir í Mexico Ensk „knattspyrnu-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.