Morgunblaðið - 03.08.1968, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1968
— Snæfellsnes
Framhald af bis. 13
felldur, óyfirstíganlegur veggur,
en þegar nær dregur fjöllunum
sést hvernig þau greinast í sund
ur af djúpum skörðum og er tal-
ið að 7 leiðir séu færar yfir
hann austan frá Kerlingarskarði
og vestur að Jökli, en aðeins
tvær þeirra færar bílum. Hinar
leiðirnar fimm eru mjög sjald-
farnar nú orðið nema af leitar-
mönnum. Af leiðum þessum má
nefna Arnardalsskarð milli Stað
arsveitar og Grundarfjarðar, er
hún ekki ýkja löng en ærið brött
og torsótt enda er háskarðið í
um það bil 700 metra hæð en
heyrt hef ég að útsýni þaðan sé
undra fagurt.
Vestan við Lýsuhyrnu hefur
hraun fossað fram af fjallsbrún-
inni og niður á jafnsléttu. Heit-
ir það Bláfeldarhraun og standa
bæir samnefndir í jaðri þess.
Þegar enn vestar dregur blasir
við nes eitt breitt og mikið um
sig, er það þakið hrauni og
stendur bungumyndaður hóll
upp úr því miðju. Er það hið al-
kunna Búðahraun og Búðaklett-
ur, sem það hefur runnið frá.
Hér er mikil litadýrð og fjöl-
breytt náttúrufegurð, en ótaldir
eru þeir listmálarar, sem hafa
frestað þess að festa á léreftið
það, sem auganu mætir.
Ofan við hraunið, skammt frá
bænum Oxl, sem stendur undir
Axlarhyrnu, greinist vegurinn í
þrennt: áfram vestur eftir nes-
inu, norður yfir Fróðárheiði og
síðan liggur afleggjari niður að
Búðum, og er það vestasta býlið
í sveitinni.
Á Búðum er gott að eiga næt-
urstað. Hvorttveggja er að þar
er starfrækt veitinga- og gisti-
hús yfir sumartímann og að öðru
leyti má finna þar góð tjald-
stæði fyrir þá, sem þess óska.
Staðurinn hefur upp á fjölmargt
að bjóða, sem ferðafólki fellur 1
geð og þar er hægt að una svo
dögum skiptir.
Búðahraun er alkunnugt fyrir
fjölbreyttan og þroskamikinn
gróður, enda eru góð vaxtarskil-
yrði í djúpum, hlýjum hraunboll
unum. Sagt er að af 16 tegund-
um íslenzkra burkna hafi fund-
izt 11 tegundir í Búðahrauni, en
hátt upp í 150 tegundir jurta
munu alls hafa fundizt þar. í
Búðahrauni eru nokkrir hellar,
meðal þeirra Búðahellir í Búða-
kletti og Þjóðólfshellir. Um
hraunið liggja víða troðnir götu-
slóðar þar á meðal svokölluð
Klettsgata.
Búðir voru fyrr á öldum mik-
ið verzlunarpláss, Hraunhöfn, og
var þar um eitt skeið aðalkaup-
staðurinn á öllu Snæfellsnesi.
Staðurinn á sér því langa og
merkilega sögu, en ekki verður
hún rakin hér.
Alkirkja var reist á Búðum
eftir aldamótin 1700 á kostnað
Bents nokkurs Larsen, sem þá
var búsettur á Búðum. Var
kirkja þessi byggð úr torfi og
henni valinn staður á barmi
stórrar hraunkvosar, sem síðar
var smátt og smátt fyllt með
sandi og notuð sem kirkjugarður.
Fylgir sögunni að Guðmund-
ur skáld Bergþórsson hafi fyrst-
ur verið greftraður í þeim
kirkjugarði. Kirkja sú, sem nú er
á Búðum var byggð 1848 og stend
ur á sama stað og torfkirkjan,
sem fyrr var getið. Sagt er að
Bent Larsen hafi og látið reisa
fyrsta timburhúsið á Búðum, bú-
ið þar og kallað Bentsbæ. Er tal
ið að í því húsi hafi þau hald-
ið brúðkaup sitt Kristín Illuga-
dóttir og Sigurður skáld Breið-
fjörð __ á Grímsstöðum í Breiðu-
vík. Á veizla sú að hafa staðið í
þrjá daga samfleitt, en þrátt fyr-
ir allan þann fagnað var hjóna-
bandið úrskurðað ólögmætt og
Sigurður dæmdur fyrir tvíkvæni.
Seim fyrr var á minnzt er nátt-
úrufegurð mikil á Búðum, hvort
heldur litið er upp til landsins
eða til strandarinnar þar sem
hraunið gengur í sjó fram og
myndar skj ólsælar kvosiir og
skápa, sem þaktir eru ljósgulum
sandi í botninn. Er þar hinn á-
kjósanlegasti baðstaður þegar
vel viðrar og ferðafólk hefur
haft mikið dálæti á staðnum um
langt árabil. f júlí 1968
- Kalið
Framhald af bls. 11
Hann kvaðst ekki kominn á
þennan fund með fullan poka af
loforðum, en hinsvegar hefðu
bændur fulla samúð og skiln-
ing ríkisvaldsins. Harðindawefnd
in hefði líka verið endurvakin.
í samráði við hana hefði verið
veitt aðstoð vegna kalsins í
fyrra og sú aðstoð hefði þótt
mikils virði. Hamn kvað menn
því mundu líta svo á að með
endurskipun nefndarinnar fæl-
ust nokkur loforð. En til þess
að ríki'svaldið gæti hlaupið und-
ir bagga yrði að kanna ástand-
ið rækilega og að því væri nú
sérstakur starfsmaður að vinna
á vegum nefndarinnar.
Þá benti ráðherrann á að á-
standið á Suðurlandi hefði fram
undir síðustu daga ekki verið of
gott. En síðustu viku hefði hins
vegar brugðið mjög til batnað-
ar. Hann kvað sunnlenzka
bændur myndu heyja eins og
þeir framast gætu ekki sízt
vegna þess að þeir vissu um á-
standið á kalsvæðunum. Þá upp
lýsti hann að bústofni hefði ver
ið fækkað á ríkisbúunum og
syo myndi einnig gert í Gunn-
arsholti, enda hefði þegar ver-
ið fækkað þar. Um tilrauna
búin væri það að segja að þar
yrðu tilraunameinnirnir mestu
um að ráða. Að öðru leyti
kvaðst hainn ekki ræða tillög-
ur fundarins en kvaðst myndi
taka þær með sér og þær yrðu
athugaðar með harðærisnefnd-
iinni og fleiri yrðu teknir til
ráðuneytis til úrbóta. Um loforð
væri ekki að ræða á þessu stigi,
en ráðherrann kvaðst vilja
vitna til þess, sem áður hefði
verið gert á þessu sviðL
Þá kvað ráðherranin brýna
nauðsyn bera til þess að efla
Bjargráðasjóð, því hlutverk
hans væri að grípa inn í til
hjálpar er harðæri steðjaði að.
Taldi hann æskilegt að sjóður-
inn væri efldur í haust og vet-
ur.
Ráðherrann kvað hollt að
leita til okkar gömlu sagna þar
sem skýrt væri frá harðri bar-
áttu forfeðra okkar við hin
verstu skilyrði. Hinsvegar væru
skilyrðin nú allt önnur. Hann
kvað þann skilning eiga almennt
fylgi að samfélaginu bæri að
koma til hjálpar og grípa í
taumana, er erfiðleikar steðj
uðu að. Ef kalár kæmu hins-
vegar aftur og aftur þá væri
ekki annars kostur en skerða
stofninn. Það væri svo til at-
hugunar hvernig bregðast mætti
við þeim vanda. Hann kvað
þjóðinni dýrast ef þjóðflutning
ar hæfust Landsfjórðunga miLLi.
Við viljum ekki að heilar sveit-
ir Leggist í auðn og við munum
eftir fremstu getu sporna gegn
því, sagði ráðherrann.
Ráðherrann sagði. að jafnvel
hér á fundinum, sem fjaliaði
að mestu um kai og grasleysi
væri rætt um offramieiðsiu
iandbúnaðarvara. Kvað hann
ekki mikið upp úr því leggj andi
Neytendahópurinn hér á landi
færi sífellt staekkandi. Hann
spurði því hve langir tímar liðu
þar til ekki væri lengur um
þessa offramleiðslu að ræða.
Að síðu'stu kvaðst ráðherr-
ann vona enm að eitthvað rætt-
ist úr fyrir bændum. Með batn-
andi sprettutíð í sumar og að
lausn mætti finnast tii að bú-
skapur gæti haldist áfram,
þrátt fyrir þessi áföll, sem nú
hefðu orðið í annars búsældar-
legum sveitum.
Mikilsverður lærdómur.
Þamnig standa málin því í dag
Við skulum vona að menn hafi
mikið af þessu kalári lært. Við
skulum vona að stórauknu fé
verði varið til tilraunastarfsemi
í stað óraunhæfra framkvæmda.
Við skulum vona að Kjarminn
verðí bættur, áburðarverzlunin
lagfærð og Áburðarverksmiðj-
an efld á réttan hátt.
En kannske eigum við órann-
sakað merkilegasta rannsóknar
efnið en það er: Hvernig stend
ur á því að sumstaðar kelur
aldrei og sum tún gefa ávalt
góðan ávöxt? Við einbeitum öll
um kröftum okkar til að
bæta úr hjá þeim sem skyss-
ur hafa gert, annað hvort
vitandi eða óvitamdi. En
hvar liggja fyrir rannsóknir
á hvernig stendur á því að
sumir bændur skara fram úr,
og hjá þeim eru næsta litlar
skemmdir, þótt allt sé kaiiS 1
kring?
Við skulum að síðustu vona
að raunhæft mat verði lagt á
hlutina, fyrirhyggja og hagræð
ing látin ganga fyrir kröfunum,
og hleypidómar og uppgjafar-
tónn látinn lönd og leið.
Vignir Gnffmundsson.
Seljum næstu daga
nokkrai hillur úr
mjög fallegu tekki.
TRÉTÆKNI sf.
Skúlagötu 55.
NYTT
Það þarf ekki lengur aff
fínpússa eða mála loft
og veggi ef þér notið
Somvyl.
Litaver
Grensásvegi 22—24.
- NYTT
Somvyl veggklæðning.
Somvyl þekur ójöfnur.
Somvyl er auðvelt að þvo.
Somn'yl gerir herbergið
hlýlegt.
Somvyl er hita- og hljóð-
einangrandi.
Það er hagkvæmt
að nota Somvyl.
Á lager hjá okkur
í mörgum litum.
Klæðning hf.
Laugavegi 164.
Sumarhátíðin
í Húsafellsskógi
um verzlunarmannahelgina
HLJÚMAR - ORION
og Sigrún Harðardóttir
Skafti og Jóhannes. — Dans á 3 stöðum — 6 hljómsv.
Táningahljómsveitiit 1968. — Hljómsveitasamkeppni.
Skemmtiatriði: Leikþættir úr „Pilti og stúlku“ og úr
„Hraðar hendur“.
Alii Rúts — Gunnar og Bessi — RÍÓ-tríó — Bítlahljóm
lcikar. — Ómar Ragnarsson.
Þjóðdansa- og þjóðhúningasýning — glímusýning —
kvikmyndasýning.
Keppt verður í knattspyrnu, frjálsíþróttum, glímu,
körfuknattleik, handknattleik. — Fimleikasýning.
Unglinga- og fjölskyldutjjaldbúðir
Bílastœði við hvert tjald
Kynnir Jón Múli Árnason
Verð aðgöngumiða kr. 300,00 fyrir fullorðna, kr. 200,00
fyrir 14—16 ára og 13 ára og yngri ókeypis í fylgd með
foreldrum sínum. — Gildir að öllum skemmtiatriðum.
Sumarhátíðin er skemmtun
fyrir aflla
U. M. S. B. Æ. M. B.
Ágústa Björnsdóttir
Aðstoðoiyliiljósmóðu
Staða aðstoðaryfirljósmóður í Fæðingardeiid Lands-
spítalans er laus til umsóknar frá 1. október 1968.
Laun samkvæmt úrskurði Kjaradóms.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf sendist stjórnarnefnd ríkisspítalanna, Klapp
arstíg 29, fyrir 7. september n.k.
Reykjavík, 1. ágúst 1968.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
allar byggingavörur á einum stað
Lokað allan
daginn 3. úgúst
BYGGIIMGAVÖRUVERZLUIM
^<7 KÖPAV0GS • SíiVtl 41010